Marga skrifaði:
Simplemente maravillosa!!!
15.07.2016 - 13:29
Janneke Feenstra skrifaði:
Lief en stoer, prachtige kleuren.
14.07.2016 - 19:30
Rita Eriksen skrifaði:
Likte mønsteret, at det er runde former. Veldig pent!
21.06.2016 - 08:24
Birgitta skrifaði:
Den är så läcker , hoppas den blir med-
14.06.2016 - 09:28
Lauren McRoberts skrifaði:
My favorite! Please include!
12.06.2016 - 01:40
Git skrifaði:
Så fina färger och annorlunda mönster.
10.06.2016 - 11:31
Elisabeth Pocklington skrifaði:
Love the variety of soft colours on the black background. Very different!
07.06.2016 - 18:15
Cindy L skrifaði:
Looks like a field of flowers.
07.06.2016 - 18:06
Marianne skrifaði:
Nice combi love the black background
05.06.2016 - 20:42
Lananella skrifaði:
Was für eine schöne Decke - auch die Farbkombination sieht super aus!
04.06.2016 - 22:24
Midnight Flurries#midnightflurriesblanket |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklað teppi úr DROPS Nepal með sexhyrningum.
DROPS 173-24 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. ATH: A.2 sýnir hvernig umf byrjar og endar. A.3a og A.3b sýnir frágang á teppi. LITIR: Heklið 6 sexhyrninga – sjá LITUR 1-6: LITUR 1: Byrjun + UMFERÐ 1: ljós grár UMFERÐ 2 og 3: ljós grár. UMFERÐ 4: dökk grár. LITUR 2: Byrjun + UMFERÐ 1: ljós grár UMFERÐ 2 og 3: grár. UMFERÐ 4: dökk grár. LITUR 3: Byrjun + UMFERÐ 1: ljós grár UMFERÐ 2 og 3: milligrár. UMFERÐ 4: dökk grár. LITUR 4: Byrjun + UMFERÐ 1: ljós grár UMFERÐ 2 og 3: ljós beige. UMFERÐ 4: dökk grár. LITUR 5: Byrjun + UMFERÐ 1: ljós grár UMFERÐ 2 og 3: beige. UMFERÐ 4: dökk grár. LITUR 6: Byrjun + UMFERÐ 1: ljós grár UMFERÐ 2 og 3: camel. UMFERÐ 4: dökk grár. Heklið síðan 6 sexhyrninga alveg eins, nema byrjun + 1. umf er skipt út með litnum grár. Haldið svona áfram og skiptið út byrjun + 1. umf með næsta lit á listanum undir «garn» þar til heklaðir hafa verið 6 mismunandi sexhyrningar með hverjum lit í byrjun + 1. umf. Þ.e.a.s. það verða 6 x 6 = 36 sexhyrningar. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TEPPI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Teppið er heklað í sexhyrningum sem saumaðir eru saman í lokin. Heklið alls 84 sexhyrninga með mismunandi litaskiptingum. SEXHYRNINGUR: Byrjið með Nepal með heklunál nr 6 og heklið LITIR – sjá útskýringu að ofan og MYNSTUR eftir mynsturteikningu A.1 alls 3 sinnum í umf. A.2 sýnir hvernig umf byrjar og endar. Skiljið eftir smá enda ca 20 cm í síðustu umf fyrir frágang. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA. Þegar búið er að hekla 1 sexhyrning í hverjum lit eins og útskýrt er frá að ofan (= 36 sexhyrningar) endurtakið 1 sinni til viðbótar = 72 sexhyrningar (= 2 alveg eins sexhyrningar í hverjum lit). Heklið síðan 12 sexhyrninga til viðbótar alveg eins þannig: Heklið 2 sexhyrninga þannig: Byrjun + UMFERÐ 1: ljós grár. UMFERÐ 2 og 3: grár. UMFERÐ 4: dökk grár. Heklið síðan 6 sexhyrninga til viðbótar alveg eins en umf 2 og 3 er skipt út fyrir beige, camel og milligrár = 8 sexhyrningar. Heklið 1 sexhyrning þannig: Byrjun + UMFERÐ 1: ljós beige. UMFERÐ 2 og 3: grár. UMFERÐ 4: dökk grár. Heklið 3 sexhyrninga til viðbótar alveg eins nema umf 1 og 3 er skipt út fyrir beige, camel og milligráum = 4 sexhyrningar. Nú eru alls 84 sexhyrningar. FORMUN: Ef ll í ll-bogum í síðustu umf hafa verið heklaðar of stífar getur hvert horn orðið rúnað og erfiðara er að tengja teppið. Leggið sexhyrningana í volgt vatn þar til þeir eru orðnir blautir í gegn. Pressið varlega vatnið úr – ekki vinda. Rúllið síðan sexhyrningunum í handklæði og pressið til að fá enn meira vatn úr – nú eiga þeir að vera aðeins rakir. Leggið sexhyrningana á dýnu og festið með nálum yst í ll-bogann í hvert horn (= 6 nálar). Færið nálarnar til þannig að hvert og eitt af 6 hornunum spennist aðeins út á við. Festið fleiri sexhyrninga á hæðina með sömu nálum. Látið þorna. Gangið síðan frá sexhyrningunum eins og útskýrt er að neðan. FRÁGANGUR: Blandið sexhyrningunum með ljós grár og ljós beige í 2. umf (= 24 sexhyrningar). Blandið sexhyrningunum með grár og beige í 2. umf (= 30 sexhyrningar). Blandið sexhyrningunum með milligrár og camel í 2. umf (= 30 sexhyrningar). Leggið síðan sexhyrningana eins og útskýrt er í A.3a og A.3b. Saumið sexhyrningana saman með dökk grár. Notið endann á sexhyrningunum til að sauma þá saman á breiddina þannig að það verða 12 lengjur. Saumið saman l eina og eina í hverja og eina af 2 sexhyrningunum meðfram öðrum kantinum. Festið enda. Leggið síðan lengjurnar við hlið á hverri annarri frá númer 1-12 – sjá A.3. Saumið síðan lengjurnar saman eina og eina með því að sauma í hverja l. Festið enda. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #midnightflurriesblanket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 10 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 173-24
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.