DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Air yarn
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1474.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2948.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Baby Blue Note

Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í garðaprjóni. Stærð 6 mánaða – 8 ára.

DROPS Baby 36-13

#babybluenotesweater

DROPS Design: Mynstur ai-004-by
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

STÆRÐ:
6/9 - 12/18 mánaða (2 - 3/4 - 5/6 - 7/8) ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
68/74 - 80/86 (92 - 98/104 - 110/116 - 122/128)

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
100-150 (150-200-200-200) gr litur 10, þoka

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir stroff.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5 – fyrir kant í hálsi.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1474.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2948.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING:
Allar útaukningar eru gerðar frá réttu!
Aukið er út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja. Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um ermar):
Öll úrtaka er gerð frá réttu.
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin á stykki þannig:
Prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið sléttar lykkjur þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri) og 1 lykkja slétt.

LEIÐBEININGAR AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna í stykkjum, ofan frá og niður. Stykkin eru saumuð saman og prjónaður er kantur í hálsmáli í hring.

BAKSTYKKI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Hvor öxl er prjónuð fyrir sig, auknar eru út lykkjur fyrir hálsmáli, áður en þær eru settar saman og síðustu lykkjur fyrir hálsmáli eru fitjaðar upp á milli stykkja.

HÆGRI ÖXL:
Fitjið upp 12-13 (14-14-16-17) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 5,5 með Air. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 3 cm, aukið út um 1 lykkju fyrir hálsmáli innan við 1 lykkju í byrjun á 2 næstu umferðum frá réttu – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 14-15 (16-16-18-19) lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið síðustu umferð frá röngu. Geymið stykkið og prjónið vinstri öxl.

VINSTRI ÖXL:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægri öxl, en aukið út um 1 lykkju fyrir hálsmáli innan við 1 lykkju í lok umferðar frá réttu.

BAKSTYKKI:
Prjónið vinstri öxl og hægri öxl saman frá réttu, þannig:
Prjónið yfir 14-15 (16-16-18-19) lykkjur frá vinstri öxl, fitjið upp 18-18 (20-22-22-24) lykkjur fyrir hálsmáli og prjónið yfir 14-15 (16-16-18-19) lykkjur frá hægri öxl = 46-48 (52-54-58-62) lykkjur.
Haldið áfram fram og til baka í garðaprjóni.
Þegar stykkið mælist 11-12 (13-14-15-16) cm, fitjið upp 1 lykkju fyrir handveg í lok 2 næstu umferðum = 48-50 (54-56-60-64) lykkjur.
Þegar stykkið mælist 26-29 (32-36-40-44) cm (nú eru 4 cm eftir), aukið út 8-6 (6-8-8-8) lykkjur jafnt yfir í næstu umferð frá réttu = 56-56 (60-64-68-72) lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5.
Prjónið stroff frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir og endið með 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkju garðaprjón.
Fellið af með sléttum lykkjum þegar stroffið mælist 4 cm – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING.

FRAMSTYKKI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Hvor öxl er prjónuð fyrir sig, auknar eru út lykkjur fyrir hálsmáli, áður en þær eru settar saman og síðustu lykkjurnar fyrir hálsmáli eru fitjaðar upp á milli stykkja.

VINSTRI ÖXL:
Fitjið upp 12-13 (14-14-16-17) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 5,5 með Air.
Prjónið garðaprjón. Þegar stykkið mælist 3-4 (4-5-5-6) cm, aukið út um 1 lykkju innan við 1 lykkju fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá réttu alls 4 sinnum = 16-17 (18-18-20-21) lykkjur.
Prjónið síðustu umferð frá röngu. Stykkið mælist ca 5-6 (6-7-7-8) cm. Geymið stykkið og prjónið hægri öxl.

HÆGRI ÖXL:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og vinstri öxl, en aukið út um 1 lykkju fyrir hálsmáli innan við 1 lykkju í lok umferðar frá réttu.

FRAMSTYKKI:
Prjónið hægri öxl og vinstri öxl saman frá réttu, þannig:
Prjónið yfir 16-17 (18-18-20-21) lykkjur frá hægri öxl, fitjið upp 14-14 (16-18-18-20) lykkjur fyrir hálsmáli og prjónið yfir 16-17 (18-18-20-21) lykkjur frá vinstri öxl = 46-48 (52-54-58-62) lykkjur.
Haldið áfram fram og til baka í garðaprjóni.
Þegar stykkið mælist 11-12 (13-14-15-16) cm, fitjið upp 1 lykkju fyrir handveg í lok 2 næstu umferðum = 48-50 (54-56-60-64) lykkjur.
Þegar stykkið mælist 26-29 (32-36-40-44) cm (nú eru 4 cm eftir að loka máli), aukið út 8-6 (6-8-8-8) lykkjur jafnt yfir í næstu umferð frá réttu = 56-56 (60-64-68-72) lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5.
Prjónið stroff frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir og endið með 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkju garðaprjón.
Fellið af með sléttum lykkjum þegar stroffið mælist 4 cm – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING.

ERMI:
Ermar eru prjónaðar fram og til baka, ofan frá og niður.
Fitjið upp 35-38 (42-45-48-51) lykkjur á hringprjón 5,5 með Air. Prjónið garðaprjón.
Þegar stykkið mælist 3 cm, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið á stykki – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 3-3 (3-4-4-4) cm millibili alls 4-5 (6-6-7-8) sinnum = 27-28 (30-33-34-35) lykkjur.
Þegar ermin mælist 16-19 (24-28-32-36) cm (nú eru eftir 3 cm að loka máli), aukið út 1-0 (2-3-2-1) lykkjur jafnt yfir = 28-28 (32-36-36-36) lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið stroff með byrjun frá réttu (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Fellið af með sléttum lykkjum þegar ermin mælist 19-22 (27-31-35-39) cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju og saumið ermasaum og hliðarsaum í eitt, innan við 1 kantlykkju garðaprjón.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Kantur í hálsmáli er prjónaður í hring á sokkaprjóna. Takið upp ca 40 til 64 lykkjur (stillið af að lykkjufjöldinn verði deilanlegur með 4) á sokkaprjóna 4,5 með Air innan við 1 kantlykkju. Prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Fellið af með sléttum lykkjum þegar stroffið mælist 2 cm.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 05.02.2021
Leiðrétting: BAKSTYKKI HÆGRI ÖXL:.. Prjónið síðustu umferð frá röngu...
Yfirfarið á vefsvæði: 03.01.2023
Nýtt efnismagn: DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C) 100-150 (150-200-200-200) g litur 10, þoka

Mynstur

prjónstefna = prjónstefna
Diagram for DROPS Baby 36-13
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 36-13

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (39)

country flag Nan Bernard skrifaði:

What does this mean: Cast on 12-13 (14-14-16-17) stitches (including 1 edge stitch on each side)? Am I to cast on 12 stitches or 14 for the 6/9? What is an edge stitch?

30.09.2021 - 06:23

DROPS Design svaraði:

Hi Nan, The 12 cast on stitches include the 2 edge stitches, so just cast on 12. Happy knitting!

30.09.2021 - 09:44

country flag Cristina Panuccio skrifaði:

Buon giorno. nelle istruzioni si parla di usare ferri circolari. poi le foto dimostrano i ferri "normali". Quali allora ? Grazie ! cordiali saluti Cristina

17.09.2021 - 08:37

DROPS Design svaraði:

Buongiorno Cristina, al di fuori dell'Italia, è consuetudine utilizzare i ferri circolari anche per i lavori in piano come in questo caso. Dal momento che questo maglione è lavorato in parti separate, può utilizzare i ferri che ritiene più comodi. Buon lavoro!

17.09.2021 - 10:00

country flag Daniela skrifaði:

Buongiorno,\r\nSto realizzando le maniche. Mi chiedevo se si possono lavorare in tondo o se devo lavorarle come strisce e vanno cucite dopo. Non mi è molto chiaro come cucire tutto dopo.\r\nGrazie

11.04.2021 - 12:03

DROPS Design svaraði:

Buongiorno Daniela, le maniche si lavorano in piano e vengono cucite alla fine del lavoro. Buon lavoro!

11.04.2021 - 12:09

country flag Manon skrifaði:

J aimerais savoir si je n utilise pas des aiguilles rondes est ce que ce patron convient merci

31.03.2021 - 19:08

DROPS Design svaraði:

Bonjour Manon, bien sur, vous pouvez utiliser les aiguilles droites. Bon tricot!

31.03.2021 - 22:53

country flag Irja Syvertsen skrifaði:

Hello, is het eigenlijk nodig om dit op rondbreinaalden te breien? Is er een speciale reden om dit best zo te doen of kan het ook op gewone rechte naalden? Hartelijk 💖 dank alvast 🙏

08.02.2021 - 21:55

DROPS Design svaraði:

Dag Irja,

Als je het werk in de rondte breit heb je geen zijnaden en geen naad onder de mouw. Je kan het werk ook heen en weer breien. Om een patroon aan te passen om op rechte naalden te breien hebben we een instructie gemaakt. Deze vind je hier.

23.02.2021 - 14:09

country flag Ilja skrifaði:

Why it says in backpiece to knit one row to purl? Waarom bij het achterpand een rij averecht en bij het voorpand niet?

18.01.2021 - 18:55

DROPS Design svaraði:

Dag Ilja,

Volgens mij moet deze naald averecht ook niet op het achterpand gebreid worden omdat je ribbelsteek breit, dus alle naalden recht. Ik zal het doorgeven aan de ontwerpafdeling om na te kijken.

22.01.2021 - 16:22

country flag Kvs skrifaði:

Lurer på om man skal la 1+1 masker til ermehull stå åpne, eller om disse skal strikkes inn i videre arbeid?

10.01.2021 - 13:29

DROPS Design svaraði:

Hei Kvs. De 2 maskene man legger om til ermehull skal strikkes inn i arbeidet (1 maske på hver side), slik at du nå har enten 48-50-54-56-60 eller 64 masker på pinnen, avhengig av hvilken str. du strikker. mvh DROPS design

15.01.2021 - 11:18

country flag Monika skrifaði:

Ich finde wenn man es von unten nach oben strickt sehen die Raender besser aus. Und die 28 M in 4,5 fuer das Aermelenden reichen nicht, viel zu eng. Hab den Aermel 3x gestrickt bis es endlich passte.

20.12.2020 - 22:43

country flag Sara skrifaði:

Hei! Jeg lurer på hvor man skal måle når dere skriver: «når arbeidet måler 11 cm» på feks bakstykket etter økning til halskant. Er det fra opplegg på halskanten eller fra oppleggskanten på skuldrene? Det utgjør en del forskjell. På forhånd takk, Sara

29.11.2020 - 09:06

DROPS Design svaraði:

Hei Sara, Hvis ikke det står noe annet skal man måle fra oppleggskanten. God fornøyelse!

29.11.2020 - 11:41

country flag Salome skrifaði:

Gibt es eine Anleitung zur Befestigung der Halsblende am Halsausschnitt? Woran erkenne ich die genaue Anzahl der benötigten Maschen für die Halsblende? Vielen Dank für die schöne Anleitung.

27.11.2020 - 19:30

DROPS Design svaraði:

Liebe Sabine, die Maschen aus den Rand werden wie in diesem Video aufgefassen und an der Anschlagskante werden sie wie in diesem Video aufgefassen. Viel Spaß beim stricken!

30.11.2020 - 08:08