Susan Petersen skrifaði:
Hvor er kanten beskrevet henne?
18.10.2013 - 13:44
Traulle Maryse skrifaði:
Bonjour j aime bcp ce que vous faites , qu entendez vous par aiguilles doubles pour le chale , je voudrais de la laine blance ou ecru comment commander merci beaucoup de me repondre bisous
18.09.2013 - 10:30DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Traulle, ce châle se tricote en allers et retours sur aiguille circulaire pour avoir suffisamment de place pour y loger toutes les mailles au fur et à mesure des augmentations. Pour commander votre laine, cliquez sur le lien "voir les offres et le nuancier pour:DROPS Kid-Silk" à droite de la photo, vous y trouverez toute la liste des magasins qui ont cette qualité en stock, par pays. Bon tricot!
18.09.2013 - 10:36
Annie skrifaði:
Just lovely!
26.06.2013 - 13:27
Kari skrifaði:
Kjempefint!
20.06.2013 - 16:06
Odile Du Sordet skrifaði:
J'adore vos modèle de châle vaporeux et léger comme celui-ci. Bravo continuez a nous donner de si beaux modèles
20.06.2013 - 00:10
Strikkabella skrifaði:
Nydelig sjal!!
18.06.2013 - 12:23
Madeleine skrifaði:
Intressant o spännande mönster!
10.06.2013 - 21:15Monika Gruber skrifaði:
Sehr schönes Modell! Für einen eleganten Auftritt, auch zur Abendgarderobe.
05.06.2013 - 09:52
Brigitte Boeren skrifaði:
Zalig om in weg te kruipen. zowel in de winter als in de zomer.heel licht en toch warm
02.06.2013 - 19:06
Silvana Andrea skrifaði:
Dieses fehlt in meiner Garderobe...
02.06.2013 - 14:15
Madeleine#madeleineshawl |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Prjónað sjal úr DROPS Kid-Silk með gatamynstri
DROPS 151-18 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.9. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING: Allar útaukningar eru gerðar frá réttu: Uppslátturinn er prjónaður eins og venjuleg l (ekki snúin) þannig að það myndist gat. Aukið út um 4 l í annarri hverri umf þannig: Aukið út um 1 l í byrjun umf þannig: Prjónið 1 l garðaprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið út um 2 l fyrir miðju í stykkinu þannig: Sláið uppá 1 sinni prjóninn, 1 l sléttt (= l með prjónamerki), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið út um 1 l í lok umf þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l garðaprjón. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá hálsi og niður með 1 lykkkju GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – í hvorri hlið. SJAL: Fitjið upp 3 l á hringprjóna nr 3 með Kid-Silk. Prjónið 6 umf slétt. Eftir 6. umf er ekki snúið við, heldur er sjalinu snúið um 90 gráður réttsælis, prjónið upp 3 l meðfram kanti (þ.e.a.s. 1 l í hverja rönd í garðaprjóni), snúið sjalinu aftur réttsælis og prjónið upp 3 l meðfram uppfitjunarkanti (þ.e.a.s. 1 l í hverja l) = 9 l á prjóni. Setjið 1 prjónamerki í 5. l (l merkir miðjulykkju í sjali). Prjónið nú sléttprjón með 1 l garðaprjón í hvorri hlið JAFNFRAMT er aukið út um 4 l í hverri umf frá réttu – lesið ÚTAUKNING! Haldið svona áfram þar til 29 l eru á prjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTU! Prjónið nú frá réttu – þannig: Prjónið 1 l garðaprjón, A.3 (= 2 l), A.2 (= 6 l), A.1 (= 5 l), 1 l sléttprjón (= miðjulykkja, prjónið sléttprjón til loka), A.3, A.2, A.1 og endið á 1 l garðaprjón. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina (= 24 umf ) eru 101 l á prjóni. Haldið áfram með mynstur þannig – ATH: Fyrir hvert skipti sem A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 6 mynstureiningum fleiri af A.2 hvoru megin við miðjulykkju. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið A.2 alls 7 sinnum (stykkið mælist ca 58 cm, mælt meðfram miðjulykkju) = 533 l á prjóni – JAFNFRAMT í síðustu umf í A.1, A.2, A.3 (= ranga) aukið út um 6 l jafnt yfir hvoru megin við miðjulykkju (= alls 12 l) = 545 l á prjóni. Næsta umf frá réttu er prjónuð þannig: Prjónið 1 l garðaprjón, A.9 (= 5 l) og síðan A.8 (= 12 l) þar til 2 l eru eftir á undan miðjulykkju, prjónið A.7 (= 2 l), 1 l sléttprjón, A.6 (= 2 l), endurtakið A.5 (= 12 l) þar til 6 l eru eftir, prjónið A.4 (= 5 l) og endið á 1 l garðaprjón. Prjónið 1 mynstureiningu af mynstri á hæðina. Fellið LAUST af. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #madeleineshawl eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 15 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 151-18
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.