Rita skrifaði:
Zeer mooi ook voor een iets oudere dame
04.06.2012 - 11:20
Marie Danneels skrifaði:
Klassiek, mooi en verfijnd door het patroontje op de zakken.
02.06.2012 - 09:17
Ivonne skrifaði:
Modello semplice adatto a tutte
01.06.2012 - 18:44
ESTEVE CHANTAL skrifaði:
Un modèle basique très pratique.
01.06.2012 - 17:15
José Serné skrifaði:
Lief vestje. Met alles te combineren.
31.05.2012 - 22:03
Rachel#rachelcardigan |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Belle með vösum með köðlum. Stærð S - XXXL
DROPS 141-36 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2 fyrir mynstur á vösum. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. BAKSTYKKI: Fitjið upp 86-94-102-114-126-138 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 3,5 með Merino Extra Fine eða Belle. Prjónið 8 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! Skiptið yfir á prjóna nr 4 og haldið áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 4-4-5-5-6-6 cm, fellið af 1 l í hvorri hlið. Endurtakið úrtöku með 4 cm millibili 3 sinnum til viðbótar = 78-86-94-106-118-130 l. Þegar stykkið mælist 20-20-21-21-22-22 cm, er aukið út um 1 l í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu með 4 cm millibili 3 sinnum til viðbótar = 86-94-102-114-126-138 l. Þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm, er fellt af fyrir handveg í byrjun hverrar umf í hvorri hlið 4 l 0-0-1-1-1-1 sinnum, 3 l 1-1-0-1-2-3 sinnum, 2 l 0-1-2-3-3-3 sinnum og 1 l 1-2-2-2-3-4 sinnum = 78-80-82-84-88-92 l. Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, fellið af miðju 30-30-32-32-34-34 l af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af 2 l í næstu umf frá hálsmáli = 22-23-23-24-25-27 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 49-53-57-63-69-75 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið og 6 kantlykkjur við miðju að framan) á prjóna nr 3,5 með Merino Extra Fine eða Belle. Prjónið 8 umf garðaprjón. Skiptið yfir á prjóna nr 4 og haldið áfram í sléttprjóni, nema 1 kantlykkju í hliðum og 6 kantlykkjur við miðju að framan eru prjónaðar í garðaprjóni til loka. Þegar stykkið mælist 4-4-5-5-6-6 cm, byrjar úrtaka í hliðum eins og á bakstykki = 45-49-53-59-65-71 l. Þegar stykkið mælist 20-20-21-21-22-22 cm, byrjar útaukning í hliðum eins og á bakstykki = 49-53-57-63-69-75 l. Þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm, er fellt af fyrir handveg í hliðum eins og á bakstykki = 45-46-47-48-50-52 l. Þegar stykkið mælist 47-49-51-52-54-56 cm, setjið síðustu 11-11-12-12-13-13 l við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli (setjið lykkjur á þráðinn í lok umf án þess að prjóna þær fyrst). Fellið af í byrjun hverrar umf frá hálsmáli: 3 l 1 sinni, 2 l 3 sinnum og 1 l 3 sinnum = 22-23-23-24-25-27 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema spegilmynd. Að auki er fellt af fyrir hnappagötum í kanti að framan frá réttu. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá miðju að framan slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 2, 11, 20, 29 og 38 cm. STÆRÐ M: 2, 11, 21, 30 og 40 cm. STÆRÐ L: 2, 11, 19, 27, 35 og 43 cm. STÆRÐ XL: 3, 12, 20, 28, 36 og 44 cm. STÆRÐ XXL: 3, 12, 20, 29, 37 og 46 cm. STÆRÐ XXXL: 3, 12, 21, 30, 39 og 48 cm. Fellið líka af fyrir 1 hnappagati í hálsmáli. ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 48-50-52-54-56-60 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 3,5 með Merino Extra Fine eða Belle. Prjónið 6 umf garðaprjón. Skiptið yfir á prjóna nr 4 og haldið áfram æi sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 10-8-10-10-8-8 cm, aukið út um 1 l í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu með 3-3-2½-2-2-2 cm millibili 12-13-14-16-17-17 sinnum til viðbótar = 74-78-82-88-92-96 l. Þegar stykkið mælist 50-49-48-47-46-45 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna víðari handvegs og breiðari axla), fellið af fyrir handveg í byrjun hverrar umf í hvorri hlið: 4 l 1 sinni, 2 l 3 sinnum, 1 l 2-3-5-6-7-9 sinnum og síðan 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 56 cm. Fellið nú af 3 l 1 sinni í hvorri hlið, fellið af þær l sem eftir eru. Stykkið mælist ca 57 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. VASI: Fitjið upp 27-27-27-29-29-29 l á prjóna nr 3,5 með Merino Extra Fine eða Belle. Prjónið 4 umf garðaprjón (1. umf = rétta): Skiptið yfir á prjóna nr 4. Næsta umf er þannig (frá réttu) þannig: Prjónið 2 l garðaprjón, * 1 l sl, 2 l sl í hvora af næstu 2 l, 1 l sl, 3-3-3-4-4-4 l br, 1 l sl, 2 l sl í hvora af næstu 2 l, 1 l sl *, 1 l br, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar, endið með 2 l garðaprjón = 35-35-35-37-37-37 l. Prjónið sl yfir sl og br yfir br í umf til baka í 2 l garðaprjóni í hvorri hlið. Haldið áfram þannig: Prjónið 2 l garðaprjón, mynstur A.1, 3-3-3-4-4-4 l br, mynstur A.1, 1 l br, mynstur A.2, 3-3-3-4-4-4 l br, mynstur A.2 og 2 l garðaprjón. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist alls ca 10-10-11-11-12-12 cm á hæðina – endið eftir 1 umf frá röngu. Næsta umf er prjónuðu (frá réttu) þannig: Prjónið 2 l sl, * 1 l sl, 2 l sl saman, 2 l sl saman, 1 l sl, 3-3-3-4-4-4 l br, 1 l sl, 2 l sl saman, 2 l sl saman, 1 l sl *, 1 l br, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar, endið með 2 l sl = 27-27-27-29-29-29 l. Skiptið yfir á prjóna nr 3,5, Prjónið nú 4 umf garðaprjón yfir allar l (1. umf = ranga), fellið síðan af með sl frá röngu. Vasinn mælist ca 11-11-12-12-13-13 cm. Prjónið annan vasa til viðbótar á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlarsauma. Hálsmál: Prjónið upp ca 90 til 105 l kringum hálsmál meðtaldar eru l af þræði á hringprjóna nr 3,5. Prjónið 1 umf slétt frá röngu, síðan 1 umf slétt frá réttu jafnframt sem fellt er af fyrir 1 hnappagati yfir hin í kanti að framan. Prjónið 4 umf slétt til viðbótar, fellið síðan af með sl frá röngu. Saumið ermar í. Saumið erma- og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju. Saumið vasa á ca 4-5-5-6-6-6 cm frá neðri brún og 7-8-9-10-11-12- cm frá miðju að framan. Saumið tölur í. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #rachelcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 12 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 141-36
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.