Michele Elliott skrifaði:
Love, Love, Love this!!! So pretty, so feminine - very flattering design lines!!!
14.01.2014 - 20:45
Allie skrifaði:
Very modern and up-to date. I appreciate the interesting use of simple knit stitches!
06.01.2014 - 19:43
Barbara skrifaði:
Kan ni fixa den vackra plagget med lång armat,då kan man avända det oftare,väntar på mönster,,den är fin
02.01.2014 - 08:42
Barbara skrifaði:
Jag väntar på mönster ska sticka den innan våren kommer
02.01.2014 - 08:36
Solveig Lykseth skrifaði:
Nydelig! Spesiell komposisjon.
30.12.2013 - 23:05
Kated skrifaði:
This is my favourite
27.12.2013 - 13:21
Gisa skrifaði:
Sehr schön. Elegant.
22.12.2013 - 12:15
Bente Schmøde skrifaði:
Meget smuk, kommer til at skulle strikke den
21.12.2013 - 07:39
Debby skrifaði:
Very clever use of texture, awesome!
20.12.2013 - 16:01
Stacha skrifaði:
Piękana, cudowny kolor,taki lubię
16.12.2013 - 12:32
Evangeline#evangelinecardigan |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónað vesti með gatamynstri og garðaprjóni, prjónað í hring úr DROPS Paris. Stærð S - XXXL
DROPS 154-35 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mysnsturteikningu A.1(= 9 l). Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. MÆLING: Öll mæling á kanti er gerð meðfram stystu hliðinni. ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið út innan við fyrstu l í garðaprjóni í hlið og útauknar lykkjur eru prjónaðar síðan í garðaprjóni. Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónið aftan í uppsláttinn í stað framan) svo ekki myndist gat. PRJÓNIÐ UPP LYKKJUR: Hægra kantstykki: * Takið upp 1 l í síðasta lykkjubogann í næstu l/umf á bakstykki í lok umf frá réttu með vinstri prjóni, steypið nýju l yfir þá hægri og steypið síðan prjónuðu l yfir nýju l, prjónið 2 umf garðaprjón *, endurtakið frá *-* í hverri umf frá réttu (þ.e.a.s. kantstykkið er nú prjónað saman við bakstykki). ATH: Til þess að mynstur á bakstykki gangi jafnt upp verður 1 l fleiri í garðaprjóni í hægra kantstykki en á vinstra kantstykki. Vinstra kantstykki: Takið upp lykkjur á sama hátt og á hægra kantstykki en í byrjun á hverri umf frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Vestið er prjónað í 3 stykkjum: 1 bakstykki (A) + 2 kantstykki (B) sem eru prjónuð frá miðju aftan við bak og endar við miðju aftan við hnakka. Þessi eru prjónuð saman með bakstykki og saumuð síðan saman í einn hring – sjá mynsturteikningu 1. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 29-33-39-47 l á hringprjóna nr 5 með Paris. Setjið 1 prjónamerki eftir 15-17-20-24 l. Hér á hægra – og vinstra kantstykki að festast saman með bakstykki hvoru megin við prjónamerki. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan JAFNFRAMT eru fitjaðar upp 2 l hvoru megin á stykki í lok tveggja næstu umf, endurtakið útaukningu í hvorri hlið 2 sinnum til viðbótar, fitjið síðan upp 1 l hvoru megin á stykki í lok tveggja næstu umf, endurtakið útaukningu 9 sinnum til viðbótar = 61-65-71-79 l á prjóni. Prjónið nú næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 5-7-3-7 l garðaprjón, A.1 (= 9 l), * 5 l sléttprjón, A.1 *, endurtakið frá *-* alls 3-3-4-4 sinnum, endið á 5-7-3-7 l garðaprjón. Haldið áfram með mynstur á hæðina. Þegar stykkið mælist 14-13-13-12 og 15-14-14-13 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið = 65-69-75-83 l í umf (= í 1. eða 4. umf í A.1) – útauknu l eru prjónaðar í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 16-15-15-14 cm er aukið út um 1 l fyrir ermi á hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf alls 6 sinnum. Þegar útaukningu er lokið eru 77-81-87-95 l á prjóni (= í 1. eða 4. umf í A.1). Þegar stykkið mælist 30-30-31-31 cm – stillið af eftir 1 mynstureiningu af A.1 á hæðina – fellið af miðju 21-23-25-27 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af 1 l í næstu umf við hálsmál = 27-28-30-33 l eftir á hvorri öxl. Haldið áfram með mynstur yfir þær l sem eftir eru. Fellið af þegar stykkið mælist 32-32-33-33 cm – stillið af eftir 1 mynstureiningu á hæðina. HÆGRA KANTSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 52-56-60-64 l á hringprjóna nr 5 með Paris. Uppfitjunarkanturinn er merktur með E í mynsturteikningu. Prjónið garðaprjón JAFNFRAMT er kantstykki prjónað saman við bakstykki frá prjónamerki – SJÁ PRJÓNIÐ UPP LYKKJUR – JAFNFRAMT eru prjónaðar stuttar umferðir með byrjun frá réttu þannig: * Prjónið 2 umf yfir allar l, prjónið nú 2 umf yfir fyrstu 34-36-40-42 l, síðan 2 umf yfir fyrstu 17-18-20-21 l *, endurtakið frá *-* þar til stykkið mælist 18-19-21-23 cm þar sem það er minnst – LESIÐ MÆLING. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM: Haldið áfram að prjóna upp lykkjur JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu er prjónað þannig: Prjónið 7 l garðaprjón (= kantur að framan), A.1 alls 4-5-5-6 sinnum, endið á 9-4-8-3 l garðaprjón JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 19-20-22-24 cm er prjónað frá réttu þannig: * 2 umf yfir fyrstu 25-34-34-43 l (7 l garðaprjón, A.1 alls 2-3-3-4 sinnum), 2 umf yfir fyrstu 34-43-43-52 l (7 l garðaprjón , A.1 alls 3-4-4-5 sinnum), 2 umf yfir allar l *, endurtakið frá *-* þar til stykkið mælist 36-37-39-41 cm – munið eftir MÆLING! Nú hafa stuttar umferðir verið prjónaðar. Útaukning er lokið þegar tekin hefur verið upp 1 auka l fyrir ermi á bakstykki. Haldið áfram með mynstur. Þegar útaukningu er lokið er aukið út fyrir ermi í hlið eins og á bakstykki (= 6 l fleiri) = 58-62-66-70 l á prjóni (= í 1. eða 4. umf í A.1). Prjónið síðan mynstur og garðaprjón yfir allar l. Þegar stykkið mælist 54-56-59-62 cm eru felldar af síðustu 27-28-30-33 l í vinstri hlið fyrir öxl – stillið af eftir 1 mynstureiningu af A.1 á hæðina = 31-34-36-37 l eftir fyrir sjalkraga. Prjónið út umf. Héðan er nú mælt. Stykkið er nú prjónað áfram með garðaprjóni. Prjónið frá réttu þannig: * 2 umf yfir fyrstu 23-26-28-29 l, 2 umf yfir allar l *, endurtakið frá *-* til loka. Fellið af þegar stykkið mælist 7-8-8-9 cm (mælt frá styttri hlið). VINSTRA KANTSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra kantstykki, nema spegilmynd. FRÁGANGUR: - Sjá mynsturteikningu. Saumið yst í lykkjubogann og passið saumurinn verði ekki of stífur. Saumið kantstykki saman á neðri brún (E í E) og hálsmál (D í D). Festið kantstykki saman að aftan með því að sauma axlasauma (C) og kantstykki að efri kanti á bakstykki (G) aftan við hálsmál. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #evangelinecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 154-35
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.