Annalena Vigren skrifaði:
I beskrivningen på svenska står det att man ska ta 1 tråd av varje färg till kanten. Men kanten ser ut att vara enfärgad?
26.09.2013 - 06:28DROPS Design svaraði:
Beklagar det var ett fel i den svenska översättningen. Felet är nu rättat. Mvh DROPS Design
26.09.2013 - 14:28
Jutta skrifaði:
Wird denn am Ende der Reihen 1-4 für den Fuß eine Wendeluftmasche gemacht?
18.03.2013 - 10:10DROPS Design svaraði:
Liebe Jutta, wenn nichts angegeben ist, wird keine Wende-Lm gemacht.
19.03.2013 - 07:45
Jutta skrifaði:
Hallo, muss in Reihe 1-4 vom Fuß nicht auch am Ende jeder Reihe eine Wendeluftmasche gemacht werden?Habe noch eine Frage. Die 3.reihe verstehe ich nicht ganz.welches ist den hier die mittlere masche, ueber welche Masche kommt die luftmasche und in welche Masche von den staebchen der vorreihe kommen die 2 fM
16.03.2013 - 20:10
Jutta skrifaði:
Habe noch eine Frage. Die 3.reihe verstehe ich nicht ganz.welches ist den hier die mittlere masche, ueber welche Masche kommt die luftmasche und in welche Masche von den staebchen der vorreihe kommen die 2 fM
15.03.2013 - 11:03DROPS Design svaraði:
Liebe Jutta, die mittlere M ist mittlere der 7 Stb von Reihe 2, aber dann war ein Fehler in der Übersetzung, es wird nur bis 1 M vor der mittleren M gehäkelt. Es ist nun korrigiert und sollte jetzt klar sein. Danke für den Hinweis!
18.03.2013 - 09:31
Jutta skrifaði:
Hallo, wird die obere kante am Ende umgeschlagen? Es sieht auf dem Foto so aus. Lg. Jutta
15.03.2013 - 10:55DROPS Design svaraði:
Liebe Jutta, auf unserem Foto haben wir die Kante umgeschlagen, aber das können Sie natürlich ganz nach Ihrem individuellen Geschmack handhaben.
18.03.2013 - 09:22
Lucky Wanderer |
|
|
|
Heklaðar tátiljur úr 1 þræði DROPS Snow og 1 þræði DROPS Alpaca Bouclé.
DROPS Extra 0-888 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- 2 LYKKJUR HEKLAÐAR SAMAN: 2 lykkjur eru heklaðar saman þannig: Stingið heklunálinni í gegnum lykkjuna og sækið þráðinn í gegnum fyrstu og síðan í gegnum aðra lykkju, dragið síðan þráðinn í gegnum þessar 3 lykkjur. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er fyrst hekluð ein loftlykkja. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst er kanturinn heklaður og síðan sokkurinn. Allt stykkið er heklað fram og til baka. KANTUR: Kanturinn er heklaður þannig: Fitjið upp með 1 þræði í litnum dökk grár DROPS Snow, heklið 13-13-13 lausar loftlykkjur. Heklið 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni og heklið áfram 1 fastalykkju í hverja loftlykkju út umferðina = 12-12-12 fastalykkjur. Heklið fram og til baka með fastalykkjum í aftari lykkjubogana þar til stykkið mælist 27-28-29 cm. SOKKUR: Heklið fram og til baka, ofan frá og niður, með op mitt að aftan. Heklið með 1 þræði DROPS Snow og 1 þræði DROPS Alpaca Bouclé. Heklið 31-33-35 fastalykkjur jafnt yfir meðfram annarri hliðinni á kanti. Haldið áfram þannig: * 2 loftlykkjur, snúið, heklið 1 stuðul í hverja lykkju út umferðina, snúið, heklið 1 fastalykkju, snúið, heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju út umferðina *, endurtakið frá *-*. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! (Það er mikilvægt að heklfestan sé rétt svo að tátiljan passi). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 15-15-15 cm er fækkað um 2 lykkjur í umferð þannig: Heklið fyrstu 2 lykkjur saman – lesið 2 LYKKJUR HEKLAÐAR SAMAN að ofan – og miðju 2 lykkjur saman = 29-31-33 lykkjur í umferð. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 26-28-31 cm. Nú er fóturinn heklaður með fastalykkjum þannig – setjið eitt merki í miðjulykkju: UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju fram að lykkjum á undan miðjulykkju, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 loftlykkja (= miðjulykkja), hoppið yfir næstu lykkju, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af síðustu lykkjum, snúið stykkinu. UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu lykkjum fram að loftlykkju, heklið 7 stuðla um miðju loftlykkju (miðjulykkjan af þessum 7 lykkjum er nú miðjulykkjan) og 1 fastalykkja í hverja af síðustu lykkjum, snúið stykkinu. UMFERÐ 3: Heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu lykkjum fram að lykkju sem er á undan miðjulykkju, heklið 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 loftlykkja (= miðjulykkja), hoppið yfir næstu lykkju, heklið 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af síðustu lykkjum, snúið stykkinu. UMFERÐ 4: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju fram að miðjulykkju, 7 stuðlar um loftlykkju og 1 fastalykkja í hverja af síðustu lykkjum, snúið stykkinu. Endurtakið umferð 3 og 4 þar til fóturinn mælist ca 23-26-28 cm á lengd – mælt þegar stykkið er brotið saman tvöfalt. Skiptið yfir í 1 þráð DROPS Snow í litnum dökk grár og héðan er nú stykkið mælt. * Heklið 1 umferð með fastalykkjum og endið umferð með 1 loftlykkju, snúið stykkinu *, endurtakið frá *-* þar til stykkið mælist ca 4-4,5-5 cm – jafnframt í síðustu umferð eru 2 fyrstu og 2 síðustu lykkjurnar heklaðar saman. Klippið þráðinn. FRÁGANGUR: Leggið tátiljuna saman tvöfalda, saumið saman kant í kant í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði ekki þykkur. BAND MEÐ DÚSKUM: Heklið loftlykkjuband í litnum dökk grár DROPS Snow ca 150 cm að lengd. Gerið tvö bönd með dúskum og saumið niður í hvorn enda. Leiðbeiningar: Áður en 2. dúskurinn er saumaður niður á loftlykkjubandið, þræðið bandið í gegnum eina lykkju neðst á legg / stroffi að aftan, í skiptinguna á milli lita ljós grár og dökk grár, svo að bandið sitji fasta. Hnýtið utan um legginn |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-888
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.