Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þetta mynstur hefur verið leiðrétt. Smelltu hér til að sjá leiðréttinguna/arnar.
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Jennifer |
|
|
|
Hekluð peysa úr DROPS Nepal, DROPS Big Fabel og DROPS Alpaca Bouclé. Stærð S - XXXL.
DROPS 143-38 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- RENDUR: Rendur eru heklaðar þannig: * Heklið 1 umf með litnum appelsínugulur Nepal, 1 umf Big Fabel, 1 umf með litnum skærgulur Nepal, 1 umf Alpaca Bouclé, 1 umf Big Fabel, 1 umf með litnum camel Nepal *, endurtakið frá *-* til loka. HEKLLEIÐBEININGAR (á við um ermi): Fyrsti st í hverri umf er skipt út fyrir 3 ll. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið lykkjum í byrjun umf með því að hekla kl yfir þá st sem fækka á. Fækkið lykkjum í lok umf með því að hekla þar til eftir verður sá fjöldi st sem fækka á, snúið við. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring frá miðju að aftan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Heklið 8 ll með litnum appelsínugulur Nepal með heklunál nr 5 og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. UMFERÐ 1: Heklið með litnum appelsínugulur Nepal. Heklið 3 ll (= 1 st), 2 st um hringinn, * 4 ll, 3 st um hringinn *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, endið með 4 ll og 1 kl í 3. ll í byrjun umf. UMFERÐ 2: LESIÐ RENDUR! Heklið 3 ll (= 1 st), 1 st í hvorn af næstu 2 st, * 2 st um næsta ll-boga, 4 ll, 2 st um sama ll-boga, 1 st í hvern af næstu 3 st *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 2 st um næsta ll-boga, 4 ll, 2 st um sama ll-boga, endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf. UMFERÐ 3: Heklið 3 ll (= 1 st), 1 st í hvorn af næstu 2 st, *2 ll, hoppið yfir 2 st, 2 st um næsta ll-boga, 4 ll, 2 st um sama ll-boga, 2 ll, hoppið yfir 2 st, 1 st í hvern af næstu 3 st *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 2 ll, hoppið yfir 2 st, 2 st um næsta ll-boga, 4 ll, 2 st um sama ll-boga, 2 ll, hoppið yfir 2 st, endið með kl í 3. ll í byrjun umf. UMFERÐ 4: Heklið 3 ll (= 1 st), 1 st í hvorn af næstu 2 st, * 2 st um næsta ll-boga, 1 st í hvorn af næstu 2 st, 2 st um næsta ll-boga, 4 ll, 2 ll um sama ll-boga, 1 st í hvorn af næstu 2 st, 2 st um næsta ll-boga, 1 st í hvern af næstu 3 st *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 2 st um næsta ll-boga, 1 st í hvorn af næstu 2 st, 2 st um næsta ll-boga, endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf. UMFERÐ 5: Heklið 3 ll (= 1 st), 1 st í hvorn af næstu 2 st,* 2 ll, hoppið yfir 2 st, 1 st í hvern af næstu 3 st, 2 ll, hoppið yfir 1 st, 2 st um næsta ll-boga, 4 ll, 2 st um sama ll-boga, 2 ll, hoppið yfir 1 st, 1 st í hvern af næstu 3 st, 2 ll, hoppið yfir 2 st, 1 st í hvern af næstu 3 st*, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 2 ll, hoppið yfir 2 st, 1 st í hvern af næstu 3 st, 2 ll, hoppið yfir 1 st, 2 st um næsta ll-boga, 4 ll, 2 st um sama ll-boga, 2 ll, hoppið yfir 1 st, 1 st í hvern af næstu 3 st, 2 ll, hoppið yfir 2 st, endið með einni kl í 3. ll í byrjun umf. UMFERÐ 6: Heklið 3 ll (= 1 st), 1 st í hvorn af næstu 2 st,* 2 st um næsta ll-boga, 1 st í hvern af næstu 3 st, 2 st um næsta ll-boga, 1 st í hvorn af næstu 2 st, 2 st um næsta ll-boga, 4 ll, 2 st um sama ll-boga, 1 st í hvorn af næstu 2 st, 2 st um næsta ll-boga, 1 st í hvern af næstu 3 st, 2 st um næsta ll-boga, 1 st í hvern af næstu 3 st*, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 2 st um næsta ll-boga, 1 st í hvern af næstu 3 st, 2 st um næsta ll-boga, 1 st í hvorn af næstu 2 st, 2 st um næsta ll-boga, 4 ll, 2 st um sama ll-boga, 1 st í hvorn af næstu 2 st, 2 st um næsta ll-boga, 1 st í hvern af næstu 3 st, 2 st um næsta ll-boga, endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf. Endurtakið umf 5 og 6, með útaukningu, það verða 2 st-hópar fleiri á milli horna í annarri hverri umf. HANDVEGUR: Þegar ferningurinn mælist 36-38-40-42-44-46 cm x 36-38-40-42-44-46 cm er heklað þannig – passið uppá að þetta er umf sem er hekluð sem umf 5: Heklið eins og áður fram að fyrsta horni, heklið 2 st, 4 ll, 2 st í hornið. Heklið nú ll að miðjunni í næstu hlið – heklið 1 ll yfir hvern st/ll að st í miðju, heklið 1 st í miðju st og heklið að þriðja horni eins og áður, heklið að miðju í næstu hlið, heklið nú 1 ll yfir hvern st/ll að fjórða horni, heklið 2 st, 4 ll, 2 st í hornið, og heklið að byrjun umf eins og áður. Í næstu umf er heklað eins og áður, um ll-bogann fyrir handveg er heklaður 1 st um hverja ll. Haldið áfram eins og áður þar til ferningurinn mælist 78-80-82-84-86-88 cm x 78-80-82-84-86-88 cm (þ.e.a.s. 21 cm í öllum stærðum fyrir handveg), passið uppá að síðasta umf er hekluð eins og umf 5. Klippið frá, nú er heklað fram og til baka milli fyrsta og annars horns. Heklið frá fyrsta horni þannig: Heklið 2 st um ll-boga í horninu, 1 st í hvern st/ll fram að öðru horninu, 2 st um ll-boga í hornið. Snúið við og heklið til baka, haldið áfram með mynstur eins og í umf 5 og 6. Haldið áfram svona þar til heklað hefur verið fram og til baka (án útaukninga) í 19-20-21-22-23-24 cm, klippið frá. Endurtakið í hinni hliðinni, nú er heklað fram og til baka frá þriðja að fjórða horni. Að lokum er hekluð ein umf með litnum camel hringinn í kringum ferninginn, heklið 1 st í hvern st, um ll-boga í hverju horni eru heklaðir 4 st. ERMI: Ermin er hekluð fram og til baka með litnum camel. Lesið HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 44-44-46-46-49-49 lausar ll (meðtaldar eru 4 ll til að snúa við með) með heklunál nr 5 með Nepal. UMFERÐ 1: Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni (= 2 st), * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 6 ll*, endurtakið frá *-* þar til eftir eru 5-5-0-0-3-3 ll, hoppið yfir 1 ll og heklið 1 st í hverja af síðustu 4-4-0-0-2-2 ll = 36-36-38-38-40-40 st. Heklið nú 1 st í hvern st. Þegar stykkið mælist 7 cm er aukið út um 1 st í hvorri hlið, endurtakið útaukningu með 6-5-5-4-4-3½ cm millibili 6-8-8-9-10-11 sinnum til viðbótar = 50-54-56-58-62-64 st. Heklið þar til stykkið mælist 49 cm (sama mál í öllum stærðum vegna breiðari axla á fram- og bakstykkjum í stærri stærðum). Nú er lykkjum fækkað í byrjun og lok hverrar umf fyrir handveg – SJÁ ÚRTAKA: Heklið 3 st 1 sinni, 2 st 2 sinnum og 3 st 1 sinni = 30-34-36-38-42-44 st eftir. Klippið frá og festið enda, ermin mælist nú ca 56 cm í öllum stærðum. Heklið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið ermar saman. Saumið ermar í. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 309 vörulista og 11518 mynstur - 7032 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (81)
Brigitte skrifaði:
Hallo.... Ich habe soviel restwolle und würde die gerne als eine ganz bunte Jacje nach dieser Anleitung verhäkeln. Wenn meine wolle dünner ist kann ich das Muster einfach solange weiterführen bis die benötigten Masse erreicht sind ? Die Jacke ist toll. Vielen dank für die vielen Anleitungen.
20.08.2014 - 11:56Brigitte skrifaði:
Hallo.... Ich habe soviel restwolle und würde die gerne als eine ganz bunte Jacje nach dieser Anleitung verhäkeln. Wenn meine wolle dünner ist kann ich das Muster einfach solange weiterführen bis die benötigten Masse erreicht sind ? Die Jacke ist toll. Vielen dank für die vielen Anleitungen.
20.08.2014 - 11:55DROPS Design svaraði:
Liebe Brigitte, erst mal danke für das Lob! Bei dieser Jacke ist es möglich, mit dünnerer Wolle und anderer Maschenprobe zu häkeln, da Sie in erster Linie die Maße erreichen müssen. Etwas komplizierter ist es bei den Ärmeln, weil die auf die Maschenprobe angepasst sind. Hier müssten Sie also entsprechend mehr M anschlagen und ggf. etwas öfter zunehmen, das müssten Sie dann gemäß Ihrer Maschenprobe ausprobieren.
21.08.2014 - 09:28Lesley skrifaði:
Hallo! Ich bin jetzt bei den Hin-& Rückreihen. Allerdings ist mir jetzt nicht ganz klar, wo ich diese genau ansetze. Liebe Grüße Lesley
16.05.2014 - 22:54DROPS Design svaraði:
Liebe Lesley, Sie wollen ja nun die Vorderteile häkeln. Zwischen der 1. u. 2. Ecke befindet sich ein Armausschnitt (hier soll das 1. Vorderteil entstehen), zwischen der 2. u. 3. Ecke der untere Rand, zwischen der 3. u. 4. Ecke der 2. Armausschnitt (hier soll das 2. Vorderteil entstehen) und zwischen der 4. u. 1. Ecke der Halsrand. Sie beginnen das 1. Vorderteil mit einer Hin-R an der 1. Ecke (d.h. vom Halsrand nach unten), das zweite mit einer Hin-R an der 3. Ecke (d.h. von unten zum Halsrand).
17.05.2014 - 01:16Julia skrifaði:
I've just finished making this cardigan but in different colours (teal and magenta). Pattern easy to follow, and I am really pleased with the finished result.
08.02.2014 - 18:41Elsa skrifaði:
Bonjour J'ai remarqué une erreur dans le 6e tour : au lieu de 4 ml, 2 ml dans le même arceau, il s'agit de 4ml, 2 B dans le même arceau. Je tiens néanmoins à vous remercier pour ces beaux patrons, gratuits en plus !
03.12.2013 - 12:48DROPS Design svaraði:
Bonjour Elsa et merci, la correction a été faite. Bon crochet !
04.12.2013 - 09:47Youmna skrifaði:
Bonjour Madames, Pouvez-vour m'aider comment fair les emmanchures? (Quand le carré mesure-. . .ajuster pour que ce tour soit crocheté comme le tour 5 :) c'est à dire que je travaille comme le tour 5? (. . Crocheter ensuite des . . – crocheter 1 ml au-dessus de chaque B/ml) tous les mailles au-dessoux sont B/comme le rond 6? ( Au tour suivant, continuer comme avant, dans les arceaux des emmanchures. . ) est-je travaille ce tour comme le tour 6? Merci beacoup pour m'aider
14.11.2013 - 04:14DROPS Design svaraði:
Bonjour Youmna, quand le carré a la bonne dimension, ajustez pour que le dernier tour soit un tour 6 du motif. Continuez ensuite en suivant le tour 5 comme avant, mais pour créer les emmanchures, on saute les mailles d'un côté jusqu'au milieu, comptez le nbe de mailles sautées et remplacez-les par autant de ml. Au tour suivant, crochetez le tour 6 autour du carré et dans les chaînettes des emmanchures. Bon crochet!
14.11.2013 - 08:56Ronja skrifaði:
Hallo, diesen Satz verstehe ich leider nicht: "Zum Schluss 1 Rd mit camel um das ganze Viereck häkeln, dabei 1 Stb in jedes Stb und 4 Stb. in den Lm-Bogen in jeder Ecke häkeln", welchen Luftmaschenbogen in der Ecke? Habe das Quadrat nun fertig und wollte nun mit den Seiten anfangen... ich starte jede Reihe doch nun mit 2 Stäbchen, da gibt es dann doch keine Luftmaschenbögen mehr in den Ecken, oder? Danke
13.06.2013 - 17:52DROPS Design svaraði:
Liebe Ronja, ich glaube es liegt ein Missverständnis vor: es gibt keine separaten Seiten, der ganze Rumpfteil wird als Viereck gehäkelt und die Armlöcher werden als Schlitze eingearbeitet. Daher haben Sie bis zum Schluss Lm-Bogen an den Ecken.
14.06.2013 - 09:28Aila skrifaði:
Hallo liebes DROPS Team, ich möchte die Jacke gerne als ärmellose Weste ganz in weiß und in Größe S häkeln. Können Sie mir einen Tipp geben, wie viel weiße Wolle ich dafür in etwa brauchen werde? Ich finde die weiße Nepal Uni Colour Wolle super, möchte aber nicht zu wenig bestellen. Lieben Dank im Voraus!
25.05.2013 - 19:49DROPS Design svaraði:
Liebe Aila, um sicher zu gehen, müssten Sie die Gesamtmenge aller Farben und Garne für die betreffende Grösse kaufen. Nepal und Big Fabel laufen gleich weit, aber bei Alpaca Bouclé müssen Sie die Menge verdoppeln (also 200 g Nepal stattdessen) , da es 140 m auf 50 g läuft.
26.05.2013 - 13:24Femy skrifaði:
Oh ik denk dat ik al een fout gemaakt heb bij de armsgaten! De lossen maak je direct na de eerste hoek, ga je met deze lossenrij om hoek 2 heen en daarna naar het middelste stokje?
10.04.2013 - 22:04DROPS Design svaraði:
De lossen maak je direct na de hoek: Haak dan een ketting van l tot het midden van de zijkant – haak 1 l voor elk stk/l tot het middelste stk. Je haakt dus lossen tot het middelste stk van de zijkant. Je kan het ook een beetje zien hoe het zit op de foto.
06.05.2013 - 11:29Femy skrifaði:
En hoe weet ik wat de 2e,3e en 4e hoek is?
10.04.2013 - 21:31DROPS Design svaraði:
1e hoek is de eerste die je haakt, 2e hoek de tweede die je haakt en zo voort.
06.05.2013 - 11:27