Matelot#matelotsweater |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með gatamynstri, garðaprjóni, v-hálsmáli og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL. Stikkið er prjónað úr DROPS Air.
DROPS 188-21 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Veljið mynstur fyrir rétta stærð (á við um A.1 og A.3). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (á við um hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli innan við 3 lykkjum í garðaprjóni þannig: Fækkið lykkjum á undan 3 lykkjum þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir 3 lykkjum þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ÚTAUKNING (á við um ermar): Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja. Uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykki og bakstykki er prjónað hvort fyrir sig fram og til baka á hringprjón. Framstykki er prjónað með gatamynstri og garðaprjóni. Bakstykki er prjónað í garðaprjóni. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón með gatamynstri og sléttprjóni. BAKSTYKKI: Fitjið upp 81-87-93-99-111-117 lykkjur á hringprjón 6 með Air. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 8-8-8-10-10-10 cm er fitjuð upp 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki í lok 2 næstu umferða = 83-89-95-101-113-119 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram í garðaprjóni yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 49-49-50-51-52-53 cm fellið af 3 lykkjur í byrjun 2 næstu umferða fyrir handveg = 77-83-89-95-107-113 lykkjur. Þegar stykkið mælist 65-66-68-70-72-74 cm fellið af miðju 17-17-19-19-21-21 lykkjur fyrir hálsmáli (= 30-33-35-38-43-46 lykkjur á hvorri öxl). Hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli innan við 3 lykkjur – lesið ÚRTAKA = 29-32-34-37-42-45 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 67-68-70-72-74-76 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 81-87-93-99-111-117 lykkjur á hringprjón 6 með Air. Prjónið garðaprjón. Þegar stykkið mælist 8-8-8-10-10-10 cm er fitjuð upp 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki í lok 2 næstu umferða = 83-89-95-101-113-119 lykkjur. Kantlykkja í hvorri hlið á stykki er prjónuð í garðaprjóni. Næsta umferð frá réttu er prjónuð þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.1 (= 16-13-16-13-13-16 lykkjur), prjónið A.2 (= 12 lykkjur) yfir næstu 48-60-60-72-84-84 lykkjur (= 4-5-5-6-7-7 sinnum á breidd), A.3 (= 17-14-17-14-14-17 lykkjur) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 49-49-50-51-52-53 cm fellið af 3 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir handveg = 77-83-89-95-107-113 lykkjur. Aðrar lykkjur eru prjónaðar í mynstri eins og áður. Lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri eru prjónaðar í sléttprjóni þegar allar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni/gatamynstri og garðaprjóni þegar allar lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni. Þegar A.1 til A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina, mælist stykkið ca 55-55-55-57-57-57 cm. Prjónið garðaprjón til loka. Þegar stykkið mælist 57-58-59-61-62-64 cm fellið af 1 lykkju mitt í stykki, í næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið yfir fyrstu 37-40-43-46-52-55 lykkjur frá réttu, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), snúið og prjónið til baka = 38-41-44-47-53-56 lykkjur á hvorri öxl. Nú er hvor öxl prjónuð til loka fyrir sig þannig: VINSTRI ÖXL (þegar flíkin er mátuð): Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli þannig: Fækkið um 1 lykkju innan við 3 lykkjur í lok hverrar umferðar frá réttu alls 9-9-10-10-11-11 sinnum = 29-32-34-37-42-45 lykkjur á öxl. Þegar stykkið mælist 67-68-70-72-74-76 cm fellið af allar lykkjur. HÆGRI ÖXL (þegar flíkin er mátuð): Prjónið á sama hátt og öxl, en lykkjum er fækkað fyrir hálsmáli innan við 3 lykkjur í byrjun á hverri umferð frá réttu. ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón. Fitjið upp 37-37-39-39-43-43 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 6 með Air. Prjónið 12 umferðir garðaprjón. Prjónið síðan 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.4 (= 2 lykkjur) þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.5 (= 4 lykkjur), 7-7-8-8-10-10 lykkjur í sléttprjóni, A.6a (= 13 lykkjur), 7-7-8-8-10-10 lykkjur í sléttprjóni, endið með A.7 (= 4 lykkjur) og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið áfram með mynstur JAFNFRAMT er aukið mitt undir ermi þannig: MYNSTUR: A.5 og A.7 er endurtekið á hæðina, A.6a er endurtekið alls 4 sinnum á hæðina, síðan er A.6b prjónað yfir A.6a. ÚTAUKNING: Þegar stykkið mælist 9 cm er aukið út um 1 lykkju á eftir A.5 og 1 lykkju á undan A.7 – lesið ÚTAUKNING! Aukið svona út með 3½-3-2½-2-2-1½ cm millibili alls 10-12-12-14-13-15 sinnum = 57-61-63-67-69-73 lykkjur. Útauknar lykkjur eru síðan prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 44-43-42-40-38-36 cm fellið af 1 kantlykkju í garðaprjóni í lok 2 næstu umferða = 55-59-61-65-67-71 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í báðar hliðar á stykki (nú eru eftir 2 cm af lengd á ermi). Prjónamerki merkir hvar sauma á ermina í við handveg á peysunni í lokin (prjónamerki = hliðarsaumur á peysu). Prjónið síðan fram og til baka í sléttprjóni yfir allar lykkjur þar til ermin mælist 47-46-45-43-41-39 (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Fellið af, passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið e.t.v. af með 1 númeri grófari prjónum. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn – passið uppá að saumurinn verði ekki stífur. Saumið ermar í ystu lykkjubogana og saumið botninn á handveg (prjónamerki á ermi á að passa við hliðarsaum á fram- og bakstykki). Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju að þeim stað þar sem fitjuð var upp 1 kantlykkja á framstykki/bakstykki (= ca 8-8-8-10-10-10 cm klauf). |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #matelotsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 188-21
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.