Lorna Merritt skrifaði:
I had fun making this pattern it was easy and came out great thank you
18.10.2021 - 15:28
Sb skrifaði:
Once I have created the item using this pattern, can I sell the item?
26.09.2021 - 10:10DROPS Design svaraði:
Hello Sb, yes you can. The sale of garments based on DROPS patterns is permitted as long as they are sold as single items or per order. Further commercial use of the patterns is not permitted. It has to be clearly stated that the garment is made based on a design from DROPS DESIGN. The use of clothing labels of which DROPS DESIGN forms part is conditioned by the inclusion of the following text: “A DROPS DESIGN made by …..”. Happy crafting!
26.09.2021 - 11:12
Creepy Candy#creepycandybasket |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Hekluð graskers karfa með köngulóarvef og könguló úr DROPS Nepal. Þema: Halloween.
DROPS Extra 0-1171 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir körfu séð frá botni og út í hliðar (hlið á körfu er sýnd eins og hún væri flöt). HEKLLEIÐBEININGAR: Hver umf byrjar á 1 ll, endið umf á 1 kl í fyrstu ll frá byrjun umf. HEKLIÐ 2 FL SAMAN ÞANNIG: Stingið heklunálinni niður í fyrstu fl, sækið þráðinn, stingið heklunálinni í næstu fl, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KARFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað frá botni og upp. KARFA: Heklið 4 ll með heklunál nr 3 með litnum appelsínugulur og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll. UMFERÐ 1: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 6 ll um ll-hringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 12 fl. UMFERÐ 3: Heklið * 1 fl í fyrstu/næstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 18 fl. UMFERÐ 4: Heklið * 1 fl í hvora af fyrstu/næstu 2 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl. UMFERÐ 5: Heklið * 1 fl í hverja af fyrstu/næstu 3 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 30 fl. UMFERÐ 6: Heklið * 1 fl í hverja af fyrstu/næstu 4 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 36 fl. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Haldið áfram að hekla 1 fl fleiri á milli útaukning þar til stykkið mælist ca 12 cm að þvermáli (ef óskað er eftir stærri körfu þá er haldið áfram alveg eins að óskuðu þvermáli). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Heklið 1 fl í hverja fl þar til stykkið mælist ca 4,5 cm (eða að óskaðri hæð), skiptið yfir í litinn svartur og heklið 2 umf með 1 fl í hverja fl. Næst umf er hekluð þannig: Heklið * 2 fl í fyrstu/næstu fl, hoppið yfir 1 fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn. Klippið frá og festið enda. VEFUR: Köngulóarmynstur er saumað með litnum svartur – sja mynsturteikningu A.1. Lóðréttu línurnar sem eru fyrir miðju eru fyrst saumaðar og saumaðar jafnt yfir með byrjun í fyrstu umf með fl með litnum svartur. Saumið síðan hornréttu línurnar í 3 umf. Byrjið lóðréttu línurnar með 1 spori í byrjun umf (- sjá ör í mynstri), saumið 1 spor í miðju á botni, saumið í gegnum kant, þræðið á bakhlið, saumið i gegnum kant, saumið 1 spor í miðju á botn o.s.frv. hringinn – ATH: Passið uppá að herða ekki á þræði. Saumið síðan hornréttu línurnar (= 3 umf), saumið 1 leggsaumsspor um hverja og eina af lóðréttu línunum í kross-punkti svo að lóðréttu línurnar festist. Festið þráðinn eftir síðustu umf. ------------------------------------------------------- KÖNGULÓ - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Byrjað er lengst aftan á búk og heklað fram. BÚKUR: Heklið 4 ll með heklunál nr 3 með litnum svartur og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll. LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! UMFERÐ 1: Heklið 6 fl um ll-hringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl umf hringinn = 12 fl. UMFERÐ 3-6: 1 fl í hverja fl. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! UMFERÐ 7: Heklið allar FL SAMAN 2 og 2 – sjá útskýringu að ofan = 6 fl. HÖFUÐ: UMFERÐ 8: Heklið * 1 fl í fyrstu/næstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 9 fl. UMFERÐ 9: Heklið 1 fl í hverja fl. UMFERÐ 10: Heklið 1 fl í fyrstu fl, heklið síðan allar fl saman 2 og 2 = 5 fl. Troðið smá vatti í köngulóna, klippið frá. Saumið 2 augu með lykkjuspori með litnum appelsínugulur. Þræðið upp og niður í kringum op á topp á höfði og herðið að. Snúið með litnum svartur í kringum skiptingu á milli búks og höfuðs, hnýtið fast og festið enda. FÓTUR: Heklið 4 stk pör af fótum með litnum svartur (= alls 8 fætur). Byrjað er á lengstu fótunum sem eiga að vera aftast. Fæturnir eru heklaðir saman fyrir miðju, svo að auðveldara sé að festa þá undir köngulóna í lokin. Öftustu fætur 2 stykki: Heklið 21 ll, klippið frá. Næst öftustu fætur 2 stykki: Heklið 10 ll, heklið síðan 1 kl í miðju ll frá fyrri ll-umf og 10 ll, klippið frá. Næst fremstu fætur 2 stykki: Heklið 9 ll, heklið síðan 1 kl í kl frá fyrri ll-umf, 9 ll, klippið frá. Fremstu fætur 2 stykki: Heklið 8 ll, síðan 1 kl í kl frá fyrri ll-umf, 8 ll, klippið frá. Til þess að sleppa við að festa alla þræðina í hverjum enda á fótum, hnýtið lítinn hnút nákvæmlega innan við ll-umf, innst á enda, klippið síðan þráðinn nákvæmlega utan við hnút. Leggið alla fæturna undir köngulóna og saumið niður fyrir miðju. Ef þig langar til að hengja köngulóna upp, gerðu eina lykkju með því að þræða þráð í gegnum miðju á búk og til baka, látið lykkjuna vera ca 6 cm langa, hnýtið saman 2 endana undir búknum og festið. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #creepycandybasket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 7 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1171
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.