Michelle Forbes skrifaði:
Hello Thumb increases on every other round 5 times means that only ten rows are worked to division for thumb. This seems very small . Should increases be worked every 3rd row instead of every 2nd row? Many Thanks
12.05.2020 - 23:33DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Forbes, that's correct, the increases are done on every other round, ie over 10 rounds. You can adapt the increases if you think you need more height. Just remember this will affect the total lenghts given in the pattern. Happy knitting!
13.05.2020 - 08:36
Helen skrifaði:
Tak for svar. Nu har jeg haft andre til at kigge på det og det passer altså ikke
17.10.2019 - 08:12DROPS Design svaraði:
Hej igen Helen, Du sætter mærketråde i hver side, så du har 24 masker inde i hånden. Nu tager du ind på hver side af mærketrådene i hver side og når du har 1 omgang tilbage tager du yderligere 2 masker ind over snoningerne. God fornøjelse!
17.10.2019 - 15:12
Helen skrifaði:
Jeg kan ikke få indtagningen på vanten til at passe. Omgangen slutter med 4 ret? Hvis man lukker af som beskrevet kommer man til at lukke af over den ene fletning inden man når til sidste indtagningsomgang
16.10.2019 - 21:34DROPS Design svaraði:
Hej Helen, jo men det stemmer, du skal lukke over hver snoning til sidst. God fornøjelse!
17.10.2019 - 07:46
Siw-Helen Larsen skrifaði:
Jeg skjønner ikke fellinga øverst på votten. Det vlir jo felling i den første fletteraden, og hvordan skal man i tillegg felle ti masker over den fletter da?
02.10.2019 - 19:07DROPS Design svaraði:
Hej, du feller i hver side som beskrevet i FELLETIPS. Når du samtidig skal felle over fletten, strikker du 2 flettemasker sammen og løfter over som du plejer når du feller. God fornøjelse!
03.10.2019 - 10:54
Snowman Set#snowmanset |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
Prjónaðir vettlingar og húfa með litlum köðlum úr DROPS Merino Extra Fine. Stærð S – L.
DROPS 204-13 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. A.1 og A.2 á við um vettlinga, A.3 til A.5 á við um húfu. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. ÚRTAKA: Fækkið lykkjum þannig (byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki): 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VETTLINGAR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. HÆGRI VETTLINGUR: Fitjið upp 50-50 lykkjur á sokkaprjón 3 með Merino Extra Fine og prjónið 1 umferð slétt. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* yfir næstu 24 lykkjur, 2 lykkjur slétt, A.1 yfir næstu 20 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið. Haldið áfram með A.1 þar til prjónað hefur verið 1 sinni á hæðina. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið næstu umferð þannig: Prjónið 26-26 lykkjur slétt (= innan í hendi), A.2 yfir A.1 (= 23 lykkjur) og 4 lykkjur slétt. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 13-14 cm, aukið út um 1 lykkju fyrir þumal hvoru megin við fyrstu lykkju í umferð – sjá ÚTAUKNING að ofan. Aukið svona út hvoru megin við útauknu lykkjurnar í annarri hverri umferð, aukið svona út alls 5-6 sinnum = 60-62 lykkjur. Setjið nú 11-13 þumallykkjur á 1 þráð. Haldið áfram hringinn eins og áður og fitjið upp 1 nýja lykkju aftan við þumal í næstu umferð = 50-50 lykkjur. Þegar vettlingurinn mælist ca 24-26 cm (mátið e.t.v. vettlinginn, nú eru eftir ca 3-3 cm að loka máli), setjið 1 prjónamerki eftir fyrstu lykkjuna í umferð og 1 prjónamerki eftir 24-24 lykkjur. Fækkið nú um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA að ofan. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 3-3 sinnum og síðan í hverri umferð alls 2-2 sinnum – í síðustu úrtöku umferð er fækkað að auki um 2 lykkjur yfir hvern kaðal = 24-24 lykkjur. Prjónið lykkjurnar slétt saman 2 og 2 = 12-12 lykkjur. Prjónið lykkjurnar slétt saman 2 og 2 = 6 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. ÞUMALL: Setjið til baka 11-13 þumallykkjur af þræði á sokkaprjón 3,5. Prjónið að auki upp 4-3 lykkjur aftan við þumal = 15-16 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til sjálfur þumallinn mælist ca 5-5 cm (mátið e.t.v. vettlinginn, nú eru eftir ca ½ cm að loka máli). Prjónið allar lykkjur saman 2 og 2 í næstu 2 umferðum = 4-4 lykkjur eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. VINSTRI VETTLINGUR: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægri vettlingur, en aukið út fyrir þumal hvoru megin við 22. – 22. lykkju í umferð. ------------------------------------------------------- HÚFA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 112-120 lykkjur á hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið A.3 yfir allar lykkjur (= 14-15 mynstureiningar með 8 lykkjum). Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er skipt yfir á hringprjón 4 og haldið áfram með A.4 (= 9 lykkjur) yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 15-16 cm, prjónið og fækkið lykkjum eftir A.5 (= 14-15 mynstureiningar með 9 lykkjum á breidd). Þegar A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 42-45 lykkju eftir í umferð (skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf). Prjónið allar lykkjur 2 og 2 slétt saman = 21-23 lykkjur. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum síðustu lykkjurnar, herðið að og festið vel. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #snowmanset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 204-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.