Carolin Vaughn skrifaði:
Is there a need or use circular needles (instead of straight needles) if working back and forth?
14.02.2016 - 18:21DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Vaughn, each piece is worked here separately back and forth on circular needle to get enough room for all sts - read more here. Happy knitting!
15.02.2016 - 11:22
Stefania skrifaði:
Vorrei sapere,se possibile, perchè tutti i vostri modelli vengono realizzati con i ferri circolari anche quando, come in questo caso, secondo il mio modesto parere non ce ne sarebbe bisogno. E' auspicabile che le spiegazioni per la realizzazione dei vostri bellissimi modelli vengano date anche per effettuarli con i ferri tradizionali.che cosa ne pensate? grazie infinite
12.11.2015 - 13:15DROPS Design svaraði:
Buongiorno Stefania, nei modelli DROPS sono spesso consigliati i ferri circolari perchè all'estero sono molto diffusi e perchè hanno un sacco di vantaggi rispetto ai ferri tradizionali: anche in Italia si stanno diffondendo parecchio negli ultimi anni. In ogni caso se un modello viene lavorato avanti e indietro può lavorarlo allo stesso modo sui ferri tradizionali senza modificare le spiegazioni. Buon lavoro!
12.11.2015 - 13:56
Stefania skrifaði:
Vorrei sapere,se possibile, perchè tutti i vostri modelli vengono realizzati con i ferri circolari anche quando, come in questo caso, secondo il mio modesto parere non ce ne sarebbe bisogno. E' auspicabile che le spiegazioni per la realizzazione dei vostri bellissimi modelli vengano date anche per effettuarli con i ferri tradizionali.che cosa ne pensate? grazie infinite
12.11.2015 - 13:15DROPS Design svaraði:
Buongiorno Stefania, nei modelli DROPS sono spesso consigliati i ferri circolari perchè all'estero sono molto diffusi e perchè hanno un sacco di vantaggi rispetto ai ferri tradizionali: anche in Italia si stanno diffondendo parecchio negli ultimi anni. In ogni caso se un modello viene lavorato avanti e indietro può lavorarlo allo stesso modo sui ferri tradizionali senza modificare le spiegazioni. Buon lavoro!
12.11.2015 - 13:56
Lazy Days |
|
|
|
Prjónuð peysa í garðaprjóni og klauf í hliðum og lausum kraga í stroffprjóni úr 1 þræði DROPS Cloud eða 2 þráðum DROPS Air. Stærð S - XXXL.
DROPS Extra 0-1139 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: (Umferð 1 = rétta): Prjónið * 1 umf sl, 1 umf br, 2 umf sl *, endurtakið frá *-* upp úr MÆLING: Öll mál eru gerð þegar stykkinu er haldið uppi. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. BAKSTYKKI: Fitjið upp 56-60-64-70-76-82 l á hringprjóna nr 8 með 1 þræði Cloud eða 2 þráðum Air. Prjónið GARÐAPRJÓN- sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 20 cm eru sett prjónamerki í hvora hlið á stykki fyrir klauf – LESIÐ MÆLING. Þegar stykkið mælist 52-53-54-55-56-57 cm fellið af 1-1-2-4-5-5 l fyrir handveg í byrjun á næstu 2 umferðum = 54-58-60-62-66-72 l. Þegar stykkið mælist 65-67-69-71-73-75 cm fellið af miðju 20-22-22-22-24-24 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umf frá hálsi er felld af 1 l = 16-17-18-19-20-23 l eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki. Þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm og fellið af miðju 12-14-14-14-16-16 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í hverri umf þannig: 2 l 1 sinni, eftir það 1 l 3 sinnum = 16-17-18-19-20-23 l eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 24-24-26-26-28-28 l á hringprjóna nr 8 með 1 þræði Cloud eða 2 þráðum Air. Prjónið 4 umf garðaprjón. Prjónið síðan MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 10 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu með 7-6-6-5-5-4 cm millibili til viðbótar 5-6-6-7-7-8 sinnum = 36-38-40-42-44-46 l. Fellið af þegar stykkið mælist 48-48-48-48-47-46 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla). Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. HÁLSMÁL: Prjónið fram og til baka á hringprjóna. Prjónið upp ca 59-62 l frá réttu á hringprjóna nr 8 með Cloud. Prjónið 4 umf garðaprjón. Fellið af með 2 þráðum frá röngu. FRÁGANGUR: Saumið vinstri axlasaum og hálsmál. Saumið ermar í – yst í lykkjubogann svo að saumurinn verði flatur. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt niður að merki fyrir klauf – saumið yst í lykkjubogann í ystu l. LAUS KRAGI: Prjónið fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 90-90-94-94-98-98 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 8 með 1 þræði Cloud eða 2 þráðum Air. Prjónið 3 umf garðaprjón. Eftir það er prjónað stroff (= 2 l sl/ 2 l br) með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 14 cm er fellt af með sl yfir sl og br yfir br með 2 þráðum. Saumið hliðarsaum innan við 1 kantlykkju. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1139
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.