Escapade#escapadejacket |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Peysa með hekluðum ferningum að aftan, hekluð í hring frá bakstykki úr DROPS Delight. Stærð S – XXXL
DROPS 180-31 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. HEKLLEIÐBEININGAR: Hver umferð með stuðlum, byrjar á 3 loftlykkjum og endar á 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar. (Þessar 3 loftlykkjur koma ekki í stað fyrsta stuðuls í umferð). RENDUR: Heklið 1 umferð með litnum haustskógur (á við um umferð með 3 stuðlum + 1 loftlykkju í mynsturteikningu A.2-A.6). Heklið 1 umferð með litnum hindberjaterta (á við um umferð með 3 loftlykkjum + 1 stuðli í mynsturteikningu A.2-A.6). Endurtakið þessar 2 umferðir áfram í stykkinu. SKIPT UM ÞRÁÐ: Til að litaskiptin í Delight verði falleg þegar skipt er um dokku, er mikilvægt að finna dokku sem byrjar á þeim lit sem sú fyrri endaði á. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Heklaðir eru 9 ferningar sem saumaðir eru saman í einn stóran ferning á bakstykki. Síðan er heklað hringinn utan um þennan ferning og hoppað er yfir lykkjur fyrir handveg. Síðan er heklað fram og til baka fyrir framstykki. Að lokum eru ermarnar heklaðar í hring. HEKLAÐUR FERNINGUR: Heklið 6 loftlykkjur með heklunál 4 með litnum haustskógur og tengið þær saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið síðan MYNSTUR hringinn eftir mynsturteikningu A.1. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Lesið SKIPT UM ÞRÁÐ! 1 ferningur á að mælast 12 x 12 cm. Heklið alls 9 ferninga. FRÁGANGUR AF FERNINGUM: Leggið ferningana niður með 3 ferninga á breidd og 3 ferninga á hæð. Heklið ferningana saman – fyrst á lengdina og síðan á breiddina þannig: Leggið 2 ferninga með röngu á móti röngu og heklið saman frá réttu: * 1 fastalykkja um hornið á fyrsta ferningi, 1 loftlykkja, 1 fastalykkja um hornið á næsta ferning, 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í næstu lykkju á fyrri ferning, 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í næstu lykkju á seinni ferning, 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í næstu lykkju á fyrri ferning, 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í næstu lykkju á seinni ferning *, heklið frá *-* en á milli hverra setta með ferningum sem heklaðir eru saman, heklið 1 loftlykkju. Heklið svona saman alla ferningana. ATH: Passið uppá að samskeytin verði falleg á milli allra ferninga þegar ferningarnir eru heklaðir saman á lengdina. Klippið frá og festið enda. Setjið 1 prjónamerki í ystu umferð á stykki – HÉÐAN NÚ MÆLT! Heklið síðan 1 umferð með stuðlum í kringum allan ferninginn þannig – byrjið efst í hægra horni (= 1. horn – sjá mynsturteikningu): Heklið 1 fastalykkju um loftlykkjuboga í horni, 3 loftlykkjur – lesið HEKLLEIÐBEININGAR, 2 stuðlar + 2 loftlykkjur + 2 stuðlar um sama loftlykkjuboga, heklið síðan 1 stuðul í hvern og einn af 23 stuðlum á hverjum ferning + 1 stuðul á milli allra ferninga efst á bakstykki = 75 stuðlar meðfram hverri hlið með 2 loftlykkjum í hverju horni. Heklið síðan hringinn um ferkantaða bakstykkið eftir mismunandi stærðum þannig: Stærð S/M: Heklið RENDUR – sjá útskýringu að ofan og heklið frá 1. horni þannig: UMFERÐ 1: Heklið A.2a um loftlykkjuboga í horni, A.2b yfir næstu 3 stuðla, A.2c þar til 6 stuðlar eru eftir á undan næsta horni, A.2d yfir næstu 6 stuðla, A.2a um loftlykkjuboga í næsta horni. Heklið 42 lausar loftlykkjur og hoppið yfir 42 stuðla (= handvegur), heklið A.2c yfir næstu 27 stuðla, A.2d, A.2a um loftlykkjuboga í horni, A.2b, A.2c þar til 6 stuðlar eru eftir á undan næsta horni, A.2d, A.2a um loftlykkjuboga í horni, A.2b, A.2c yfir næstu 27 stuðlum, heklið 42 lausar loftlykkjur (= handvegur), hoppið yfir 42 stuðla, endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar. UMFERÐ 2: Heklið næstu umferð í mynsturteikningu alveg eins, en heklið 14 mynstureiningar A.2c um loftlykkjuumferð fyrir handveg á hvorri hlið. Nú er pláss fyrir 24 mynstureiningar A.2c + A.2b og A.2d, meðfram hverri hlið á ferhyrning og A.2 í hverju horni. Haldið síðan áfram þar til mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina, endurtakið síðan 2 síðustu umferðirnar í mynsturteikningu A.2a, A.2b, A.2c og A.2d þar til stykkið mælist 20 cm – endið eftir eina umferð með 3 stuðlum + 1 loftlykkju! Klippið frá. Heklið síðan FRAMSTYKKI – sjá útskýringu að neðan. Stærð L, XL, XXL og XXXL: Heklið RENDUR – sjá útskýringu að ofan og heklið frá 1. horni þannig: * Heklið A.2 um loftlykkjuboga í horni, A.2b yfir næstu 3 stuðla, A.2c þar til 6 stuðlar eru eftir á undan næsta horni, A.2d yfir næstu 6 stuðla *, heklið frá *-* umferðina hringinn. Nú þegar heklaðar hafa verið 2 umferðir er stærð L og XL lokið. Þegar heklaðar hafa verið 4 umferðir er stærð XXL og XXXL lokið. Síðan eru endurteknar 2 síðustu umferðirnar í mynsturteikningu A.2a, A.2b, A.2c og A.2d og handvegur heklaður þannig: UMFERÐ 1: Heklið A.2a um loftlykkjuboga í 1. horni, A.2b, A.2c þar til 6 stuðlar eru eftir á undan næsta horni, A,2d, A.2a um loftlykkjuboga í næsta horni. Heklið 45-45-48-51 lausar loftlykkjur og hoppið yfir 45-45-48-51 stuðla (= handvegur), heklið A.2c yfir næstu 36-36-45-42 stuðla, A.2d, A.2a um loftlykkjuboga í horni, A.2b, A.2c þar til 6 stuðlar eru eftir á undan næsta horni, A.2d, A.2a um loftlykkjuboga í horni, A.2b, A.2c yfir næstu 36-36-45-42 stuðlum, heklið 45-45-48-51 lausar loftlykkjur (= handvegur), hoppið yfir 45-45-48-51 stuðla, endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar. UMFERÐ 2: Heklið næstu umferð í mynsturteikningu alveg eins, en heklið 15-15-16-17 mynstureiningar A.2c um loftlykkjuumferð fyrir handveg í hvorri hlið. Haldið áfram að endurtaka 2 síðustu umferðirnar í mynsturteikningu A.2a, A.2b, A.2c og A.2d þar til stykkið mælist 20 cm – endið eftir eina umferð með 3 stuðlum + 1 loftlykkju! Klippið frá. Heklið síðan FRAMSTYKKI – sjá útskýringu að neðan. ALLAR STÆRÐIR: FRAMSTYKKI: Framstykki er heklað fram og til baka hvor fyrir sig. Rendur halda áfram eins og áður. Byrjið frá röngu og festið enda með 1 fastalykkju um loftlykkjuboga í 1. horni – sjá stjörnu á mynsturteikningu! Heklið A.3a um loftlykkjuboga (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), A.3b fram að 4. horni, heklið A.3c um loftlykkjuboga í horni (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar). Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina, endurtakið 2 síðustu umferðirnar í mynsturteikningu þar til framstykkið mælist 24-26-27-28-29 cm – endið eftir eina umferð eins og síðasta umferð í mynsturteikningu! Klippið frá og festið enda. Endurtakið í hinni hliðinni alveg eins, nema nú er heklað fram og til baka frá 3. til 2. horni – sjá mynsturteikningu! Endið með eina umferð stuðlum í kringum alla peysuna: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul/1 stuðul um hverja loftlykkju og heklið (3 stuðla, 1 loftlykkju, 3 stuðla) í ysta stuðul í hverju og einu af fjórum hornunum. Klippið frá og festið enda. ERMAR: Ermin er hekluð í hring frá handveg. Munið eftir HEKLLEIÐBEININGUM! Setjið eitt prjónamerki undir handveg. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Byrjun á umferð er hér! Byrjið með að hekla 84-92-92-96-104 stuðla jafnt yfir í kringum op á ermum með litnum hindberjaterta. Haldið áfram hringinn með röndum eins og áður og mynstri þannig: Heklið A.4 yfir fyrstu 16 stuðlana, heklið A.5 yfir næstu 48-56-56-60-68 stuðla, heklið A.6 yfir síðustu 20 stuðla. Haldið áfram hringinn. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina er fækkað 1 sinni hvoru megin við prjónamerki. Síðan er mynstrið endurtekið frá umferð merktri með ör í mynsturteikningu 3-4-4-3-4 sinnum til viðbótar á hæðina (= 4-5-5-4-5 úrtökur hvoru megin við prjónamerki). Haldið síðan áfram með mynstur alveg eins án úrtöku, þar til ermin mælist 54 cm – endið eftir eina umferð eins og síðasta umferð í A.4-A.6. Klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #escapadejacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 12 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 180-31
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.