DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2816.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Soda Fountain

Prjónaður toppur úr DROPS Flora. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, klukkuprjóns lykkjum á berustykki og stuttum ermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 201-40
DROPS Design: Mynstur fl-041
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS FLORA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200-250-250-300-300-350 g litur 21, bleikur

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón og klukkuprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2816.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.

ÚTAUKNING-1 (á við um útaukningu í A.1):
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir hverja lykkju í klukkuprjóni.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Aukið út alveg eins við hitt prjónamerkið.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚTAUKNING-3 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 228 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 66) = 3,5.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir 3. og 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsi og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykki skiptist til fram- og bakstykki og kanta á ermum. Fram- og bakstykki er síðan prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Kantar á ermum eru prjónaðir í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 111-123-129-129-138-150 lykkjur á stuttan hringprjón 2,5 með Flora. Byrjun á umferð = mitt að aftan. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2-2-2-3-3-3 cm.
Næsta umferð er prjónuð þannig:
STÆRÐ S, M og L: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 148-164-172 lykkjur.
STÆRÐ XL, XXL og XXXL: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 215-230-250 lykkjur.
ALLAR STÆRÐIR: Prjónið 1 umferð með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat). Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið A.1 hringinn (= 37-41-43-43-46-50 mynstureiningar með 4-4-4-5-5-5 lykkjur). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 4-4-4-5-6-6 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út um 1 lykkju í hverri brugðinni einingu – sjá ÚTAUKNING-1 = 185-205-215-258-276-300 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður með 4-4-4-5-5-5 lykkjur brugðið á milli hverra lykkja í klukkuprjóni.
Þegar stykkið mælist 7-7-8-8-9-9 cm frá uppfitjunarkanti, prjónið A.2 hringinn (= 37-41-43-43-46-50 mynstureiningar með 5-5-5-6-6-6 lykkjur). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 333-369-387-430-460-500 lykkjur í umferð. Prjónið síðan A.3 hringinn (= 37-41-43-43-46-50 mynstureiningar með 9-9-9-10-10-10 lykkjur). Haldið áfram með A.3 þar til stykkið mælist ca 16-17-19-21-23-25 cm frá uppfitjunarkanti.
Prjónið nú 4 umferðir sléttprjón, EN í annarri hverri umferð halda klukkuprjóns lykkjur áfram eins og áður (þ.e.a.s. prjónið klukkuprjón eins og áður; en með sléttum lykkjum á milli hverra lykkja í klukkuprjóni – ATH: Klukkuprjóns lykkjurnar verða aðeins meira sýnilegri í þessum 4 umferðum, en gefa aðeins mýkri skiptingu á milli áferðar og sléttprjóns).

Prjónið síðan sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur JAFNFRAMT sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 332-368-388-428-460-500 lykkjur í fyrstu umferð (þ.e.a.s. fækkið eða aukið lykkjum í réttan lykkjufjölda – á við um 4 minnstu stærðirnar).
Þegar stykkið mælist 20-22-24-26-28-30 cm frá uppfitjunarkanti, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 50-54-57-63-70-77 lykkjur slétt (= ½ bakstykki), setjið næstu 66-76-80-88-90-96 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 100-108-114-126-140-154 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 66-76-80-88-90-96 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 50-54-57-63-70-77 lykkjur sem eftir eru slétt (= ½ bakstykki). Klippið frá. Fram- og bakstykki og kantar á ermum er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 212-232-248-272-304-332 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í 6-8-10-10-12-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu – þau eru notuð síðar þegar auka á út í hliðum.
Byrjið umferð við annað prjónamerkið og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4-4-4-3-3-3 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 5-5-3½-3-3-3 cm millibili alls 4-4-5-6-6-6 sinnum í hvorri hlið = 228-248-268-296-328-356 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 21 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 3 cm að loka máli). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 66-70-74-82-92-100 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-3 = 294-318-342-378-420-456 lykkjur. Þetta er gert til að koma í veg fyrir að storffið sem á að prjóna, dragist saman.
Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum. Toppurinn mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl og niður.

KANTUR Á ERMI:
Setjið 66-76-80-88-90-96 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 72-84-90-98-102-108 lykkjur.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 0-0-0-1-0-0 lykkjur = 72-84-90-99-102-108 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en ef affellingarkanturinn verður stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).
Prjónið hinn kant á ermi á sama hátt.

Mynstur

symbols = brugðið
symbols = prjónið 1 lykkju slétt í lykkjuna fyrir neðan næstu lykkju – þessi lykkja kallast nú klukkuprjónslykkja
symbols = prjónið 5 lykkjur í klukkuprjónslykkjuna þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, en bíðið með að lyfta lykkjunni yfir af prjóni, * sláið 1 sinni uppá hægri prjón, prjónið sömu lykkju slétt án þess að lyfta henni af vinstri prjóni *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum, sleppið síðan lykkjunni af vinstri prjóni = 5 lykkjur (þ.e.a.s. 4 lykkjur fleiri).
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Soda Fountain

Dri Kool, Italy

Soda Fountain top

Sonja, United States

Soda Fountain

Sarah, United Kingdom

Soda Fountain

Svetlana Cox, United States

Skrifaðu athugasemd um DROPS 201-40

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (14)

country flag Caro Devillez wrote:

Bonjour, je suis habitante de la Belgique mais je parles le français comme plus de la moitié du pays... Pourquoi dois-je prendre le site FRANCE ? Merci

14.06.2022 - 22:30

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Devillez, choisissez "FRANCE" pour la langue, pas pour le pays - ceci s'applique également à tous les autres pays francophones. Bon tricot!

15.06.2022 - 09:26

country flag Onbekend wrote:

Voor lijf dus 310 st volgens mijn proeflap 32x 40 ==> 10x10

09.03.2022 - 20:29

country flag Corinna wrote:

Ich stricke viel top down. Wie kann ich hier den vorderen Halsausschnitt vertiefen? Verkürzte Reihen oder gibt es eine weniger rechenintensive Möglichkeit. Mir sind bei Euren Anleitungen für Sommerstrick die Halsausschnitt meist zu hoch. Viele Grüße

20.01.2022 - 13:16

DROPS Design answered:

Liebe Corinna, ja dann am besten verkürzten Reihen für eine Erhöhung würde die beste Möglichkeit, am besten lassen Sie sich von einem ähnlichen Modell inspirieren, das eine Erhöhung hat. Viel Spaß beim stricken!

20.01.2022 - 17:10

country flag Judy Hankey wrote:

On pattern 201-40 in chart A-2 it calls for an English Rib with 5 stitches. When working Row 2, all purls, do you knit each of the 5 stitches as you come to them, or all five stitches worked as 1 stitch.

27.07.2021 - 01:53

DROPS Design answered:

Hi Judy, In row 2 all stitches are purled (the English rib stitches too). Happy knitting!

27.07.2021 - 09:28

country flag Alma wrote:

Dove dice nei giri a rovescio aumentare dopo ogni maglia a costa inglese come verrà lavorata a rovescio come indicato nello schema o diversamente grazie

02.06.2020 - 17:02

DROPS Design answered:

Buongiorno Alma. Al giro successivo, lavora la maglia aumentata a rovescio ritorto. Abbiamo corretto il testo. Buon lavoro!

02.06.2020 - 17:30

country flag Marí Carmen Ríos Aragón wrote:

Cómo saber la talla que tengo , para elegir entre las que te viene en el patrón . Muchas gracias

03.05.2020 - 21:18

DROPS Design answered:

Hola Mari Carmen! Mira la leccion AQUI y siempre tejas una muestra. Buen trabajo!

04.05.2020 - 08:17

country flag Unn-Lisbeth Hansen wrote:

Kan det stemme at denne skal være bare 21 cm fra deling og ned til vrangbord?

08.07.2019 - 22:20

DROPS Design answered:

Hei Unn-Lisbeth, Det er riktig som står i oppskriften, men hvis du vil ha det lengre kan du strikke videre før du strikker vrangbord. God fornøyelse!

09.07.2019 - 07:29

country flag Agnethe Jernek wrote:

Kan jeg strikke fra neden fra og opp

13.06.2019 - 10:41

DROPS Design answered:

Hei Agnetha. Ja, du må gjerne reversere oppskriften og strikke den nedenfra og opp om du ønsker det. Begynn nederst på bolen, fell der det står øk, øk der det står fell, husk å snu diagrammene opp-ned (altså les dem ovenfra og ned, fra venstre mot høyre). God fornøyelse

13.06.2019 - 10:51

country flag Jan wrote:

Is there a way to make the back insert so that the neckline doesn’t sit so high up in the front?

11.06.2019 - 17:58

DROPS Design answered:

Dear Jan, you can try to make an elevation on back of neck. Happy knitting!

12.06.2019 - 07:20

country flag Garciamina wrote:

Es un modelo precioso, elegante y creo será sencillo hacerlo, gracias a todos

16.05.2019 - 01:18