DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2200.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 148-6
DROPS Design: Mynstur nr e-209
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: ca 66 cm miðja á hæðina

Efni:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio
250 gr litur nr 17, hvítur

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til þess að umf 1-7 í A.1 mælist ca 7 cm á hæðina.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2200.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 - A.3.
Mynsturteikning A.1 sýnir byrjun á sjali,
mynsturteikning A.2 sýnir byrjun af umf í A.2,
mynsturteikning A.2B sýnir A.2 miðju á sjali,
mynsturteikning A.2C sýnir lok umf í A.2,
mynsturteikning A.3 sýnir affellingarkant.

MYNSTUR A.2:
UMFERÐ 1: Sjá mynsturteikningu A.2. Heklið 5 ll, 1 ST-HÓPUR sjá útskýringu að neðan – um 1. ll-boga, * 2 ll, 1 st um næsta ll-boga, 2 ll, 1 st-hópur um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf – en um ll-boga í miðju (= þríhyrningur í mynstri) er heklaður ST-HÓPUR Í MIÐJU – sjá útskýringu að neðan, endið með 2 ll og 1 st um síðasta ll-boga, snúið við.
UMFERÐ 2: Heklið 5 ll, 1 st-hópur um 1. ll-boga, * 2 ll, 1 st um ll-boga í næsta st-hóp, 2 ll, 1 st-hópur í næsta st *, endurtakið frá *-* fram að st-hóp í miðju, heklið 2 ll, 1 st um næsta ll-boga, 2 ll, um næsta ll-boga (= 1. ll-bogi í st-hóp í miðju) heklið 1 st-hóp, 2 ll, 1 st-hóp um næsta ll-boga (= 2. ll-bogi í st-hóp fyrir miðju), heklið nú 2 ll, 1 st um næsta ll-boga, 2 ll, 1 st-hóp í næsta st, endurtakið frá *-* út umf, endið með 2 ll og 1 st um síðasta ll-boga, snúið við.
UMFERÐ 3: Heklið 5 ll, 1 st-hópur um 1. ll-boga, * 2 ll, 1 st um ll-boga í næsta st-hóp, 2 ll, 1 st-hópur í næsta st *, endurtakið frá *-* út umf, endið með 2 ll og 1 st um síðasta ll-boga, snúið við.
UMFERÐ 4: Heklið eins og umf 3 – en um ll-boga í miðju st-hóp er heklaður 1 st-hópur í stað 1 st.
UMFERÐ 5: Heklið 5 ll, 1 st-hópur um 1. ll-boga, * 2 ll, 1 st um ll-boga í næsta st-hóp, 2 ll, 1 st-hópur í næsta st *, endurtakið frá *-* út umf – en um ll-boga á fyrir miðju er heklaður st-hópur í miðju, endið með 2 ll og 1 st um síðasta ll-boga, snúið við.
Endurtakið umf 2-5.

ST-HÓPUR:
1 st-hópur = Um sama ll-boga/í sama st eru heklaðir 2 st, 2 ll og 2 st.

ST-HÓPUR FYRIR MIÐJU:
1 st-hópur í miðju á sjalinu = Um sama ll-boga eru heklaðir 2 st, 2 ll, 2 st, 2 ll og 2 st.

MYNSTUR A.3:
UMFERÐ 1: Heklið 1 ll, 1 fl um 1. ll-boga, 3 ll, 1 fl um sama ll-boga (= 2 fl um 1. ll-boga), * 3 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf – sjá mynsturteikningu A.3. Endið með 3 ll og 1 fl um síðasta ll-boga (= 2 fl um síðasta ll-boga), snúið við.
UMFERÐ 2: Heklið 1 ll, 1 fl um 1. ll-boga, 4 ll, 1 fl um sama ll-boga (= 2 fl um 1. ll-boga), * 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf, endið á 4 ll og 1 fl um síðasta ll-boga (= 2 fl um síðasta ll-boga), snúið við.
UMFERÐ 3: Heklið 1 ll, 1 fl um 1. ll-boga, 5 ll, 1 fl um sama ll-boga (= 2 fl um 1. ll-boga), * 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf, endið á 5 ll og 1 fl um síðasta ll-boga (= 2 fl um síðasta ll-boga), snúið við.
UMFERÐ 4: Heklið 1 ll, um hvern ll-boga er heklað þannig: Heklið 2 fl um ll-bogann, 1 PICOT – sjá útskýringu að neðan, 2 fl um sama ll-boga.

PICOT:
1 picot = 3 ll, 1 fl í 3. ll frá heklunálinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka frá miðju aftan við hnakka.

SJAL:
Heklið 5 ll með Safran með heklunál nr 3,5 og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll.
UMFERÐ 1: Sjá mynsturteikningu A.1 – Heklið 6 ll, 1 fl um hringinn, 4 ll, 1 fl um hringinn, endið með 3 ll og 1 st um hringinn = 3 ll-bogar, snúið við.
UMFERÐ 2: Heklið 6 ll, 1 fl um 1. ll-boga, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, 1 fl um sama ll-boga (= miðja), 4 ll, 1 fl um síðasta ll-boga, endið með 3 ll og 1 st um sama ll-boga = 2 ll-bogar hvoru megin við miðju ll-boga (5 ll-bogar alls), snúið við.
UMFERÐ 3: Heklið 6 ll, 1 fl um 1. ll-boga, * 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, 4 ll, 1 fl um sama ll-boga (= miðja), endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, endið með 3 ll og 1 st um síðasta ll-boga = 3 ll-bogar hvoru megin við miðju ll-boga (7 ll-bogar alls), snúið við.
UMFERÐ 4: Heklið eins og umf 3, en endurtakið frá *-* 1 auka skipti á hvorri hlið = 4 ll-bogar hvoru megin við miðju ll-boga (= þríhyrningur í mynstri, það verða 9 ll-bogar alls), snúið við.
Heklið nú hverja umf eins og umf 3, en endurtakið frá *-* 1 auka skipti í hvorri hlið = 2 auka ll-bogar í hverri umf. Þegar stykkið mælist ca 32 cm fyrir miðju á hæðina – ATH: Passið uppá að síðasta umf hafi jafn marga ll-boga hvoru megin við miðju ll-boga – heklið áfram A.2 – sjá mynsturteikningu A.2 og lesið útskýringu að ofan.
Þegar stykkið mælist ca 62 cm fyrir miðju er A.3 heklað 1 sinni á hæðina – sjá útskýringu að ofan og sjá mynstur A.3. Klippið frá og festið enda, nú mælist stykkið ca 66 cm fyrir miðju á hæðina.

Mynstur

symbols = ll
symbols = fl
symbols = st
symbols = st-hópur: Í sama ll-boga er heklað þannig: Heklið 2 st, 2 ll og 2 st
symbols = st-hópur fyrir miðju: Í sama ll-boga er heklað þannig: Heklið 2 st, 2 ll, 2 st, 2 ll og 2 st
symbols = miðja á sjali
symbols = 1 picot: Heklið 3 ll, 1 fl í 3. ll frá heklunálinni
symbols = byrjun á 1. umf
symbols = 1. umf
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 148-6

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (32)

country flag Gloria wrote:

Cosa intendete per: lavorare il diagramma A3 in verticale? Come devo essere lavorata la punta con il diagramma A3? Grazie

03.04.2023 - 11:40

DROPS Design answered:

Buonasera Gloria, deve lavorare il diagramma A.3. Buon lavoro!

03.04.2023 - 22:31

country flag Olga Soročaková wrote:

Dobrý den, možná bych našla odpověď v komentářích, ale bohužel nevládnu angličtinou. Zkouším uháčkovat tento šátek, který se mi velmi líbí a v okamžiku, kdy se dostanu do fáze A.2, celý okraj, se mi počtem uháčkovaných ok dle návodu, začíná kroutit dokola. Je to tím zvětšováním počtu na krajích, ale je to dle návodu a já nevím, jak to upravit. Můžete mi prosím poradit, co s tím? Moc děkuji Olga Soročaková

01.02.2018 - 00:53

DROPS Design answered:

Milá Olgo, příčina může být v utahování ok: zkuste háčkovat první 3 řetízková oka volněji. Pokud by to nepomohlo, můžete na začátku každé řady hářkovat místo 5 řetízkových ok 6 řetízkových ok a na konci 2x nahozený dlouhý sloupek (místo dlouhého sloupku). Hodně zdaru! Hana

01.02.2018 - 06:22

country flag Jill wrote:

May be a daft question.... But how much wool should I order?

25.07.2017 - 10:19

DROPS Design answered:

Dear Jill, you will need 250 g of DROPS Safran yarn (= 5 skeins). Happy crocheting!

25.07.2017 - 10:48

country flag Mrs. Cheryl Key wrote:

What do you mean repeat row 2-5 upwards?

20.04.2017 - 03:39

DROPS Design answered:

Dear Mrs Key, just repeat from row 2 to row 5 when working pattern 2. Happy crocheting!

20.04.2017 - 10:26

country flag Elena wrote:

Hola buenos días, según el patrón al hacer los aumentos en las esquinas se me va cerrando, como una herradura, eso es normal?

06.04.2016 - 10:06

DROPS Design answered:

Hola Elena. Sin ver la labor es difícil saber exactamente donde está el error pero creo que el problema es la tensión del tejido (en las labores de ganchillo es más difícil controlar la tensión). Prueba a trabajar más floja la parte de las esquinas. Si sigues con el problema acude con tu labor a tu tienda Drops para consultarlo.

11.04.2016 - 09:05

Fanney Erla wrote:

Sorry ending with 3 ch and tr is in the other pattern A-1 not A-2 read wrong line. But the other is wrongly translated though I think.

08.10.2015 - 01:44

Fanney Erla wrote:

Princess shawl trouble the translation in Icelandic is wrong, they say to do 1 tr in to next loop and then tr-group to the next but in English (UK) it makes more sense if I understand I have to make tr-group in to the ch not the ch loop like translate it in Icelandic, in beginning of a row I ch 5 and that makes it look wrong (not 5 & tr) so I'm wondering if the translation is right? I make my own like I thought it looks like on the pattern pic.

08.10.2015 - 01:37

DROPS Design answered:

Takk fyrir athugasemdina, mynstrið hefur verið lesið yfir og leiðrétt.

08.10.2015 - 11:29

country flag Sonali wrote:

Having finished the shawl, I found that 6 ch at the beginning and a double treble (British definition) at the end of each row gives a much better finish than 5 ch and treble as per the pattern. The ends are still slightly curved but not in a tight way. This suited my style much better than crocheting loosely at the start and end of each row.

11.07.2015 - 10:18

country flag Sonali wrote:

Meant to say, thanks for the patterns though

25.06.2015 - 16:41

country flag Sonali wrote:

Like others, A2 curves round and is not a straight line. If crocheting the first 5 and last 3 chains is the answer, this should really be incorporated into the pattern but my feeling is that this is a design fault. Having crocheted 9 rows of A2, I am reluctant to undo and rework these but suspect I may have to. I am not sure blocking will be the answer and don't want to get to the end of the shawl to find out.

25.06.2015 - 14:55