Tina skrifaði:
Ja, das kommt der Sache schon sehr entgegen! Vielen herzlichen Dank 👍💖
11.02.2019 - 12:24
Tina skrifaði:
Oha, da habe ich mich offensichtlich sehr missverständlich ausgedrückt 😏 Genau anders herum: Ich möchte mit den Drops Garnen Arugumi aus YouTube Videos nachstricken. Also mit Drops Garn "fremde" Anleitungen realisieren. Hoffentlich ist diese Fragestellung jetzt verständlich. Liebe Grüße Tina
11.02.2019 - 11:17DROPS Design svaraði:
Liebe Tina, hier lesen Sie mehr über alle Garne/Gruppen - mit Maschenprobe und länge/50 g , das kann schon auch mal helfen, und hier können Sie die Modellen je nach Maschenprobe filtern. Viel Spaß beim stricken!
11.02.2019 - 11:55
Tina skrifaði:
Hallo Drops Kundenteam Ich habe eine Frage bzw. Bitte: Könnten Sie vielleicht in der Such-Leiste die Suche nach der Maschenprobe ermöglichen? Das würde die Suche nach einem Drops Austausch Garn verschaffen, wenn ich nicht mit der in einer Anleitung genannten Wolle eines "Fremdherstellers" (Schachenmayr, Katia etc.) arbeiten möchte. Vielen Dank schon mal vorab 💖 Liebe Grüße Tina Lau
10.02.2019 - 13:37DROPS Design svaraði:
Liebe Tina, wir bitten um Verständnis, dass wir nicht Produkte unserer Konkurrenz empfehlen können und dass der Kauf des Materials uns hilft, weiterhin kostenlose Anleitungen zur Verfügung stellen zu können. Viel Spaß beim stricken!
11.02.2019 - 10:25
Team Sofa#teamsofaslippers |
|
![]() |
![]() |
Prjónaðar tátiljur með fánum og dominoferningum úr DROPS Fabel. Stærð 35-43.
DROPS 194-41 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MÆLING: Mikilvægt er að halda prjónfestunni, verið nákvæm þannig að rúðurnar verði ferkantaðar. Hallinn á 1 ferningi x 2 jafngildir fótlengd á tilbúinni tátilju. DOMINOFERNINGUR: 1 Dominoferningur er prjónaður þannig: Setjið 1 prjónamerki í miðju lykkjuna. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða, 2 lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir þessar lykkjur, prjónið sléttar lykkjur út umferðina. Endurtakið umferð 1 og 2 þar til einungis er 1 lykkja eftir á prjóni. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum lykkjuna. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum sem síðan eru prjónuð saman jafnóðum. TÁTILJA: Stykkið byrjar með að prjónaðir eru 4 ferningar sem verða að sóla á tátiljunni – sjá Teikning 1, örvar sýna prjónstefnu á ferningum. Sjá MÆLING! FERNINGUR 1: Fitjið upp 43-47-53 lykkjur á prjón 2,5 með litnum kóngablár. Prjónið DOMINOFERNINGUR – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! FERNINGUR 2: Prjónið upp (frá réttu) 21-23-26 lykkjur í uppfitjunarkanti á 1. ferningi, frá horni í hlið og niður að prjónamerki, prjónið upp 1 lykkju í lykkju með prjónamerki, síðan eru fitjaðar upp 21-23-26 nýjar lykkjur á prjóninn = 43-47-53 lykkjur. Prjónið Dominoferning. FERNINGUR 3: Prjónið upp (frá réttu) 1 lykkja í hverja af nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp á 2. ferningi, frá horni og niður að prjónamerki á 1. ferningi = 21-23-26 lykkjur, prjónið upp 1 lykkju í lykkju með prjónamerki, síðan eru fitjaðar upp 21-23-26 nýjar lykkjur á prjóninn = 43-47-53 lykkjur. Prjónið Dominoferning. FERNINGUR 4: Prjónið upp (frá réttu) 1 lykkju í hverja og eina af nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp á 3. ferningi, frá horni og niður að prjónamerki á 1. ferningi = 21-23-26 lykkjur, prjónið upp 1 lykkju í lykkju með prjónamerki, prjónið síðan upp 21-23-26 lykkjur í uppfitjunarkanti á hinni hliðinni á 1. ferningi = 43-47-53 lykkjur. Prjónið Dominoferning. Sólinn er tilbúinn, sjá Teikningu 1. Prjónið nú 1 ferning með fána, þessi ferningur er mitt ofan á fæti, sjá Teikningu 2a/2b: FERNINGUR 5: Þessi ferningur samanstendur af 4 smáum ferningum með mismunandi litum. Litirnir eru prjónaðir þannig: Fitjið upp 21-23-26 lykkjur með litnum kóngablár á prjón 2,5. Prjónið dominoferningur, EN skiptið yfir í litninn natur í 2. umferð frá réttu og skiptið yfir í litinn rauður í 3. umferð frá réttu. Prjónið afgang af ferning með litnum rauður. Prjónið alls 4 ferninga. Saumið þá saman innan við 1 lykkju meðfram uppfitjunarkanti (bláar hliðar) þannig að saman myndast 1 ferningur. Klippið frá og festið enda. Þessi ferningur er saumaður niður að 2 hliðunum sem eru eftir á FERNINGUR 1 + fyrri hlið á FERNINGUR 2 og síðasta hlið á FERNINGUR 4. Saumið þannig að hornin á FERNINGUR 5 mætir hornum á FERNINGUR 2 og FERNINGUR 4. Prjónið nú 1 ferning sem verður hæll og bakhlið á tátilju, sjá Teikningu 2a/2b. FERNINGUR 6: Prjónið upp (frá réttu) 21-23-26 lykkjur meðfram annarri lausu hliðinni á FERNINGUR 3. Prjónið upp 1 lykkju í hornið, prjónið síðan upp 21-23-26 lykkjur meðfram hinni lausu hliðinni á sama ferningi = 43-47-53 lykkjur. Prjónið Dominoferningur. Prjónið nú 1 ferning hvoru megin við tátilju sem nær upp hvoru megin við ökkla, sjá Teikningu 2a/2b. FERNINGUR 7: Prjónið upp 21-23-26 lykkjur (frá réttu) meðfram hlið á FERNINGUR 6, prjónið upp 1 lykkju á milli 6. og 2. FERNINGUR og prjónið upp 21-23-26 lykkjur meðfram lausu hliðinni á FERNINGUR 2 = 43-47-53 lykkjur. Prjónið Dominoferningur. FERNINGUR 8: Prjónið upp (frá réttu) 21-23-26 lykkjur meðfram annarri lausu hliðinni á FERNINGUR 4, prjónið upp 1 lykkju á milli 4. og 6. FERNINGUR og prjónið upp 21-23-26 lykkjur meðfram lausu hliðinni á FERNINGUR 6 = 43-47-53 lykkjur. Prjónið Dominoferningur. Prjónið aðra tátilju á sama hátt. |
|
![]() |
|
![]() |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #teamsofaslippers eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 14 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 194-41
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.