Rays of Sunset#raysofsunsetwrap |
|
![]() |
![]() |
Prjónað sjal úr DROPS Fabel. Stykkið er prjónað í garðaprjóni með röndum og stuttum umferðum.
DROPS 201-38 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA: Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið um 1 lykkju innan við 2 lykkjur garðaprjón með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman. Endurtakið úrtöku til skiptis í hverri og annarri hverri umferð frá réttu alls 26 sinnum í hverri mynstureiningu (það eru alls 5 mynstureiningar á sjali). Í hvert skipti þegar byrjað er á nýrri mynstureiningu með stuttum umferðum byrjar úrtaka upp á nýtt. Þ.e.a.s. fækkað er um 26 lykkjur í hverri mynstureiningu. RENDUR: ATH: Skipt er um þráð í byrjun á umferð frá réttu (= í neðri kanti á sjali). Passið uppá að herða ekki á þræðinum þegar skipt er um þráð! RÖND-1: * 2 umferðir garðaprjón með litnum bleik þoka, 2 umferðir garðaprjón með litnum natur *, prjónið frá *-* þar til öll 1. mynstureiningin hefur verið prjónuð til loka = 80 umferðir garðaprjón. RÖND-2: * 2 umferðir garðaprjón með litnum rósarunni, 2 umferðir garðaprjón með litnum natur *, prjónið frá *-* þar til öll 2. mynstureiningin hefur verið prjónuð til loka = 80 umferðir garðaprjón. RÖND-3: * 2 umferðir garðaprjón með litnum sandur, 2 umferðir garðaprjón með litnum natur *, prjónið frá *-* þar til öll 3. mynstureiningin hefur verið prjónuð til loka = 80 umferðir garðaprjón. RÖND-4: * 2 umferðir garðaprjón með litnum bleik þoka, 2 umferðir garðaprjón með litnum natur *, prjónið frá *-* þar til öll 4. mynstureiningin hefur verið prjónuð til loka = 80 umferðir garðaprjón. RÖND-5: * 2 umferðir garðaprjón með litnum rósarunni, 2 umferðir garðaprjón með litnum natur *, prjónið frá *-* þar til öll 5. mynstureiningin hefur verið prjónuð til loka = 80 umferðir garðaprjón. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að það myndist stór göt þegar stykkinu er snúið við í stuttu umferðunum þá verður að herða á þræði áður en prjónað er áfram. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL: Stykkið er prjónað fram og til baka í 5 mynstureiningum með stuttum umferðum og RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Prjónað er frá efst á sjali og niður að neðri kanti á sjali. Allt sjalið er prjónað í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. SJAL: Fitjið upp 336 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum bleik þoka. Prjónið 4 umferðir slétt. MYNSTUREINING 1: Prjónið RÖND-1 – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT eru prjónaðar stuttar umferðir eins og útskýrt er að neðan og fækkað um 1 lykkju innan við 2 lykkjur garðaprjón í byrjun á umferð frá réttu – sjá ÚRTAKA! Prjónið stuttar umferðir þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið allar lykkjur slétt, snúið. UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur til baka. UMFERÐ 3: Prjónið sléttar lykkjur þar til 4 lykkjur eru eftir, snúið – sjá LEIÐBEININGAR! UMFERÐ 4: Prjónið sléttar lykkjur til baka. UMFERÐ 5: Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 8 lykkjur fleiri en í fyrri umferð frá réttu, snúið. UMFERÐ 6: Prjónið sléttar lykkjur til baka. UMFERÐ 7: Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 8 lykkjur fleiri en í fyrri umferð frá réttu, snúið. UMFERÐ 8: Prjónið sléttar lykkjur til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram og prjónið þar til eftir eru 8 lykkjur fleiri en í fyrri umferð frá réttu 33 sinnum til viðbótar (= alls 35 sinnum), síðan er prjónað þar til eftir eru 9 lykkjur fleiri en í fyrri umferð alls 2 sinnum. Þegar allar stuttar umferðir hafa verið prjónaðar til loka hafa verið prjónaðar 78 umferðir garðaprjón og fækkað um 26 lykkjur = 310 lykkjur í umferð. Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 4 lykkjur, snúið og prjónið sléttar lykkjur til baka. Mynstureining 1 = 80 umferðir garðaprjón. MYNSTUREINING 2: Prjónið RÖND-2 – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT eru prjónaðar stuttar umferðir eins og útskýrt er að neðan og fækkað um 1 lykkju innan við 2 lykkjur garðaprjón í byrjun á umferð frá réttu – sjá ÚRTAKA! Prjónið stuttar umferðir þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið allar lykkjur slétt, snúið. UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur til baka. UMFERÐ 3: Prjónið sléttar lykkjur þar til 4 lykkjur eru eftir, snúið – munið eftir LEIÐBEININGAR! UMFERÐ 4: Prjónið sléttar lykkjur til baka. UMFERÐ 5: Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 8 lykkjur fleiri en í fyrri umferð frá réttu, snúið. UMFERÐ 6: Prjónið sléttar lykkjur til baka. UMFERÐ 7: Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 8 lykkjur fleiri en í fyrri umferð frá réttu, snúið. UMFERÐ 8: Prjónið sléttar lykkjur til baka. Haldið svona áfram og prjónið þar til eftir eru 8 lykkjur fleiri en í fyrri umferð frá réttu 11 sinnum til viðbótar (= alls 13 sinnum), síðan er prjónað þar til eftir eru 7 lykkjur fleiri en í fyrri umferð alls 24 sinnum. Þegar allar stuttar umferðir hafa verið prjónaðar til loka hafa verið prjónaðar 78 umferðir garðaprjón og fækkað um 26 lykkjur = 284 lykkjur í umferð. Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 4 lykkjur, snúið og prjónið sléttar lykkjur til baka. Mynstureining 2 = 80 umferðir garðaprjón. MYNSTUREINING 3: Prjónið RÖND-3 – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT eru prjónaðar stuttar umferðir eins og útskýrt er að neðan og fækkað um 1 lykkju innan við 2 lykkjur garðaprjón í byrjun á umferð frá réttu – sjá ÚRTAKA! Prjónið stuttar umferðir þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið allar lykkjur slétt, snúið. UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur til baka. UMFERÐ 3: Prjónið sléttar lykkjur þar til 4 lykkjur eru eftir, snúið – munið eftir LEIÐBEININGAR! UMFERÐ 4: Prjónið sléttar lykkjur til baka. UMFERÐ 5: Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 7 lykkjur fleiri en í fyrri umferð frá réttu, snúið. UMFERÐ 6: Prjónið sléttar lykkjur til baka. UMFERÐ 7: Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 7 lykkjur fleiri en í fyrri umferð frá réttu, snúið. UMFERÐ 8: Prjónið sléttar lykkjur til baka. Haldið svona áfram og prjónið þar til eftir eru 7 lykkjur fleiri en í fyrri umferð frá réttu 22 sinnum til viðbótar (= alls 24 sinnum), síðan er prjónað þar til eftir eru 6 lykkjur fleiri en í fyrri umferð alls 13 sinnum. Þegar allar stuttar umferðir hafa verið prjónaðar til loka hafa verið prjónaðar 78 umferðir garðaprjón og fækkað um 26 lykkjur = 258 lykkjur í umferð. Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 4 lykkjur, snúið og prjónið sléttar lykkjur til baka. Mynstureining 3 = 80 umferðir garðaprjón. MYNSTUREINING 4: Prjónið RÖND-4 – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT eru prjónaðar stuttar umferðir eins og útskýrt er að neðan og fækkað um 1 lykkju innan við 2 lykkjur garðaprjón í byrjun á umferð frá réttu – sjá ÚRTAKA! Prjónið stuttar umferðir þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið allar lykkjur slétt, snúið. UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur til baka. UMFERÐ 3: Prjónið sléttar lykkjur þar til 4 lykkjur eru eftir, snúið – munið eftir LEIÐBEININGAR! UMFERÐ 4: Prjónið sléttar lykkjur til baka. UMFERÐ 5: Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 6 lykkjur fleiri en í fyrri umferð frá réttu, snúið. UMFERÐ 6: Prjónið sléttar lykkjur til baka. UMFERÐ 7: Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 6 lykkjur fleiri en í fyrri umferð frá réttu, snúið. UMFERÐ 8: Prjónið sléttar lykkjur til baka. Haldið svona áfram og prjónið þar til eftir eru 6 lykkjur fleiri en í fyrri umferð frá réttu 33 sinnum til viðbótar (= alls 35 sinnum), síðan er prjónað þar til eftir eru 5 lykkjur fleiri en í fyrri umferð alls 2 sinnum. Þegar allar stuttar umferðir hafa verið prjónaðar til loka hafa verið prjónaðar 78 umferðir garðaprjón og fækkað um 26 lykkjur = 232 lykkjur í umferð. Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 4 lykkjur, snúið og prjónið sléttar lykkjur til baka. Mynstureining 4 = 80 umferðir garðaprjón. MYNSTUREINING 5: Prjónið RÖND-5 – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT eru prjónaðar stuttar umferðir eins og útskýrt er að neðan og fækkað um 1 lykkju innan við 2 lykkjur garðaprjón í byrjun á umferð frá réttu – sjá ÚRTAKA! Prjónið stuttar umferðir þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið allar lykkjur slétt, snúið. UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur til baka. UMFERÐ 3: Prjónið sléttar lykkjur þar til 4 lykkjur eru eftir, snúið – munið eftir LEIÐBEININGAR! UMFERÐ 4: Prjónið sléttar lykkjur til baka. UMFERÐ 5: Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 6 lykkjur fleiri en í fyrri umferð frá réttu, snúið. UMFERÐ 6: Prjónið sléttar lykkjur til baka. UMFERÐ 7: Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 6 lykkjur fleiri en í fyrri umferð frá réttu, snúið. UMFERÐ 7: Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 6 lykkjur fleiri en í fyrri umferð frá réttu, snúið. UMFERÐ 8: Prjónið sléttar lykkjur til baka. Haldið svona áfram og prjónið þar til eftir eru 6 lykkjur fleiri en í fyrri umferð frá réttu 7 sinnum til viðbótar (= alls 9 sinnum), síðan er prjónað þar til eftir eru 5 lykkjur fleiri en í fyrri umferð alls 28 sinnum. Þegar allar stuttar umferðir hafa verið prjónaðar til loka hafa verið prjónaðar 78 umferðir garðaprjón og fækkað um 26 lykkjur = 206 lykkjur í umferð. Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 4 lykkjur, snúið og prjónið sléttar lykkjur til baka. Mynstureining 5 = 80 umferðir garðaprjón. Prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur með litnum rósarunni. Fellið af með sléttum lykkjum, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur, sláið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju. Uppslátturinn er felldur af eins og eigin lykkja. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #raysofsunsetwrap eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 201-38
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.