Lise skrifaði:
Jeg kan ikke få række fem til at passe, der hvor man skal hækle 6 stangmasker og så en puf. Hvis jeg følger mønsteret kommer mine puf’ er ikke lige under hinanden. Det er som om, der er en maske for meget mellem hver puf, men der skal vel ikke springes noget over?
09.10.2020 - 15:58DROPS Design svaraði:
Hei Lise. Litt usikker på hva som kan være galt hos seg, men på forrige omgang skal det hekles 2 staver i 1 stav. Kommer puffmasken i den 2. staven fra forrige omgang? Kanskje det har skjedd noe krøll ved overgangen ved omgangene, husk at første stav på begynnelsen av omgangen erstattes av 3 luftmasker. mch DROPS design
12.10.2020 - 14:33
Mette skrifaði:
Det ville være rart, hvis I også viste billeder af de hæklede bluser bagfra. Jeg har sjældent succes med at få bagsiden pæn ved rækkeskift. Eller gør jeg mon noget forkert. Er der en video, der viser, hvordan man får en "usynlig" og pæn overgang?
05.10.2020 - 10:47DROPS Design svaraði:
Hej Mette, jo vi har en video som viser det, klik på flere videoer eller se her: Hvordan hækles stangmasker rundt
07.10.2020 - 10:18
MARIA ANTONIA HERRERO skrifaði:
Ideal para llevar debajo de un abrigo sin sentirte agobiada. Muy versátil. Perfecto para falda o pantalón.
05.08.2020 - 11:25
Viviana skrifaði:
Uncinetto
08.06.2020 - 20:58
Aschenbach, Ellen skrifaði:
Sehr attraktive Häkel-Variante und wiederum prima, um auch bei breiten Schultern und großen Brüsten schlank zu wirken! Nachstricken!
06.06.2020 - 15:08
Renate skrifaði:
Pulli mit Rundpasse gehäkelt: Wunderbar!
05.06.2020 - 18:15
Rain Dance#raindancesweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Nepal. Stykkið er heklað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og pufflykkjum. Stærð S - XXXL.
DROPS 216-17 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsta stuðli í byrjun á umferð er skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli. PUFFLYKKJA: * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í stuðul frá fyrri umferð, sækið þráðinn og dragið í gegn og gerið lykkjuna 2 cm langa *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum = 9 lykkjur á heklunálinni, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 9 lykkjurnar. ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Aukið út um 1 lykkju með því að hekla 2 lykkjur í sömu lykkju. Aukið er út hvoru megin við prjónamerki þannig: Heklið fram þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, aukið út um 1 lykkju í næstu lykkju, heklið 6 lykkjur (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6 lykkja), aukið út um 1 lykkju í næstu lykkju (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki og alls 4 lykkjur fleiri í umferð). ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 stuðul hvoru megin við prjónamerki þannig: Heklið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, HEKLIÐ 2 STUÐLA SAMAN – sjá útskýringu að neðan, heklið 1 stuðul í hvorn af næstu 2 stuðlum (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), heklið 2 stuðla saman. HEKLIÐ 2 STUÐLA SAMAN: * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykkið er heklað í hring frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er heklað í hring, ofan frá og niður. Ermar eru heklaðar í hring, ofan frá og niður. BERUSTYKKI: Heklið 60-65-70-70-75-80 LOFTLYKKJA – sjá útskýringu að ofan, með heklunál 5,5 með 1 þræði Nepal og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju – sjá HEKLLEIÐBEININGAR = 60-65-70-70-75-80 stuðlar. Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið A.1 yfir allar lykkjur (= það eru heklaðar 12-13-14-14-15-16 mynstureiningar með A.1 á breiddina. Fyrsta umferð er nú þegar hekluð, byrjið á annarri umferð). Það er heklað og aukið út eftir A.1. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið heklað til loka á hæðina, heklið 2 síðustu umferðir í A.1 2-2-3-4-4-4 sinnum til viðbótar (heklaður er 1 stuðul fleiri í hverri útaukningu í hvert skipti sem umferðin er hekluð) = 168-182-210-224-240-256 stuðlar. Heklið síðan 1 stuðul í hvern stuðul þar til stykkið mælist 20-20-23-25-25-27 cm. Í síðustu umferð er aukið út um 8-6-2-8-8-4 stuðla jafnt yfir = 176-188-212-232-248-260 stuðlar. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er hekluð þannig: Heklið 1 stuðul í hvern og einn af fyrstu 26-28-31-34-37-40 stuðlum (= hálft bakstykki), heklið 6-6-6-6-8-10 lausar loftlykkjur (= í hlið undir ermi), hoppið yfir næstu 36-38-44-48-50-50 stuðla (= ermi), heklið 1 stuðul í hvern af næstu 52-56-62-68-74-80 stuðlum (= framstykki), heklið 6-6-6-6-8-10 lausar loftlykkjur (= í hlið undir ermi), hoppið yfir næstu 36-38-44-48-50-50 stuðla (= ermi) og heklið 1 stuðul í hvern af síðustu 26-28-31-34-37-40 stuðlum (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan heklað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 116-124-136-148-164-180 lykkjur (meðtaldar 6-6-6-6-8-10 loftlykkjur undir hvorri ermi = 58-62-68-74-82-90 lykkjur á bakstykki og 58-62-68-74-82-90 lykkjur á framstykki). Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið mitt í nýjar loftlykkjur sem fitjaðar voru upp. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Þau eru notuð síðar þegar auka á út í hliðum. Haldið áfram hringinn með 1 stuðul í hvern stuðul. Þegar fram- og bakstykki mælist 8 cm frá skiptingu, aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 9 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið = 128-136-148-160-176-192 lykkjur. Heklið áfram þar til fram- og bakstykki mælist 32-34-33-33-35-37 cm frá skiptingu. Klippið frá og festið enda. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Ermin er hekluð í hring frá miðju undir ermi. Byrjið mitt í 6-6-6-6-8-10 stuðlum undir ermi og heklið 1 stuðul í hvern af 3-3-3-3-4-5 stuðlum frá miðju og út, heklið 1 stuðul í hvern af 36-38-44-48-50-50 stuðlum sem hoppað var yfir og endið með 1 stuðul í hvern af síðustu 3-3-3-3-4-5 stuðlum mitt undir ermi = 42-44-50-54-58-60 stuðlar. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. Haldið áfram hringinn með 1 stuðul í hvern stuðul. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 stuðla mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 8-8-6-4½-3½.-3½ cm millibili alls 5-5-7-8-9-9 sinnum í hvorri hlið = 32-34-36-38-40-42 stuðlar. Haldið áfram þar til stykkið mælist 44-45-43-42-42-41 cm, klippið frá og festið enda. ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykkis. Heklið hina ermina á sama hátt. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Heklið 1 umferð með stuðlum í kringum hálsmál á peysu, heklið 1 stuðul um hverja loftlykkju frá loftlykkjuhring. Klippið frá og festið enda. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #raindancesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 216-17
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.