DROPS Children 49 · Fullt af nýrri hönnun fyrir börn!
Product image DROPS Air yarn
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1474.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5896.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425
Velja stærð:
DROPS 180-26

#greenseaset

DROPS Design: Mynstur ai-065
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

SJAL:
Mál:
Hæð fyrir miðju ca 45 cm.
Breidd efst ca 200 cm.

Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir Garnflokki C)
150 g litur 12, mosagrænn

HANDSTÚKUR:
Stærð: S/M - L/XL
Mál:
Ummál: 17-19 cm.
Lengd: 22-23 cm.

Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir Garnflokki C)
50-50 g litur 12, mosagrænn

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 8 – eða þá stærð sem þarf til að 13 lykkjur og 16 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS PRJÓNAR NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 lykkjur og 22 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1474.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5896.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjal: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4.
Handstúkur: Sjá mynsturteikningu A.5.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Veljið mynstur fyrir rétta stærð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá horni við miðju að framan og upp að hálsi.

SJAL:
Fitjið upp 3 lykkjur á hringprjón 8 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Prjónið A.1 – lesið MYNSTUR. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 33 lykkjur í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið síðan mynstur þannig: Prjónið A.2 (= 8 lykkjur), prjónið A.3 (= 16 lykkjur), prjónið A.4 (= 9 lykkjur). Þegar öll mynsturteikning A.2 til A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðna eru 65 lykkjur í umferð.
Prjónið síðan þannig: Prjónið A.2 (= 8 lykkjur), prjónið A.3 (= 16 lykkjur) alls 3 sinnum á breidd, prjónið A.4 (= 9 lykkjur). Þegar öll mynsturteikning A.2 til A.4 hefur verið prjónuð til loka á hæðina eru 97 lykkjur í umferð. Síðan er endurtekið A.2 til A.4 með útaukningu – þ.e.a.s. í hvert skipti sem A.2 til A.4 er lokið á hæðina eru prjónaðar 2 mynstureiningar fleiri af A.3 á breiddina. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 44 cm við miðju. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, fellið af með uppslætti – þ.e.a.s. sláið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 5. hverja lykkju (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

HANDSTÚKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka og saumað saman í lokin.

HANDSTÚKA:
Fitjið upp 30-34 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjón 5 með Air.
Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan mynstur þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið A.5 (= 14-16 lykkjur) alls 2 sinnum á breidd – lesið MYNSTUR að ofan, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Haldið áfram þar til stykkið mælist 21-22 cm. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Fellið af með tvöföldum þræði.
Saumið stykkið saman innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Prjónið aðra handstúku á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 08.09.2017
Leiðrétting í mynsturteikningu A.2

Mynstur

slétt frá réttu, brugðið frá röngu = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
brugðið frá réttu, slétt frá röngu = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
kantlykkja: slétt frá réttu, slétt frá röngu = kantlykkja: slétt frá réttu, slétt frá röngu
á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat
á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat
Diagram for DROPS 180-26
Diagram for DROPS 180-26
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #greenseaset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 180-26

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (63)

country flag Christine skrifaði:

I don't get how you do purl after a yarn over. I have not got past the first row yet. Is there a video please?

16.09.2021 - 21:42

DROPS Design svaraði:

Dear Christine, under the pattern, below the diagrams and the schematic drawing all the relevant tutorial videos are listed. Including THIS one, in which, about halfway, you can see how to purl after a yarnover. Happy Stitching!

17.09.2021 - 02:32

country flag Nancy skrifaði:

Bonjour, quand j’ai fait ma largeur de 44 cm que fait -on après?.Pour faire mon autre pointe comment je fait cela ce n’est pas écrit et je suis une débutante .Merci beaucoup de votre aide .c est plus facile quand le tricot est tour écrit que suivre un diagramme. Bonne journée!

04.03.2021 - 14:25

DROPS Design svaraði:

Bonjour Nancy, le châle est terminé quand il mesure 44 cm de hauteur totale, autrement dit à partir du rang de montage jusqu'aux mailles sur l'aiguille. Avant, vous devez tricoter les diagrammes comme indiqué - cette leçon vous aidera à comprendre comment lire les diagrammes. Bon tricot!

04.03.2021 - 15:52

country flag Nancy skrifaði:

Pour le châle 180/26 Dans le diagramme la première ligne représente le rang 1 endroit et le rang 2 représente tu le rang envers ou les rangs envers ne sont pas sur le diagramme . Si le me réfère à votre Legendre le x veut dire la maille envers sur l’endroit et vous avez écrit dans un commentaire pour le rang 2 de faire3 maille endroit et le diagramme on voit envers parce que on est sur côté endroit je ne comprends pas Merci

27.02.2021 - 22:57

DROPS Design svaraði:

Bonjour Nancy, les diagrammes montrent tous les rangs du motif, 1 case blanche = 1 m jersey endroit, 1 croix = 1 m jersey envers. Autrement dit, au 2ème rang = sur l'endroit, on tricote 1 m point mousse (carré noir), 1 jeté, 3 m end (= jersey envers), 1 jeté, 1 m point mousse (carré noir). Bon tricot!

01.03.2021 - 09:05

country flag Ditte skrifaði:

Er der ikke en fejl i diagram A.2? I diagram A.4 skal man lave to udtagninger i tredjeøverste række, men i diagram A.2 skal man først lave to udtagninger i andenøverste række - altså oveni de to udtagninger, man lige har lavet, hvilket gør, at hele mønsteret rykkes. Vil det ikke give bedre mening, at lave de to udtagninger i hver sin side i samme række/på samme pind?

27.01.2021 - 17:09

DROPS Design svaraði:

Hei Ditte. Økningene kan fint være der de er nå. Om du mener det blir penest med å flytte økningene i A.2 ned 1 rekke/ eller opp en rekke i A.4 kan du gjøre det, bare tilpass slik at mønstret passer ovenfor hverandre. mvh DROPS design

01.02.2021 - 11:22

country flag Lebigot skrifaði:

Bonjour, Je vais commencer le châle mais je ne sais pas si le premier rang du diagramme A1 est à l'endroit ou à l'envers, donc je ne sais pas comment je dois tricoter la maille centrale, à l'endroit ou à l'envers? Merci!

11.12.2020 - 16:34

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Lebigot, ce châle se tricote de bas en haut, la maille centrale se tricote tout simplement en suivant le diagramme, autrement dit au 1er rang de A.1 vous tricotez: 1 m lisière à l'endroit, 1 jeté, 1 m env, 1 jeté, 1 m lis à l'endroit. Au 2ème rang: 1 m lis à l'end, 1 jeté, 3 m end, 1 jeté, 1 m lis à l'end. Bon tricot!

14.12.2020 - 07:13

country flag Karin skrifaði:

Hallo Dropsdesign, Wat een mooi patroon! Ik heb een vraag over A5, het lijkt net alsof de lege vakjes en kruisjes zijn omgekeerd? omdat de rijen van 3 en 4 steken anders zijn dan in de andere schema's? groeten Karin

12.12.2019 - 19:56

DROPS Design svaraði:

Dag Karin,

Het telpatroon A.5 is op de juiste wijze weergegeven. Dit telpatroon wordt voor de polswarmers gebruikt, waarbij inderdaad de verhouding van de steken anders zijn.

16.12.2019 - 15:46

country flag Susanne skrifaði:

Liebes DROPS-Team, ich arbeite aktuell an dem gestrickten Tuch GREEN SEA. Ich bin jetzt an der Stelle mit 97 Maschen in der Reihe. Leider verstehe ich die Anleitung nicht, wie ich jetzt weiterstricken soll. Vorher war A.2, dann 3x A.3 und dann A4. Wie geht es jetzt weiter? Ich kann es leider nicht klar erkennen. Ganz erzlichen Dank für Ihre Antwort. Viele Grüße von Susanne

28.10.2019 - 09:12

DROPS Design svaraði:

Liebe Suzanne, jetzt stricken Sie wie zuvor, aber die zugenommenen Maschen werden jetzt in A.3 gestrickt, dh: A.2 (= 8 M), wiederholen Sie A.3 bis 9 Maschen bleiben und stricken Sie A.4 über diese letzten 9 Maschen. A.3 stricken Sie jetzt 2 mal mehr in der Breite als zuvor. Viel Spaß beim stricken!

04.11.2019 - 12:43

country flag Kjersti Kristoffersen skrifaði:

Hei. Hvor mange masker har man på det meste?

30.08.2019 - 09:46

DROPS Design svaraði:

Hei Kjersti. Det er det ikke skrevet, men det kan man fint regne seg til når man leser oppskriften. mvh Drops design

02.09.2019 - 14:52

country flag Maya skrifaði:

El esquema a seguir no coresponde al diseño del chal que se ve en la foto!!!

18.08.2019 - 06:18

country flag Sylvie skrifaði:

Oups... Il s'agit des diagrammes A2 et A4(et non A5...) Désolé 😉

06.08.2019 - 16:53