Elisabet Falguera Torrent skrifaði:
La cesta no se aguanta me ha quedado com blanda
24.05.2020 - 16:35DROPS Design svaraði:
Hola Elisabet. En estos trabajos es importante la tensión del tejido. Si con el número de ganchillo recomendado en el patrón la labor queda con la textura floja, hay que utilizar un ganchillo de un número menos.
25.05.2020 - 00:27
Christina skrifaði:
Guten Tag Ist Ihnen in Runde 26 möglicherweise ein Fehler unterlaufen? Wie es in der Anleitung steht komme ich nicht auf 6 abgenommene Maschen und es ergibt sich mehr als eine Runde. Ich habe stattdessen wie folgt gehäckelt: * 1 fM in jede der nächsten 9 fM, 2 fM zusammenhäkeln *, von * - * fortlaufend wdh = 6 M abgenommen und 60 fM übrig
31.07.2019 - 10:46DROPS Design svaraði:
Liebe Christina, Sie haben Recht, das passt nicht. Das Problem wurde weitergeleitet und es wird dann in Kürze korrigiert. Vielen Dank für Ihren Hinweis! :-)
31.07.2019 - 16:56Shirley Johnson skrifaði:
What is the cost of the yarn & pattern in American dollars?
22.04.2017 - 00:00DROPS Design svaraði:
Dear Shirley, the pattern is free, and you can buy the materials needed to make this piece from 19.25 USD. I hope this helped. Happy Crocheting!
22.04.2017 - 08:50
Hanne skrifaði:
Nydelig kurv med flotte farger ! Ser av oppskriften at den er 10 cm høy - stemmer det ?
14.07.2014 - 23:03DROPS Design svaraði:
Hej Hanne. Ja, det er korrekt.
15.07.2014 - 11:48
Connie skrifaði:
Virkelig flot, glæder mig til opskriften , flotte hav blå farver
13.01.2014 - 21:36Stefania skrifaði:
Beautiful colours!!!
12.12.2013 - 16:26
Fishbowl#fishbowlbasket |
|
|
|
Heklaðar körfur úr 3 þráðum DROPS Muskat.
DROPS 152-30 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MARGIR ÞRÆÐIR: Þar sem heklað er samtímis með nokkrum þráðum úr sömu dokkunni getur verið gott að hekla bæði með þræði innan úr og utan með sömu dokkunni. Einnig er gott að klippa frá nokkra metra til þess að nota í einhverja rönda. Heklið inn endana jafnóðum svo að það verða færri endar sem ganga þarf frá í lokin. HEKLLEIÐBEININGAR: Eftir síðustu fl í umf, haldið áfram að næstu umf með 1 fl í næstu fl (= 1. fl frá fyrri umf). ATH: Merkið byrjun umf af með prjónamerki á milli síðustu fl í umf og 1. fl í næstu umf, látið prjónamerkið fylgja með upp úr í stykkinu. LITIR: Karfan er hekluð allan tíman úr 3 þráðum Muskat, annað hvort með litnum hvítur eða litum eins og útskýrt er hér: UMFERÐ 1-17: 3 þræðir blár. UMFERÐ 18-19: 2 þræðir gallabuxnablár og 1 þráður himinblár. UMFERÐ 20-21: 1 þráður gallabuxnablár og 2 þræðir himinblár. UMFERÐ 22-23: 2 þræðir himinblár og 1 þráður hvítur. UMFERÐ 24-25: 1 þráður himinblár og 2 þræðir hvítur. UMFERÐ 26-28: 3 þræðir hvítur. ÚRTAKA: Heklið 1 fl, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið 1 fl til viðbótar alveg eins (= 3 l á heklunálinni) og dragið þráðinn í gegnum allar l á heklunálinni – nú hefur fækkað um 1 fl. KRABBAHEKL: Heklið eins og fl, nema aftur á bak. Þ.e.a.s. heklað er frá vinstri til hægri. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KÖRFUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring. KARFA: Heklið 2 ll með heklunál nr 6 og 3 þráðum Muskat – LESIÐ LITIR OG MARGIR ÞRÆÐIR AÐ OFAN! UMFERÐ 1: Heklið 6 fl í 2. ll frá heklunálinni – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR. UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 12 fl. UMFERÐ 3: * Heklið 1 fl í næstu fl, heklið 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn (= 6 fleiri fl) = 18 fl. UMFERÐ 4: * Heklið 1 fl í hvora af næstu 2 fl, heklið 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn (= 6 fleiri fl) = 24 fl. UMFERÐ 5: * Heklið 1 fl í hverja af næstu 3 fl, heklið 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn (= 6 fleiri fl) = 30 fl. UMFERÐ 6-15: Haldið áfram að auka út um 6 l í hverri umf með því að hekla 1 fl fleiri í hverri útaukningu. Eftir umf 15 eru 90 fl í umf. UMFERÐ 16-17: Heklið 1 fl í hverja fl umf hringinn. UMFERÐ 18: * Heklið 1 fl í hverja af næstu 13 fl, heklið 2 fl saman * LESIÐ ÚRTAKA AÐ OFAN, endurtakið frá *-* umf hringinn = 6 l færri og 84 fl eftir. UMFERÐ 19: Heklið 1 fl í hverja fl umf hringinn. UMFERÐ 20: Heklið 1 fl í hverja af næstu 6 fl, * heklið 2 fl saman, heklið 1 fl í hverja af næstu 12 fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 1 fl í hverja af síðustu 6 fl = 6 l færri og 78 l eftir. UMFERÐ 21: Heklið 1 fl í hverja fl umf hringinn. UMFERÐ 22: * Heklið 1 fl í hverja af næstu 11 fl, heklið 2 fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 6 l færri og 72 fl eftir. UMFERÐ 23: Heklið 1 fl í hverja fl umf hringinn. UMFERÐ 24: * Heklið 1 fl í hverja af næstu 5 fl, heklið 2 fl saman, heklið 1 fl í hverja af næstu 10 fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 1 fl í hverja af næstu 5 fl = 6 l færri og 66 fl eftir. UMFERÐ 25: Heklið 1 fl í hverja fl umf hringinn. UMFERÐ 26: * Heklið 2 fl saman, heklið 1 fl í hverja af næstu 9 fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 1 fl í hverja af næstu 9 fl = 6 l færri og 60 fl eftir. UMFERÐ 27: Heklið 1 fl í hverja fl umf hringinn. UMFERÐ 28: Heklið 1 umf með KRABBAHEKL – sjá útskýringu að ofan. Klippið frá og festið enda. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #fishbowlbasket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 8 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 152-30
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.