Rianne Ruijten skrifaði:
Ik zou graag met deze wol, maar dan in de lichte kleurenvariant, een spencer willen gaan breien. Dus niet de donkere kleur kleur bruin, maar de “naturel” variant. Wat heb ik nodig voor een spencer in de maat L/XL en wat zijn dan de desbetreffende kleurnummers? Met vriendelijke groet, Rianne
14.11.2022 - 15:12DROPS Design svaraði:
Dag Rianne,
Hiervoor zou je het beste even kunnen kijken bij de spencers die in garenkwaliteit A zijn gebreid. Dat is namelijk dezelfde dikte als Alpaca. Het kan per patroon namelijk nogal verschillend zijn hoeveel je nodig hebt.
14.11.2022 - 20:27
Kolbrún skrifaði:
De er meget flotte og skönne farver.
14.07.2012 - 20:17Josée skrifaði:
I love these socks, love the colours.
04.07.2012 - 02:53
Carl skrifaði:
Very nice, I will enjoy making these for my wife
29.06.2012 - 18:30
Remmy Dekker skrifaði:
Wat een prachtig patroon. Zou meteen willen beginnen.
15.06.2012 - 22:13
Jette skrifaði:
Har strikke mange lange strømper, de sidste 2 år, fint med nye mønster
15.06.2012 - 09:56
Debby skrifaði:
When will the pattern be available?
14.06.2012 - 17:02
Tina skrifaði:
Skulle vilja ha mönster till over-knee-sockar i detta mönstret. Eller till långa benvärmare som dock ska följa benens form och inte "korva" sig nere vid anklarna.
03.06.2012 - 11:36
Riet skrifaði:
Helemaal goed! Ik hou hiervan....
31.05.2012 - 22:00
Eva Kroon-bisenius skrifaði:
Fint mönster, vill sticka
31.05.2012 - 16:19
Autumn Aurora#autumnaurorasocks |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónaðir sokkar með Fair-isle mynstri úr DROPS Alpaca. Stærð 35-43.
DROPS 143-29 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fellið af á undan prjónamerki þannig: Prjónið 2 l sl saman. Fellið af á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 2 l snúnar slétt saman. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 9-10-10 l eru eftir, 2 l snúnar sl saman, snúið við. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 9-10-10 l eru eftir, 2 l br saman, snúið við. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 8-9-9 l eru eftir, 2 l snúnar sl saman, snúið við. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 8-9-9 l eru eftir, 2 l br saman, snúið við. Haldið áfram úrtöku á sama hátt með því að prjóna saman svo það fækki um 1 l í hvert sinn áður en prjónaðar eru 2 l saman, þar til 14-14-14 l eru eftir á prjóni. LEIÐBEININGAR (sokkar verða að legghlífum). Ef óskað er eftir því að gera legghlífar í stað sokka er farið eftir útskýringu að neðan þangað til stykkið mælist 29-31-33 cm, EN það er ekki tekið úr við miðju að aftan (úrtaka í fyrstu og síðustu umf í A.2 er látin halda sér) = 72-84-84 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 2,5 og prjónið 1 umf slétt með litnum dökk brúnn JAFNFRAMT er aukið út um 8 l jafnt yfir = 80-92-92 l (deilanlegt með 4). Prjónið nú stroff þannig: 2 l sl/2 l br í 3 cm. Skiptið yfir í litinn brúnn og prjónið 2 umf stroff áður en fellt er laust af með sl yfir sl og br yfir br. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: (LESIÐ LEIÐBEININGAR). Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN BYRJAÐ ER AÐ PRJÓNA! SOKKUR: Fitjið upp 100-108-112 l sokkaprjóna nr 2,5 með litnum brúnn. Prjónið 2 umf stroff 2 l sl/2 l br. Skiptið yfir í litinn dökk brúnn og haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist 4 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3 og prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 16-12-16 l jafnt yfir = 84-96-96 l. MYNSTUR: Prjónið MYNSTUR eftir mynsturteikningu A.1. Eftir A.1 er prjónað eftir mynsturteikningu A.2 – JAFNFRAMT í fyrstu og síðustu umf í A.2 er fækkað um 6 lykkjur jafnt yfir. Eftir A.2 er haldið áfram með A.3 ÚRTAKA VIÐ MIÐJU AÐ AFTAN: JAFNFRAMT í 5. umf í A.2 (stykkið mælist nú ca 13 cm), er sett 1 prjónamerki í byrjun umf. Nú er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkið – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í 6. hverri umf, 5-8-8 sinnum til viðbótar. ATH: Þegar úrtaka er í gangi, kemur mynstrið ekki til með að ganga jafnt upp við miðju að aftan, sjáið til að það gangi upp annars hringinn. Eftir allar úrtöku eru 60-66-66 l á prjóni. Þegar stykkið mælist 29-31-33 cm er skipt yfir á sokkaprjóna nr 2,5. Haldið eftir fyrstu 15-16-16 l á prjóni fyrir hæl, setjið eftirfarandi 30-34-34 l á þráð (= miðja ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 15-16-16 l á prjóni fyrir hæl. Haldið áfram með litnum dökk brúnn og sléttprjóni fram og til baka yfir 30-32-32 hællykkjur í 5-5½-6 cm – setjið 1 prjónamerki. Prjónið nú HÆLÚRTAKA – lesið útskýringu að ofan. Eftir hælúrtöku eru prjónaðar upp 13-14-15 l hvoru megin við hæl og 30-34-34 l af þræði eru settar aftur á prjóninn = 70-76-78 l. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 30-34-34 l ofan á fæti. Prjónið nú sléttprjón hringinn yfir allar l með litnum dökk brúnn. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hvorri hlið þannig: Prjónið 2 síðustu l Á UNDAN fyrra prjónamerki snúnar slétt saman og prjónið 2 fyrstu l Á EFTIR seinna prjónamerki á fæti slétt saman. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf, 7-9-8 sinnum til viðbótar = 54-56-60 l. Prjónið nú áfram þar til stykkið mælist 18-20-22 cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir ca 4-4-5 cm að loka máli). Takið frá öll prjónamerki og setjið 1 nýtt prjónamerki í hvora hlið svo að það verða 27-28-30 l bæði ofan á fæti og undir fæti. Síðan er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við prjónamerkin þannig: Prjónið þar til 3 l eru að prjónamerki, 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 l), 2 l snúnar slétt saman. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf, 3-2-4 sinnum til viðbótar og síðan í hverri umf alls 7-9-8 sinnum = 10-8-8 l eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #autumnaurorasocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 10 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 143-29
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.