Insolence#insolenceponcho |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Hekluð poncho peysa úr DROPS Nepal. Stykkið er heklað ofan frá og niður með gatamynstri og röndum. Stærð S – XXXL.
DROPS 195-27 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. HEKLLEIÐBEININGAR: Mynsturteikning A.1 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar og er hekluð sem viðbót við A.2. Mynsturteikning A.3 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar og er hekluð sem viðbót við A.4. Mynsturteikning A.5 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar og er hekluð sem viðbót við A.6. RENDUR: Stykkið er heklað í röndum, sjá númer 1-3 í mynsturteikningu. 1 = ljós grár 2 = grár 3 = milligrár ÚTAUKNING: Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 96 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 48) = 2. Í þessu dæmi er aukið út með því að hekla 2 stuðla í sömu lykkju á eftir öðrum hverjum stuðli. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PONCHO PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring ofan frá og niður. Ermar eru heklaðar í hring. Kantur í hálsmáli er heklaður í hring í lokin. BERUSTYKKI: Heklið 112-119-126 loftlykkjur með heklunál 5,5 með litnum ljós grár og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið 3 loftlykkjur, 1 stuðull í hverja af fyrstu 5 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 6 loftlykkjum *, heklið frá *-* alls 15-16-17 sinnum, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð = 96-102-108 stuðlar + 3 loftlykkjur. Heklið síðan mynstur í RENDUR – sjá útskýringu að ofan, þannig: Sjá HEKLLEIÐBEININGAR, HEKLIÐ A.2A alls 16-17-18 sinnum í umferð – í umferð merktri með ör er aukið út um 48-54-60 stuðla jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 144-156-168 stuðlar. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! A.2A er þá endurtekið 24-26-28 sinnum á beiddina. Þegar A.2A hefur verið heklað til loka, heklið A.2B yfir A.2A – í umferð merktri með ör er aukið út um 48-54-60 stuðla jafnt yfir = 192-210-228 stuðlar. A.2B er þá endurtekið 32-35-38 sinnum á breiddina. Þegar A.2B er lokið, heklið A.2A yfir A.2B – í umferð merktri með ör er aukið út um 48-54-60 stuðlar jafnt yfir = 240-264-288 stuðlar. A.2A er þá endurtekið 40-44-48 sinnum á breiddina. Haldið áfram þar til A.2A hefur verið heklað til loka á hæðina = 80-88-96 loftlykkjubogar. Stykkið mælist ca 36 cm. Nú skiptist fram- og bakstykki og ermar með því að setja 4 prjónamerki í stykkið þannig: Setjið 1 prjónamerki eftir fyrstu 13-15-16 loftlykkjuboga (= hálft bakstykki), setjið 1 prjónamerki eftir næstu 14-14-16 loftlykkjuboga (= ermi), setjið 1 prjónamerki eftir næstu 26-30-32 loftlykkjuboga (= framstykki), setjið 1 prjónamerki eftir næstu 14-14-16 loftlykkjuboga (= ermi), nú eru 13-15-16 loftlykkjubogar eftir í umferð (= hálft bakstykki). Nú skiptist fram- og bakstykki og ermar við prjónamerkin. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 52-60-64 loftlykkjubogar. Hekliið A.2B yfir þessar lykkjur JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 24 stuðla jafnt yfir (A.2B er endurtekið þá 30-34-36 sinnum á breiddina) = 180-204-216 stuðlar – í umferð merktri með ör er aukið út um 32-42-48 stuðla jafnt yfir = 216-246-264 stuðlar (A.2B er þá endurtekið 36-41-44 sinnum á breiddina). Þegar A.2B er lokið er heklað með litnum grár til loka. Heklið síðan A.2C yfir A.2B alls 0-1-2 sinnum á hæðina. Klippið frá og festið enda. Fram- og bakstykki mælist ca 8-12-16 cm frá skiptingu. ERMI: = 14-14-16 loftlykkjubogar. Ermin er heklað með litnum grár til loka. Byrjið mitt undir ermi og heklið síðan þannig: Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR, heklið A.2B alls 7-7-8 sinnum í umferð, en án útaukningar. Þegar A.2B er lokið, heklið A.4A yfir A.2B. Heklið síðan A.4B yfir A.4A, alls 1-1-2 sinnum á hæðina. Klippið frá og festið enda. Ermin mælist ca 21-21-25 cm frá skiptingu. Heklið hina ermina á sama hátt. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Kantur í hálsmáli er heklaður með litnum ljós grár. Heklið í kringum hálsmál þannig: - ATH: Heklað er í loftlykkjur þar sem stuðlar voru heklaðir, en ekki hekla í loftlykkjur sem hoppað var yfir: Byrjið við miðju að aftan, festið þráðinn í stykkið með 1 keðjulykkju í stuðul, heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í næsta stuðul, 3 loftlykkjur, hoppið yfir 3-1-3 stuðla, 1 fastalykkja í næsta stuðul, * 3 loftlykkjur, hoppið yfir 3 stuðla, 1 fastalykkja í næsta stuðul *, heklið frá *-* alls 22-24-25 sinnum, heklið 3 loftlykkjur, hoppið yfir 3 stuðla og endið með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun á umferð = 24-26-27 loftlykkjubogar. Heklið síðan A.6 hringinn – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR. Þegar A.6 hefur verið heklað til loka, klippið frá og festið enda. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #insolenceponcho eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 10 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 195-27
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.