Yanina skrifaði:
Estaría buenovtener el patrón dibujado ...hasta donde vi no lo encontré
16.07.2020 - 05:05DROPS Design svaraði:
Hola Yanina, lo sentimos pero este patrón se encuentra solo en formato escrito, es decir, no incluye diagramas.
19.08.2020 - 17:50
Cynthia skrifaði:
Dear Cindy, this video shows how to crochet these slippers in first size - row 11 (from time code 2.30) and how to crochet the 7 double crochets around the chain (time code 3:03). Happy crocheting! reply: I tried two days now to watch videos your player still not working , will it be fixed soon?
31.03.2020 - 01:08DROPS Design svaraði:
Dear Cynthia, you can check Vimeo Help center here - and see our video here in YouTube. Happy crocheting!
31.03.2020 - 09:59
CINDY skrifaði:
On pattern Slipping on the Sunshine -foot: row 11I do not understand were it says to do 7 double crochets around chain stitch after you did the single crochets. I have been crocheting for 50 years and I find this pattern not easy to follow at all! Your help would be appreciated my granddaughter really wants these slippers. Thank-you.
29.03.2020 - 20:00DROPS Design svaraði:
Dear Cindy, this video shows how to crochet these slippers in first size - row 11 (from time code 2.30) and how to crochet the 7 double crochets around the chain (time code 3:03). Happy crocheting!
30.03.2020 - 11:19
Jj skrifaði:
How many yards I’d yarn required for these slippers? I’m not sure how many grams = yards for a 7 1/2-9 size slipper. Thanks.
16.10.2019 - 01:09DROPS Design svaraði:
Dear Ji, the size 71/2/9 slippers use 200 gramms of DROPS ESKIMO yarn, that is fairly thock, 50 meters in a 50 gramm ball, about 200 meters for the slipper. If you want to use of another o our yarns, please use the yarn converter linked on teh pattern page. Happy Knitting!
16.10.2019 - 05:34
Inger skrifaði:
Goldielock's socks
22.09.2019 - 07:54
Heringuez Isabelle skrifaði:
Chaussettes grelots
05.06.2019 - 20:05
Slipping on Sunshine#slippingonsunshineslippers |
|
![]() |
![]() |
Heklaðar tátiljur úr DROPS Snow. Stykkið er heklað frá stroffi / legg og niður með stuðlum, fastalykkjum og kúlum. Stærð 35-43.
DROPS 203-30 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á umferð með fastalykkjum er hekluð 1 loftlykkja, þessi lykkja kemur sem viðbót við uppgefinn lykkjufjölda. Í byrjun á umferð með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur, þessar lykkjur koma sem viðbót við uppgefinn lykkjufjölda. FASTALYKKJUR HEKLAÐAR SAMAN: 2 fastalykkjur heklaðar saman í 1 fastalykkju þannig: Stingið heklunálinni í fyrstu lykkjuna, sækið þráðinn, stingið heklunálinni í næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. 5 TVÍBRUGÐNIR STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN (= kúla): Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin = 2 lykkjur á heklunálinni, heklið 4 tvíbrugðna stuðla til viðbótar alveg eins = 6 lykkjur á heklunálinni. Bregðið þræðinum í lokin yfir heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka frá stroffi / legg og niður að fæti. Að lokum er stykkið saumað saman við miðju undir fæti og við miðju að aftan. STROFF / LEGGUR: UMFERÐ 1 (= ranga): Heklið 23-27-27 lausar loftlykkjur með heklunál 7 með Snow. Heklið 1 stuðul í 3. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 stuðul í hverja loftlykkju út umferðina = 21-25-25 stuðlar. UMFERÐ 2 (= rétta): SJÁ HEKLLEIÐBEININGAR. Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul út umferðina, snúið stykkinu. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! UMFERÐ 3 (= ranga): Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju út umferðina, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= rétta): Heklið 3 loftlykkjur, heklið 1 stuðul í næstu fastalykkju, * í næstu fastalykkju eru heklaðir 5 TVÍBRUGÐNIR STUÐLAR SAMAN (= kúla), heklið 1 stuðul í hverja af næstu 3 fastalykkjum *, heklið frá *-* út umferðina, snúið stykkinu. UMFERÐ 5 (= ranga): Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju út umferðina, snúið stykkinu. UMFERÐ 6 (= rétta): Heklið 3 loftlykkjur, * heklið 1 stuðul í hverja af næstu 3 fastalykkjum, í næstu fastalykkjur eru heklaðir 5 TVÍBRUGÐNIR STUÐLAR SAMAN (= kúla) *, heklið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir. Heklið 1 stuðul í hverja af síðustu fastalykkjum, snúið stykkinu. UMFERÐ 7 (= ranga): Heklið 1 umferð með 1 fastalykkju í hverja lykkju. UMFERÐ 8 (= rétta): Heklið 1 umferð með 1 fastalykkju í hverja lykkju. UMFERÐ 9 (= ranga): Heklið 1 umferð með 1 fastalykkju í hverja lykkju. Setjið eitt prjónamerki yst í hlið á stykki í þessa umferð. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FÓTUR: UMFERÐ 10 (= rétta): Heklið 2 fastalykkjur í fyrstu fastalykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 8-10-10 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju, 1 loftlykkja, hoppið yfir næstu fastalykkju, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 8-10-10 fastalykkjum og 2 fastalykkjur í síðustu fastalykkju, snúið stykkinu. UMFERÐ 11 (= ranga): Heklið 1 fastalykkju í hverja af 12-14-14 fyrstu fastalykkjum, 7 stuðlar um loftlykkju og 1 fastalykkja í hverja af síðustu 12-14-14 fastalykkjum = 31-35-35 lykkjur, snúið stykkinu. UMFERÐ 12(= rétta): Heklið 2 fastalykkjur í fyrstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 13-15-15 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 loftlykkja, hoppið yfir næstu lykkju, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 13-15-15 lykkjum og 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 13-15-15 lykkjum og 2 fastalykkjur í síðustu lykkju, snúið stykkinu. UMFERÐ 13 (= ranga): Heklið 1 fastalykkju í hverja af 17-19-19 fyrstu fastalykkjum, 7 stuðlar um loftlykkju og 1 fastalykkja í hverja af síðustu 17-19-19 fastalykkjum = 41-45-45 lykkjur, snúið stykkinu. UMFERÐ 14 (= rétta): Heklið 2 fastalykkjur í fyrstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 18-20-20 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 loftlykkja, hoppið yfir næstu lykkju, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 18-20-20 lykkjum og 2 fastalykkjur í síðustu lykkju, snúið stykkinu. UMFERÐ 15 (= ranga): Heklið 1 fastalykkju í hverja af 22-24-24 fyrstu fastalykkjum, 7 stuðlar um loftlykkju og 1 fastalykkja í hvera af síðustu 22-24-24 fastalykkjum = 51-55-55 lykkjur, snúið stykkinu. STÆRÐ 35/37 og 38/40: Útaukning er lokið. STÆRÐ 41/43: UMFERÐ 16 (= rétta): Heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 27 lykkjum, 1 loftlykkja, hoppið yfir næstu lykkju og heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 27 lykkjum, snúið stykkinu. UMFERÐ 17 (= ranga): Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 27 fastalykkjum, 7 stuðlar um loftlykkju og 1 fastalykkja í hverja af síðustu 27 fastalykkjum = 61 lykkjur, snúið stykkinu. Útaukningu er lokið. ALLAR STÆRÐIR: Eftir síðustu útaukningu eru 51-55-61 lykkjur í umferð. Haldið áfram fram og til baka með 1 fastalykkju í hverja lykkju þar til 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 11-12-13 cm (frá prjónamerki og niður meðfram hlið). Í næstu umferð er fækkað um lykkjur í byrjun og í lok á umferð til að stykkið passi betur þannig: Heklið 2 fastalykkjur saman 2 sinnum – SJÁ FASTALYKKJUR HEKLAÐAR SAMAN í útskýringu að ofan, heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju þar til 4 fastalykkjur eru eftir, heklið 2 fastalykkjur saman 2 sinnum = 47-51-57 fastalykkjur. Klippið frá og festið enda. FRÁGANGUR: Byrjið undir fæti framan á tá. Saumið saman kant í kant í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið saman mitt undir fæti, upp meðfram hæl mitt að aftan og alveg að efst á strofffi. Klippið frá og festið enda. Heklið aðra tátilju á sama hátt. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #slippingonsunshineslippers eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 13 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 203-30
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.