Jeanne Kolar wrote:
I am completely mystified on how to begin this pattern! (180-20)have used your patterns before and have never had trouble reading the diagrams but this one has me puzzled! I am left handed which does not help, but I just cannot figure out the actual first 3 rows..I even tried writing out the stitches, but it still does not make sense to me. Is the first row worked vertically or horizontally? Is the second row worked two dcs in a row or one-if one how do you work with 2 chains? thank you!
09.09.2020 - 21:54DROPS Design answered:
Dear Mrs Kolar, diagram A.1 is worked a total of 4 times in the round to make a square, ie A.1 is just showing a part of diagram - read more here you will then repeat row 1 (= 3 dc, 4 chains) a total of 4 times, then repeat Row 2 (= 5 dc, 4 chains, 2 dc) 4 times and so on. Happy crocheting!
10.09.2020 - 09:33Anita wrote:
Hallo als ik begin met de voorpanden aan de linkerzijde bij het kruis. Zie ik het dan goed dat ik ergens midden in een zijkant moet beginnen? Na 55 steken?
30.08.2020 - 17:11DROPS Design answered:
Dag Anita,
Nee, je begint op de hoek bij het kruis en niet ergens in het midden van een zijkant.
31.08.2020 - 08:57Adeline wrote:
Bonjour, Je souhaiterais savoir quelle technique d'assemblage utiliser afin que les coutures se voient le moins possible. Merci d'avance.
02.01.2020 - 21:42DROPS Design answered:
Bonjour Adeline, je vous propose de regarder le video ICI. Cela peut vous aider avec votre ouvrage. Bon travail!
03.01.2020 - 09:31Melissa Lamb wrote:
Do you have a video showing how to work this pattern?
26.11.2019 - 14:04DROPS Design answered:
Dear Mrs Lamb, there is no video to this pattern, but you can find how to read crochet diagrams here. Happy crocheting!
26.11.2019 - 14:53Michelle wrote:
Hallo, ich habe die Jacke fast fertig. Allerdings versteh ich nicht so ganz wie das mit dem Rand gemacht wird. In der Anleitung steht : RAND: Einen Rand um die Jacke wie folgt häkeln: 1 Stäbchen in jedes Stäbchen, 3 Stäbchen um jede Stäbchenreihe und 4 Stäbchen um jeden Eckbogen. Den Faden abschneiden und vernähen. Was genau ist mit Stäbchenreihe gemeint? Liebe Grüße Michelle
12.06.2019 - 12:25DROPS Design answered:
Liebe Michelle, diese Stäbchenrunde wird um herum die Jacke (= den Vierecke) gehäkelt: an den unteren Rand (= in der letzten Reihen vom Quadrat + in den Reihen beiden Vorderteile) + in der letzten Reihen beiden Vorderteile und an den oberen Rand. Viel Spaß beim häkeln!
12.06.2019 - 15:41Ellen wrote:
Beste, ik weet dat je de eerste toer van a3 niet moet haken. Maar de tweede toer van a3 bestaat uit allemaal stokjes net zoals de laatste toer van a2 dus dan heb je 2 rijen stokjes na elkaar en wijk je af van het patroon. Is dit correct? Bedankt! Ellen
29.08.2018 - 14:07DROPS Design answered:
Dag Ellen, Vermoedelijk zit er een fout in het telpatroon, waardoor het patroon niet doorloopt. Momenteel kijkt de designafdeling er naar en mogelijk komt er dus een correctie op het (tel)patroon.
19.09.2018 - 20:32Ellen wrote:
Klopt het dat je na de laatste toer in a2 2 rijen stokjes na elkaar hebt nl de laatste van a2 en de eerste van a3 waar je begint met 3 stokjes in de hoek? Alvast bedankt! Ellen
27.08.2018 - 15:41DROPS Design answered:
Dag Ellen, De eerste toer van A.3 sla je over. Dit is namelijk inderdaad de laatste toer van A.2 en is er extra bij getekend om te laten zien hoe je de steken in die toer haakt. Er staat ook een sterretje symbool bij. In de symbolen lijst staat aangegeven dat je deze toer niet haakt.
29.08.2018 - 11:27Tiffany wrote:
I figured out part one and appreciate your response!!! I finished my main square as instructed, finishing on the last round of A.2 and now I’m working on the sides. The diagram for A.3 shows the last round worked to be different (having chain 2’s)... did I do something wrong? Or am I overthinking things? LOL
27.12.2017 - 21:03DROPS Design answered:
Dear Tiffany, diagram A.3 shows the last round worked in A.2, ie the 4-ch-spaces in both corner (beg and end of the side) and the 2-ch-spaces in A.2a/b. Happy crocheting!
02.01.2018 - 09:06Tiffany wrote:
After completing A.1, it says “complete A.2a a total of 2 times in width”..... does that mean end off and reattach on sides? Or something else completely??
09.12.2017 - 01:40DROPS Design answered:
Dear Tiffany, it means you continue to crochet on the round, but instead of pattern A.1, you should follow the diagram of A.2. that is broken down to smaller units in 2.a, 2.b, and 2.c. As the piece grows, it is A.2b that gets repeated more. I hope this helps. Happy crocheting!
09.12.2017 - 10:36
Ginevra |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Hekluð ferningspeysa / peysa með gatamynstri úr DROPS Big Delight. Stærð S - XXXL.
DROPS 180-20 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsti stuðull í byrjun hverrar umferðar er skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Hver umferð endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrun umferðar. ÚTAUKNING (á við um ermar): Aukið er út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í sama stuðul. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring frá miðju að aftan og út eins og ferningur, síðan er heklað áfram fram og til baka á framstykkjum. Ermar eru heklaðar fram og til baka og saumaðar saman. PEYSA: Byrjið með heklunál 5,5 og Big Delight og heklið mynstur hringinn eftir A.1 alls 4 sinnum í umferð – lesið HEKLLEIÐBEININGAR! Þegar öll mynsturteikning A.1 er lokið er haldið áfram þannig: Heklið A.2a alls 2 sinnum á breidd, A.2b, A.2c, heklið * A.2a alls 4 sinnum á breidd, A.2b, A.2c *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, heklið A.2a 2 sinnum á breiddina. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar A.2 hefur verið heklað til loka á hæðina eru 2 umferðir í A.2 endurteknar þannig: Heklið A.2a alls 3 sinnum, A.2b, A.2c, heklið * A.2a alls 6 sinnum á breiddina, A.2b, A.2c *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, heklið A.2a alls 3 sinnum. Endurtakið síðan þessar 2 umferðir, í hverri endurtekningu eru heklaðar 2 mynstureiningar fleiri af A.2a á milli hverra horna, þ.e.a.s. í næstu endurtekningu er heklað þannig: Heklið A.2a alls 4 sinnum, A.2b, A.2c, heklið * A.2a alls 8 sinnum á breidd, A.2b, A.2c *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, heklið A.2a alls 4 sinnum. Haldið svona áfram þar til ferningurinn mælist ca 38-40-42-44-46-48 x 38-40-42-44-46-48 cm – endið eftir síðustu umferð í A.2. Haldið síðan áfram með mynstur eins og áður fram að fyrsta horni, heklið 2 stuðla, 4 loftlykkjur og 2 stuðla um hornið, heklið 24-25-27-28-29-31 lausar loftlykkjur, hoppið yfir 24-25-27-28-29-31 stuðla fyrir handveg og haldið áfram með mynstur eins og áður fram að og með 2 næstu hornum, heklið mynstur eins og áður þar til eftir eru 24-25-27-28-29-31 stuðlar á undan næsta horni, heklið 24-25-27-28-29-31 lausar loftlykkjur, hoppið yfir 24-25-27-28-29-31 stuðla fyrir handveg, heklið 2 stuðla, 4 loftlykkjur og 2 stuðlar um hornbogann, haldið áfram með mynstur eins og áður út umferðina. Heklið síðan mynstur eins og áður til loka – í næstu umferð eru heklaðir 24-25-27-28-29-31 stuðlar um hvorn handveg. Þegar ferningurinn mælist ca 82-84-86-88-90-92 x 82-84-86-88-90-92 cm endið eftir síðustu umferð í A.2. Klippið frá og festið enda. FRAMSTYKKI: Framstykkin eru hekluð hvort fyrir sig, fram og til baka án útaukningar. Setjið 1 prjónamerki í síðustu umferð sem var hekluð. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Byrjið við kross í einu horninu – sjá mynsturteikningu og heklið þannig: A.3a um hornið, endurtakið A.3b þar til 1 stuðull er eftir á undan næsta hornboga, heklið A.3c yfir hornið. Þegar A.3 hefur verið heklað til loka eru 2 síðustu umferðir endurteknar í A.3 á hæðina þar til stykkið mælist ca 19-20-21-22-23-24 cm, endið eftir síðustu umferð í mynsturteikningu. Klippið frá og festið enda. Heklið hitt framstykkið alveg eins. KANTUR: Heklið kant í kringum alla peysuna þannig: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul, 3 stuðla um hverja stuðlaumferð og 4 stuðla um hvern hornboga. Klippið frá og festið enda. ERMI. Ermin er hekluð fram og til baka. Heklið 40-40-42-42-48-48 loftlykkjur (meðtaldar 3 loftlykkjur til að snúa við með) með heklunál 5,5 með Big Delight. Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja og eina af næstu 1-1-3-3-4-4 loftlykkjurnar, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja af næstu 4 loftlykkjum *, endurtakið frá *-* út umferðina = 31-31-33-33-38-38 stuðlar – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR. Heklið síðan þannig: Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 0-0-1-1-1-1 stuðlum, heklið A.4 þar til eftir eru 1-1-2-2-2-2 stuðlar (= 6-6-6-6-7-7 mynstureiningar), heklið 1 stuðul í hvern af síðustu 1-1-2-2-2-2 stuðlum. Þegar A.4 hefur verið heklað til loka er A.4 endurtekið á hæðina til loka. Þegar stykkið mælist 7 cm í öllum stærðum er aukið út um 1 stuðul á hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING að ofan. Endurtakið útaukningu með ca 6½-5-4½-4-4½-4 cm millibili alls 8-10-11-12-11-12 sinnum = 47-51-55-57-60-62 stuðlar. Útauknir stuðlar halda áfram í stuðlum. Þegar stykkið mælist ca 55 cm í öllum stærðum er endað á eftir einni stuðlaumferð. Klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið sauma undir ermum og saumið ermar á peysuna. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Hanka wrote:
Vánek
08.08.2017 - 14:51