Betty#bettypotholders |
|||||||
|
|||||||
Prjónaðir og þæfðir pottaleppar úr DROPS Big Delight.
DROPS 147-30 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. STUTTAR UMFERÐIR (á við um ferhyrndan pottalepp): Prjónið 1 umf yfir fyrstu 14 l, snúið við og prjónið til baka. Prjónið 1 umf yfir fyrstu 13 l, snúið við og prjónið til baka. Haldið áfram með stuttar umferðir, prjónað er yfir 1 l færri í hvert skipti, þar til prjónaðar hafa verið 2 umf yfir einungis fyrstu l. Prjónið 1 umf yfir 2 fyrstu l, snúið við og prjónið til baka, 1 umf yfir 3 fyrstu l, snúið við og prjónið til baka. Haldið svona áfram að prjóna yfir 1 l fleiri í hvert skipti, þar til prjónuð hefur verið 1 umf yfir fyrstu 14 l, snúið við og prjónið til baka. 1 mynstureining með stuttum umferðum = 54 umf. LEIÐBEININGAR (á við um hringlaga pottalepp): Í hvert skipti sem snúið er við er fyrsta l tekin óprjónuð. Herðið á þræði og prjónið nú áfram eins og áður. Þetta er gert til að koma í veg fyrir göt í snúningi. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- FERHYRNDUR POTTALEPPUR Í SPÍRAL- STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Allur pottaleppurinn er prjónaður í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! Mynsturteikning A.1 sýnir prjónstefnu. FERHYRNDUR POTTALEPPUR Í SPÍRAL: Fitjið upp 14 l á prjóna nr 5 með Big Delight og prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! JAFNFRAMT er prjónuð 1 eining með STUTTAR UMFERÐIR – sjá útskýringu að ofan! Prjónið nú 2 umf slétt yfir allar l, prjónið 1 einingu með stuttum umferðum, 2 umf slétt yfir allar l og 1 einingu aftur með stuttum umferðum. * Prjónið nú 1 umf yfir allar l (frá réttu). Næsta umf er prjónuð þannig (frá röngu): * Takið upp síðustu l frá uppfitjunarkanti, prjónið fyrstu l af vinstra prjóni, steypið nýju l yfir, prjónið út umf, prjónið 2 umf fram og til baka yfir 14 l (án þess að taka upp)*, endurtakið þessar 4 umf frá *-* þar til prjónuð hefur verið upp 1 l í aðra hverja l meðfram uppfitjunarkanti. Prjónið 1 einingu með stuttum umferðum . ** Prjónið 1 umf yfir allar l (frá réttu), næsta umf er prjónuð (frá röngu): Takið upp síðustu lykkjuboganna meðfram hlið á fyrstu umf með stuttum umferðum, prjónið fyrstu l af vinstra prjóni, steypið nýju l yfir, prjónið út umf, prjónið 2 umf fram og til baka yfir 14 l (án þess að taka upp) **, endurtakið þessar 4 umf frá **-** þar til prjónuð hefur verið upp 1 l í aðra hverja l meðfram allri hliðinni frá fyrri umf. Prjónið 1 einingu með stuttum umferðum, endurtakið frá **-** þar til prjónuð hefur verið upp 1 l í aðra hverja l meðfram allri hliðinni frá fyrri umf og fellið af – ATH: Passið uppá að fella af frá uppfitjunarkanti og út að horni. Þegar 1 l er eftir er gerð lykkja í horninu þannig: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, fellið af 1 l með því að steypa l yfir uppsláttinn *, endurtakið frá *-* þar til lykkjan mælist ca 10 cm. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum síðustu l og festið lykkjuna fallega í horninu á pottaleppnum. Pottaleppurinn mælist ca 25 x 25 cm. ÞÆFING: Setjið stykkið í þvottavél með þvottaefni án enzyma og bleikiefna saman með litlu frotte handklæði ca 50 x 70 cm. Þvoið við 40 gráður með venjulegri vindingu án forþvottar ATH: Ekki nota stutt þvottakerfi. Eftir þvott er stykkið formað til á meðan það er enn vott. EFTIR ÞÆFINGU: Ef stykkið hefur þæfst of lítið og er of stórt: Þvoðu stykkið einu sinni enn í þvottavél á meðan það er enn vott. Ef stykkið hefur þæfst of mikið og er of lítið: Togið stykkið út í rétta stærð á meðan það er enn vott, ef stykkið er of þurrt, bleytið það fyrst. Munið: Síðar er stykkið þvegið eins og venjuleg ullarflík. ------------------------------------------------------- HRINGLAGA POTTALEPPUR Í SPÍRAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Allur pottaleppurinn er prjónaður í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. HRINGLAGA POTTALEPPUR Í SPÍRAL: Fitjið upp 2 l á prjóna nr 5 með Big Delight. UMFERÐ 1-2: Prjónið 2 l sl, snúið við og prjónið sl til baka. UMFERÐ 3-4: Prjónið 1 l sl, snúið við og prjónið sl til baka. UMFERÐ 5-6: Prjónið 2 l sl, snúið við og prjónið 2 l í fyrstu l, prjónið síðustu l slétt = 3 l. UMFERÐ 7-8: Prjónið 1 l sl, snúið við og prjónið sl til baka. UMFERÐ 9-10: Prjónið 2 l sl, snúið við og prjónið sl til baka. UMFERÐ 11-12: Prjónið 3 l sl, snúið við og prjónið 1 l sl, 2 l í næstu l, prjónið síðustu l slétt = 4 l. UMFERÐ 13-14: Prjónið 1 l sl, snúið við og prjónið sl til baka. UMFERÐ 15-16: Prjónið 2 l sl, snúið við og prjónið sl til baka. UMFERÐ 17-18: Prjónið 3 l sl, snúið við og prjónið sl til baka. UMFERÐ 19-20: Prjónið 4 l sl, snúið við og prjónið 2 l sl, 2 l í næstu l, prjónið síðustu l slétt = 5 l. UMFERÐ 21-22: Prjónið 1 l sl, snúið við og prjónið sl til baka. UMFERÐ 23-24: Prjónið 2 l sl, snúið við og prjónið sl til baka. UMFERÐ 25-26: Prjónið 3 l sl, snúið við og prjónið sl til baka. UMFERÐ 27-28: Prjónið 4 l sl, snúið við og prjónið sl til baka. UMFERÐ 29-30: Prjónið 5 l sl, snúið við og prjónið 3 l sl, 2 l í næstu l, prjónið síðustu l slétt = 6 l. UMFERÐ 31-32: Prjónið 1 l sl, snúið við og prjónið sl til baka. UMFERÐ 33-34: Prjónið 2 l sl, snúið við og prjónið sl til baka. UMFERÐ 35-36: Prjónið 3 l sl, snúið við og prjónið sl til baka. UMFERÐ 37-38: Prjónið 4 l sl, snúið við og prjónið sl til baka. UMFERÐ 39-40: Prjónið 5 l sl, snúið við og prjónið sl til baka. UMFERÐ 41-42: Prjónið 6 l sl, snúið við og prjónið 4 l sl, 2 l í næstu l, prjónið síðustu l slétt = 7 l. Haldið svona áfram að auka út um 1 l í lok næstu umf eftir að prjónaðar hafa verið 2 umf fleiri yfir allar l þar til 10 l eru á prjóni, nú hafa verið prjónaðar 90 umf - setjið 1 prjónamerki. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: UMFERÐ 91 (= frá réttu): Prjónið yfir fyrstu 8 l. UMFERÐ 92 (= frá röngu): Snúið við og prjónið til baka. UMFERÐ 93 (= frá réttu): Prjónið yfir allar l. UMFERÐ 94 (= frá röngu): Prjónið upp síðasta lykkjubogann frá 1. umf, prjónið fyrstu l af vinstra prjóni, steypið nýju l yfir, prjónið út umf. UMFERÐ 95 (= frá réttu): Prjóni yfir fyrstu 8 l. UMFERÐ 96 (= frá röngu): Snúið við og prjónið til baka. UMFERÐ 97 (= frá réttu): Prjónið yfir allar l. UMFERÐ 98 (= frá röngu): Takið upp síðustu lykkjubogana frá 3. umf, prjónið fyrstu l af vinstra prjóni, steypið nýju l yfir, prjónið út umf. Endurtakið síðustu umf, prjónið 4 umf í hverja rönd með garðaprjóni frá hring/fyrri umf. Haldið áfram með spíral þar til prjónað hefur verið að prjónamerki í umf 90. Fækkið nú lykkjum smá saman svo að lokum er 1 l eftir á prjóni þannig: Haldið áfram eins (endurtakið umf 95-98) JAFNFRAMT eru 2 fyrstu l í byrjun á 12. hverri umf prjónaðar slétt saman þar til einungis er 1 l eftir á prjóni. Prjónið nú lykkju þannig: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, steypið l á hægri prjón yfir uppsláttinn *, endurtakið frá *-* þar til lykkjan mælist ca 10 cm. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum l og festið lykkju. Pottaleppurinn mælist ca 23 cm að þvermáli. ÞÆFING: Setjið stykkið í þvottavél með þvottaefni án enzyma og bleikiefna saman með litlu frotte handklæði ca 50 x 70 cm. Þvoið við 40 gráður með venjulegri vindingu án forþvottar ATH: Ekki nota stutt þvottakerfi. Eftir þvott er stykkið formað til á meðan það er enn vott. EFTIR ÞÆFINGU: Ef stykkið hefur þæfst of lítið og er of stórt: Þvoðu stykkið einu sinni enn í þvottavél á meðan það er enn vott. Ef stykkið hefur þæfst of mikið og er of lítið: Togið stykkið út í rétta stærð á meðan það er enn vott, ef stykkið er of þurrt, bleytið það fyrst. Munið: Síðar er stykkið þvegið eins og venjuleg ullarflík. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #bettypotholders eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 147-30
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.