Yvonne Harris skrifaði:
I keep coming back and am looking forward to knitting this one. It is just what I was looking for.
09.07.2012 - 16:47
Mary skrifaði:
Another for the "must knit list" Beautiful!
09.07.2012 - 00:47Josée skrifaði:
Looking forward to having the pattern for this one, lovely!
08.07.2012 - 05:20
Yolande skrifaði:
Oh j'adore, vivement les explications, un modèle parfait pour l'automne!!!!!!
06.07.2012 - 02:47
Pat skrifaði:
Hello when is this pattern available please
05.07.2012 - 21:31
Bea skrifaði:
Me encanta!!, elegante y práctico
05.07.2012 - 11:47Patricia skrifaði:
Can't wait, please hurry
04.07.2012 - 09:36
Brigitta skrifaði:
Super mooi !! dit ga ik zeker eensbreien !
02.07.2012 - 11:46Guillermina skrifaði:
Hermoso!! Me gustaría el patron, puede ser?
30.06.2012 - 23:01
Enid skrifaði:
Gorgeous. I too would like to see this in crochet. When will the pattern be available?
29.06.2012 - 16:05
Best West#bestwestjacket |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Andes með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 142-13 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ATH! Sjá mynsturteikningu fyrir þína stærð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 148-148-172-172-196-196 l á hringprjóna nr 7 með Andes. Prjónið 1 umf br frá röngu, prjónið nú – frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 l sl, 2 l br*, endurtakið frá *-*, endið með 2 l sl og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið stroff þar til stykkið mælist 8 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 8. Prjónið 1 umf slétt frá réttu þar sem fækkað er um 25-25-29-29-33-33 l jafnt yfir = 123-123-143-143-163-163 l. Prjónið 1 umf br frá röngu. Prjónið nú – frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju, endurtakið A.1 alls 10 sinnum, endið með 1 l br (prjónið sl frá röngu) og 1 kantlykkju. Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 46-47-48-49-50-51 cm. Setjið fyrstu 31-31-36-36-41-41 og síðustu 31-31-36-36-41-1 l á bönd fyrir framstykki = 61-61-71-71-81-81 l eftir á prjóni. BAKSTYKKI: =61-61-71-71-81-81 l. Haldið áfram með A.1 (hálfa mynstureiningin í hvorri hlið er prjónuð slétt), JAFNFRAMT er fitjað upp 7-7-8-8-9-9 l í lok næstu tveggja umf = 75-75-87-87-99-99 l. Prjónið frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, endurtakið A.1 alls 6 sinnum, 1 l br, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm er fellt af miðju 25-25-29-29-33-33 l fyrir hálsmáli = 25-25-29-29-33-33 l eftir á hvorri öxl/ermi. Fellið af þegar stykkið mælist 72-74-76-78-80-82 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: =31-31-36-36-41-41 l. Haldið áfram með A.1, fitjið upp 8-8-9-9-10-10 nýjar l í lok umf frá réttu = 39-39-45-45-51-51 l. Prjónið nú – séð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.1 alls 3 sinnum, 1 l br (prjónast slétt frá röngu), 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm eru 8-8-10-10-12-12 l við miðju að framan settar á þráð (prjónið þær fyrst), fellið af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umf frá hálsi: 2 l 2 sinnum og 1 l 2 sinnum – prjónið sléttprjón yfir þær l sem ekki ganga upp í heilli mynstureiningu A.1 meðan fellt er af = 25-25-29-29-33-33 l eftir á öxl/ermi. Haldið áfram með mynstur, fellið af þegar stykkið mælist 72-74-76-78-80-82 cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd. FRÁGANGUR: Saumið axlir/ermasauma. KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið upp 94-98-102-106-110-114 l meðfram hægra framstykki innan við kantlykkju á hringprjón nr 7. Prjónið 1 umf sl til baka, prjónið nú – frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju Í garðaprjóni, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* og endið með 2 l sl og 3 l garðaprjóni. Þegar kanturinn mælist 4-4-4-5-5-5 cm er fellt af fyrir 6-6-6-6-7-7 hnappagötum jafnt yfir – efsta hnappagatið á að vera 1 cm fyrir neðan efri kant og neðsta ca 6 cm fyrir ofan neðri kant. 1 HNAPPAGAT = prjónið 2 l sl saman (séð frá réttu) og fitjið upp 1 nýja l yfir þær l sem felldar voru af í næstu umf. Prjónið þar til kanturinn mælist 8-8-9-9-10-10 cm, fellið af með sl yfir sl og br yfir br. Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, fellið ekki af fyrir hnappagötum. KRAGI: Prjónið upp 70-70-74-74-78-78 l meðfram hálsmáli (meðtaldar eru l af þræði og yfir kanti) á hringprjóna nr 7 frá réttu. Prjónið 1 umf sl til baka. Prjónið 1 umf slétt frá réttu, JAFNFRAMT er aukið út um 22 l jafnt yfir = 92-92-96-96-100-100 l. Prjónið nú (fyrsta umf = frá röngu) þannig: Prjónið 3 l garðaprjón, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* endið með 2 l sl og 3 l garðaprjón. Haldið áfram þar til stroffið mælist 15 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br. KANTUR Á ERMUM: Kantur á ermum er prjónaður fram og til baka á hringprjóna. Prjónið upp 66-66-70-70-74-74 l innan við 1 kantlykkju í lok erma á hringprjóna nr 7. Prjónið 1 umf sl til baka, prjónið nú þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 8 cm, fellið af með sl yfir sl og br yfir br. FRÁGANGUR: Saumið ermasauma innan við kantlykkju. Saumið tölur í vinstri kanti að framan. VASI: Fitjið upp 19-19-21-21-23-23 l á prjóna nr 8 með Andes. Prjónið 4 umf garðaprjón, prjónið nú – frá réttu þannig: Prjónið 3 l garðaprjón, A.1, 1 l br (prjónið slétt frá röngu), 3 l garðaprjón. Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist 15 cm, prjónið 1 umf br frá röngu þar til lykkjufjöldinn hefur verið stilltur af til 20-20-20-20-24-24 l. Prjónið nú – frá réttu þannig: Prjónið 3 l garðaprjón, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* og endið með 2 l sl og 3 l garðaprjón. Prjónið þar til vasinn mælist 18 cm, fellið af með sl yfir sl og br yfir br. Prjónið annan eins vasa og saumið þá niður á framstykkið á peysunni, beint yfir stroffið neðst og ca fyrir miðju á framstykki. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #bestwestjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 142-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.