DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3300.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 203-34
DROPS Design: Mynstur ee-683
Garnflokkur E eða C + C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
35/37 – 38/40 – 41/43
Lengd fótar ca: 22-24-27 cm

EFNI:
DROPS SNOW frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
300-350-350 g litur 66, sægrænn

PRJÓNFESTA:
13 lykkjur á breidd og 17 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
13 lykkjur á breidd og 26 umferðir á hæð með garðaprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 6: lengd 40 cm eða 60 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3300.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TÁTLIJA:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón ofan frá og niður. Fyrst er stroffið prjónað, síðan fóturinn.

STROFF / LEGGUR:
Fitjið upp 50-50-58 lykkjur á hringprjón með Snow.
Prjónið frá röngu þannig: 1 lykkja garðaprjón, stroff með 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið þar til 1 lykkja er eftir og prjónið 1 lykkju garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist ca 12 cm og næsta umferð er frá réttu (= umferð sem byrjar með 1 lykkju garðaprjón og 2 lykkjur brugðið).
Prjónið frá réttu þannig: 3 lykkjur garðaprjón, 2 lykkjur saman, 2 lykkjur garðaprjón, 2 lykkjur saman, 4-4-8 lykkjur garðaprjón, A.1 er prjónað yfir 7 lykkjur, A.2a er prjónað yfir 10 lykkjur, A.3 er prjónað yfir 7 lykkjur, 4-4-8 lykkjur garðaprjón, 2 lykkjur saman, 2 lykkjur garðaprjón, 2 lykkjur saman og endið með 3 lykkjur garðaprjón = 51-51-59 lykkjur með 5 uppsláttum meðtöldum í A.2a.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Í næstu umferð frá röngu er haldið áfram í garðaprjóni, A.1 og A.3 en prjónið A.2b (= 15 lykkjur) yfir A.2a. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 26 cm, stillið af þannig að næsta umferð sé frá réttu. Klippið frá, setjið ystu 17-17-21 lykkjur í hvorri hlið á sitt hvorn þráðinn.

FÓTUR:
Prjónið nú áfram yfir 17 lykkjur sem eru á prjóni (= efri hlið á fæti), byrjið frá réttu með því að fitja upp 1 nýja lykkju á prjóninn, prjónið 1 lykkju brugðið, A.2b yfir 15 lykkjur, prjónið 1 lykkju brugðið og fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar = 19-19-19 lykkjur. Haldið áfram með mynstur A.2b eins og áður með 2 lykkjum brugðið yst í hvorri hlið þar til stykkið mælist 9-10-11 cm frá skiptingu, stillið af að næsta umferð sé frá réttu. Prjónið 1 lykkju slétt og prjónið síðan þær lykkjur sem eftir eru 2 og 2 slétt saman = 10-10-10 lykkjur. Klippið frá.
Setjið til baka 17-17-21 lykkjur af þráðum á prjóninn, setjið þær sitt hvoru megin við lykkjur sem eru á prjóni. Prjónið frá réttu þannig: Prjónið fyrstu 17-17-21 lykkjur slétt, prjónið upp 12-14-16 lykkjur meðfram efri hlið, prjónið 10-10-10 lykkjur slétt (ystu á efri hlið), prjónið upp 12-14-16 lykkjur meðfram efri hlið og prjónið 17-17-21 lykkjur slétt = 68-72-84 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu.
Prjónið nú áfram í garðaprjóni og fækkið lykkjum til að forma fótinn. Setjið eitt prjónamerki til að auðveldara sé að sjá hvar miðjan á stykkinu er, setjið prjónamerkið þannig að það séu 34-36-42 lykkjur hvoru megin við prjónamerkið.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu, JAFNFRAMT er fækkað um 8 lykkjur jafnt yfir (skiptið þeim þannig að það sé fækkað um 4 lykkjur jafnt yfir hvoru megin við prjónamerki) = 60-64-76 lykkjur.
Prjónið garðaprjón yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 2-3-2 cm (þ.e.a.s. 4-6-4 umferðir garðaprjón) frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp.
Fækkið lykkjum frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman hvoru megin við miðju 6 lykkjur (= 2 lykkjur færri), fækkið lykkjum svona í hverri umferð frá réttu alls 2 sinnum = 56-60-72 lykkjur.
Fækkið lykkjum frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman hvoru megin við miðju 4 lykkjur (= 2 lykkjur færri), fækkið lykkjum í hverri umferð frá réttu alls 2-3-4 sinnum = 52-54-64 lykkjur.
Fækkið lykkjum frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman hvoru megin við prjónamerkið (= 2 lykkjur færri), fækkið lykkjum í hverri umferð frá réttu alls 2 sinnum = 48-50-60 lykkjur.

AFFELLING:
Fellið af frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman 2 sinnum, síðan er fyrsta af þessum lykkjum sem prjónaðar voru saman lyft yfir hinar (= 3 lykkjur færri). Haldið áfram með að fella af með sléttum lykkjum yfir hinar lykkjurnar þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman 2 sinnum, síðan er fyrsta af þessum lykkjum sem prjónaðar eru saman lyft yfir hinar. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum síðustu lykkjuna.

Prjónið aðra tátilju á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Brjótið tátiljuna saman tvöfalda þannig að hún sé flöt. Saumið í ystu lykkjubogana meðfram affellingarkanti mitt undir fæti. Saumið síðan áfram upp yfir hælinn og stroffið. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu

symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt
symbols = setjið 5 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 5 lykkjur slétt og prjónið 5 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 5 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 5 lykkjur slétt og prjónið 5 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 203-34

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (12)

country flag Kathy Watson wrote:

I am having a difficulty with the pattern A.2a portion. On the mountain meanderings slippers..please be more specific on it. Maybe a video tutorial?

02.03.2024 - 04:16

DROPS Design answered:

Dear Kathy, in A.2a you have a knit row, which includes 5 yarn overs. You work the rest of the charts as indicated and, when working A.2a, simply knit all stitches and increase where indicated. Since it's only 1 row, on the next row you will work A.2b over these stitches instead of repeating A.2a. Happy knitting!

03.03.2024 - 19:35

country flag Poinsot Annie wrote:

Bonjour pour le modèle Mauntain 203 34 pour rabattre 2/ 2 mailles et passer par dessus la maille j'ai compris mais la suite du rang. ,je sèche .

29.01.2023 - 11:18

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Poinsot, vous en êtes à la toute fin, exact? Pour rabattre les mailles procédez ainsi: tricotez 2 m ens à l'end, tricotez encore 1 fois 2 m ens à l'end, passez la 1ère m par-dessus la 2ème maille (vous avez d'abord diminué 2 fois 1 m, puis vous rabattez la 1ère m par-dessus la 2ème m), rabattez les mailles suivantes à l'endroit et terminez les 4 dernières mailles comme au début: tricotez 2 m ens à l'end, encore 1 fois 2 m ens à l'end, passez la 1ère de ces m par-dessus la 2ème. Bon tricot!

30.01.2023 - 09:20

country flag Poinsot Annie wrote:

Bonjour je voudrais juste savoir pour pour le à 2 après les jetés du premier rang ,je tricoté comment ensuite merci

16.01.2023 - 16:03

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Poinsot, les jetés de A.2a se tricotent torse à l'envers sur l'envers au 1er rang de A.2b. Bon tricot!

16.01.2023 - 16:55

country flag Brunet Cathy wrote:

Je viens de faire un essai je terminé mon rang avec 2 mailles envers une maille endroit donc au rang suivant je commence forcemwnt oar 1m lisiere et 2 endroit et non 2 env il y a un souci dans vos explications

13.01.2023 - 11:08

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Brunet, tricotez vos 50 ou 58 mailles ainsi, vu sur l'envers: 1 m lis au point mousse, (2 m end, 2 m env) x 12 ou 14 fois, 1 m lis au point mousse, soit 1+ 48-56+ 1 =50-58 mailles. Ainsi, vu sur l'endroit, les côtes commencent par 2 m end après la maille lisière, et se terminent par 2 m env avant la m lisère à la fin du rang. Bon tricot!

13.01.2023 - 15:32

country flag Brunet Cathy wrote:

Je viens de faire un essai je terminé mon rang avec 2 mailles envers une maille endroit donc au rang suivant je commence forcemwnt oar 1m lisiere et 2 endroit et non 2 env il y a un souci dans vos explications

13.01.2023 - 10:51

country flag Brunet Cathy wrote:

Bonjour Quel diference entre 1 maille point mousse et 1 naille endroit svp? Et apres kes 12 cm je suis sur l endroit nausée pas avec 2 maille envers je duis avec 2 maille endroit je be comprends pas merci

13.01.2023 - 10:33

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Brunet, 1 m point mousse se tricote à l'endroit sur l'endroit et sur l'envers; 1 m endroit des côtes va se tricoter à l'envers sur l'envers et à l'endroit sur l'endroit. Attention, le tout premier rang se tricote sur l'envers, en commençant par 2 m end (après la m lisière), autrement dit, vu sur l'endroit, les côtes commenceront par 2 m end (après la m lisière). Bon tricot!

13.01.2023 - 15:33

country flag Ginette Poirier wrote:

Après les 12 cm de côtes, sur un rang end, mon tricot commence par 1 m pt mousse et 2 m end ,et non pas par 2 m env, comme le patron l’indique. Quand je regarde le rang envers, c’est la même chose, ça commence par 2 m end. J’ai monté 50 m. Aurais-je dû faire 2 m env, 2 m end au début des côtes?

12.10.2022 - 20:41

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Poirier, le 1er rang des côtes se tricote sur l'envers en commençant par 2 mailles endroit après 1 maille point mousse, autrement dit, le 1er rang des côtes sur l'endroit va commencer par 2 mailles envers après 1 maille point mousse. Bon tricot!

13.10.2022 - 09:14

country flag Rebecca Sandström wrote:

Jag blir inte riktigt klok på detta mönster... Arbetet ska ju stickas så mönstren stickas "på varandra": A1 på A1, A3 på A3 och A2a på A2b . Men hur blir det på den räta sidan (efter att jag stickat ett varv rätt och ett varv avigt)? Då har ju A2b stickats med 15 maskor men sedan på den räta sidan så ska A2a stickas ovanpå trots att enbart är 10 maskor som stickas (omslagen räknas ju först som en maska som stickas på nästa varv, den aviga sidan). Tack på förhand!

30.12.2020 - 21:54

DROPS Design answered:

Hej Rebecca, nej du börjar med A.1, sedan A.2a, A.3. När du har ökat enligt A.2a (från 10 till 15 m) fortsätter du med A.2b. men fortfarande A.1 och A.3 på varje sida om flätan :)

14.01.2021 - 12:55

country flag Sigrid Philippsen wrote:

Danke für die tolle Anleitung! Ist super geworden.

24.12.2020 - 09:40

country flag Stine Åsheim wrote:

Men man legger opp 50 masker når man starter prosjektet, og etter man har strikket den første runden på rettsiden med kastene skal man sitte igjen med 51 masker inkludert kastene. Men den neste runden fra vrangen krever vel 55 masker?

26.11.2020 - 08:47

DROPS Design answered:

Hej Stine. Nej neste runden krever kun 51 masker. Du startar med 50 m, sedan på förste runden felles 4 m (du stickar 2 m sammen 4 gånger) och det ökas 5 (genom kasten i A.2a) så efter första rundan sitter du igjen med 51 masker. Du har sedan 51 masker helt fram till du delar arbetet och stickar vidare under "FOTEN". Du stickar rille där du tidigare stickat rille (inkl. där du stickade 2 m sammen), A.1 over A.1, A.3 over A.3 och A.2b over A.2a. Mvh DROPS Design

26.11.2020 - 10:55