DROPS Andes
DROPS Andes
65% Ull, 35% Alpakka
frá 1408.00 kr /100g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5632.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Children 35-11
DROPS Design: Mynstur an-005-bn
Garnflokkur E + E eða F
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
Alpacka er ca 50 cm á hæð og ca 25 cm á lengd.

EFNI:
DROPS ANDES frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
400 g litur 4276, púðurbleikur
Eða notið:
DROPS SNOW frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
400 g litur 13, púður

Fyrir nef og munn notið:
Afgang af dökk grár.

Og notið í teppið:
Teppið er heklað með 2 þráðum Andes eða Snow úr afgangi af 10 mismunandi litum, hver þráður er ca 4 metrar (= 2 þræðir af 4 metrum í hverjum lit).
Dæmi um litasamsetningu 1, úr Andes:
3755 kirsuberjarauður
0100 natur
7820 grænn
6295 gallabuxnablár
8903 svartur
3410 ametist
3755 kirsuberjarauður
7320 pistasía
7130 sægrænn
0100 natur

Dæmi um litasamsetningu 2, úr Andes:
3755 kirsuberjarauður
3145 púðurbleikur
3620 jólarauður
5610 brúnn
5310 ljós brúnn
3755 kirsuberjarauður
3145 púðurbleikur
5610 brúnn
3620 jólarauður
3740 kórall

Og notið í húfu:
DROPS ANDES (frá garnstudio – tilheyrir garnflokki E)
ca 40 g, 3620 jólarauður
6 þræðir af afgangs garni mismunandi litum ca 20 cm af hverjum lit – fyrir kögur.

HEKLFESTA:
8fastalykkjur á breidd og 10 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 8.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Andes
DROPS Andes
65% Ull, 35% Alpakka
frá 1408.00 kr /100g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5632.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR-1:
Umferðin er hekluð án skiptingar (eða eins og spírall). Þ.e.a.s: Heklað er í hring án þess að enda, það er prjónamerki sem sýnir hvar umferðin byrjar og endar – það er því engin keðjulykkja sem er hekluð í lok hverrar umferðar.

HEKLAÐ SAMAN-1:
4 STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN Í 1 STUÐUL ÞANNIG:
* Bregðið bandinu 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* 3 sinnum til viðbótar, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 5 lykkjurnar á heklunálinni (= 3 stuðlar færri).

HEKLAÐ SAMAN-2:
2 FASTALYKKJUR HEKLAÐAR SAMAN Í 1 FASTALYKKJU ÞANNIG:
* Stingið heklunálinni í næstu lykkju, sækið þráðinn *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (1 fastalykkja færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

ALPACKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað með tveimur þráðum. Stykkið er heklað í hring ofan frá höfði og niður, síðan er fitjað upp fyrir búk og heklað er niður í átt að fótum. Í lokin er Alpacka fylltur með vatti og saumað er saman undir maga, toppurinn á höfði e síðan heklaður saman jafnframt því sem eyrun eru hekluð.

HÖFUÐ / BÚKUR:
Heklið 19 loftlykkjur með heklunál 8 og 2 þráðum með lit á Alpacka.
UMFERÐ 1: Heklið þessa umferð í hring með því að hekla 2 fastalykkjur í fyrstu hekluðu loftlykkjuna og síðan er hekluð 1 fastalykkja í hverja loftlykkju = 20 fastalykkjur í umferð. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð – sjá HEKLLEIÐBEININGAR-1 í útskýringu að ofan.
UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju.
UMFERÐ 3: Heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 3 lykkjum, 1 hálfur stuðull í næstu lykkju, 2 stuðlar og 1 tvíbrugðinn stuðull í næstu lykkju, 1 tvíbrugðinn stuðull og 2 stuðlar í næstu lykkju, 1 hálfur stuðull í næstu lykkju, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja af næstu 13 lykkjum – nú hafa verið auknar út 4 lykkjur fyrir nef = 24 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 3: Heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 3 lykkjum, 1 hálfur stuðull í næstu lykkju, 2 stuðlar og 1 tvíbrugðinn stuðull í næstu lykkju, 1 tvíbrugðinn stuðull og 2 stuðlar í næstu lykkju, 1 hálfur stuðull í næstu lykkju, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja af næstu 13 lykkjum – nú hafa verið auknar út 4 lykkjur fyrir nef = 24 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 4 og 5: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
UMFERÐ 6: Heklið 4 fastalykkjur í hverja lykkju, næstu 4 lykkjurnar eru heklaðar saman í 1 lykkju sjá HEKLAÐ SAMAN-1 í útskýringu að ofan, næstu 4 lykkjurnar eru heklaðar saman í 1 lykkju sjá HEKLAÐ SAMAN-1 í útskýringu að ofan, heklið síðan 12 fastalykkjur í hverja lykkju – nú hefur verið fækkað um 6 lykkjur fyrir nefi = 18 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 7-18: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju (= háls).
UMFERÐ 19: Heklið 17 nýjar loftlykkjur, snúið stykkinu og heklið til baka í þessar loftlykkjur þannig: Í 2. lykkju frá heklunálinni eru heklaðir 2 fastalykkjur, 2 fastalykkjur í hverja af næstu 2 fastalykkjum (= dindill) – Nú eru eftir 13 loftlykkjur.
Heklið 1 fastalykkju í hverja loftlykkju og síðan eru heklaðar 18 fastalykkjur í kringum hálsinn, síðan er heklað áfram fastalykkjur að dindli í sömu loftlykkjuröð en á gagnstæðri hlið þannig: 1 fastalykkja í hverja og eina af 13 loftlykkjum að dindli. Umferðin byrjar og endar undir dindil og það eru 44 lykkjur í kringum búk.
UMFERÐ 20: Lyftið dindlinum þannig að hægt sé að hekla búkinn í hring. Byrjið með að hekla 1 fastalykkju í kringum allan búkinn.
UMFERÐ 21 til 32: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju = alls13 umferðir fyrir búk.
Nú eru fæturnir heklaðir á alpakkann, byrjið við miðju að aftan.

FYRSTI FÓTUR = HÆGRI AFTURFÓTUR:
UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í hverja af 9 fyrstu lykkjunum, heklið 9 loftlykkjur.
UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í fyrstu af 9 fastalykkjum, nú hefur myndast hringur og stykkið heldur áfram í hring með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju og 1 fastalykkju í hverja loftlykkju = 18 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð.
UMFERÐ 3 til 4: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju.
UMFERÐ 5: Heklið nú allar lykkjur saman 2 og 2 – sjá HEKLAÐ SAMAN-2 í útskýringu að ofan = 9 fastalykkjur í umferð.
UMFERÐ 6 og 12: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju. Klippið frá. Brjótið hringinn saman flatan og saumið gatið saman þannig að fóturinn verði flatur og breiður í sömu átt og búkurinn.

ANNAR FÓTUR = HÆGRI FRAMFÓTUR:
Hoppið yfir 4 lykkjur (= mitt undir maga)
UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í hverja af fremstu 9 lykkjunum á hægri hlið á búk og heklið síðan 9 loftlykkjur.
UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í fyrstu af 9 fastalykkjum, nú hefur myndast hringur og stykkið heldur áfram í hring með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju og 1 fastalykkju í hverja loftlykkju = 18 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð.
UMFERÐ 3 til 4: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju.
UMFERÐ 5: Heklið nú allar lykkjur saman 2 og 2 – sjá HEKLAÐ SAMAN-2 í útskýringu að ofan = 9 fastalykkjur í umferð.
UMFERÐ 6 og 7: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju. Klippið frá. Brjótið hringinn saman flatan og saumið gatið saman þannig að fóturinn verði flatur og breiður í sömu átt og búkurinn.

ÞRIÐJI FÓTUR = VINSTRI FRAMFÓTUR:
UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í hverja af 9 fremstu lykkjunum á vinstri hlið á búk, heklið 9 loftlykkjur.
UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í fyrstu af 9 fastalykkjum, nú hefur myndast hringur og stykkið heldur áfram í hring með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju og 1 fastalykkju í hverja loftlykkju = 18 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð.
UMFERÐ 3 til 4: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju.
UMFERÐ 5: Heklið nú allar lykkjur saman 2 og 2 – sjá HEKLAÐ SAMAN-2 í útskýringu að ofan = 9 fastalykkjur í umferð.
UMFERÐ 6 og 12: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju. Klippið frá. Brjótið hringinn saman flatan og saumið gatið saman þannig að fóturinn verði flatur og breiður í sömu átt og búkurinn.

FJÓRÐI FÓTUR = VINSTRI AFTURFÓTUR:
Hoppið yfir 4 lykkjur (= mitt undir maga)
UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í hverja af síðustu 9 lykkjunum alveg aftast á vinstri hlið á búk og heklið síðan 9 loftlykkjur.
UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í fyrstu af 9 fastalykkjum, nú hefur myndast hringur og stykkið heldur áfram í hring með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju og 1 fastalykkju í hverja loftlykkju = 18 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð.
UMFERÐ 3 til 4: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju.
UMFERÐ 5: Heklið nú allar lykkjur saman 2 og 2 – sjá HEKLAÐ SAMAN-2 í útskýringu að ofan = 9 fastalykkjur í umferð.
UMFERÐ 6 og 7: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju. Klippið frá. Brjótið hringinn saman flatan og saumið gatið saman þannig að fóturinn verði flatur og breiður í sömu átt og búkurinn.

FRÁGANGUR:
Saumið nú augu í Alpacka, nef og munn með tvöföldum þræði í litnum dökk grár – sjá e.t.v. mynd til að sjá staðsetningu og form.
Fyllið síðan Alpacka með vatti og búkurinn er saumaður saman mitt undir maga. Fyllið höfuðið og nefið með vatti.
Brjótið uppá gatið á toppnum á höfði flatt saman með andlitið fram. Heklið síðustu umferðina þar sem höfuðið er heklað saman og heklað er eitt eyra í byrjun og lokin þannig:
Byrjið í fyrstu lykkjunni í hægri hlið: Í sömu lykkju eru heklaðar 4 loftlykkjur, 2 tvíbrugðnir stuðlar, 4 loftlykkjur, 1 keðjulykkja = 1 eyra.
Heklið síðan gatið á toppnum á höfði saman þannig:
Heklið fastalykkjur í gegnum bæði lögin á flata hringnum, 1 lykkja í hverja lykkju fram að og með næst síðustu lykkjunni.
Í síðustu lykkjuna er heklað hitt eyrað þannig: 4 loftlykkjur, 2 tvíbrugðnir stuðlar, 4 loftlykkjur, 1 keðjulykkja. Klippið frá og festið enda.
Hnýtið smá hár á toppinn á höfðinu með tvöföldum hnútum.

TEPPI:
Teppið er heklað fram og til baka með 2 þráðum og fastalykkjum – í hverri umferð með sitt hverjum litnum – látið vera eftir ca 10 cm þráð sem hangir út fyrir kögur í hvorum enda.
Heklið 20 loftlykkjur með litur 1, * skiptið yfir í næsta lit, snúið stykkinu, heklið 1 umferð fastalykkjur með 1 lykkju í hverja lykkju, * endurtakið frá *-* þar til heklaðar hafa verið alls 10 umferðir. Teppið verður að vera heklað með jöfnum fjölda lykkja til að hægt sé að hnýta hnútana á hvorum enda 2 og 2 saman í kögur. Klippið kögrið til þannig að það verði 1 cm langt.

HÚFA:
Húfan er hekluð úr 2 þráðum í hring, ofan frá og niður – sjá HEKLLEIÐBEININGAR-1. Heklið 4 loftlykkjur með 2 þráðum í litnum jólarauður og tengið í hring með einni keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið 1 loftlykkju og 5 fastalykkjur um loftlykkjuhriginn (= 6 lykkjur). Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð og látið þetta prjónamerki fylgja með í stykkinu. Heklið síðan þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 2 fastalykkjur í fyrstu lykkju, * heklið 1 fastalykkju í næstu lykkju, heklið 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* út umferðina = 9 fastalykkjur.
UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju í umferð.
UMFERÐ 3: * Heklið 2 fastalykkjur í næstu lykkju, heklið 1 fastalykkju í næstu 2 lykkjur * endurtakið frá *-* út umferðina = 12 fastalykkjur.
UMFERÐ 4: Heklið eins og umferð 2.
UMFERÐ 5: * Heklið 2 fastalykkjur í næstu lykkju, heklið 1 fastalykkju í næstu 2 lykkjurnar * endurtakið frá *-* út umferðina = 16 fastalykkjur.
UMFERÐ 6: Heklið eins og umferð 2.
Síðasta umferðin er hekluð þannig: Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 4 lykkjum. Nú er heklaður eyrnaleppur þannig: Heklið 6 loftlykkjur, í 3. loftlykkju er heklað 1 hálfur stuðull + 1 stuðull. Heklið 3 loftlykkjur. Haldið áfram að heklað 1 fastalykkju í hverja af næstu 8 lykkjum, heklið hinn eyrnaleppinn þannig: Heklið 6 loftlykkjur, í 3. loftlykkju er heklaður 1 hálfur stuðull + 1 stuðull. Heklið 3 loftlykkjur og heklið 1 fastaalykkju í hverja af síðustu 4 lykkjum. Festið umferð með einni keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð, klippið frá og festið enda.
Kögur. Notið afgangs garn í mismunandi litum. Setjið 6 þræði ca 15-20 cm saman og hnýtið þá saman í enda á hvorum eyrnalepp.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Here's Roger!

Maria, Italy

DROPS Alpaca

Weronika, Poland

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 35-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (5)

country flag Arianne wrote:

Bij de instructies staat drops andes, dubbele draad en haaknaald 8. Maar het label van drops andes zegt haaknaald 9 (enkele draad). Kloppen de instructies wel? Wat is de juiste haaknaald en haren?

06.10.2020 - 16:41

DROPS Design answered:

Dag Arianne,

Het kan inderdaad zo zijn dat de stekenverhouding in het patroon anders is dan wat op het label staat. In dit geval moet je met een dunnere haaknaald haken omdat het werk dan strakker wordt, wat een mooier resultaat geeft bij dit patroon. Het gaat erom dat de stekenverhouding uit het patroon klopt end dat je daar een juiste naalddikte bij zoekt. Maak dus altijd even een proeflapje en pas evt. de naalddikte aan.

10.10.2020 - 11:22

country flag Helena wrote:

Bonjour, je vous envoie un petit message car je me demande si il faut doubler la laine pour l\'échantillon ? Mon échantillon est très loin du compte et cela me met le doute. Merci beaucoup.

30.08.2020 - 11:32

DROPS Design answered:

Bonjour Héléna, seule la couverture se crochète avec 2 fils Andes ou Eskimo, le lama se crochète avec 1 seul fil Andes ou Eskimo - plus d'infos sur l'échantillon ici. Bon crochet!

31.08.2020 - 10:30

country flag Kerstin Pauly wrote:

Ich bitte um Erlaubnis a) die Anleitung für die Gruppe Nadelspiel Krefeld-Linn mehrfach zu drucken b) die Produkte auf jedem Wege uz Gunsten des Krefelder Zoos zu verkaufen c) auf die Nennung der Quelle beim Tier zu verzichten d) jegliche Wolle zu nutzen e) drops in die Sponsor-Liste aufzunehmen (mit Quellenhinweis) Liebe Grüße, Kerstin

06.01.2020 - 15:16

DROPS Design answered:

Liebe Frau Pauly, Solange dies nicht als kommerzielles Unternehmen geschieht, sondern eher als Wohltätigkeitslauf, in dem viele Menschen für wohltätige Zwecke häkeln, sollte es kein Problem geben.

07.01.2020 - 12:06

country flag Nicki wrote:

Thanks very much for the pattern, but can you help with Row 19. When you say, 13 chain stitches remain - do you mean make another 13 chain stitches? If you just dc down the original 13 chain stitches after the tail , there are 31 stitches in total. Have I misunderstood 'then work double crochets towards the tail in same chain stitch row but on opposite side as follows'. Could you try explaining another way? Thanks very much :-)

28.09.2019 - 19:55

DROPS Design answered:

Dear Nicki, at the end of row 19, there are 13 chains left from the 19 chains you cast on at the beginning of this row. Work then 1 dc in each of these 13 chains, 1 dc in each of the 18 stitches from the neck (= row 18) + 1dc in each of the 13 chains from the beg of the row (work now in the opposite side of these chains) = 44 sts for the body. The rounds now start under tail. Happy crocheting!

30.09.2019 - 10:21

country flag Helle Svenningsen wrote:

Hvordan skal benene syes sammen? De 4 masker under maven lukker jo ikke det hele af. Mvh Helle

10.07.2019 - 15:57

DROPS Design answered:

Hei Helle. Benene sys sammen på samme måte som magen. Du kan sy en sammenhengde søm langs hele undersiden av alpakaen. God fornøyelse

12.07.2019 - 08:36