Thely skrifaði:
Az ábraleírásnál a \ vonalnál nem "1 sima" hanem "1et átemel" van. Ugyanez az alatta lévő sorban. Köszönjük a megjegyzést, a hiba javításra került.
05.09.2015 - 00:55
Martine Wrede skrifaði:
Bonjour, tout allait bien jusqu'aux manches, j'ai des mailles en trop sur le diagramme M4 A à C à la hauteur de rang 8 et suivants. merci de me répondre pour que je puisse avancer
25.06.2015 - 14:46
BARIL-LOUSTALOT Emmanuelle skrifaði:
Merci beaucoup je suis bloquée au début des manches et n'arrive pas à comprendre quels jetés sont en trop au niveau des rangs 7 et 9 de M4A et M4C :-( Votre site est absolument génial et j'ai déjà réalisé de très nombreux modèles pour tout mon entourage MERCI !
18.11.2014 - 11:05
BARIL-LOUSTALOT Emmanuelle skrifaði:
Bonjour n'y a-t-il pas une erreur au niveau des rangs 7 et 9 de M4 ? Je me retrouve avec trop de mailles... (il y a davantage de jetés que de surjets) D'avance merci pour votre aimable réponse
15.11.2014 - 23:25DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Baril-Loustalot, le diagramme va être vérifié, merci d'avance pour votre patience. Bon tricot!
17.11.2014 - 10:14
Jenny Hulterström skrifaði:
Hej igen! Jag har fått börja och sluta varv 9 med en minskning. Upprepningen stämmer dock.// Med vänlig hälsning Jenny
29.06.2014 - 22:52
Mina skrifaði:
Varv 7 har tydligen 1 "oval" (omslag) för mkt. V. 9 verkar rätt!
18.06.2014 - 10:21
Jenny Hulterström skrifaði:
Hej! I mönster M4 varv 7 och 9 ökas maskantalet om mönstret följs så vitt jag förstår. Med vänlig hälsning Jenny Hulterström
17.06.2014 - 21:34
Dainty Date |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Prjónuð DROPS peysa með silkiborðum og mismunandi gatamynstri úr Safran. Stærð S-XL.
DROPS 68-8 |
||||||||||||||||
GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá teikningu M.1 til M.5. Teikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (á við um hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu innan við 4 l garðaprjón. Fellið af á undan 4 l garðaprjón þannig: 2 l slétt saman. Fellið af á eftir 4 l garðaprjón þannig: Takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ---------------------------------------------------------- PEYSA: Peysan er prjónuð fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 219-243-267 l (meðtaldar 5 kantlykkjur við miðju að framan á hvorri hlið) á hringprjóna nr 3 með 2 þráðum gallabuxnabláu Safran. Skiptið yfir í 1 þráð og prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá skýringu að ofan. Skiptið yfir í bláfjólublátt og prjónið næstu umf þannig: 4 l garðaprjón, 1 l sléttprjón, 209-233-257 l af M.1, 1 sléttprjón, 4 l garðaprjón. Haldið áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 29-30-31 cm prjónið M.2 og síðan M.3 til loka, kantur að framan er prjónaður eins útskýrt er alla leið (4 l garðaprjón + 1 l sléttprjón). LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM! JAFNFRAMT (þegar M.3 hefur byrjað) prjónið 2 umf garðaprjón einungis yfir síðustu 4 l við háls (aðrar l eru ekki prjónaðar i þessum 2 umf). Fellið síðan af 1 l við háls innan við 4 l 18-18-18 sinnum í annarri hverri umf og síðan 6-7-7 sinnum í 4. hverri umf – sjá ÚRTAKA. JAFNFRAMT þegar fellt er af fyrir háls 2 sinnum (stykkið mælist ca 33-34-36 cm) prjónið næstu umf þannig: 50-56-62 l = framstykki, fellið af 7 l fyrir handveg, 101-113-125 l = bakstykki, fellið af 7 l fyrir handveg, 50-56-62 m = framstykki. Hvort stykki er nú prjónað til loka fyrir sig. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 50-56-62 l. Haldið áfram með úrtöku fyrir háls eins og skýrt var frá að ofan. JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í annarri hverri umf: 2 l 2-3-5 sinnum og 1 l 2-5-6 sinnum. Eftir alla úrtöku fyrir háls og handveg eru 24-24-25 l eftir á öxl. Fellið af þær l sem eftir eru þegar stykkið mælist ca 52-54-56 cm – passið uppá að það verði minnst 2 umf sléttprjón yfir allar l áður en fellt er af. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið eins og vinstra framstykki nema með affellingu á gagnstæðri hlið. BAKSTYKKI: = 101-113-125 l. Fellið af fyrir handveg á hvorri hlið eins og á framstykki = 89-91-93 l. Þegar stykkið mælist ca 49-51-53 cm – passið uppá að það séu minnst 2 umf sléttprjón yfir allar l – prjónið 4 umf garðaprjón yfir miðju 45-47-47 l. Í næstu umf eru felldar af miðju 37-39-39 l fyrir hálsmáli og 4 l á hvorri hlið eru prjónaðar með garðaprjóni til loka. Fellið nú af 1 l við háls í annarri hverri umf 2 sinnum innan við 4 l garðaprjón – sjá ÚRTAKA = 24-24-25 l eftir á hvorri öxl. Fellið af þær l sem eftir eru þegar stykkið mælist jafn langt og framstykki. ERMI: Fitjið upp 62-62-62 l (meðtalin 1 kantlykkja á hvorri hlið) á prjóna nr 3 með 2 þráðum fjólubláu Safran. Skiptið yfir í 1 þráð gallabuxnablátt og prjónið næstu umf þannig (frá réttu): 1 kantlykkja með sléttprjóni, 6 l af M.4A, 48 l af M.4B, 6 l af M.4C, 1 kantlykkja með sléttprjóni. Prjónið M.4 tvisvar á hæðina. Skiptið nú til baka yfir í fjólublátt og prjónið M.5 (kantlykkja með sléttprjóni). Skiptið yfir í bláfjólublátt og prjónið M.1 áfram (kantlykkja með sléttprjóni). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 15 cm er aukið út um 1 l á hvorri hlið alls 10-13-13 sinnum í 12.-9.-8. hverri umf = 82-88-88 l. Útauknu l eru prjónaðar inn í mynstrið jafnóðum. Þegar ermin mælist 49-47-45 cm prjónið M.2, haldið síðan áfram með M.3 til loka. Þegar ermin mælist 51-50-48 cm fellið af fyrir ermakúpu á hvorri hlið í annarri hverri umf: 3 l 2-2-2 sinnum, 2 l 3-4-2 sinnum, 1 l 3-3-9 sinnum, síðan eru felldar af 2 l 3-3-2 sinnum og að lokum eru felldar af 3 l á hvorri hlið þar til stykkið mælist 59-59-59 cm. Fellið af þær l sem eftir eru. Prjónið aðra ermi. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar saman innan við 1 kantlykkju. Saumið ermar í við fram- og bakstykki. Klippið silkiborðann í 3 hluta, 2 st ca 60 cm og 1 st ca 80 cm. Þræðið einn 60 cm borða inn í gataumferð mitt í M.5 á hvorri ermi og hnýtið endana fasta á röngu. Borðinn sem er 80 cm er notaður til að hnýta peysuna saman við miðju að framan. Þræðið annan endann innan við hægri kant að framan þar sem úrtaka yfir hálsmáli byrjar og þræðið hinn endann innan við vinstri kant að framan. Þræðið bandið frá röngu og út að réttu. Hnýtið saman borðann við miðju að framan. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 68-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.