DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7744.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Rain Dance

Hekluð peysa úr DROPS Nepal. Stykkið er heklað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og pufflykkjum. Stærð S - XXXL.

DROPS 216-17
DROPS Design: Mynstur ne-336
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS NEPAL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
550-600-700-750-800-900 g litur 8907, þoka

HEKLFESTA:
13 stuðlar á breidd og 8 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 5,5.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7744.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Fyrsta stuðli í byrjun á umferð er skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð.

LOFTLYKKJA:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli.

PUFFLYKKJA:
* Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í stuðul frá fyrri umferð, sækið þráðinn og dragið í gegn og gerið lykkjuna 2 cm langa *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum = 9 lykkjur á heklunálinni, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 9 lykkjurnar.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Aukið út um 1 lykkju með því að hekla 2 lykkjur í sömu lykkju.
Aukið er út hvoru megin við prjónamerki þannig:
Heklið fram þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, aukið út um 1 lykkju í næstu lykkju, heklið 6 lykkjur (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6 lykkja), aukið út um 1 lykkju í næstu lykkju (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki og alls 4 lykkjur fleiri í umferð).

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 stuðul hvoru megin við prjónamerki þannig: Heklið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, HEKLIÐ 2 STUÐLA SAMAN – sjá útskýringu að neðan, heklið 1 stuðul í hvorn af næstu 2 stuðlum (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), heklið 2 stuðla saman.

HEKLIÐ 2 STUÐLA SAMAN:
* Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Berustykkið er heklað í hring frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er heklað í hring, ofan frá og niður. Ermar eru heklaðar í hring, ofan frá og niður.

BERUSTYKKI:
Heklið 60-65-70-70-75-80 LOFTLYKKJA – sjá útskýringu að ofan, með heklunál 5,5 með 1 þræði Nepal og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju – sjá HEKLLEIÐBEININGAR = 60-65-70-70-75-80 stuðlar.

Næsta umferð er hekluð þannig:
Heklið A.1 yfir allar lykkjur (= það eru heklaðar 12-13-14-14-15-16 mynstureiningar með A.1 á breiddina. Fyrsta umferð er nú þegar hekluð, byrjið á annarri umferð). Það er heklað og aukið út eftir A.1. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Þegar A.1 hefur verið heklað til loka á hæðina, heklið 2 síðustu umferðir í A.1 2-2-3-4-4-4 sinnum til viðbótar (heklaður er 1 stuðul fleiri í hverri útaukningu í hvert skipti sem umferðin er hekluð) = 168-182-210-224-240-256 stuðlar. Heklið síðan 1 stuðul í hvern stuðul þar til stykkið mælist 20-20-23-25-25-27 cm. Í síðustu umferð er aukið út um 8-6-2-8-8-4 stuðla jafnt yfir = 176-188-212-232-248-260 stuðlar.

Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er hekluð þannig:
Heklið 1 stuðul í hvern og einn af fyrstu 26-28-31-34-37-40 stuðlum (= hálft bakstykki), heklið 6-6-6-6-8-10 lausar loftlykkjur (= í hlið undir ermi), hoppið yfir næstu 36-38-44-48-50-50 stuðla (= ermi), heklið 1 stuðul í hvern af næstu 52-56-62-68-74-80 stuðlum (= framstykki), heklið 6-6-6-6-8-10 lausar loftlykkjur (= í hlið undir ermi), hoppið yfir næstu 36-38-44-48-50-50 stuðla (= ermi) og heklið 1 stuðul í hvern af síðustu 26-28-31-34-37-40 stuðlum (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan heklað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 116-124-136-148-164-180 lykkjur (meðtaldar 6-6-6-6-8-10 loftlykkjur undir hvorri ermi = 58-62-68-74-82-90 lykkjur á bakstykki og 58-62-68-74-82-90 lykkjur á framstykki). Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið mitt í nýjar loftlykkjur sem fitjaðar voru upp.
Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Þau eru notuð síðar þegar auka á út í hliðum. Haldið áfram hringinn með 1 stuðul í hvern stuðul. Þegar fram- og bakstykki mælist 8 cm frá skiptingu, aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 9 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið = 128-136-148-160-176-192 lykkjur. Heklið áfram þar til fram- og bakstykki mælist 32-34-33-33-35-37 cm frá skiptingu. Klippið frá og festið enda. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Ermin er hekluð í hring frá miðju undir ermi.
Byrjið mitt í 6-6-6-6-8-10 stuðlum undir ermi og heklið 1 stuðul í hvern af 3-3-3-3-4-5 stuðlum frá miðju og út, heklið 1 stuðul í hvern af 36-38-44-48-50-50 stuðlum sem hoppað var yfir og endið með 1 stuðul í hvern af síðustu 3-3-3-3-4-5 stuðlum mitt undir ermi = 42-44-50-54-58-60 stuðlar. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi.
Haldið áfram hringinn með 1 stuðul í hvern stuðul. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 stuðla mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 8-8-6-4½-3½.-3½ cm millibili alls 5-5-7-8-9-9 sinnum í hvorri hlið = 32-34-36-38-40-42 stuðlar. Haldið áfram þar til stykkið mælist 44-45-43-42-42-41 cm, klippið frá og festið enda. ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykkis. Heklið hina ermina á sama hátt.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Heklið 1 umferð með stuðlum í kringum hálsmál á peysu, heklið 1 stuðul um hverja loftlykkju frá loftlykkjuhring. Klippið frá og festið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 27.11.2020
Leiðrétting: Mynsturteikning A.1 hefur verið uppfærð.

Mynstur

symbols = 1 stuðull í lykkjuna fyrir neðan
symbols = 1 pufflykkja - sjá útskýringu í texta
symbols = 1 loftlykkja
symbols = 1 stuðull um loftlykkju fyrir neðan
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 216-17

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (23)

country flag Aleksandra wrote:

Witam, robię rozmiar XL, po zakończeniu schematu A 1 mam 168 słupków, docelowo ma być 224. I moje pytanie, czy rozpoczynając powtarzanie rządów omijam któryś ze słupków? Podwójny, czy może ten pomiędzy podwójnym, a bufką? Jest informacja o dodatkowym słupku, tylko jeśli go zostawię w kolejnym okrążeniu, to nijak nie będzie dodane 56 słupków, tylko więcej. Pozdrawiam i z góry dziękuję za pomoc.

08.07.2021 - 11:11

DROPS Design answered:

Witaj Olu, robisz następująco: 1-sze okr. - słupki + 1 oczko łańcuszka, 2-gie okr. same słupki (bez przerabiania 2 słupków w 1 słupek) i 1 słupek wokół oczka łańcuszka, i to samo jeszcze 3 razy. Masz na koniec 224 słupki. Popatrzę jeszcze na wzór jak to by lepiej opisać, albo zgłoszę korektę. Pozdrawiamy!

09.07.2021 - 15:17

country flag Bouke De Wit wrote:

Ik ben na de pas van het patroon het lijf aan het haken. De naad in het achterpand ,waar ik de toer sluit en de nieuwe toer begin met drie lossen, loopt een beetje schuin weg naarmate het werk vordert. Is dit normaal? Ik heb niet per ongeluk geminderd of gemeerderd. Ik hou evenveel steken. Ik heb geen idee of dit te verkomen valt. Bedankt voor een reactie. Vriendelijke groeten Bouke

11.05.2021 - 12:16

DROPS Design answered:

Dag Bouke De Wit,

Dit is inderdaad normaal bij haken. Een manier om dit te voorkomen is heen en weer te haken, maar wel iedere toer te sluiten met een halve vaste. Alleen wordt door heen en weer haken de structuur anders dan op het lijf, omdat je daar niet heen en weer hebt gehaakt.

15.05.2021 - 14:21

country flag Barbara wrote:

Is this the correct diagram? Pattern states diagram was corrected November 27, 2020. Puff stitches didn’t line up until I added a treble on rows 5 and 6. Don’t want to go too much farther until have the corrected diagram.

10.03.2021 - 00:05

DROPS Design answered:

Dear Barbara, this is the corrected diagram - you should work as shown to get the same effect as in the photo. Happy crocheting!

10.03.2021 - 07:36

country flag Louise Kristensen wrote:

Jeg kan ikke få bærestykket til at give mening. Jeg har prøvet at hækle efter A.1, men jeg ender med at få ca 500 stangmasker i stedet for 224 stangmasker efter de sidste 2 omgange er hæklet 4 gange mere. Herefter måler arbejdet også 25cm, men har stadig ikke hæklet resten af rækkerne? Finder der nogle hjælpevideoer til dette?

07.03.2021 - 18:54

DROPS Design answered:

Hej Louise, Hækler du i DROPS Nepal og har du 13 stangmasker på 10 cm? Du har én udtagning på hver 2.række i hver rapport. God fornøjelse!

08.03.2021 - 14:46

country flag Barbara wrote:

Alla fine di A.1, lavorare gli ultimi 2 giri di A.1 altre 2-2-3-4-4-4 volte... Non riesco a capire questo passaggio: (lavorare 1 maglia alta in più prima di ogni aumento per ogni volta che vengono lavorati i giri) Grazie per l’aiuto

02.02.2021 - 23:33

DROPS Design answered:

Buonasera Barbara, si troverà con 1 maglia alta in più prima di ogni aumento ad ogni ripetizione dei 2 giri. Buon lavoro!

05.02.2021 - 21:45

country flag Sara wrote:

Nej jag hoppar inte över, jag gör precis som det står men puffarna hamnar inte på rätt plats då. Jag blir tvungen att göra 7 stolpar för att det ska bli snyggt.

06.11.2020 - 16:28

DROPS Design answered:

Hej Sara, Vi skall se på den igen, och göra flera varv i videon :)

17.11.2020 - 09:05

country flag Sara wrote:

Precis som Lise tidigare beskrivit blir det fel för mig på femte raden i A1. Funderar på om det ska vara en stolpe till för att det ska bli rätt med puffarna.

05.11.2020 - 19:40

DROPS Design answered:

Hej Sara, du hopper over "stolpen om luftmasken under" med en ny luftmaske og så skal der være en stolpe mere imellem hver puffmaska, dvs på rad 5 skal det være 6 st + 1 lm Lycka till :)

06.11.2020 - 10:23

country flag Lise wrote:

Jeg kan ikke få række fem til at passe, der hvor man skal hækle 6 stangmasker og så en puf. Hvis jeg følger mønsteret kommer mine puf’ er ikke lige under hinanden. Det er som om, der er en maske for meget mellem hver puf, men der skal vel ikke springes noget over?

09.10.2020 - 15:58

DROPS Design answered:

Hei Lise. Litt usikker på hva som kan være galt hos seg, men på forrige omgang skal det hekles 2 staver i 1 stav. Kommer puffmasken i den 2. staven fra forrige omgang? Kanskje det har skjedd noe krøll ved overgangen ved omgangene, husk at første stav på begynnelsen av omgangen erstattes av 3 luftmasker. mch DROPS design

12.10.2020 - 14:33

country flag Mette wrote:

Det ville være rart, hvis I også viste billeder af de hæklede bluser bagfra. Jeg har sjældent succes med at få bagsiden pæn ved rækkeskift. Eller gør jeg mon noget forkert. Er der en video, der viser, hvordan man får en "usynlig" og pæn overgang?

05.10.2020 - 10:47

DROPS Design answered:

Hej Mette, jo vi har en video som viser det, klik på flere videoer eller se her: Hvordan hækles stangmasker rundt

07.10.2020 - 10:18

country flag MARIA ANTONIA HERRERO wrote:

Ideal para llevar debajo de un abrigo sin sentirte agobiada. Muy versátil. Perfecto para falda o pantalón.

05.08.2020 - 11:25