Karin skrifaði:
Läcker!
26.12.2013 - 11:55
Nathalex skrifaði:
Très joli et féminin, et très bon choix de couleur.
18.12.2013 - 11:05
Michaela skrifaði:
Fine!
17.12.2013 - 19:58
Kirsten Jensen skrifaði:
God hjemmeside med gode opskrifter
16.12.2013 - 22:07
Rikke B. Larsen skrifaði:
Skøn bluse, meget anvendelig, gerne mere af den slags :-)
16.12.2013 - 21:22
Anne-griet Leupen skrifaði:
Prachtig elegant vestje! Zou ik graag willen haken!
13.12.2013 - 15:45
Marlène skrifaði:
Modèle sympa, le point est très joli
11.12.2013 - 08:59
Louise skrifaði:
Super sød, mere hækling af denne slags hvis muligt :-)
10.12.2013 - 20:21
Darling Please#darlingpleasecardigan |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Muskat með gatamynstri. Stærð S – XXXL.
DROPS 154-37 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsta fl í hverri umf með fl er skipt út fyrir 1 l. Fyrsti st í hverri umf með st er skipt út fyrir 3 ll. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. ÚTAUKNING: Aukið út með því að hekla 2 l í 1 l, fyrst öðru megin við öll prjónamerkin í umf, í næstu umf hinum megin við öll prjónamerkin í umf, haldið svona áfram með útaukningar í annarri hverri umf á undan og á eftir prjónamerkjum. ÚRTAKA: Fækkið um 1 l með því að hekla 2 l saman. Heklið 2 fl saman þannig: Stingið heklunálinni í fyrstu l, sækið þráðinn, stingið heklunálinni í næstu l, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. Heklið 2 st saman þannig: Heklið 1 st í fyrstu l, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 st í næstu l, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað ofan frá og niður. Heklið fram og til baka frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Heklið 101-107-115-122-130-135 ll (meðtalin 1 ll til þess að snúa við) með heklunál nr 4 með Muskat. Heklið næstu umf þannig: Heklið 1 fl í 2. ll, 1 fl í hverja af næstu 4-5-3-5-3-3 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 fl í hverja af næstu 4 ll *, endurtakið frá *-* út umf = 82-87-93-99-105-109 fl (fyrsta fl = 1 ll) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Setjið 19-20-21-23-24-26 prjónamerki í stykkið þannig: Fyrsta prjónamerkið er sett eftir 5-6-7-6-7-5 l, síðan eru sett 18-19-20-22-23-25 prjónamerki með 4 l millibili, eftir síðasta prjónamerki eru 5-5-6-5-6-4 l. Heklið fram og til baka eftir mynsturteikningu A.1 – JAFNFRAMT í næstu umf, aukið út um 1 l við öll prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf 2-4-3-3-1-2 sinnum til viðbótar, síðan í 3. hverri umf 2-1-1-1-2-3 sinnum og í 4. hverri umf 0-0-1-1-2-1 sinnum = 177-207-219-237-249-291 l. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Heklið nú A.2 þannig: Heklið 1 st í hverja af fyrstu 4 l (= kantur að framan), a yfir 7 næstu l, síðan b þar til 10 l eru eftir, c yfir 6 næstu fl og 1 st í hverja af síðustu 4 l (= kantur að framan). Heklið mynstur 1 sinni á hæðina – ATH: Í 4 fyrstu umf eru heklaðar síðustu 4 l í hvorri hlið með st, síðan eru þær heklaðar inni í mynstur eins og áður. Aukið út við prjónamerki eins og áður í umf 6 og umf 9 í mynstri. Í næst síðustu umf (= umf 11) eru auknar út 16-8-6-8-18-8 l jafnt yfir (ekki er aukið út yfir fyrstu og síðustu 4 kantlykkjur að framan) = 231-255-267-291-315-351 l. Síðasta umf í A.2 er hekluð þannig: Heklið 33-38-41-45-48-56 fl (= kantlykkjur að framan), 8 ll (= undir ermum), hoppið yfir 53-56-56-59-65-68 st (þær eru notaðar síðar fyrir ermi), heklið 59-67-73-83-89-103 (= bakstykki), 8 l (= undir ermi), hoppið yfir 53-56-56-59-65-68 st (þær eru notaðar síðar fyrir ermi) og heklið 33-38-41-45-48-56 fl (= framstykki). Nú eru alls 141-159-171-189-201-231 l á fram- og bakstykki. Takið í burtu öll prjónamerki á berustykki. Byrjið á umf 1 í A.2 aftur og heklið a, b og c alveg eins og áður (hver ll undir ermi er talin eins og 1 fl) – þær 4 síðustu l í hvorri hlið = kantur að framan, þær eru einungis heklaðar með st í 4 fyrstu umf, síðan í mynstri eins og áður. Haldið áfram með A.2 – JAFNFRAMT í umf 6 í A.2 er fækkað um 6 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) – SJÁ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í umf 9 = 129-147-159-177-189-219 l. Í þriðja skipti sem mynstureiningin er hekluð, aukið út um 12 l jafnt yfir í umf 6 (lykkjum er ekki aukið út yfir kant að framan) = 141-159-171-189-201-231 l. Eftir að mynstureiningin hefur verið hekluð alls þrisvar sinnum, mælist stykkið ca 20 cm frá handveg og niður. Stærð S er nú lokið. Haldið áfram með mynstur A.1 í 0-1-1-3-3-5 cm, þ.e.a.s. þar til stykkið mælist 20-21-21-23-23-25 cm frá handveg og niður. Klippið frá og festið enda. ERMI: Til aðermin fái sömu áferð og fram- og bakstykki, heklið því fram og til baka. Það eru alls 61-64-64-67-73-76 l á ermi (meðtaldar 8 ll sem heklaðar voru undir handveg á fram- og bakstykki). Byrjið að hekla mynstur A.1 í 5. ll frá miðju undir ermi sem hekluð var fyrir handveg á fram- og bakstykki. Heklið 3 umf í A.1. Klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið ermasauma kant í kant þannig að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið tölur í jafnt yfir í vinstri kant að framan – efsta talan á að vera 1 cm frá toppi. Hneppið í gegnum l í hægri kanti að framan. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #darlingpleasecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 10 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 154-37
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.