Blue dream |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Heklað pils úr DROPS Fabel með ferningum. Stærð S - XXXL.
DROPS 145-22 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 fyrir ferning og A.3 fyrir heklaðan kant neðst á pilsi. BLAÐ: 1 blað = heklið 3 ll, í sömu fl eru heklaðir 2 st – en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin á báðum l, dragið þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni, 3 ll, 1 kl í sömu fl, 1 kl í næstu fl. KÚLA: 1 kúla = heklið 2 st um sama ll-boga – en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin á báðum l, dragið þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni. KÚLA Í BYRJUN UMFERÐAR: Heklið 3 ll, 1 st um 1. ll-boga. UMFERÐ MEÐ ST: 1. st í byrjun hverrar umf með st er skipt út fyrir 3 ll, heklið 1 st í hverja fl. Endið umf á 1 kl í 3. ll í byrjun umf. UMFERÐ MEÐ FL: Allar um með fl byrja á 1 ll (ekki talin sem 1. fl), heklið 1 fl í hvern st. Endið umf á 1 kl í 1. fl í byrjun umf. MYNSTUR A.2 OG RENDUR: 1 mynstureining A.2 = 2 umf. Heklið til skiptis 1 umf með st og 1 umf með fl. Heklið samtímis rendur í A.2 þannig: * Heklið 1 mynstureiningu A.2 (= 2 umf) með Fabel með litnum yfir hafið, 1 mynstureiningu (= 2 umf) með Fabel með litnum þokumistur *, endurtakið frá *-*. ÚRTAKA: Fækkað er um 1 st með því að hekla 2 st saman þannig: Heklið 1 st í næstu fl, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 st í næstu fl alveg eins, sláið uppá og dragið þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni. ATH! Ekki fækka lykkjum í byrjun eða í lok umf þegar stykkið er heklað fram og til baka. Fækkið um 1 fl með því að hoppa yfir 1 fl. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PILS - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring. FERNINGUR: Sjá mynsturteikningu A.1 – Heklið 4 ll með litnum þokumistur Fabel með heklunál nr 3,5 og tengið í hring með 1 kl í 1. ll. UMFERÐ 1: Heklið 1 ll, 8 fl um hringinn, endið á 1 kl í 1. fl í byrjun umf – LESIÐ UMFERÐ MEÐ FL. UMFERÐ 2. Í hverja fl er heklað 1 BLAÐ – sjá útskýringu að ofan – en í síðustu fl er heklað þannig: Heklið 3 ll, í sömu fl eru heklaðir 3 st – en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin í hverri l, dragið þráðinn í gegnum allar 4 l á heklunálinni = 8 blöð. UMFERÐ 3: Heklið 5 ll, 1 st í sama blað (= horn), * 3 ll, 1 fl í næsta blað, 3 ll, í næsta blað er heklaður 1 st, 2 ll og 1 st (= horn) *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, 3 ll, 1 fl í síðasta blað, 3 ll, endið á 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 12 ll-bogar. UMFERÐ 4: Heklið 3 ll, 1 st um sama loftlykkjuboga, 3 ll, heklið 1 KÚLA – sjá útskýringu að ofan – um sama loftlykkjuboga, * um hvorna af næstu 2 ll-bogum eru heklaðar 2 kúlur með 2 ll millibili, um næsta ll-boga eru heklaðar 2 kúlur með 3 ll millibili (= horn) *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, í hvorn af síðustu 2 ll-bogum eru heklaðar 2 kúlur með 2 ll millibili, endið á 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 12 ll-bogar. UMFERÐ 5: Heklið 1 ll, um 1. ll-boga er hekluð 1 fl, 3 ll og 1 fl (= horn), *** 3 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, 3 ll, um næsta ll-boga er hekluð 1 fl, 3 ll, 1 fl (= horn) ** , endurtakið frá **-** 2 sinnum til viðbótar, endurtakið síðan frá *-* 2 sinnum til viðbótar, endið á 3 ll og 1 kl í 1. fl í byrjun umf. UMFERÐ 6: Hekli 1 ll, um 1. ll-boga eru heklaðar 2 fl, 3 ll og 2 fl (= horn), * heklið 3 fl um hvern af næstu 3 ll-bogum, um næsta ll-boga eru heklaðar 2 fl, 3 ll og 2 fl (= horn) *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, heklið 3 fl um hvern af síðustu 3 ll-bogum, endið á 1 kl í 1. fl í byrjun umf. Klippið frá og festið enda. Heklið alls 12-13-14-15-16-18 stk ferninga með litnum þokumistur. FRÁGANGUR: Heklið saman ferninga meðfram hlið þannig: Heklið með litnum þokumistur Fabel og heklunál nr 3,5, leggið ferninganna 2 og 2 ofan á hvorn annan með röngu á móti röngu, heklið 1 fl um ll-boga í horninu á báðum ferningunum, * 2 ll, hoppið yfir 2 fl, 1 fl í næstu fl á báðum ferningunum *, endurtakið frá *-*, endið á 2 ll, 1 fl í ll-boga í horninu á báðum ferningunum, klippið frá og festið enda. Heklið saman alla ferninganna alveg eins í einn hring. PILS: Stykkið er heklað fyrst í hring og síðan fram og til baka eftir klauf. Heklið með litnum yfir hafið Fabel og heklunál nr 3,5, heklið 1 umf fl meðfram annarri hliðinni á hringnum þannig: ** Heklið 2 fl um 1. ll-boga í horninu á 1 ferningi, * 1 fl í hverja og eina af næstu 2 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar (alls 3 sinnum), 2 fl um síðasta ll-boga í horni (= 16 fl hver ferningur) **, endurtakið frá **-** á hverjum ferningi = 192-208-224-240-256-288 fl í umf, endið á 1 kl í 1. fl. Heklið nú MYNSTUR A.2 OG RENDUR – sjá útskýringu að ofan – 6-6-6-6-8-6 sinnum á hæðina. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN HEKLAÐ ER ÁFRAM. Í næstu umf (með st) er fækkað um 8 l – LESIÐ ÚRTAKA – jafnt yfir í umf. Endurtakið úrtöku í 4. hverri mynstureiningu A.2 á hæðina – þ.e.a.s. alltaf í umf með st – 2-3-4-4-4-4 sinnum til viðbótar, síðan í annarri hverri mynstureiningu á hæðina alls 3-2-1-1-1-3 sinnum – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 21-24-25-26-27-29 cm (síðasta umf = umf með fl) heklið stykkið fram og til baka. ATH: Setjið 1 prjónamerki í byrjun á 1. umf með st. Heklið nú hverja umf með st frá réttu og hverja umf með fl frá röngu. Þegar úrtöku er lokið eru 144-160-176-192-208-224 l eftir. Haldið áfram með A.2 og rendur fram og til baka þar til stykkið mælist ca 39-42-43-45-47-49 cm, klippið frá og festið enda. OP/KLAUF: Með Fabel og litnum yfir hafið, heklið meðfram opi/klauf við miðju að aftan þannig: Byrjið við prjónamerki, heklið frá réttu 36-36-38-38-40-40 fl meðfram vinstra kanti á opi/klauf. Heklið umf með fl fram og til baka þar til kanturinn mælist ca 4 cm, klippið frá og festið enda. HEKLAÐUR KANTUR (efst á pilsi): Með Fabel og litnum yfir hafið, heklið frá réttu kant/lista í mitti þannig: Heklið 8 fl yfir efsta kantinn yfir op/klauf, síðan 1 fl í hverja fl efst á pilsi. Í næstu umf er hekluð fl í hverja fl – JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út - LESIÐ ÚRTAKA – að 151-169-181-199-217-229 fl (lykkjufjöldinn er deilanlegur með 6 + 1). Í næstu umf er heklað þannig: Heklið 1 ll, * 1 fl í næstu fl, hoppið yfir 2 fl, 5 st í næstu fl, hoppið yfir 2 fl *, endurtakið frá *-* út umf, endið á 1 fl í síðustu fl, klippið frá og festið enda. Kanturinn / listinn mælist ca 1 cm á hæð. HEKLAÐUR KANTUR (neðan á pilsi): Heklið með Fabel og litnum yfir hafið meðfram annarri hliðinni á hring með ferningum þannig: ** Heklið 3 fl um 1. ll-boga í horninu á 1 ferningi, * 1 fl í hvora af næstu 2 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar (alls 3 sinnum), 3 fl um síðasta ll-boga í horni (= 18 fl hver ferningur) **, endurtakið frá **-** á hverjum ferningi = 216-234-252-270-288-324 fl alls, endið á 1 kl í 1. fl. Heklið nú mynstur A.3 þannig: UMFERÐ 1: Heklið 4 ll (þær koma í stað 1. st og 1. ll), * hoppið yfir 1 fl, 1 st í næstu fl, 1 ll *, endurtakið frá *-* - sjá mynstur A.3 -, endið á 1 kl í 3. ll í byrjun umf. UMFERÐ 2: Heklið 1 ll, 1 fl um 1. ll-boga, * 1 fl í næsta st, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar (= 5 fl), ** 9 ll, hoppið yfir næstu 5 st, 1 fl um næsta ll-boga, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar (= fl-hópur með 9 fl) **, endurtakið frá **-** umf hringinn – en þegar endurtekið er í síðasta sinn eru heklaðar 4 fl í stað 9 fl, endið á 1 kl í 1. fl í byrjun umf. UMFERÐ 3: Heklið 1 ll, 1 fl í hverja af fyrstu 3 fl, * 3 ll, 9 st um næsta ll-boga, 3 ll, 1 fl í hverja af miðju 5 fl í næsta fl-hóp *, endurtakið frá *-* umf hringinn – en þegar endurtekið er í síðasta sinn er hekluð 1 fl í hvora af síðustu 2 fl í umf, endið á 1 kl í 1. fl í byrjun umf. UMFERÐ 4: Heklið 1 ll, 1 fl í hverja og eina af fyrstu 2 fl, * 3 ll, 1 st í hvern og einn af næstu 9 st, 3 ll, 1 fl í hverja af miðju 3 fl í næsta fl-hóp *, endurtakið frá *-* umf hringinn – en þegar endurtekið er í síðasta sinn er hekluð 1 fl í síðustu fl í umf, endið á 1 kl í 1. fl í byrjun umf. UMFERÐ 5: Heklið 1 ll, 1 fl í 1. fl, * 3 ll, heklið 1 st í hvern af næstu 9 st með 1 ll á milli hverra l (= 9 st og 8 ll-bogar), 3 ll, 1 fl í miðju fl í næsta fl-hóp *, endurtakið frá *-* umf hringinn – en þegar endurtekið er í síðasta sinn eru heklaðar 3 ll eftir síðasta st, endið á 1 kl í 1. fl í byrjun umf. UMFERÐ 6: Heklið 5 ll, hoppið yfir 1. ll-boga, * heklið 1 fl um hvern af næstu 8 ll-bogum með 3 ll á milli hverra fl (= 8 fl og 7 ll-bogar), 5 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn – en þegar endurtekið er í síðasta sinn eru heklaðar 2 ll eftir síðustu fl, endið á 1 kl um 1. ll-boga í byrjun umf. UMFERÐ 7: Heklið 1 ll, 1 fl um 1. ll-boga, * 2 ll, heklið 1 fl um hvern af næstu 7 ll-bogum með 5 ll á milli hverra fl (= 7 fl og 6 ll-bogar), 2 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn – en þegar endurtekið er í síðasta sinn eru heklaðar 2 ll eftir síðustu fl, endið á 1 kl í 1. fl í byrjun umf. UMFERÐ 8: Heklið 3 ll, um hvern ll-boga er heklaður 1 st, 1 ll og 1 st, endið á 1 kl um 1. ll-boga í byrjun umf. UMFERÐ 9: Heklið 3 ll, 4 st um sama ll-boga, * 1 fl um næsta ll-boga, 5 st um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf, endið á 1 fl um síðasta ll-bogann og 1 kl í 3. ll í byrjun umf. Klippið frá og festið enda. SNÚRA: Með 1 þræði af hvorum lit og heklunál nr 4,5, heklið ll í ca 130-135-140-145-150-155 cm, snúið við og heklið 1 kl í hverja ll, klippið frá og festið enda. FRÁGANGUR: Saumið 4 tölur jafnt yfir í kantinn við op/klauf, notið bilið á milli st í hægri kanti fyrir hnappagöt. Þræðið snúruna í gegnum st í næst síðustu umf með st efst á pilsi. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (57)
Tiina wrote:
Ihana. Haluan tehdä tällaisen.
02.01.2013 - 17:14Marengo wrote:
Plus de modèles de jupes et ensembles, ce serait bien.
02.01.2013 - 15:33Rowena wrote:
Leuk rokje en de kleurencombinatie is ook super!!
02.01.2013 - 10:12Virpi wrote:
Nimiehdotus: Krista
01.01.2013 - 19:06Martien Van Der Sype wrote:
Mooi
01.01.2013 - 10:03Lilian Roskvist wrote:
Fantastisk. Glæder mig til at strikke den, og se den forfra.
29.12.2012 - 23:41SABRINA wrote:
Très beau modèle
27.12.2012 - 15:08Evita Haupt wrote:
Super
27.12.2012 - 12:05Mona wrote:
Pikant
22.12.2012 - 19:43Annukka wrote:
Hauska idea!
22.12.2012 - 12:17