Angel Dowler skrifaði:
Wow, would have to make this, really fantastic. it gets my first vote
02.06.2012 - 09:44
Emmanuelle skrifaði:
Mon modèle préféré de cette collection
01.06.2012 - 23:29
Sara skrifaði:
Brukar gilla fabel-designerna, men den här känns bara rörig.
01.06.2012 - 23:05
Vibeke Tryk skrifaði:
Super flot den bliver helt sikkert et hit.
01.06.2012 - 22:43
Joelle skrifaði:
Construction très intéressante mise en valeur par la laine. Très jolie
01.06.2012 - 22:39
Elisabeth skrifaði:
Elegant flot
01.06.2012 - 17:22
Mette Due skrifaði:
Superflot. Den må jeg straks i gang med at strikke.
01.06.2012 - 16:34
Lotti Hellström skrifaði:
Annorlunda,rolig,jätteläcker!
01.06.2012 - 14:43
Dagny Johansson skrifaði:
Den här ser verkligen rolig ut att sticka, jag gillar Fabel också.
31.05.2012 - 23:50
Elke skrifaði:
Richtig flott!
31.05.2012 - 18:43
Loreen#loreencardigan |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Fabel. Stærð S-XXXL.
DROPS 140-4 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna): * 1 umf slétt og 1 umf brugðið *, endurtakið frá *-*. STUTTAR UMFERÐIR: Prjónið 1 umf yfir fyrstu 26-28-30-33-37-41 l, snúið við og prjónið til baka. Prjónið 1 umf yfir fyrstu 25-27-29-32-36-40 l, snúið við og prjónið til baka. Haldið áfram með stuttar umferðir, prjónið yfir 1 l færri í hvert skipti, þar til prjónaðar hafa verið 2 umf yfir fyrstu l. Prjónið nú 1 umf yfir 2 fyrstu l, snúið við og prjónið til baka, 1 umf yfir 3 fyrstu l, snúið við og prjónið til baka. Haldið áfram með stuttar umferðir, það er prjónað yfir 1 l fleiri í hvert skipti, þar til prjónuðu hefur verið 1 umf yfir allar l, snúið við og prjónið til baka. 1 mynstureining með stuttum umferðum = 104-112-120-132-148-164 umf. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan frá réttu. 1 hnappagat = prjónið 3. og 4 l frá miðju að framan slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 3, 12, 21, 30, 39 og 48 cm. STÆRÐ M: 3, 10, 18, 26, 34, 42 og 50 cm. STÆRÐ L: 3, 11, 19, 27, 35, 43 og 54 cm. STÆRÐ XL: 3, 11, 19, 27, 36, 45 og 54 cm. STÆRÐ XXL: 3, 11, 20, 29, 38, 47 og 56 cm. STÆRÐ XXXL: 3, 10, 18, 26, 34, 42, 50 og 58 cm. (ATH: Síðasta hnappagatið er gert þegar 1 cm er eftir upp að hálsmáli ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Allt stykkið er prjónað í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Stykkið er prjónað frá öxl að neðri kanti, síðan frá neðri kanti og til baka að öxl. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 8-9-10-12-15-18 l á prjóna nr 3 með Fabel. Prjónið garðaprjón í 5 cm, síðan eru fitjaðar upp nýjar l í lok hverrar umf frá röngu þannig: 1 l 3 sinnum, 2 l 3 sinnum og 10-11-12-13-14-15 l 1 sinni = 27-29-31-34-38-42 l. Haldið áfram í garðaprjóni þar til stykkið mælist 45-46-47-47-48-49 cm. Prjónið 2 mynstureiningar með STUTTAR UMFERÐIR – sjá útskýringu að ofan, fyrsta umf = frá réttu. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6 cm frá neðstu brún á framstykki (mælt upp meðfram hlið) eru prjónaðar 2 fyrstu l í umf (frá réttu) slétt saman, endurtakið úrtöku með 3 cm millibili 4 sinnum til viðbótar = 22-24-26-29-33-37 l. Þegar stuttar umferðir hafa verið prjónaðir er prjónað garðaprjón yfir allar l. JAFNFRAMT eru rendurnar tvær prjónaðar – byrjið frá röngu þannig: Takið upp síðustu l yst í lykkjubogann frá fyrri rönd, prjónið fyrstu l af vinstra prjóni, steypið nýju l yfir, prjónið út umf. Endurtakið þessar tvær umf þar til prjónaðar hafa verið upp 1 l í aðra hvora l meðfram allri hliðinni frá fyrri rönd. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 22 cm frá neðri kanti eru prjónaðar 2 l í fyrstu l á prjóni (frá réttu), endurtakið útaukningu með 2½-3-3-3½-3½-4 cm millibili 4 sinnum til viðbótar = 27-29-31-34-38-42 l. Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm frá neðri kanti er fellt af fyrir handveg í byrjun hverrar umf frá réttu þannig: 3 l 1-1-1-2-2-2 sinnum, 2 l 2-3-4-5-7-9 sinnum og 1 l 3-3-4-4-7-10 sinnum = 17-17-16-14-11-8 l. Prjónið þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm, fellið af. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 8-9-10-12-15-18 l á prjóna nr 3 með Fabel. Prjónið garðaprjón í 5 cm, síðan eru fitjaðar upp nýjar l í lok hverrar umf frá réttu þannig: 1 l 3 sinnum, 2 l 3 sinnum og 10-11-12-13-14-15 l 1 sinni = 27-29-31-34-38-42 l. Haldið áfram í garðaprjóni þar til stykkið mælist 45-46-47-47-48-49 cm. Prjónið 2 mynstureiningar með STUTTAR UMFERÐIR – sjá útskýringu að ofan, fyrsta umf = frá röngu. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6 cm frá neðstu brún á framstykki (mælt upp meðfram hlið) eru prjónaðar 2 síðustu l í umf (frá réttu) slétt saman, endurtakið úrtöku með 3 cm millibili 4 sinnum til viðbótar = 22-24-26-29-33-37 l. Þegar stuttar umferðir hafa verið prjónaðir er prjónað garðaprjón yfir allar l. JAFNFRAMT eru rendurnar tvær prjónaðar – byrjið frá réttu þannig: Takið upp síðustu l yst í lykkjubogann frá fyrri rönd, prjónið fyrstu l af vinstra prjóni, steypið nýju l yfir, prjónið út umf. Endurtakið þessar tvær umf þar til prjónuð hefur verið upp 1 l í aðra hvora l meðfram allri hliðinni frá fyrri rönd. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 22 cm frá neðri kanti eru prjónaðar 2 l í fyrstu l á prjóni (frá réttu), endurtakið útaukningu með 2½-3-3-3½-3½-4 cm millibili 4 sinnum til viðbótar = 27-29-31-34-38-42 l. Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm frá neðri kanti er fellt af fyrir handveg í byrjun hverrar umf frá réttu þannig: 3 l 1-1-1-2-2-2 sinnum, 2 l 2-3-4-5-7-9 sinnum og 1 l 3-3-4-4-7-10 sinnum = 17-17-16-14-11-8 l. Prjónið þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm, fellið af. BAKSTYKKI: Allt stykkið er prjónað í garðaprjóni. Stykkið er prjónað frá öxl að neðri kanti, síðan frá neðri kanti og til baka að öxl. HÆGRI ÖXL: Fitjið upp 8-9-10-12-15-18 l á prjóna nr 3 með Fabel. Prjónið garðaprjón í 2 cm. Geymið stykkið. Prjónið vinstri öxl eins, haldið l á prjóni, fitjið upp 38-40-42-44-46-48 nýjar l, prjónið til baka l frá hægri öxl á prjóninn = 54-58-62-68-76-84 l. Prjónið garðaprjón þar til stykkið mælist 45-46-47-47-48-49 cm. Haldið áfram í garðaprjóni, JAFNFRAMT í annarri hverri umf er sett 1 l í hvorri hlið á þráð. Haldið áfram þar til 2 l eru eftir á prjóni = 26-28-30-33-37-41 l á hvorum þræði. Setjið þær 2 l frá vinstri á þráðinn, prjónið nú hægri hlið á bakstykki til loka. HÆGRI HLIÐ Á BAKSTYKKI: = 1 l á prjóni. Haldið áfram í garðaprjón, JAFNFRAMT í lok hverrar umf frá réttu er prjónuð 1 l af þræði til baka á prjóninn. Haldið áfram þannig þar til allar l hafa verið prjónaðar til baka á prjóninn = 27-29-31-34-38-42 l. Prjónið 1 mynstureiningu með STUTTAR UMFERÐIR – sjá útskýringu að ofan – fyrsta umf = rétta. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6 cm frá neðstu brún á bakstykki (mælt upp meðfram hlið) eru prjónaðar 2 fyrstu l í umf (frá réttu) slétt saman, endurtakið úrtöku með 3 cm millibili 4 sinnum til viðbótar = 22-24-26-29-33-37 l. Þegar stuttar umferðir hafa verið prjónaðir er prjónað garðaprjón yfir allar l. JAFNFRAMT eru rendurnar tvær prjónaðar – byrjið frá röngu þannig: Takið upp síðustu l yst í lykkjubogann frá fyrri rönd, prjónið fyrstu l af vinstra prjóni, steypið nýju l yfir, prjónið út umf. Endurtakið þessar tvær umf þar til prjónuð hefur verið upp 1 l í aðra hvora l meðfram allri hliðinni frá fyrri rönd. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 22 cm haldið áfram með útaukningu í hlið og úrtöku fyrir handveg eins og útskýrt er frá í vinstra framstykki. Prjónið þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm, fellið af. VINSTRI HLIÐ Á BAKSTYKKI: Setjið til baka síðustu l sem settar voru á þráð á prjóna nr 3 = 1 l á prjóni. Haldið áfram í garðaprjóni, JAFNFRAMT í lok hverrar umf frá röngu er sett 1 l af þærði til baka á prjóninn. Haldið svona áfram þar til allar l hafa verið prjónaðar til baka á prjóninn = 27-29-31-34-38-42 l. Prjónið 1 mynstureiningu með STUTTAR UMFERÐIR - sjá útskýringu að ofan – fyrsta umf = ranga. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6 cm frá neðstu brún á bakstykki (mælt upp meðfram hlið) eru prjónaðar 2 fyrstu l í umf (frá réttu) slétt saman, endurtakið úrtöku með 3 cm millibili 4 sinnum til viðbótar = 22-24-26-29-33-37 l. Þegar stuttar umferðir hafa verið prjónaðir er prjónað garðaprjón yfir allar l. JAFNFRAMT eru rendurnar tvær prjónaðar – byrjið frá réttu þannig: Takið upp síðustu l yst í lykkjubogann frá fyrri rönd, prjónið fyrstu l af vinstra prjóni, steypið nýju l yfir, prjónið út umf. Endurtakið þessar tvær umf þar til prjónuð hefur verið upp 1 l í aðra hvora l meðfram allri hliðinni frá fyrri rönd. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 22 cm haldið áfram með útaukningu í hlið og úrtöku fyrir handveg eins og útskýrt er frá í hægra framstykki. Prjónið þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm, fellið af. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitji upp 56-58-60-62-64-68 l á sokkaprjóna nr 3 með Alpaca. Prjónið GARÐAPRJÓN í 4 cm – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir í Fabel, nú er prjónað í sléttprjóni (ermin er sett á með röngu út). Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf. Þegar stykkið mælist 8-8-8-8-6-6 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki, endurtakið útaukningu með 2½-2-2-1½-1½-1½ cm millibili 14-16-18-20-22-23 sinnum til viðbótar = 86-92-98-104-110-116 m. Þegar stykkið mælist 47-47-47-46-45-43 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla) fellið af 6 l við miðju undir ermi (= 3 l hvoru megin við prjónamerki). Prjónið nú fram og til baka og fellið af fyrir ermakúpu. Fellið af í byrjun í hverri umf í hvorri hlið: 3 l 1 sinni, 2 l 5-6-6-6-6-6 sinnum og 1 l 1-1-2-4-7-10 sinnum, fellið síðan af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 54-55-56-56-57-57 cm, fellið nú af 3 l 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af þær l sem eftir eru, stykkið mælist ca 55-56-57-57-58-58 cm í öllum stærðum. Prjónið hina ermina á sama hátt. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Fitjið upp 6 l á prjóna nr 3 með Alpaca. Prjónið garðaprjón fram og til baka, JAFNFRAM sem prjónað er saman við framstykki þannig: Byrjið frá réttu: Takið upp síðustu l yst í lykkjubogann neðst niðri á framstykki, prjónið fyrstu l á vinstra prjóni, steypið nýju l yfir, prjónið út umf. Endurtakið þessar tvær umf þar til prjónað hefur verið upp 1 l í aðra hvora l meðfram öllu framstykkinu. Endurtakið á hægra framstykki, fyrsta umf = frá röngu. Fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. FRÁGANGUR: Saumið axlarsauma. Saumið hliðarsauma. Saumið ermar í, með rönguna út. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp ca 120-130 l kringum hálsmál (jafnvel yfir kant að framan) með Alpaca. Prjónið garðaprjón í 2 cm, fellið af. BÆTUR ERMAR: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 20 l á prjóna nr 3 með Alpaca. Prjónið þannig: UMFERÐ 1: Prjónið slétt. UMFERÐ 2: Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl = 28 l. UMFERÐ 3: Prjónið 1 l sl yfir allar l, uppslátturinn prjónast snúinn sl. UMFERÐ 4: Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 8 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 8 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl = 36 l. UMFERÐ 5: Prjónið sl yfir allar l, uppslátturinn prjónast snúinn sl. UMFERÐ 6: Prjónið 1 sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 10 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 10 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl = 44 l. UMFERÐ 7: Prjónið sl yfir allar l, uppslátturinn prjónast snúinn sl. UMFERÐ 8: Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 12 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 12 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl = 52 l. UMFERÐ 9: Prjónið sl yfir allar l, uppslátturinn prjónast snúinn sl. UMFERÐ 10: Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 5 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 14 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 5 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 5 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 14 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 5 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl = 60 l. UMFERÐ 11: Prjónið sl yfir allar l, uppslátturinn prjónast snúinn sl. UMFERÐ 12: Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 16 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 16 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl = 68 l. UMFERÐ 13: Prjónið sl yfir allar l, uppslátturinn prjónast snúinn sl. UMFERÐ 14: Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 7 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 18 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 7 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 7 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 18 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 7 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl = 76 l. UMFERÐ 15: Prjónið sl yfir allar l, uppslátturinn prjónast snúin sl. UMFERÐ 16: Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 8 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 20 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 8 l sl, sláið 1 sinni uppá prjónin, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 8 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 20 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 8 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl = 84 l. UMFERÐ 17: Fellið af allar l. Saumið saman bótina í miðju með smáu, fínu spori. Prjónið aðra bót til viðbótar á sama hátt. Saumið bótina fasta aftan á ermi með stingsaumi (mátið peysuna til þess að sjá hvort bótin sitji á réttum stað). |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #loreencardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 15 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 140-4
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.