DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7480.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Grey Sparrow

Hekluð peysa úr DROPS Sky. Stykkið er heklað ofan frá og niður með gatamynstri og langri klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

DROPS 195-14
DROPS Design: Mynstur sk-011
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-300-300-350-350-400 g litur 04, grár

HEKLFESTA:
16 stuðlar á breidd og 8 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 4,5.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7480.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Umferðin endar með 1 stuðli í 3. eða 2. loftlykkju frá byrjun á fyrri umferð (fer eftir hvort umferð byrjaði með 3 eða 2 loftlykkjum).
Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er fyrstu fastalykkju skipt út fyrir 2 loftlykkjur.
Umferðin endar með 1 fastalykkju í 3. eða 2. loftlykkju frá byrjun á fyrri umferð.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju innan við 2 ystu lykkjurnar í hvorri hlið. Fækkið um 1 lykkju með því að hoppa yfir 1 lykkju. Það er erfitt að segja hvar úrtakan hafnar í mynstri, en prófaðu að stilla úrtöku þannig að fækkað er í umferð með stuðlum/loftlykkjum (ekki stórum loftlykkjubogum).

ÚTAUKNING (á við um neðst á ermum):
Aukið út um 1 lykkju með því að hekla 2 fastalykkjur í sömu lykkju.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er heklað fram og til baka í hlutum, ofan frá og niður. Fyrst er hekluð hægri öxl að framan með útaukningu fyrir hálsmáli, síðan er vinstri öxl hekluð fram með útaukningu fyrir hálsmáli áður en stykkið er sett saman og heklað er fram og til baka til loka.
Bakstykki er heklað á sama hátt. Ermar eru heklaðar fram og til baka, ofan frá og niður. Stykkið er saumað saman áður en í lokin er heklaður kantur í hálsmáli.

HÆGRI ÖXL FRAM (þegar stykkið er mátað):
Lesið HEKLLEIÐBEININGAR!
Heklið 28-28-36-44-44-52 loftlykkjur með heklunál 4,5 með Sky.
Fyrsta umferð er hekluð frá röngu þannig: Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af 3 næstu loftlykkjum *, heklið frá *-* út umferðina = 20-20-26-32-32-38 stuðlar í umferð.
Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið A.1A (= 2 lykkjur), heklið A.1B yfir næstu 12-12-18-24-24-30 lykkjur (= 2-2-3-4-4-5 mynstureiningar með 6 lykkjum) og endið með A.1C (= 6 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka þar til A.1 hefur verið heklað til loka. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Geymið stykkið og heklið vinstri öxl eins og útskýrt er að neðan.

VINSTRI ÖXL AÐ FRAMAN (þegar flíkin er mátuð):
Heklið 28-28-36-44-44-52 loftlykkjur með heklunál 4,5 með Sky.
Fyrsta umferð er hekluð frá röngu þannig:
Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af 3 næstu loftlykkjum *, heklið frá *-* út umferðina = 20-20-26-32-32-38 stuðlar í umferð.
Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið A.1D (= 7 lykkjur), heklið A.1B yfir næstu 6-6-12-18-18-24 lykkjur (= 1-1-2-3-3-4 mynstureiningar með 6 lykkjum) og endið með A.1E (= 7 lykkjur). Haldið svona áfram fram og til baka þar til A.1 hefur verið heklað til loka. Í lok síðustu umferðar eru heklaðar 25-31-25-25-31-31 aðeins lausar loftlykkjur fyrir hálsmáli. Festið loftlykkjuumferðirnar með 1 keðjulykkju í ystu lykkju við háls á hægri öxl að framan (frá röngu). Klippið frá og festið enda. Heklið nú stykkin saman að framstykki eins og útskýrt er að neðan.

FRAMSTYKKI:
Byrjið frá réttu með hægri öxl fram, heklið síðan yfir loftlykkjur fyrir hálsmáli (heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju) og heklið síðan yfir lykkjur á vinstri öxl fram þannig: Heklið A.2A (= 2 lykkjur), heklið A.2B yfir næstu 60-66-72-84-90-102 lykkjur (= 10-11-12-14-15-17 mynstureiningar með 6 lykkjum) og endið með A.2C (= 7 lykkjur). ATH: Þegar heklað er yfir loftlykkjur fyrir kant í hálsi er heklaður 1 stuðull í hverja loftlykkju. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Þegar A.2 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina, heklið A.3 1 sinni á hæðina alveg eins. Heklið síðan aftur A.2 til loka. ATH: Þegar A.2 er endurtekið á eftir hverju öðru á hæðina verður 1. umferð í 2. mynstureiningu hekluð frá röngu. 1. stuðli er skipt út fyrir 3 loftlykkjur eins og áður.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 18-18-20-20-22-23 cm frá uppfitjunarkanti er sett 1 prjónamerki í hvora hlið til að merkja handveg.
Heklið síðan eins og útskýrt er að ofan þar til stykkið mælist ca 65-67-69-71-73-75 cm. Heklið að lokum 1 umferð með stuðlum – ATH: Veljið umferð frá einni mynsturteikningunni sem passar við þar sem þú ert í mynstri þannig að það verða 69-75-81-93-99-111 stuðlar í umferð. Klippið frá og festið enda. Framstykkin mælast ca 66-68-70-72-74-76 cm frá öxl og niður.

VINSTRI ÖXL AÐ AFTAN (þegar flíkin er mátuð):
Heklið 28-28-36-44-44-52 loftlykkjur með heklunál 4,5 með Sky.
Fyrsta umferð er hekluð frá röngu þannig: Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af 3 næstu loftlykkjum *, heklið frá *-* út umferðina = 20-20-26-32-32-38 stuðlar í umferð. Geymið stykkið og heklið hægri öxl að aftan eins og útskýrt er að neðan.

HÆGRI ÖXL AÐ AFTAN (þegar flíkin er mátuð):
Heklið 28-28-36-44-44-52 loftlykkjur með heklunál 4,5 með Sky.
Fyrsta umferðin er hekluð frá röngu þannig:
Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af 3 næstu loftlykkjum *, heklið frá *-* út umferðina = 20-20-26-32-32-38 stuðlar í umferð. Í lok þessara umferðar eru heklaðar 29-35-29-29-35-35 aðeins lausar loftlykkjur fyrir hálsmáli. Festið loftlykkjuumferð með 1 keðjulykkju í ystu lykkju við hálsmál á vinstri öxl að aftan (frá röngu). Heklið nú stykkin saman að bakstykki eins og útskýrt er að neðan.

BAKSTYKKI:
Byrjið frá réttu við vinstri öxl að aftan, heklið síðan yfir loftlykkjur fyrir hálsmáli og síðan yfir lykkjur á hægri öxl að aftan þannig: Heklið A.1A (= 2 lykkjur), heklið A.1B yfir næstu 60-66-72-84-90-102 lykkjur (= 10-11-12-14-15-17 mynstureiningar með 6 lykkjum) og endið með A.1E (= 7 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Þegar A.1 hefur verið heklað til loka er heklað A.2 alveg eins. Þegar A.2 hefur verið heklað einu sinni á hæðina er heklað A.3 alveg eins á hæðina. Heklið síðan A.2 til loka alveg eins og á framstykki.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 18-18-20-20-22-23 cm frá uppfitjunarkanti er sett 1 nýtt prjónamerki í hvora hlið til að merkja handveg.
Heklið síðan eins og útskýrt er að ofan þar til stykkið mælist ca 65-67-69-71-73-75 cm – stillið af eftir framstykki. Að lokum er hekluð 1 umferð með stuðlum alveg eins og á framstykki. Klippið frá og festið enda. Bakstykki mælist ca 66-68-70-72-74-76 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Heklið 77-77-85-85-93-101 loftlykkjur með heklunál 4,5 með Sky.
Fyrsta umferðin er hekluð frá réttu þannig: Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, heklið 1 stuðul í næstu loftlykkju, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af 3 næstu loftlykkjum *, heklið frá *-* út umferðina = 57-57-63-63-69-75 stuðlar í umferð.
Næsta umferð er hekluð frá röngu þannig: 4 loftlykkjur (jafngilda 1 stuðli + 1 loftlykkju), hoppið yfir 2 stuðla, * 2 stuðlar í bilið á undan 3 næstu stuðlum, 1 loftlykkja * heklið frá *-* þar til 3 stuðlar eru eftir í umferð, hoppið yfir 2 stuðla og endið með 1 stuðul í síðasta stuðul = 57-57-63-63-69-75 lykkjur í umferð.
Næsta umferð er heklið frá réttu þannig: Heklið A.2. Þegar A.2 (= 2 lykkjur), heklið A.2B yfir næstu 48-48-54-54-60-66 lykkjur (= 8-8-9-9-10-11 mynstureiningar með 6 lykkjum) og endið með A.2C (= 7 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. A.2 er endurtekið á hæðina.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2 cm í öllum stærðum er fækkað um 1 lykkju á hvorri hlið – lesið ÚRTAKA (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með ca 5-5½-4½-4-3½-2½ cm millibili alls 9-9-11-11-13-15 sinnum á hvorri hlið = 39-39-41-41-43-45 lykkjur í umferð. Þegar ermin mælist ca 50-49-48-46-45-42 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) heklið síðan 1 umferð með fastalykkjum frá röngu þar sem aukið er út um 6-6-4-4-8-6 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 45-45-45-45-51-51 fastalykkjur. Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: A.1A (= 2 lykkjur), heklið A.1B yfir næstu 36-36-36-36-42-42 lykkjurnar (= 6-6-6-6-7-7 mynstureiningar með 6 lykkjum) og endið með A.1E (= 7 lykkjur). Haldið svona áfram en endið eftir 3. umferð í A.1. Klippið frá og festið enda. Ermin mælist ca 54-53-52-50-49-46 cm ofan frá og niður.
Heklið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í á milli prjónamerkja á fram- og bakstykki. Saumið sauma undir ermum og hliðar sauma í eitt – byrjið neðst niðri á ermi og saumið kant í kant í ystu lykkjuna, en endið sauminn þegar eftir eru ca 34 cm fyrir klauf í hvorri hið á fram- og bakstykki.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið á öxl og heklið fyrstu umferð með heklunál 4,5 þannig: Heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju, * 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næstu umferð/loflykkjuboga *, heklið frá *-* í kringum allt hálsmálið, endið með 3 loftlykkjur og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. Heklið keðjulykkjur að miðju á fyrsta loftlykkjuboga, heklið 3 loftlykkjur, * 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga, 2 loftlykkjur *, heklið frá *-* umferðina hringinn, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun á umferð. Klippið frá og festið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 12.04.2019
Leiðrétting: FRAMSTYKKI:..ATH: Þegar A.2 er endurtekið á eftir hverju öðru á hæðina verður 1. umferð í 2. mynstureiningu hekluð frá röngu. 1. stuðli er skipt út fyrir 3 loftlykkjur eins og áður.
Yfirfarið á vefsvæði: 19.10.2020
Leiðrétting: BAKSTYKKI: Byrjið frá réttu við vinstri öxl að aftan, heklið áfram yfir loftlykkjur fyrir hálsmáli og eftir það yfir lykkjur á hægri öxl að aftan þannig:...

Mynstur

symbols = 1 loftlykkja
symbols = 1 fastalykkja í lykkju
symbols = 1 fastalykkja um loftlykkju/loftlykkjuboga
symbols = 1 stuðull í lykkju
symbols = 1 stuðull um loftlykkju/loftlykkjuboga
symbols = 3 STUÐLAR Í SÖMU LYKKJU: Heklið 2 stuðla í næstu fastalykkju, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin á báðum þessum stuðlum, heklið 1 stuðul í sömu lykkju og dragið þráðinn að lokum í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni.

symbols = 3 STUÐLAR SAMAN UM LOFTLYKKJU/LOFTLYKKJUBOGA: Heklið 2 stuðla um loftlykkju/loftlykkjuboga, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin á báðum þessum stuðlum, heklið 1 stuðul í sömu loftlykkju/loftlykkjuboga og dragið þráðinn í lokin í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni

symbols = fyrsta umferð er ekki hekluð, hún hefur nú þegar verið hekluð og þetta sýnir eingöngu hvernig næsta umferð er hekluð í lykkjurnar

diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 195-14

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (61)

country flag Britt-Louise Holgersson wrote:

Det fattas förklaring till virksymboler på mönster 195-14\r\nVissa symboler finns inte heller med i er information vad gäller ”lära sig virka efter mönster”\r\nTacksam för svar\r\nMvh Britt-Louise

24.11.2023 - 20:45

country flag Velvet79_it wrote:

Buongiorno, il campione dato lo devo svolgere con che punti? A maglia alta? Perché non è specificato Grazie mille

23.10.2023 - 06:59

DROPS Design answered:

Buonasera Velvet79_it, all'inizio del lavoro è specificato che il campione è lavorato a maglie alte. Buon lavoro!

23.10.2023 - 22:27

country flag Suzanne wrote:

I am struggling with joining the back shoulders and starting the back piece pattern. I can’t understand how to incorporate the chain without creating a step, or uneven pattern. Thank you

26.09.2023 - 20:41

DROPS Design answered:

Dear Suzanne, you first work 1 row treble crochets (UK-English terminology) over first shoulder, then over 2nd shoulder and at the end of this row on 2nd shoulder, crochet chain stitches for neck and join with a slip stitch to the first shoulder, cut the yarn and now work BACK PIECE. Happy knitting!

29.09.2023 - 07:56

country flag MONTSERRAT BADIA NOGUÉS wrote:

Hola otra vez....gracias por las instrucciones en Español, aunque ya las tenia! Y sigo teniendo el mismo problema, en la segunda vuelta, si hago los dos puntos altos antes de cada grupo de tres, me salen muchos menos puntos que los que pone en el patron! .....que es lo que hago mal?

28.09.2022 - 22:53

DROPS Design answered:

Hola Montserrat, parece ser una errata en la traducción en español. Serían 57-57-63-63-69-75 puntos en la fila (sumando los puntos altos y los puntos de cadeneta). Lo corregiremos lo antes posible.

09.10.2022 - 23:09

country flag Montse wrote:

Era referido a las mangas, justo al principio....gracias!

25.09.2022 - 20:51

DROPS Design answered:

Hola Montse, puedes ver la respuesta debajo.

25.09.2022 - 22:12

country flag Montse wrote:

Ui..no se envió mi primera parte... en esta vuelta tengo problemas: The next row is worked as follows from the wrong side: 4 chain stitches (equivalent to 1 treble crochet + 1 chain stitch), skip 2 treble crochets, * 2 treble crochets in the space before the next 3 treble crochets, 1 chain stitch * work from *-* until there are 3 treble crochets left on the row, skip 2 treble crochets and finish with 1 treble crochet in the last treble crochet = 57-57-63-63-69-75 stitches on the row.

25.09.2022 - 20:50

DROPS Design answered:

Hola Montse, puedes ver aquí las instrucciones en español por si te resuelven dudas: La siguiente fila se trabaja como sigue por el lado revés: 4 puntos de cadeneta (equivalente a 1 punto alto + 1 punto de cadeneta), saltar 2 puntos altos, * 2 puntos altos en el arco antes de los siguientes 3 puntos altos, 1 punto de cadeneta*, trabajar de * a * hasta que solo queden 3 puntos altos en la fila, saltar 2 puntos altos y finalizar con 1 punto alto en el último punto alto = 57-57-63-63-69-75 puntos altos en la fila. Puedes encontrar el patrón en español en este link: https://www.garnstudio.com/pattern.php?id=8692&cid=23

25.09.2022 - 21:05

country flag Montse wrote:

Sigo.... Entiendo que tengo que hacer dos puntos altos cada tres puntos altos de la vuelta anterior, pero entonces me salen muchos menos puntos de los que dice el patrón, unos 40 o menos....o son dos puntos altos cada dos puntos altos de la vuelta anterior, con lo que me falta un punto alto para tener los 63 que dices que tengo que tener al final de la vuelta..... Espero que me saques de este lio! Gracias!!

25.09.2022 - 20:47

DROPS Design answered:

Hola Montse, puedes ver la respuesta arriba.

25.09.2022 - 22:12

country flag Robin wrote:

I love your designs. However, I find it difficult to use diagrams only. I so much prefer written instructions , stitch by stitch. Maybe that is something you can consider for the future.

14.12.2021 - 02:14

country flag Michaela wrote:

Vielen Dank für Ihre Antwort! Sie haben natürlich recht, das war ein kompletter Denkfehler von mir. Habe schon lange nicht mehr nach einer Häkelschrift gearbeitet.

23.11.2021 - 05:26

country flag Michaela wrote:

Entschuldigung, ich meinte A2A, B und C.

17.11.2021 - 21:24