DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Sky yarn
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1470.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5880.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Big Dreams

Heklað teppi fyrir börn úr DROPS Sky. Stykkið er heklað með gatamynstri, áferð og pufflykkjum. Þema: Barnateppi.

DROPS Baby 36-3

#bigdreamsblanket

DROPS Design: Mynstur sk-002-by
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

STÆRÐ:
Breidd: 47-66 cm. Lengd: 52-80 cm.

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
200-250 gr litur 03, ljós beige

HEKLFESTA:
16 stuðlar á breidd og 8 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 4,5.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1470.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5880.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LOFTLYKKJUR:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3.

1 PUFFLYKKJA:
Heklið í sömu loftlykkju þannig (það er mikilvægt að heklað sé í lykkjuna, ekki um lykkjuna): * bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum loftlykkjuna, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið í gegnum loftlykkjuna, dragið báða uppslættina langa (til að koma í veg fyrir að pufflykkjunar verði of smáar og saman pakkaðar er mikilvægt að uppslátturinn sé dreginn eins langt og hægt er, þ.e.a.s. ca 2 cm) * heklið frá *-* alls 5 sinnum, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TEPPI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka.

TEPPI:
Heklið 77-107 loftlykkjur – sjá LOFTLYKKJUR, með heklunál 4,5 með Sky. Fyrsta umferð er hekluð þannig:
Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), heklið síðan 1 stuðul í hverja loftlykkju = 75-105 stuðlar.
Heklið nú mynstur þannig: Heklið A.1 yfir fyrstu 2 lykkjur, A.2 yfir næstu 66-96 lykkjur (= 11-16 mynstureiningar á breidd með 6 lykkjum), heklið A.3 yfir síðustu 7 lykkjur.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Þegar A.1 til A.3 hefur verið heklað á hæðina, endurtakið mynstur frá umferð með ör þar til stykkið mælist ca 51-79 cm – stillið af að endað sé eftir umferð sem ekki er umferð með pufflykkjum.
Heklið 1 umferð með 1 stuðul í hverja lykkju (hugsanlega um hverja loftlykkju). Klippið frá og festið þráðinn. Stykkið mælist ca 52-80 cm.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 24.06.2021
Nýtt efnismagn: DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B) 200-250 g litur 03, ljós beige

Mynstur

Byrjið í þessari umferð, fyrri umferð hefur nú þegar verið hekluð og sýnir einungis hvernig heklað er í lykkjurnar í næstu umferð = Byrjið í þessari umferð, fyrri umferð hefur nú þegar verið hekluð og sýnir einungis hvernig heklað er í lykkjurnar í næstu umferð
1 loftlykkja - ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli. = 1 loftlykkja - ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli.
3 loftlykkjur (jafngilda 1 stuðli) = 3 loftlykkjur (jafngilda 1 stuðli)
1 stuðull í lykkju = 1 stuðull í lykkju
1 stuðull umloftlykkju = 1 stuðull umloftlykkju
2 STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN UM LOFTLYKKJU/STUÐUL: Heklið 1 stuðul um loftlykkju/í stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul um sömu loftlykkju/í sama stuðul og dragið síðasta uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni = 2 STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN UM LOFTLYKKJU/STUÐUL: Heklið 1 stuðul um loftlykkju/í stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul um sömu loftlykkju/í sama stuðul og dragið síðasta uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni
hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í næsta stuðul, 1 loftlykkja, heklið 1 PUFFLYKKJA – sjá útskýringu í uppskrift – í loftlykkju sem hoppað var yfir (pufflykkjan á að fara yfir stuðul frá réttu á stykki) = hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í næsta stuðul, 1 loftlykkja, heklið 1 PUFFLYKKJA – sjá útskýringu í uppskrift – í loftlykkju sem hoppað var yfir (pufflykkjan á að fara yfir stuðul frá réttu á stykki)
hoppið yfir 1 pufflykkju + 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í næsta stuðul, 1 loftlykkja, heklið 1 pufflykkju í loftlykkju sem hoppað var yfir (pufflykkjan á að fara yfir stuðul frá röngu á stykki) = hoppið yfir 1 pufflykkju + 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í næsta stuðul, 1 loftlykkja, heklið 1 pufflykkju í loftlykkju sem hoppað var yfir (pufflykkjan á að fara yfir stuðul frá röngu á stykki)
Diagram for DROPS Baby 36-3
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #bigdreamsblanket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 36-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (17)

country flag Sofia skrifaði:

Hej, jag försöker virka en babyfilt: Men i diagrammet finns inte förklaring över hur man stickar det jag markerat med rött på bifogad bild??? Vad betyder det??

22.04.2025 - 11:44

DROPS Design svaraði:

Hei Sofia. Ikonet betyr: = 1 stolpe om luftmaskan. Du finner forklaringene til ikonene over diagrammene. Her hekles det 2 stolper i 1 luftmaske, slik at ikonene står litt på skrå. mvh DROPS Design

22.04.2025 - 11:51

country flag Jeanette Schyberg skrifaði:

Jag undrar hur man ska tänka med antalet luftmaskor när man börjar med filten. Det står 77-107 luftmaskor när man lägger upp arbetet men hur gör jag om jag vill ha den mindre eller större? Och ska antalet luftmaskor alltid sluta med en 7:a för att det ska bli rätt?

19.03.2025 - 09:19

DROPS Design svaraði:

Hei Jeanette. Om du skal hekle det større eller mindre en 77-107 luftmasker, må du ha et maskeantall der du får plass til diagrammene / x antall A.2 som skal gjentas. A.1 går over 2 masker og A.3 går over 7 masker, men A.2 må ha et maskeantall som går opp med 6 masker (f.eks ved mindre teppe: 48, 54, 60 eller 66. Ved større teppe: 102, 108, 114 osv). Og så må du huske at på 1 rad hekles 1 stav i 4. luftmaske fra nålen. mvh DROPS Design

24.03.2025 - 11:33

country flag HOANG skrifaði:

Bonjour, lorsque l'on crochète le point soufflé, et après avoir tiré le jeté à travers les 5 grandes boucles, faut il faire une maille en l'air pour les fermer ensemble ou continuer directement ?

09.03.2025 - 14:52

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Hoang, dans cette vidéo, nous montrons comment crocheter ces points soufflés, cela devrait vous aider. Bon crochet!

10.03.2025 - 10:25

country flag Tine skrifaði:

Det står feil garnmengde i norske versjonen. Står 150 gram, men når jeg bytter til engelsk står det 250 gram.

27.09.2024 - 23:40

DROPS Design svaraði:

Hei Tine. Takk for tilbakemeldingen. Dette skal vi få ordnet asap. mvh DROPS Design

07.10.2024 - 13:24

country flag Caitlin Burns skrifaði:

When ending row 1 with 3 chain stitches and moving on to 2nd row which starts with chain 3 is this a total of 6 chains? Or is it the same 3 you start from as you end with?

14.09.2024 - 23:05

DROPS Design svaraði:

Dear Caitlin, the blanket is crocheted back and forth, though the diagram shows you every row as you would see it from the right side. In this case, you should read the rows from right to left and then left to righ, right to left, left to right etc, and this way, a two always starts with 3 chain stitches and ends with a treble. I hope this helps. Happy Stitching!

15.09.2024 - 03:01

country flag Anais skrifaði:

Tendrá algún video del patrón de la manta ya qué no entiendo un punto...

19.08.2023 - 01:01

DROPS Design svaraði:

Hola Anais, puedes ver los vídeos relevantes para este patrón bajo las explicaciones del patrón y los diagramas. No tenemos un vídeo completo de cómo realizar la manta, pero puedes decirnos qué sección te está dando problemas y podemos intentar ayudarte.

20.08.2023 - 17:49

country flag Marie Noëlle skrifaði:

Allo J'ai commencé la couverture mais mon premier rang de maille en l'air devient très tendu au fur et à mesure que javance dans le patron. On dirait que j'ai plus de maille qu'au début...je comprends pas. La couverture fait des vagues, quelqu'un peut m'aider? Merci

10.05.2023 - 13:58

DROPS Design svaraði:

Bonjour Marie Noëlle, pensez à bien vérifier votre tension et à conserver cette même tension, si votre chaînette de base est un peu trop serrée, essayez de la crocheter avec un crochet d'une taille au-dessus pour bien conserver la même largeur. Bon crochet!

10.05.2023 - 16:47

country flag Anne Laure skrifaði:

Bonjour avez vous une video pour expliquerai les rangs

24.01.2023 - 09:39

DROPS Design svaraði:

Bonjour Anne-Laure, cette leçon explique comment lire un diagramme au crochet, et cette vidéo comment crocheter les rangs avec les points soufflés du diagramme. Bon crochet!

24.01.2023 - 12:15

country flag Josie skrifaði:

Bonjour à vous tous Je commence la couverture au crochet mais je ne me souviens plus si on lit le diagramme un rang en partant de la droite, le suivant en partant de la gauche ou bien tous les rangs en partant de la droite. Merci beaucoup et bonne journée

15.04.2022 - 10:49

DROPS Design svaraði:

Bonjour Josie, dans ce modèle, le 1er rang des diagrammes (sous la flèche) a été fait sur l'envers, vous commencez ainsi par le 1er rang (celui avec la flèche) sur l'endroit: A.1, répétez A.2 et terminez par A.3; sur l'envers, lisez en sens inverse de gauche à droite: A.3, répétez A.2 (en lisant aussi de gauche à droite) et terminez par A.1. Bon crochet!

19.04.2022 - 09:10

country flag Elizabeth skrifaði:

Når ein hekler ein stav i maske + ei luftmaske, hoppar ein då over ei maske ved neste stav i maske?

19.07.2021 - 23:27