Anita skrifaði:
Hei! DROPS Big Delight er utgått og garnbytte funksjonen finner ingen alternativ, har noen noe tips til garnbytte?
05.04.2023 - 08:38DROPS Design svaraði:
Hej Anita, desværre ikke som meleret garn, men du kan filte følgende i samme tykkelse: DROPS Alaska, Nepal, Alpaca Boucle, Air :)
13.04.2023 - 11:42
Magdalena skrifaði:
Ska man alltid öka 8 maskor per vartannat varv? Eller ska man alltid sticka två maskor sen ett omslag?
05.04.2023 - 08:36DROPS Design svaraði:
Hej Magdalena, alltid 8 maskor per vartannat varv :)
13.04.2023 - 12:15
Anne skrifaði:
Bonjour, j'aimerais faire ce modèle avec un diamètre 2x plus grand. Pensez-vous que les aiguilles longueur 60 cm conviendront toujours ou serait-il préférable d'utiliser des aiguilles circulaires ?
24.03.2021 - 14:19DROPS Design svaraði:
Bonjour Anne, pour ce modèle nous utilisons d'abord des aiguilles doubles pointes (pour le tout début), puis des aiguilles circulaires (pour adapter progressivement au nombre de mailles); pour un ouvrage 2 fois plus grand, il vous faudra probablement une aiguille circulaire de 80 cm pour terminer, celle de 60 cm risque d'être un peu trop courte. Bon tricot!
24.03.2021 - 15:38
Dobbel Tråd skrifaði:
Hei! Det står at man skal legge opp masker med dobbel tråd. Skal man fortsette å strikke med dobbel tråd, eller skal man strikke med enkel tråd?
19.01.2021 - 14:42DROPS Design svaraði:
Hei, Hele sitteunderlag er strikket med dobbeltråd. God fornøyelse!
20.01.2021 - 07:54
Monica skrifaði:
Come si lavano i progetti eseguiti con lana infeltrita? sempre a mano, oppure è possibile lavare in lavatrice con programma adatto? saluti
25.02.2020 - 07:34DROPS Design svaraði:
Hi, lavare in lavatrice con un normale programma per la lana. Buon lavoro!
25.02.2020 - 08:39
Elise Pedersen skrifaði:
Dejligt at det er til strik - ser godt ud.
18.09.2019 - 17:48
Painting Greys#paintinggreysseatpad |
|
|
|
|
Prjónuð og þæfð sessa úr 2 þráðum DROPS Big Delight. Stykkið er prjónað í hring í sléttprjóni frá miðju og út.
DROPS 203-10 |
|
|
------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SESSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring í sléttprjóni frá miðju og út. Byrjið með sokkaprjóna og skiptið yfir á hringprjón þegar nægilega margar lykkjur eru á prjóni. SESSA: Fitjið upp 8 lykkjur með 2 þráðum DROPS Big Delight með sokkaprjón 8, skiptið lykkjunum á 4 prjóna. Setjið 1 merki í byrjun umferðar. Prjónið 1 umferð sléttprjón hringinn jafnframt því sem prjónaðar eru 2 lykkjur slétt í hverja lykkju = 16 lykkjur. Prjónið 1 umferð sléttprjón og setjið 8 merki í stykkið með 2 lykkjur á milli merkja. Prjónið síðan sléttprjón og aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir hverju merki í annarri hverri umferð (= 8 lykkjur fleiri). Uppslátturinn er prjónaður slétt í næstu umferð, það eiga að myndast göt. Skiptið yfir á hringprjón þegar nægilega margar lykkjur eru á prjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram að prjóna og auka út svona þar til stykkið mælist ca 28 cm (= mælt frá miðju og út að prjóni), stillið af að síðasta umferð sé umferð með uppslætti og að þú hafir nægilega mikið af garni eftir til að fella af með. Fellið af með sléttum lykkjum og passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Klippið frá og festið þræði. FRÁGANGUR: Saumið saman gatið í miðju á stykki = uppfitjunarkantur. Þræðið þráð í gegnum lykkjurnar, herðið að gatinu og festið enda. ÞÆFING: Verkið má þæfa í þvottavél eða þurrkara – lesið útskýringarnar hér að neðan. Munið: Síðar er stykkið þvegið eins og hver önnur ullarflík Í ÞVOTTAVÉL: Þvottavélar þæfa mismunandi. Ef stykkið hefur þæfst of lítið skaltu bleyta það og prófa að þæfa það aftur. Ef stykkið hefur þæfst of mikið skaltu teygja stykkið í rétta stærð á meðan það er enn blautt GERIÐ ÞANNIG: Settu stykkið í þvottavélina, notaðu þvottakerfi sem tekur um 40 mínútur (ekki ullarþvottakerfi). Þvoðu við 40°C án forþvottar - sápa er valfrjáls. Eftir þvott skaltu móta stykkið á meðan það er enn blautt. Í ÞURRKARA: Að þæfa stykki í þurrkara gefur góða stjórn á því hversu mikið stykkið þæfist. Hægt er að opna þurrkarann á meðan á ferlinu stendur til að athuga stærð verksins. Ef stykkið hefur þæfst of lítið skaltu bleyta það og prófa að þæfa það aftur. Ef stykkið hefur þæfst of mikið skaltu teygja stykkið í rétta stærð á meðan það er enn blautt. GERIÐ ÞANNIG: Leggið stykkið allt í bleyti í vatn. Setjið stykkið síðan í þurrkara og byrjið að þurrka. Þurrkið þar til stykkið er í þeirri stærð sem óskað er eftir - athugið á meðan á ferlinu stendur. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #paintinggreysseatpad eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 203-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.