DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4092.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Ice Pieces

Prjónað eyrnaband og hálsklútur úr 1 þræði DROPS Melody eða 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað í stroffprjóni.

DROPS 192-35
DROPS Design: Mynstur ml-027
Garnflokkur D eða C + C
-------------------------------------------------------

GARN Í ALLT SETTIÐ:
Stærð: Ein stærð

Efni:
DROPS MELODY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokkur D)
150 g litur 09, ljós sægrænn
Eða notið:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
150 g litur 14, ljós grágrænn

EYRNABAND:
Stærð: Ein stærð
Höfuðmál: ca 56/58 cm

Efni:
DROPS MELODY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki D)
50 g litur 09, ljós sægrænn
Eða notið:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
25 g litur 14, ljós grágrænn

HÁLSKLÚTUR:
Mál: ca 40 x 160 cm

Efni:
DROPS MELODY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokk D)
150 g litur 09, ljós sægrænn
Eða notið:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
150 g litur 14, ljós grágrænn

EYRNABAND:
PRJÓNFESTA:
14 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með stroffi með 1 þræði Melody eða 2 þráðum Brushed Alpaca Silk = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS PRJÓNAR NR 7.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

HÁLSKLÚTUR:
PRJÓNFESTA:
11 lykkjur á breidd og 12 umferðir á hæð með stroffi = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS PRJÓNAR NR 9.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4092.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING (á við um eyrnaband):
Aukið út um 1 lykkju með því að prjóna 1 lykkju brugðið bæði framan í og aftan í sömu lykkju.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

EYRNABAND – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka. Fyrst er stykkið prjónað í 2 stykkjum sem síðan eru sett saman í 1 stykki. Prjónað er síðan yfir allar lykkjur áður en stykkið skiptist aftur í 2 stykki. Stykkið er að lokum saumað saman við miðju að framan.

EYRNABAND:
Fitjið upp 5 lykkjur á prjón 7 með 1 þræði Melody eða 2 þráðum Brushed Alpaca Silk.
Prjónið 1 umferð brugðið þar sem aukið er út um 1 lykkju í hverja og eina af 4 fyrstu lykkjum – lesið ÚTAUKNING = 9 lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið og 2 lykkjur slétt. Haldið svona áfram í stroffprjóni fram og til baka, en takið eftir að fyrsta lykkjan og 2 síðustu lykkjurnar (séð frá réttu) eru prjónaðar í sléttprjóni til loka, þ.e.a.s. að þær eru ekki prjónaðar í garðaprjóni og þær eru ekki teknar af. Þetta er gert til að lykkjurnar falli vel inn að höfði þegar eyrnabandið er mátað. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 5 cm er stykkið lagt til hliðar (endið eftir eina umferð frá röngu).
Næsta stykki er prjónað þannig: Fitjið upp 5 lykkjur á prjón 7 með 1 þræði Melody eða 2 þráðum Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð brugðið þegar aukin er út 1 lykkja í hverja af 4 síðustu lykkjum = 9 lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt. Haldið svona áfram í stroffprjóni og passið uppá að 2 fyrstu lykkjurnar og síðasta lykkjan (séð frá réttu) séu prjónaðar í sléttprjóni alveg eins og á fyrra stykki.
Endið eftir eina umferð frá röngu þegar stykkið mælist 5 cm.
Setjið bæði stykkin saman þannig (fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu): Haldið áfram í stroffprjóni yfir 9 lykkjur á seinna stykkinu sem var prjónað og prjónið síða áfram frá réttu yfir 9 lykkjur frá fyrra stykkinu sem var prjónað = 18 lykkjur á prjóni. Haldið áfram í stroffprjóni fram og til baka eins og áður yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist ca 43 cm frá uppfitjunarkanti (nú eru eftir 5 cm til loka).
Nú skiptist stykkið aftur upp fyrir miðju og bæði stykkin eru prjónuð til loka hvort fyrir sig alveg eins og í byrjun á stykki. Þegar stykkið mælist 48 cm (stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá röngu), prjónið 8 lykkjur að miðju brugðið saman 2 og 2 á öðru stykkinu = 5 lykkjur eftir. Fellið af með sléttum lykkjum frá röngu. Endurtakið á hinu stykkinu.

FRÁGANGUR:
Saumið saman skammhliðar á annarri hlið á stykki, ranga á móti röngu, nú er gat til að draga í gegn á stykkjunum í gangstæðri hlið á stykki.
Í gagnstæðri hlið á stykki er nú annar hluti á stykki dreginn í gegnum gatið, síðan eru skammhliðarnar saumaðar saman með röngu á móti röngu. Nú hefur myndast hnútur við miðju framan á eyrnabandinu.

-------------------------------------------------------

HÁLSKLÚTUR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.

HÁLSKLÚTUR:
Fitjið upp 44 lykkjur á prjón 9 með 1 þræði Melody eða 2 þráðum Brushed Alpaca Silk.
Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir á prjón, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 3 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroffprjón fram og til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 159 cm er prjónuð 1 umferð brugðið frá röngu. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 192-35

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (8)

country flag Cluts Fabienne wrote:

Bonjour, pourriez-vous me dire combien de pelotes il faut pour faire l'écharpe et le bandeau car cela n'est pas indiqué dans l'explication du modèle. Et le 1er rang doit d'bord être tricoter à l'endroit et le second à l'envers avant de faire les côtes ? Merci

31.10.2022 - 11:34

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Fabienne, vous trouverez la quantité nécessaire pour chaque pièce dans l'en-tête, avec également les tailles et les aiguilles et les échantillons - avec 2 possibilités: Melody ou Brushed Alpaca Silk - divisez le poids indiqué dans la laine choisie par le poids de la pelote (50 g pour Melody, 25 g pour Brushed Alpaca Silk) pour avoir la quantité requise. Le 1er rang se tricote en mailles envers (et sera l'envers du bandeau / de l'écharpe) ; le rang suivant sera le 1er rang sur l'endroit. Bon tricot!

31.10.2022 - 13:20

country flag Anna wrote:

Buonasera, ho bisogno di aiuto riguardo alla fascia. Non capisco la prima parte, quando aumento e ho le 9 maglie la spiegazione dice di fare 1 maglia a dritto , 2 maglie rovescio e così via, poi dice che le prime 2 e le ultime 2 maglie devono essere a maglia rasata . Quindi da una parte ho 3 maglie uguali. Se così, queste maglie rimangono all’esterno?

27.10.2021 - 19:53

DROPS Design answered:

Buonasera Anna, da un lato c'è 1 maglia a maglia rasata, dall'altro sono 2 maglie a maglia rasata. Buon lavoro!

29.10.2021 - 21:21

country flag Potelle wrote:

Merci, de votre réponse, j'ai cependant omis de vous préciser que les précisions que je demandais, concernaient l'écharpe. Je pense avoir compris q'effectivement au retour les m. s'inversaient sauf les m. bordure (qui restent des m. endroit). Une m. endroit sur l'endroit devient une m. envers sur l'envers. And if I still don't get it, I 'm afraid I will have to give up... Pas facile les débuts en tricot Merci beaucoup de votre réactivité en tout cas. Carine Potelle.

28.01.2019 - 14:20

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Potelle, j'étais effectivement partie sur le bandeau. Pour l'écharpe, tricotez effectivement les mailles comme elles se présentent, soit sur l'endroit: 3 m endroit, *2 m end, 2 m env*, terminez par 2 m end et 3 m point mousse. Sur l'envers, vous aurez 3 m end, 2 m env, *2 m end, 2 m env*, 3 m end. Bon tricot!

28.01.2019 - 15:03

country flag Potelle wrote:

Bonjour, quelques précisions :alors rang 1 à l'envers, rang 2:3 mailles à l'endroit, alternance 2 mailles endroit 2 mailles envers puis finir avec 2 mailles endroit +3 mailles endroit pour la bordure. Rang 3 :3 mailles endroit puis tricoter les mailles comme elles se présentent puis finir par 3 mailles endroit... Répéter ce schéma du rang3 jusqu'au bout. Ai-je bien compris ? Merci de vos précisions. Carine Potelle.

27.01.2019 - 19:31

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Potelle, au 1er rang, vous tricotez effectivement toutes les mailles à l'envers en augmentant à 9 m. Ensuite, vous continuez en côtes sur l'endroit: 1 m end, 2 m env, 2 m end, 2 m env, 2 m end (= sur l'env = 2 m env, 2 m end, 2 m env, 2 m end, 1 m env). On répète ces 2 rangs. Bon tricot!

28.01.2019 - 12:00

country flag Ale wrote:

Grazie mille! Quindi il filo non si stacca, giusto? Quando metto le 9 maglie in attesa, con lo stesso filo avvio le 5 nuove?

21.12.2018 - 11:04

DROPS Design answered:

Buongiorno Ale. Quando finisce la prima parte, mette il lavoro da parte, taglia il filo e inizia la seconda parte. Quando la seconda parte misura 5 cm, lavora le maglie della seconda parte e con lo stesso filo, lavora le maglie della prima parte. Buon lavoro!

21.12.2018 - 13:55

country flag Ale wrote:

Ciao! Non ho capito come si staccano e riattaccano i due pezzetti da 5 cm! Devo mettere in attesa le prime 9, montare le 5 nuove, e poi riunirle con la stessa tecnica di quando faccio la treccia? Grazie in anticipo!

21.12.2018 - 08:47

DROPS Design answered:

Buongiorno Ale. Quando anche la seconda parte misura 5 cm, mette insieme le due parti in questo modo: lavora le maglie della seconda parte e poi prosegue lavorando le maglie della prima parte che aveva lasciato in attesa, assicurandosi di lavorarle sul diritto del lavoro. Buon lavoro!

21.12.2018 - 10:21

country flag HEIN wrote:

Bonjour, j'ai réalisé ce modèle et je le trouve vraiment très beau. Par contre ne trouvez-vous pas que 5 cm pour chaque partie soit un peu long car cela fait deux grands trous ? Un grand merci.

12.11.2018 - 11:19

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Hein, c'est ainsi que le modèle a été fait - on voit également les trous sur la photo, mais vous pouvez éventuellement fermer avec quelques points si vous les trouvez un peu trop grands. Bon tricot!

12.11.2018 - 12:00

country flag Aka wrote:

Moc pěkná čelenka!

01.07.2018 - 14:11