Summer Princess#summerprincessshawl |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Heklað sjal úr DROPS Safran með gatamynstri
DROPS 148-6 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 - A.3. Mynsturteikning A.1 sýnir byrjun á sjali, mynsturteikning A.2 sýnir byrjun af umf í A.2, mynsturteikning A.2B sýnir A.2 miðju á sjali, mynsturteikning A.2C sýnir lok umf í A.2, mynsturteikning A.3 sýnir affellingarkant. MYNSTUR A.2: UMFERÐ 1: Sjá mynsturteikningu A.2. Heklið 5 ll, 1 ST-HÓPUR sjá útskýringu að neðan – um 1. ll-boga, * 2 ll, 1 st um næsta ll-boga, 2 ll, 1 st-hópur um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf – en um ll-boga í miðju (= þríhyrningur í mynstri) er heklaður ST-HÓPUR Í MIÐJU – sjá útskýringu að neðan, endið með 2 ll og 1 st um síðasta ll-boga, snúið við. UMFERÐ 2: Heklið 5 ll, 1 st-hópur um 1. ll-boga, * 2 ll, 1 st um ll-boga í næsta st-hóp, 2 ll, 1 st-hópur í næsta st *, endurtakið frá *-* fram að st-hóp í miðju, heklið 2 ll, 1 st um næsta ll-boga, 2 ll, um næsta ll-boga (= 1. ll-bogi í st-hóp í miðju) heklið 1 st-hóp, 2 ll, 1 st-hóp um næsta ll-boga (= 2. ll-bogi í st-hóp fyrir miðju), heklið nú 2 ll, 1 st um næsta ll-boga, 2 ll, 1 st-hóp í næsta st, endurtakið frá *-* út umf, endið með 2 ll og 1 st um síðasta ll-boga, snúið við. UMFERÐ 3: Heklið 5 ll, 1 st-hópur um 1. ll-boga, * 2 ll, 1 st um ll-boga í næsta st-hóp, 2 ll, 1 st-hópur í næsta st *, endurtakið frá *-* út umf, endið með 2 ll og 1 st um síðasta ll-boga, snúið við. UMFERÐ 4: Heklið eins og umf 3 – en um ll-boga í miðju st-hóp er heklaður 1 st-hópur í stað 1 st. UMFERÐ 5: Heklið 5 ll, 1 st-hópur um 1. ll-boga, * 2 ll, 1 st um ll-boga í næsta st-hóp, 2 ll, 1 st-hópur í næsta st *, endurtakið frá *-* út umf – en um ll-boga á fyrir miðju er heklaður st-hópur í miðju, endið með 2 ll og 1 st um síðasta ll-boga, snúið við. Endurtakið umf 2-5. ST-HÓPUR: 1 st-hópur = Um sama ll-boga/í sama st eru heklaðir 2 st, 2 ll og 2 st. ST-HÓPUR FYRIR MIÐJU: 1 st-hópur í miðju á sjalinu = Um sama ll-boga eru heklaðir 2 st, 2 ll, 2 st, 2 ll og 2 st. MYNSTUR A.3: UMFERÐ 1: Heklið 1 ll, 1 fl um 1. ll-boga, 3 ll, 1 fl um sama ll-boga (= 2 fl um 1. ll-boga), * 3 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf – sjá mynsturteikningu A.3. Endið með 3 ll og 1 fl um síðasta ll-boga (= 2 fl um síðasta ll-boga), snúið við. UMFERÐ 2: Heklið 1 ll, 1 fl um 1. ll-boga, 4 ll, 1 fl um sama ll-boga (= 2 fl um 1. ll-boga), * 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf, endið á 4 ll og 1 fl um síðasta ll-boga (= 2 fl um síðasta ll-boga), snúið við. UMFERÐ 3: Heklið 1 ll, 1 fl um 1. ll-boga, 5 ll, 1 fl um sama ll-boga (= 2 fl um 1. ll-boga), * 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf, endið á 5 ll og 1 fl um síðasta ll-boga (= 2 fl um síðasta ll-boga), snúið við. UMFERÐ 4: Heklið 1 ll, um hvern ll-boga er heklað þannig: Heklið 2 fl um ll-bogann, 1 PICOT – sjá útskýringu að neðan, 2 fl um sama ll-boga. PICOT: 1 picot = 3 ll, 1 fl í 3. ll frá heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka frá miðju aftan við hnakka. SJAL: Heklið 5 ll með Safran með heklunál nr 3,5 og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll. UMFERÐ 1: Sjá mynsturteikningu A.1 – Heklið 6 ll, 1 fl um hringinn, 4 ll, 1 fl um hringinn, endið með 3 ll og 1 st um hringinn = 3 ll-bogar, snúið við. UMFERÐ 2: Heklið 6 ll, 1 fl um 1. ll-boga, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, 1 fl um sama ll-boga (= miðja), 4 ll, 1 fl um síðasta ll-boga, endið með 3 ll og 1 st um sama ll-boga = 2 ll-bogar hvoru megin við miðju ll-boga (5 ll-bogar alls), snúið við. UMFERÐ 3: Heklið 6 ll, 1 fl um 1. ll-boga, * 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, 4 ll, 1 fl um sama ll-boga (= miðja), endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, endið með 3 ll og 1 st um síðasta ll-boga = 3 ll-bogar hvoru megin við miðju ll-boga (7 ll-bogar alls), snúið við. UMFERÐ 4: Heklið eins og umf 3, en endurtakið frá *-* 1 auka skipti á hvorri hlið = 4 ll-bogar hvoru megin við miðju ll-boga (= þríhyrningur í mynstri, það verða 9 ll-bogar alls), snúið við. Heklið nú hverja umf eins og umf 3, en endurtakið frá *-* 1 auka skipti í hvorri hlið = 2 auka ll-bogar í hverri umf. Þegar stykkið mælist ca 32 cm fyrir miðju á hæðina – ATH: Passið uppá að síðasta umf hafi jafn marga ll-boga hvoru megin við miðju ll-boga – heklið áfram A.2 – sjá mynsturteikningu A.2 og lesið útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist ca 62 cm fyrir miðju er A.3 heklað 1 sinni á hæðina – sjá útskýringu að ofan og sjá mynstur A.3. Klippið frá og festið enda, nú mælist stykkið ca 66 cm fyrir miðju á hæðina. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #summerprincessshawl eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 4 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 148-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.