Book Lovers |
|
|
|
Heklað bókamerki með hjarta úr DROPS Merino Extra Fine. Þema: Valentínusardagur.
DROPS Extra 0-1592 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju. HEKLLEIÐBEININGAR: Umferðin byrjar með 1 loftlykkju (kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju, heldur kemur til viðbótar). Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Passið uppá að fyrsta fastalykkjan sé hekluð í fyrstu fastalykkju og ekki sé heklað í keðjulykkju sem myndar lykkju í lok umferðar. Þetta er mikilvægt svo að umferðin komi ekki til með að færast til vinstri. ÚRTAKA: Heklið 2 fastalykkjur saman þannig: Stingið heklunálinni í gegnum fyrstu lykkju, dragið þráðinn með til baka (2 lykkjur á heklunálinni), stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, dragið þráðinn með til baka (3 lykkjur á heklunálinni), bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið í gegnum allar 3 lykkjurnar. Það hefur fækkað um 1 lykkju. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BÓKAMERKI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Það eru hekluð 2 hjörtu sem eru tengd saman með snúru. Byrjið á að hekla snúruna, síðan er fyrra hjartað heklað, snúran er fest að innanverðu áður en hjartað er fyllt og heklað er til loka. Síðan er seinna hjartað heklað alveg eins. SNÚRA: Notið heklunál 2,5 og 1 þráð í hvorum lit af DROPS Merino Extra Fine (2 þræðir). Leggið þræðina saman, gerið lykkju og setjið lykkjuna á heklunálina, látið endana vera ca 10 cm langa – þeir eru notaðir þegar festa á snúruna. Notið vinstri hönd til að halda þráðunum sem á að hekla með frá hvorum öðrum, látið rauða þráðinn liggja efst og látið bleika þráðinn liggja neðst. Haldið fast í þræðina í endanum á lykkjunni, þannig að stykkið haldist stöðugt á meðan heklað er og passið uppá að þræðirnir sem á að hekla með liggi í sömu röð allan tímann sem heklað er. Nú er heklað þannig: * Setjið heklunálina yfir og utan um bleika þráðinn (2 lykkjur á heklunálinni), setjið heklunálina undir og utan um rauða þráðinn og dragið rauða þráðinn í gegnum báðar lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* þar til snúran er ca 30 cm löng – eða heklið að óskaðri lengd. Klippið þræðina þannig að endarnir séu ca 10 cm langir (þeir eru notaðir til að festa snúruna), dragið rauða þráðinn í gegnum síðustu lykkjuna á heklunálinni. HJARTA: Notið heklunál 2,5 og DROPS Merino Extra Fine í litnum rauður. UPPFITJUN og UMFERÐ 1: Heklið 2 LOFTLYKKJA – sjá útskýringu að ofan, í fyrri af þessum 2 loftlykkjum eru heklaðar 6 fastalykkjur, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju – sjá HEKLLEIÐBEININGAR. UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 6 fastalykkjur. UMFERÐ 3: Heklið 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 4: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 5: Heklið 1 fastalykkju í hvora af fyrstu 2 fastalykkjum, * heklið 3 fastalykkjur í næstu fastalykkju, heklið 1 fastalykkju í hvora af næstu 2 fastalykkjum *, heklið frá *-* alls 3 sinnum, heklið 3 fastalykkjur í síðustu fastalykkju = 20 fastalykkjur. UMFERÐ 6: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 20 fastalykkjur. UMFERÐ 7: Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 3 fastalykkjum, * heklið 3 fastalykkjur í næstu fastalykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af næstu 4 fastalykkjur *, heklið frá *-* alls 3 sinnum, heklið 3 fastalykkjur í næstu lykkju og heklið 1 fastalykkju í síðustu fastalykkju = 28 fastalykkjur. UMFERÐ 8: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 28 fastalykkjur. Nú er snúran fest við hjartað þannig: Takið snúruna, stingið inn öðrum endanum neðst í byrjun á hjartanu, festið þræðina vel að innanverðu. Fyllið smá með vatti í hjartað áður en heklað er áfram. UMFERÐ 9: Heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af fyrstu 4 fastalykkjum, * heklið 3 fastalykkjur í næstu fastalykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af næstu 6 fastalykkjum *, heklið frá *-* alls 3 sinnum, heklið 3 fastalykkjur í næstu fastalykkju og heklið 1 fastalykkju í hvora af síðustu 2 fastalykkjum = 36 fastalykkjur. UMFERÐ 10: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 36 fastalykkjur. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Nú á að skipta stykkinu í tvennt mitt í hjartanu, klippið þráðinn og festið. Nú á umferðin að byrja á öðrum stað. HLUTI 1: UMFERÐ 11: Byrjið umferð mitt yfir 2. útaukningu frá síðustu umferð með útaukningum (þannig að fyrri byrjun á umferð komi að aftan á hjartanu). Festið þráðinn með 1 keðjulykkju í sömu lykkju og keðjulykkjan var hekluð í, heklið alls 18 fastalykkjur, hoppið yfir næstu 18 fastalykkjur (tilheyrir hluta 2), brjótið stykkið og heklið 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. UMFERÐ 12-14: Nú er stuðst við HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 18 fastalykkjur. Nú hafa verið heklaðar alls 4 umferðir meðtalin umferð þar sem stykkið skiptist. Fyllið hjartað með vatti jafnóðum og heklað er. Nú er lykkjum fækkað þannig: UMFERÐ 15: Heklið 1 fastalykkju í fyrstu fastalykkju, * heklið 2 næstu fastalykkjur saman – sjá ÚRTAKA, heklið 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* alls 5 sinnum og heklið síðustu 2 fastalykkjur saman = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 16: Heklið 2 og 2 fastalykkjur saman umferðina hringinn = 6 fastalykkjur. Klippið þráðinn, notið heklunál og þræðið þráðinn í gegnum ystu lykkjubogana á hverri fastalykkju, herðið á þræði þannig að gatið á toppnum lokist og festið endann. Hluti 1 af hjartanu er nú tilbúinn. HLUTI 2: UMFERÐ 11: Nú á að hekla í 18 fastalykkjurnar sem hoppað var yfir þegar stykkinu var skipt. Festið þráðinn með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju eftir hluta 1, ekki hekla í 1 loftlykkjuna í byrjun á þessari umferð, heldur byrjið með að hekla fastalykkjur í sömu lykkju og keðjulykkjan var hekluð í. Heklið alls 18 fastalykkjur, brjótið stykkið saman og hoppið yfir hluta 1 og heklið 1 keðjulykkju í fyrstu keðjulykkju í byrjun á umferð. UMFERÐ 12-14: Nú er stuðst við HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 18 fastalykkjur. Nú hafa verið heklaðar alls 4 umferðir meðtalin umferð þar sem stykkið skiptist. Fyllið hjartað með vatti jafnóðum og heklað er. Nú er lykkjum fækkað þannig: UMFERÐ 15: Heklið 1 fastalykkju í fyrstu fastalykkju, * heklið 2 næstu fastalykkjur saman – sjá ÚRTAKA, heklið 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* alls 5 sinnum og heklið síðustu 2 fastalykkjur saman = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 16: Heklið 2 og 2 fastalykkjur saman umferðina hringinn = 6 fastalykkjur. Klippið þráðinn, notið heklunál og þræðið þráðinn í gegnum ystu lykkjubogana á hverri fastalykkju, herðið á þræði þannig að gatið á toppnum lokist og festið endann. Hluti 2 af hjartanu er nú tilbúinn. Saumið nokkur spor í skiptinguna á milli hluta 1 og hluta 2 þannig að ekki verði bil á milli hluta 1 og 2. Heklið 1 hjarta til viðbótar alveg eins, en notið litinn bleikur – munið eftir að festa hinn endann á snúrunni. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |