DULHOSTE skrifaði:
Très envie de se glisser dans cette jolie veste le week-end.
10.06.2012 - 20:30
Monniek skrifaði:
Ha, een heerlijk behaaglijk vest voor de winter of voor een late zomeravond bij het kampvuur.
07.06.2012 - 19:31
Corry skrifaði:
Een van mijn favorieten. Ik mis alleen een vorm van sluiting. Je kunt hem moeilijk de hele dag vashouden, zoals op de foto. ;)
06.06.2012 - 05:14
Sand Dance skrifaði:
Can't wait to cast on. LOvely!
04.06.2012 - 23:42
Astrid Hermo skrifaði:
Fine farger, denne blir god i kalde høstkvelder, gleder meg til å strikke
04.06.2012 - 21:22
Claudia skrifaði:
Sehr schönes Modell, hoffe dass die Anleitung bald erscheint!
04.06.2012 - 10:08
Turid skrifaði:
Nydelig jakke både til sommer og vinterbruk. Og for store damer :)
03.06.2012 - 23:17MaFrancoise skrifaði:
Beaucoup de chic
03.06.2012 - 19:03
Walter skrifaði:
Must have! - stricken für lange Winterabende und dann jeden Tag tragen
03.06.2012 - 13:25
Ellen Snippert skrifaði:
Echt zo'n vest om bij kille dagen aan te schieten mooi patroon heb zin om te maken
02.06.2012 - 16:54
Ulrika#ulrikajacket |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Karisma með mynsturbekk og vösum. Stærð S - XXXL.
DROPS 142-9 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. Byrjið á l merktri með ör í mynstri fyrir rétta stærð. ATH: Ekki er byrjað eins á fram- og bakstykki, svo að mynstrið passi í hlið þegar stykkið er saumað saman. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. BAKSTYKKI: Fitjið upp 107-113-125-135-147-159 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 3,5 með litnum ljós brúnn DROPS Karisma. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 3 cm er skipt yfir á prjóna nr 4,5. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4-4-4-5-5-5 cm er fækkað um 1 l í hvorri hlið. Endurtakið úrtöku með 3½-3½-3½-3-3-3 cm millibili, 9-9-9-11-11-11 sinnum til viðbótar = 87-93-105-111-123-135 l. Þegar stykkið mælist 46-47-48-49-50-51 cm er næsta umf prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið MYNSTUR eftir mynsturteikningu A.1 – sjá útskýringu að ofan, þar til 1 l er eftir og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni (mynstrið byrjar og endar eins í hvorri hlið á undan kantlykkju) Þegar stykkið mælist 61-63-65-66-68-70 cm eru felldar af 2-2-4-4-5-5 í byrjun á 2 næstu umf fyrir handveg = 83-89-97-103-113-125 l. Haldið áfram með mynstur (passið uppá að í framhaldinu passi mynstrið yfir hvort annað í mynstureiningunum) með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist ca 73-76-79-82-85-88 cm – stillið af eftir einni heilli einingu í mynstri. Nú endar mynstrið og prjónað er með litnum ljós brúnn að loka máli. JAFNFRAMT í 1. umf frá réttu eftir mynstur eru felldar af miðju 17-17-17-21-21-21 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónið fyrir sig. Fellið nú af 1 l í næstu umf frá hálsmáli = 32-35-39-40-45-51 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 75-78-81-84-87-90 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 44-47-53-56-62-68 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 3,5 með litnum ljós brúnn DROPS Karisma. Prjónið garðaprjón. Þegar stykkið mælist 3 cm er skipt yfir á prjóna nr 4,5. Prjónið nú sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 4-4-4-5-5-5 cm byrjar úrtaka í hliðum. Fellið af á sama hátt og á bakstykki = 34-37-43-44-50-56 l. Þegar stykkið mælist 46-47-48-49-50-51 cm er næsta umf prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið MYNSTUR eftir mynsturteikningu A.1 – sjá útskýringu að ofan, þar til 1 l er eftir og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 61-63-65-66-68-70 cm er fellt af fyrir handvegi í byrjun umf frá hlið eins og á bakstykki = 32-35-39-40-45-51 l. Haldið áfram með mynstur og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist ca 73-76-79-82-85-88 cm – stillið af eins og bakstykki. Prjónið nú með litnum ljós brúnn þar til stykkið mælist 75-78-81-84-87-90 cm, fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd. ERMI: Fitjið upp 44-46-48-50-52-54 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 3,5 með litnum ljós brúnn DROPS Karisma. Prjónið 12 umf garðaprjón, skiptið yfir á prjóna nr 4,5 og haldið áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 6-6-6-7-7-8 cm, aukið út um 1 l í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu með 7-6-5-3½-3-2½ cm millibili, 6-7-8-11-12-13 sinnum til viðbótar = 58-62-66-74-78-82 m. Þegar stykkið mælist 52-52-50-49-46-44 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna víðari handvegs og breiðari axla) setjið 1 prjónamerki í hvora hlið. Fellið af fyrir handveg í byrjun hverrar umf í hvorri hlið þannig: 5 l 1-1-2-2-1-1 sinnum og 4 m 0-0-0-0-2-2 sinnum. Fellið af þær l sem eftir eru, stykkið mælist ca 53-53-52-51-49-47 cm. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju. Saumið ermasauma innan við 1 kantlykkju og saumið ermarnar í – sú eining sem er prjónuð eftir prjónamerkin upp meðfram ermi á að passa í úrtöku fyrir handveg. VASAR: Fitjið upp 39 l á prjóna nr 4,5 með litnum ljós brúnn DROPS Karisma. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 4-4-4-6-6-6 cm er mynstur prjónað eftir mynsturteikningu A.2 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið (mynstrið byrjar og endar eins í hvorri hlið innan við kantlykkju). Eftir A.2 er skipt yfir á prjóna nr 3,5 og ljós brúnn. Prjónið garðaprjón þar til stykkið mælist 18-18-18-20-20-20 cm (ca 2 cm) fellið af. Prjónið annan vasa á sama hátt. Saumið vasann í hvort framstykki með lykkjuspori, ca 3-3-4-4-5-5 cm frá kanti að framan og ca 10-10-12-14-14-16 cm frá neðrikanti (prufið peysuna til þess að ná fram persónulega staðsetningu á vösunum). KANTUR AÐ FRAMAN: Fitjið upp 34-34-34-38-38-38 l á prjóna nr 3,5 með litnum ljós brúnn DROPS Karisma og prjónið garðaprjón fram og til baka þar til kanturinn mælist ca 82-85-88-91-95-98 cm – haldið uppi stykkinu á meðan mælt er, annars verður kanturinn of langur. Fellið af. Prjónið annan kant á sama hátt. Saumið annan kantinn í hægra framstykki frá neðri kanti og aftur að miðju aftan við hálsmál – saumið með 1 spori yst í lykkjubogann við l í garðaprjóni í kanti og 1 spori innan við 1 kantlykkju á framstykki. Saumið hinn kantinn í vinstra framstykki. Saumið svo kantana saman við miðju að aftan yst í lykkjubogann svo að saumurinn sjáist ekki. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #ulrikajacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 6 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 142-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.