DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7392.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Baby 1-3
Drops Retro 1980-1993
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Ferðapoki:
Stærð: 3 (6/9 - 12/18) mán.
Efni í poka + vettlingar:
DROPS Karisma frá Garnstudio
400 (450-500) gr nr 001, natur (með hettu)
50 (100-100) gr nr 041, blár
50 (50- 50) gr nr 018, rauður
50 (50- 50) gr nr 009, grænn
50 (50- 50) gr nr 010, gulur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 2,5 og 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja og 28 umferðir með mynsturprjóni og prjónum 3,5 verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS TALA – 7 stk.
----------------------------------------------------------

Vettlingar með og án þumals:
Stærð: 3 - 6/9 (12/18 - 24) mán.
Lengd á hendi: 9-11 (11-12) cm.

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 og 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja og 28 umferðir með mynsturprjóni og prjónum 3,5 verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
----------------------------------------------------------

Húfa (ekki með á mynd):
Stærð: 3 - 6/9 (12/18 - 24) mán.
Höfuðmál: 42-46 (48-50) cm.
Efni:
DROPS Karisma frá Garnstudio
50-50 (100-100) gr nr 001 natur
+ afgang af öllum mynsturlitum úr ferðapoka.

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 og 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja og 28 umferðir með mynsturprjóni og prjónum 3,5 verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7392.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

STROFF:
* 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið út umferðina.

KÚLA:
Aukið út um 3 lykkjur í 1 lykkju, prjónið 3 umferðir yfir þessa lykkju, í 4. umferð eru prjónaðar 3 lykkjur saman í 1 lykkju.
----------------------------------------------------------

FERÐAPOKI:

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 168 (180-192) lykkjur á hringprjón 3,5 með natur og prjónið 1 umferð sléttprjón, eftir það er M.4 prjónað áfram með natur – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 24 (27-33) cm fellið af 4 lykkjur fyrir miðju að framan fyrir opi = 164 (176-188) lykkjur og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka. Þegar stykkið mælist 33 (38-44) cm prjónið 24 umferðir af M.1 (byrjið við ör), prjónið nú M.2 (byrjið við ör) – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 52 (56-62) cm fellið af fyrir handveg þannig: Prjónið 34 (37-40) lykkjur framstykki, fellið af 12 lykkjur, prjónið 72 (78-84) lykkjur bakstykki, fellið af 12 lykkjur, prjónið 34 (37-40) lykkjur framstykki. Nú er fram- og bakstykki prjónað til loka hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 72 (78-84) lykkjur. Haldið áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 65 (70-76) cm setjið miðju 30 (32-34) lykkjur á þráð fyrir hálsmáli, fellið nú af 1 lykkju í hvorri hlið við háls í næstu umferð. Fellið af þær 20 (22-24) lykkjur sem eftir eru fyrir öxl þegar stykkið mælist 67 (72-78) cm.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 34 (37-40) lykkjur. Haldið áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 62 (67-73) cm fækkið lykkjum við háls í 2. hverri umferð 8 (9-10) lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 2 sinnum. Fellið af 19 (21-23) lykkjur sem eftir eru á öxl þegar stykkið mælist 67 (72-78) cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið eins og vinstra framstykki.

ERMI:
Fitjið upp 34 (36-38) lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með natur og prjónið 3 cm STROFF – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið 1 umferð sléttprjón JAFNFRAMT því sem aukið er út um 0 (2-4) lykkjur jafnt yfir = 34 (38-42) lykkjur. Prjónið M.3 – staðsetjið 1 mynstureiningu mitt uppi á ermi – JAFNFRAMT er aukið út í hvorri hlið innan við 1 kantlykkju um 1 lykkju 15 (15-13) sinnum fyrir 3 mán: til skiptis * í hverri og annarri hverri umferð *, fyrir 6/9 mán: í annarri hverri umferð, fyrir 12/18 mán: í 3. hverri umferð = 64 (68-68) lykkjur.
Eftir M.3 er prjónað M.1 þar til stykkið mælist 12 (15-18) cm (stillið af eftir mynstri), eftir það er M.4 prjónað jafnframt því sem stykkið skiptist upp mitt undir ermi og er prjónað til loka fram- og til baka. Fellið af þegar stykkið mælist 15 (18-21) cm.

HETTA EÐA HÁLSMÁL:
Saumið axlasaum. Takið upp ca 70 lykkjur í kringum hálsmál á sokkaprjóna/hringprjón 2,5 með natur og prjónið 2 cm stroff (Hér er fellt af ef ekki er óskað eftir að hafa hettu).
HETTA: Skiptið yfir á sokkaprjóna/hringprjón 3,5 og prjónið M.1 upp úr JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir í 1. umferð til = 84 (92-92) lykkjur. Eftir 24 (26-26) cm er fellt af.

FRÁGANGUR:
Saumið hettuna saman við miðju á höfði með lykkjuspori.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Takið upp ca 90 lykkjur á hringprjón 2,5 með natur meðfram vinstra framstykki (lykkjur eru teknar upp frá réttu) og prjónið 2 cm STROFF – sjá útskýringu að ofan.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið eins og vinstri kantur nema eftir 1 cm er fellt af fyrir 7 hnappagötum jafnt yfir kant – 1 hnappagat = fellið af 2 lykkjur, aukið út um 2 lykkjur í næstu umferð. Fellið af.

KANTUR Á HETTU:
Takið upp ca 120 (130-132) lykkjur meðfram hettu (lykkjur eru teknar upp frá röngu). Prjónið 6 cm stroff, fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið kant að stroffi á hettu. Saumið stroff saman neðst við op. Saumið ermar á búk í ystu lykkju þannig að saumurinn verði ekki þykkur og saumið ermasauma. Saumið tölur í. Gerið dúsk og saumið á húfuna. Þegar ferðapokinn verður of lítill er hægt að gera peysu úr honum með því að klippa við byrjun á kanti að framan og prjóna stroff neðan á ca 4 cm.
----------------------------------------------------------

VETTLINGAR (með og án þumals):

Hægt er að prjóna vettlingana án þumals í tveimur minnstu stærðunum.
Fitjið upp 34-36 (36-38) lykkjur á sokkaprjón 2,5 og prjónið 4 cm STROFF – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið sléttprjón. Þegar vettlingurinn mælist 5-6 (6,5-7) cm setjið 5 lykkjur á þráð fyrir þumal. Aukið út um 5 lykkjur yfir þær lykkjur sem settar voru á þráð í næstu umferð. Þegar vettlingurinn mælist 11-13 (13-14) cm prjónið til skiptis * 1 umferð þar sem lykkjur eru prjónaðar 2 og 2 saman og 1 umferð sléttprjón *, endurtakið frá *-* 3 sinnum. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru og saumið saman.

ÞUMALL:
Takið upp 5 lykkjur í útauknu lykkjurnar við op fyrir þumal jafnframt þær 5 lykkjur af þræði. Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við skiptingu á milli lykkju á þræði og þær lykkjur sem teknar voru upp = 12 lykkjur. Prjónið ca 3,5 cm þumal. Prjónið saman 2 og 2 lykkjur í hverri umferð 2 sinnum. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, saumið saman.
----------------------------------------------------------

HÚFA (ekki með á mynd):

Fitjið upp 88-96 (100-104) lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með natur og prjónið 2 cm STROFF – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið M.5, eftir það er prjónað til loka með natur. Þegar stykkið mælist 16-18 (20-22) cm prjónið til skiptis * 1 umferð þar sem lykkjur eru prjónaðar 2 og 2 saman og 1 umferð sléttprjón *, endurtakið frá *-* 3 sinnum = 11-12 (12-13) lykkjur, klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, saumið saman.

KÚLA:
Prjónið bláa kúlu (sjá KÚLA að ofan) og saumið á sem dúsk.

EYRNALEPPUR:
Fitjið upp 5 lykkjur á prjón 3,5 og prjónið 20 cm stroff. Aukið nú áfram út á hvorri hlið í hverri umferð 1 lykkja 9-9 (9-10) = 23-23 (23-25) lykkjur – útauknu lykkjurnar eru prjónaðar sem stroff. Þegar eyrnaleppurinn mælist 8-8 (9-9) cm fellið af. Prjónið annan eyrnalepp til viðbótar og saumið á húfuna frá röngu í 1. umferð í sléttprjóni – ca 6 cm á milli eyrnaleppa við miðju að aftan.

Mynstur

symbols = blár
symbols = rauður
symbols = gulur
symbols = grænn
symbols = natur
symbols = blá kúla (sjá uppskrift)
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Lilliput

Noirknits, United Kingdom

Pram suit with hood

Marie, Canada

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 1-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (3)

country flag Heidi Flamsholt wrote:

Hej. Jeg er ved at strikke denne, men kunne godt tænke mig en lille video på, hvordan de røde spots på køreposen strikkes. Jeres video på hvordan man strikker fair isle er såmænd fin nok, men viser ikke hvordan i lader mønsterfarven følge dominansfarven, hverken på retsiden eller vrangsiden. Kan i hjælpe med det? Vh. Heidi

28.11.2020 - 19:51

DROPS Design answered:

Hei Heidi. De røde"spots" strikkes som vanlig rett , i diagrammet er det 2 rett rød overnfor hverandre. For å få fargen mer dominant, kan du la den røde tråden ligge nærmest strikketøyet. Da kommer fargen (rød) tydeligst frem når du strikker. mvh DROPS design

30.11.2020 - 13:10

Joy Howell wrote:

I would like some clarification in the pattern: 1. In the body it's says to work 24 rows in M1, then M2. M1 has only 18 rows do I then do 6 rows of M2. Or do M1 and then repeat 6 rows of M1 and do 24 rows of M2. 2. The chart s are not translated. The Colors are easy to figure out but to start the 3 month size M1 is it started at the centre front also? 3. What does (se opsk) translate to? ALso hette?

29.07.2016 - 00:59

DROPS Design answered:

Dear Mrs Howell, To work 24 rows in M.1, work the first the 16 rows in M.1 (= 1 time M.1 in height), then work the first 8 rows in M.1 = 24 rows. You will find translations to diagrams just above them: se opsk = see explanation. In size 3 months start M.1 at arrow ("hette 3"). Happy knitting!

29.07.2016 - 08:28

country flag Maria Gundersen wrote:

Jeg kan ikke finde nogle av farvene der referes til her i Karisma serien, hverken blå, grøn eller gul er tilgængelige. Skal man da bytte garn type, eller det andre farver der er ens de gamle fargene? Tak

01.06.2015 - 11:01

DROPS Design answered:

Hej Maria. Ja, det er et gammelt mönster det her. Men hvis du kigger paa Karisma garnkortet er der farvemuligheder du kan bruge som alternativ. Faa eventuelt hjaelp til at vaelge hos din DROPS garnbutik. God fornöjelse.

01.06.2015 - 11:11