Johanna Jagt skrifaði:
Ik weet niet hoe ik de sjaal met liefdesknopen, na de 1ste driehoek, een rechte kant omhoog moet krijgen. Hoe doe je dat? Dus het middengedeelte
07.08.2023 - 16:59DROPS Design svaraði:
Dag Johanna,
Bij A.1 zie je punt E aangewezen met een pijltje. Vanaf daar haak je telpatroon A.3 steeds heen en weer. Je blijft dus als het ware in diagonale richting haken.
08.08.2023 - 20:06
Anne Roget skrifaði:
Besoin d\'aide pour passer au milieu, après un joli début.\r\nTerminer par E : cad terminer par 3 nœuds d\'amour, 1 maille serrée dans le 1er nœud d\'amour du carré du rang précédent? On se retrouve alors sur un côté du triangle? Ou on avance en diagonale? Au diagramme A3 , la pointe du triangle est en bas? Merci de votre aide, car perdue.
27.03.2022 - 00:28DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Roget, pour le dernier rang, lisez de gauche à droite, autrement dit, vous terminez par le point E sans le relier au point suivant (celui tout à droite dans le schéma): vous avez fait le 1er coin en bas à gauche du schéma ( pointe du début); continuez maintenant avec A.3 pour la partie en diagonale (partie principale de l''écharpe). Bon crochet!
28.03.2022 - 09:12
Sylvie LB skrifaði:
Elle a l'air souple et douce
05.06.2018 - 20:12
Le Rouge#lerougescarf |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Heklað sjal úr DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er heklað með ástarhnútum.
DROPS 192-49 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. HEKLLEIÐBEININGAR: Haltu í hlekkinn (= D) þegar þú heklar, þá fær ástarhnúturinn hringlaga og loftkennt form. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka frá öðru horninu og síðan upp í gagnstætt horn – sjá teikningu. SJAL: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Sjá mynsturteikningu til að sjá hvernig stykkið er heklað. Byrjið með fyrra horn þannig: FYRRA HORN: UMFERÐ 1: Heklið 1 loftlykkju (= C í A.1) með heklunál 4 með Brushed Alpaca Silk. Heklið 1 ástarhnút þannig: * Dragið lykkjuna á heklunálinni langa – ca 1½ cm, bregðið þræðinum um heklunálina, dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna, stingið heklunálinni í gegnum hlekkinn (sjá A.2 – hlekkur = D í A.2) sem myndaðist aftan við löngu lykkjuna – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, bregðið þræðinum um heklunálina, dragið þráðinn í gegnum hlekkinn (= 2 lykkjur á heklunálinni), bregðið þræðinum um heklunálina, dragið uppsláttinn í gegnum 2 lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* 3 sinnum til viðbótar (= 4 ástarhnútar) og tengið saman í 1 ferning með 1 fastalykkju í 1. loftlykkju sem var hekluð (= C). UMFERÐ 2: Snúið stykkinu, heklið 3 ástarhnúta, 1 fastalykkju í 3. ástarhnútinn frá 1. umferð, heklið 3 ástarhnúta og 1 fastalykkju í 2. ástarhnút frá 1. umferð (= 2 ferningar í umferð). UMFERÐ 3: Snúið stykkinu, heklið 1 ástarhnút og festið með 1 fastalykkju í 2. ástarhnút frá fyrri umferð (þ.e.a.s. í síðasta ferning sem var heklaður) – nú hefur þú snúið við (= svart svæði í mynsturteikningu) þannig að þú ert tilbúin til að hekla áfram í þessari umferð: Heklið 3 ástarhnúta, 1 fastalykkju efst á síðasta ferning frá fyrri umferð, 2 ástarhnútar, 1 fastalykkja efst í næsta ferning, 3 ástarhnútar, 1 fastalykkja í 1. ástarhnút í fyrsta ferning frá fyrri umferð (= 3 ferningar í umferð). ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! UMFERÐ 4: Snúið stykkinu, heklið 1 ástarhnút og festið með 1 fastalykkju í 2. ástarhnút í síðasta ferning frá fyrri umferð – nú hefur þú snúið við og ert tilbúin til að hekla áfram í þessari umferð: Heklið 3 ástarhnúta, 1 fastalykkju efst á síðasta ferning frá fyrri umferð, 2 ástarhnútar, 1 fastalykkja efst í næsta ferning, 2 ástarhnútar, 1 fastalykkja efst í næsta ferning, 3 ástarhnútar, 1 fastalykkja í 1. ástarhnút í fyrsta ferning frá fyrri umferð (= 4 ferningar í umferð). Haldið svona áfram, snúið við í hverri umferð eins og útskýrt er í 3. umferð og heklið síðan þannig að það verði einn ferningur fleiri í hverri umferð. Heklið 3 ástarhnúta á hvorri hlið og 2 ástarhnúta í afgang á umferð (hver ferningur á að hafa alls 4 ástarhnúta). Heklið svona þar til sjalið mælist ca 45 cm (sjá stjörnu í mynsturteikningu hvernig mælt er) – en án þess að hekla síðasta ástarhnútinn (þann sem þú snýrð við með), þ.e.a.s. endaðu á E, þannig að nú er heklað áfram á ská. Nú ertu með óskaðan fjölda á ferningum á breiddina. MIÐJA: Heklið eins og útskýrt er í A.3 með byrjun frá E (með ástarhnútum og snúið við eins og útskýrt er í mynsturteikningu), fjöldi ferninga verður sá sami, en hallandi 1 og 1 ferningur út að annarri hliðinni. Haldið svona áfram þar til sjalið mælist ca 180 cm meðfram lengstu hliðinni. SEINNA HORN: Heklið nú eins og útskýrt er í A.4 (með ástarhnútum og snúið við eins og útskýrt er í mynsturteikningu), nú verður 1 ferningi færri í hverri umferð. Haldið svona áfram þar til einungis er 1 ferningur í umferð, klippið frá og festið enda. Sjalið mælist ca 45 x 180 cm. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lerougescarf eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 2 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 192-49
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.