Елена skrifaði:
Супер!
15.12.2012 - 20:42
Mariette Abramsson skrifaði:
Rosenthal
15.12.2012 - 15:44
Elisabeth skrifaði:
Virkelig sød skøn farve
10.12.2012 - 20:38
Randi Jepsen skrifaði:
Den kunne hedde forår
10.12.2012 - 16:17
Claudia W. skrifaði:
Sehr schön, werde die Passe aber unter dem Busen ansetzen. Ich glaube dann wirkt es stimmiger.
10.12.2012 - 16:02
Peach blossom#peachblossomcardigan |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Safran með gatamynstri og smá blúndu að neðan. Stærð S-XXXL
DROPS 147-38 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsta st í hverri umf er skipt út fyrir 3 ll. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ÚRTAKA: Fækkið lykkjum í byrjun umf þannig: Heklið kl yfir þann fjölda st sem fækka á. Fækkið lykkjum í lok umf þannig: Snúið við þegar eftir er sá fjöldi st sem fækka á. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Heklað er neðanfrá og upp, fram og til baka frá miðju að framan. LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! PEYSA: Heklið 246-265-284-313-342-380 ll með Safran með heklunál nr 3. Haldið áfram með 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, síðan 1 fl í hverja af næstu 4-5-6-5-4-6 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 fl í hverja og eina af 5 næstu ll *, endurtakið frá *-* út umf = 205-221-237-261-285-317 fl. Haldið áfram með mynstur A.1 þannig: Heklið 3 ll upp frá fyrstu fl, 1 st í næstu fl, mynstur a yfir fyrstu 9 fl, mynstur b þar til 10 fl eru eftir, mynstur c yfir fyrstu 8, síðan 1 st í hverja og eina af 2 síðustu (= 25-27-29-32-35-39 mynstureiningar í umf. Endurtakið þær 4 umf í A.1 þar til stykkið mælist ca 32-32-32-36-36-36 cm – endið eftir umf 4 í mynstri. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Næsta umf er hekluð í st sem vísað er í umf 5 í mynstri, þ.e.a.s. þannig: Heklið 1 st í hvern og einn af 4 fyrstu st, * 2 st um ll-boga, 2 st um næsta ll-boga, 1 st í hvern af næstu 4 st *, endurtakið frá *-*, endið á 2 st um hvorn af síðustu 2 ll-bogum og 1 st í hvern af síðustu 4 st = 204-220-236-260-284-316 st. Heklið nú fram- og bakstykki til loka hvert fyrir sig. FYRRA FRAMSTYKKI: Heklið st fram og til baka yfir fyrstu 50-53-57-62-68-75 st í umf. Jafnframt er lykkjum fækkað fyrir handveg í hverri umf: 2 st 0-0-1-2-3-5 sinnum og 1 st 1-2-2-3-5-6 sinnum – SJÁ ÚRTAKA = 49-51-53-55-57-59 st eftir. Þegar stykkið mælist 42-43-44-47-48-49 cm, byrjar úrtaka fyrir hálsmáli þannig: Fækkið um 13-13-14-14-15-15 st 1 sinni, 3 st 1 sinni, 2 st 2 sinnum og 1 st 3 sinnum = 26-28-29-31-32-34 st eftir í umf. Klippið frá þegar stykkið mælist ca 52-53-54-59-60-61 cm. SEINNA FRAMSTYKKI: Heklið á sama hátt og fyrra framstykki, nema spegilmynd. BAKSTYKKI: Heklið st fram og til baka yfir miðju 94-100-108-118-130-144 st (ekki er heklað yfir 5-7-7-9-9-11 l í hvorri hlið = handvegur). JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir handveg í hvorri hlið eins og á framstykki = 92-96-100-104-108-112 st. Þegar stykkið mælist 50-51-52-57-58-59 cm, heklið 1 umf einungis yfir síðustu 28-30-31-33-34-36 st í annarri hliðinni fyrir öxl, heklið síðan 1 umf til viðbótar jafnframt sem fækkað um 2 st við hálsmál, heklið út umf = 26-28-29-31-32-34 st á öxl, klippið frá. Stykkið mælist ca 52-53-54-59-60-61 cm. Heklið á sama hátt á öxlinni. BLÚNDA NEÐAN Á FRAM- OG BAKSTYKKI: Heklið 1 fl-umf neðst niðri á fram- og bakstykki með byrjun frá röngu þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 fl í fyrstu fl, * 3 ll, hoppið yfir 1 fl, 1 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* út umf. UMFERÐ 2: Snúið við með 5 ll, 1 fl um fyrsta ll-boga, * 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf. UMFERÐ 3: Snúið við með 6 ll, 1 fl um fyrsta ll-boga, * 6 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf. UMFERÐ 4: Heklið í hvern ll-boga þannig: Heklið 2 fl + 1 picot (= 3 ll, 1 fl í fyrstu ll) + 2 fl. Klippið frá og festið enda. ERMI: Stykkið er heklað fram og til baka og saumað saman í lokin. Heklið 68-68-78-78-78-87 ll með Safran með heklunál nr 3. Snúið við og heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, síðan er hekluð 1 fl í hverja af næstu 6-6-4-4-4-7 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 fl í hverja og eina af 5 næstu ll *, endurtakið frá *-* út umf = 57-57-65-65-65-73 fl. Heklið nú mynstur A.1 þannig: Mynstur a yfir fyrstu 9 fl, mynstur b þar til 8 fl eru eftir, síðan mynstur c (= 7-7-8-8-8-9 mynstureiningar í umf). Haldið svona áfram þar til 4 umf í mynstri A.1 hafa verið heklaðar alls 3 sinnum á hæðina. Stykkið mælist ca 12 cm. Næsta umf er hekluð í st eins og útskýrt er í umf 5 í mynstri, þ.e.a.s. þannig: Heklið 1 st í hvorn af fyrstu 2 st, * 2 st um ll-boga, 2 st um næsta ll-boga, 1 st í hvern af næstu 4 st *, endurtakið frá *-* , endið á 2 st um hvorn af síðustu 2 ll-bogum og 1 st í hvorn af síðustu 2 st = 56-56-64-64-64-72 st. Haldið áfram með 1 st í hvern st – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 16 cm, aukið út um 1 st í hvorri hlið með því að hekla 2 st í næst síðasta st í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu 9-12-11-13-16-15 sinnum til viðbótar í STÆRÐ S: Í 4. hverri umf, STÆRÐ M + L: Í 3. hverri umf, STÆRÐ XL: Til skiptis í annarri og 3. hverri umf, STÆRÐ XXL + XXXL: Í annarri hverri umf = 76-82-88-92-98-104 st. Þegar stykkið mælist 49-48-47-46-45-44 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna víðari handvegs og breiðari axla), fækkið lykkjum fyrir ermakúpu í hverri umf í hvorri hlið þannig: Fækkið um 3 st 1 sinni, 2 st 5-6-8-9-10-11 sinnum og 3 st 1 sinni. Stykkið mælist nú ca 55 cm í öllum stærðum, klippið frá. BLÚNDA NEÐAN Á ERMI: Heklið 1 fl-umf neðst niðri á ermi með byrjun frá röngu þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 fl í fyrstu fl, * 5 ll, hoppið yfir 2 fl, 1 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* út umf – ATH: Til þess að lykkjufjöldinn gangi upp, verður í stærð S og M að hoppa aðeins yfir 1 fl í síðasta skipti. Í stærð L og XL verður að hoppa yfir 3 fl í síðasta skipti. Snúið við. UMFERÐ 2: Heklið um hvern ll-boga þannig: Heklið 2 fl + 1 picot (= 3 ll, 1 fl í fyrstu ll) + 2 fl. Klippið frá og festið enda. FRÁGANGUR: Saumið axlarsauma og ermasauma kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur og saumið ermar í fram- og bakstykki. Heklið upp meðfram kanti að framan, í kringum hálsmál og niður meðfram vinstri kanti að framan þannig: Heklið 1 fl í fyrstu l, * 3 ll, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-*. Saumið tölur í vinstri kant að framan – efsta talan ca 1 cm frá toppi, skiptið hinum jafnt yfir niður á vinstri kant. Hneppið í ll-boga í hægri kant að framan. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #peachblossomcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 6 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 147-38
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.