DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Karisma yarn
DROPS Karisma
100% Ull
frá 610.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4270.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425
Velja stærð:
DROPS 141-40

#sarahsdelightvest

DROPS Design: Mynstur nr u-671
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
350-400-450-450-500-550 gr litur nr 64, gráfjólublár

DROPS PRJÓNAR NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS PRJÓNAR NR 3 – fyrir garðaprjón og stroff.
DROPS SILFURTALA, NR 534: 3 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 610.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4270.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum innan við A.4 /A.6. Öll úrtraka er gerð frá réttu þannig:
Fækkið lykkjum á undan A.6: Prjónið 2 l sl saman.
Fækkið lykkjum á eftir A.4: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan.
1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá miðju að framan slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 16, 22 og 28 cm.
STÆRÐ M: 16, 23 og 29 cm.
STÆRÐ L: 17, 23 og 30 cm.
STÆRÐ XL: 18, 24 og 31 cm.
STÆRÐ XXL: 18, 25 og 32 cm.
STÆRÐ XXXL: 19, 26 og 33 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 86-94-102-114-126-138 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 3 með Karisma. Prjónið 10 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Næsta umf er prjónuð (frá réttu) þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 25-29-33-39-45-51 l sl, prjónið 34 l sl, JAFNFRAMT er aukið út um 8 l jafnt yfir þessar l, 25-29-33-39-45-51 l sl og 1 kantlykkju í garðaprjóni = 94-102-110-122-134-146 l. Skiptið yfir í prjóna nr 4, næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 1 kantlykkja í garðaprjóni, 25-29-33-39-45-51 l br, A.1 (= 42 l), 25-29-33-39-45-51 l br og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið áfram með A.1 og sléttprjón yfir 25-29-33-39-45-51 l og 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 5 cm er fækkað um 1 l í hvorri hlið, endurtakið úrtöku með 3 cm millibili 3 sinnum til viðbótar = 86-94-102-114-126-138 l. Þegar A.1 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina er haldið áfram með A.2 yfir l í A.1. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 20 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið, endurtakið útaukningu með 5-5½-5½-6-6½-6½ cm millibili 3 sinnum til viðbótar = 94-102-110-122-134-146 l. Þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43 cm er fellt af fyrir handveg í byrjun hverrar umf í hvorri hlið þannig: 3 l 1-1-1-2-2-2 sinnum, 2 l 2-3-4-5-6-8 sinnum og 1 l 2-3-4-4-7-8 sinnum = 76-78-80-82-84-86 l. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm fækkað um 8 l jafnt yfir miðju 42 l = 68-70-72-74-76-78 l. Í næstu umf frá réttu er prjónað þannig: Prjónið 9-10-11-12-13-14 l sléttprjón, * 2 l br, 2 sl *, endurtakið frá *-* yfir næstu 48 l, 2 l br, 9-10-11-12-13-14 l sléttprjón. Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm fellið af miðju 34 l = 17-18-19-20-21-22 l eftir á hvorri öxl. Hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með 9-10-11-12-13-14 l sléttprjón, 2 l br, 2 l sl, 2 l br, 1 l sl og 1 l með garðaprjóni við hálsmál, fellið af með sl yfir sl og br yfir br þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 49-53-57-63-69-75 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hlið) á prjóna nr 3 með Karisma. Prjónið – frá réttu þannig: Prjónið A.3 (= 14 l), garðaprjón yfir síðustu 35-39-43-49-55-61 l. Haldið áfram með þetta mynstur þar til A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina = 51-55-59-65-71-77 l. Skiptið yfir á prjóna nr 4. Nú er prjónað – frá réttu þannig: Prjónið A.4 (= 16 l), sléttprjón yfir síðustu 34-38-42-48-54-60 l, 1 l garðaprjón. Haldið áfram með þetta mynstur, þegar stykkið mælist 5 cm er fellt af í hliðum á sama hátt og á bakstykki = 47-51-55-61-67-73 l. Þegar stykkið mælist 16-16-17-18-18-19 cm byrjar útraka fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 20 cm er aukið út í hliðum eins og á bakstykki. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm er fækkað um 1 l við hálsmál – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA, endurtakið úrtöku með 1 cm millibili 22 sinnum til viðbótar. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43 cm fellið af fyrir handveg á sama hátt og á bakstykki. Þegar öll úrtaka/fækkun fyrir handveg og hálsmáli er lokið eru 19-20-21-22-23-24 l á prjóni. Þegar stykkið mælist ca 53-55-57-59-61-63 cm er fækkað um 2 l jafnt yfir kaðal í A.4 = 17-18-19-20-21-22 l eftir á prjóni. Í næstu umf er fellt af með sl yfir sl og br yfir br.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd. Í stað fyrir A.3 og A.4 er prjónað A.5 og A.6. Fellið ekki af fyrir hnappagati.

FRÁGANGUR: Saumið axlarsauma.

KANTUR Á ERMUM:
Prjónið upp 90-94-98-102-106-110 l á prjóna nr 3 meðfram opi neðan á ermi. Prjónið 1 umf slétt frá röngu, síðan er prjónað stroff 2 l sl, 2 l br með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Prjónið þar til kanturinn mælist 3 cm, fellið af með sl yfir sl og br yfir br.

FRÁGANGUR:
Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í.

VASI:
Fitjið upp 16 l á prjóna nr 4 með Karisma. Prjónið eftir A.6, fellið af þegar stykkið mælist 11 cm. Prjónið upp 23 l innan við síðustu br l frá A.6. Prjónið sléttprjón með 1 l í garðaprjóni í hvorri hlið. Fellið af þegar stykkið mælist alls 12 cm.
Prjónið annan vasa til viðbótar á sama hátt. Saumið vasana við miðju á framstykki, beint fyrir ofan garðaprjón.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 21.08.2012
Ný skýring í mynsturtexta 4 & 5: 4)= setjið 3 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 1 l br, 3 l sl af hjálparprjóni. 5)= setjið 1 l á hjálpaprjón fyrir aftan stykkið, 3 l sl, 1 l br af hjálparprjóni.

Mynstur

slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
setjið 3 lykkjur á hjálparprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af hjálparprjóni = setjið 3 lykkjur á hjálparprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af hjálparprjóni
setjið 3 lykkjur á hjálparprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 3 lykkjur slétt af hjálparprjóni = setjið 3 lykkjur á hjálparprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 3 lykkjur slétt af hjálparprjóni
setjið 1 lykkju á hjálparprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju brugðið af hjálparprjóni = setjið 1 lykkju á hjálparprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju brugðið af hjálparprjóni
sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja
Diagram for DROPS 141-40
Diagram for DROPS 141-40
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sarahsdelightvest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 141-40

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (60)

country flag Barbara skrifaði:

I have completed the back of pattern u-671 up to row 79. My question is do I now complete A3 It is hard to see from the photograph as the model has long hair which obscures the view of the upper back. I am anxious to complete this project so an early replay would be appreciated.

04.07.2022 - 09:04

DROPS Design svaraði:

Dear Barbara, when you have worked the whole diagram A.1, work now A.2 and repeat A.2 over A.1 (as shown in diagram = the 3 cables over 6 sts). Happy knitting!

04.07.2022 - 16:22

country flag Monica Ahlin skrifaði:

När man stickat bakstycket med diagram A1s alla varv, skall man sedan sticka diagram A2 6 varv och sedan upprepa dessa 6 varv hela vägen upp?

30.03.2022 - 21:37

DROPS Design svaraði:

Hej Monica. Ja det stämmer. Mvh DROPS Design

31.03.2022 - 08:09

country flag Brandi skrifaði:

Hello again. Earlier I had asked for help on the back piece for size xl. This was your answer: Dear Brandi, for size XL, you should cast off on BOTH SIDES 3 stitches 2 times = 6, 2 stitches 5 times = 10, and 1 stitch 4 times = 4, 6+10+4 = 10 stitches x 2 = so you cast off 20 stitch all together. 122-20= 82 stitch is the number of stitches you should end up with. Happy Stitching! The problem here is that 122-20 does not equal 82 it equals 102. Still needing help with the numbers. Thanks

04.08.2021 - 07:15

DROPS Design svaraði:

Dear Brandi, it looks like there was a small mistake in the previous answer, you will decrease 20 sts on each side (= 3 sts 2 times, 2 sts 5 times and 1 st 4 times), ie 40 sts in total = 102-40=82 sts remain. Happy knitting!

04.08.2021 - 07:59

country flag Brandi skrifaði:

Currently working the back piece decreases for the armholes. When looking at the stitch counts for size xl it says I will start with 122 sts and end with 82 sts. When I counted the decreases it didn’t add up correctly. I’m sure I’m missing something. Please advise. Thank you

03.08.2021 - 16:57

DROPS Design svaraði:

Dear Brandi, for size XL, you should cast off on BOTH SIDES 3 stitches 2 times = 6, 2 stitches 5 times = 10, and 1 stitch 4 times = 4, 6+10+4 = 10 stitches x 2 = so you cast off 20 stitch all together. 122-20= 82 stitch is the number of stitches you should end up with. Happy Stitching!

04.08.2021 - 04:44

country flag Becky Eisen skrifaði:

I’m am working on the Right Front Piece and question is about the buttonhole. The patter says to k2tog in 3 and 4 stitch, then YO. The 3rd and 4th stitch are purl, so I P2tog. The button that is supposed to fit this tiny little hole is 20 mm. I could only get a 2.5 mm to fit. How to make a bigger hole, or am I missing something?

25.06.2021 - 19:55

DROPS Design svaraði:

Dear Becky, K2Tog and a yarnover should be anough for that size of button (on the next ro, take care that do not twist the stitch you knit into the yarnover. If it is still too small, try to do a double yarnover, and in the next row knit into the first and drop the second. Happy Stitching!

26.06.2021 - 01:10

country flag Keri Clark skrifaði:

I am working on the right front piece and am at the direction in the pattern that says "AT THE SAME TIME when piece measures 12 1/4 (my size), dec 1 st towards mid front." I want to clarify what "towards mid front" means. Would I be decreasing in the stockinette section of the front, and doing so close to the patterned section of the front?

04.06.2021 - 06:43

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Clark, the decreases worked mid front are for the V-Neck, ie decrease as explained under DECRASE TIP = after A.4 on right front piece, ie at the beginning of the stocking section after the cable. Happy knitting!

04.06.2021 - 07:14

country flag Anna Ramadori skrifaði:

Salve! Volevo avvisare che c'è un errore nella spiegazione del diagramma. Nella quinta riga dove dice. Trasferire 1 m sul f. ausiliario sul dietro del lavoro, 3 m dir (voi indicate 2) poi il resto è giusto.

15.05.2021 - 07:44

DROPS Design svaraði:

Buonasera Anna, grazie per la segnalazione, abbiamo corretto la legenda. Buon lavoro!

15.05.2021 - 22:21

country flag Keri Clark skrifaði:

Does the front pieces require the 10 rows of garter stitch ribbing as required for the back before starting with the A.3 pattern?

07.05.2021 - 01:28

DROPS Design svaraði:

Dear Keri, The cable pattern at the back starts after the garter stitch, but on the front edge starts right after the cast on, because this cable is going allon all the front edge. There is a number of stitches on which a garter stitch edge still knitted, next to the cabled stitch at the edge. So no extra garter stitch needed on the front, just follow the pattern. Happy Knitting!

07.05.2021 - 01:37

country flag Melody skrifaði:

I’m currently on the back piece and wondering for the armhole decrease and it’s says “cast off for armholes at the beg of every row in each side as follows”, does that mean cast of (x) number of stitches at the BEG and END of row? Or does it mean ONLY beg of every row, so a 1 RS and 1 WS (or vice versa) = 1 set which = 1 times?

25.03.2021 - 00:17

DROPS Design svaraði:

Dear Melody, it means, the beginning of EVERY row, so there are cast off on both sides. happy Knitting!

25.03.2021 - 01:51

country flag Sylvia skrifaði:

For sides it says when piece measures 20cm inc in the side as on back piece. Does this mean inc 1 stitch OR inc 1 stitch plus repeat inc every (applicable cm) 3 more times. I assume it is once as total number of stitches are not listed for side after increase as it does for back???

30.09.2020 - 18:05

DROPS Design svaraði:

Dear Sylvia, on the side of teh back you increase once and three more times, that is 4 times in total, and so you have to increase 4 times total on the front as well. I hope this helps, Happy Knitting!

01.10.2020 - 00:22