Annie Sibbesen skrifaði:
Casual og elegant strikjakke. Det bliver ikke bedre!
10.07.2012 - 23:02
Monica Blytt skrifaði:
En skikkelig kosejakke dette her! Praktisk med lommer til nøkler og småplukk. Gleder meg til å begynne!
02.07.2012 - 10:13
Małgosia skrifaði:
Przepiękny! Elegancki i zarazem prosty, a do tego łatwy do wykonania ! Już się na niego cieszę!
25.06.2012 - 16:24Laura Jensen skrifaði:
I would like to see this outline in this yarn as an evening coat with simple lace panels and lace edgings. I have found that double yarn overs do show in the boucle!
24.06.2012 - 06:16
Monica skrifaði:
Ursnygg!
17.06.2012 - 11:57
Caro skrifaði:
Il a l'air tout doux... et joli avec çà !!!
16.06.2012 - 14:39
Gabi skrifaði:
Genau das richtige für mich. Ich liebe das Garn es ist wunderbar weich.
10.06.2012 - 22:09
Elena skrifaði:
Molto bello!!! semplice e raffinato
07.06.2012 - 14:41
Chris skrifaði:
This looks so comfortable and easy to match that you would probably wear it every day !
06.06.2012 - 17:18
Corry skrifaði:
Klasse. Een chique combinatie.
06.06.2012 - 01:53
Snuggle#snugglecardigan |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa og hálsskjól úr DROPS Alpaca Bouclé. Stærð S - XXXL
DROPS 142-21 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN: Í byrjun umf frá réttu: Prjónið 4-4-4-6-6-6 l garðaprjón, * 3 l sl, 3 l br *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 16-16-16-18-18-18 l. Í lok umf frá réttu: Prjónið * 3 l sl, 3 l br*, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, 4-4-4-6-6-6 l garðaprjón = 16-16-16-18-18-18 l. Frá röngu eru prjónaðar síðustu 4-4-4-6-6-6 l með garðaprjóni, og sl yfir sl og br yfir br yfir þær l sem eftir eru af kantlykkjum að framan. ÚTAUKNING: Aukið er út um 1 l í hvorri hlið þannig: Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið þar til 1 l er eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn til að koma í veg fyrir göt. LEIÐBEININGAR UM MÆLINGU: Allar mælingar eru gerðar þegar stykkið liggur flatt, mikilvægt er að ekki strekkist á stykkinu þegar mælt er. MYNSTUR (á við um kraga): Sjá mynsturteikningu A.1, mynsturteikningin sýnir allar umf í 1 mynstureiningu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 160-176-186-208-226-246 l á hringprjóna nr 5 með Alpaca Bouclé. Í 1. umf (= frá réttu) er prjónað þannig: Prjónið KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN – sjá útskýringu að ofan, prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – þar til eftir eru 16-16-16-18-18-18 l á prjóni, prjónið KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN. Haldið áfram í garðaprjóni yfir miðju l og 16-16-16-18-18-18 kantlykkjur að framan í hvorri hlið í 4 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú sléttprjón með 16-16-16-18-18-18 kantlykkjur að framan í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 48-49-50-51-52-53 cm er stykkinu skipt í tvennt 43-47-49-55-59-64 l í hvorri hlið (= framstykki, það verða 74-82-88-98-108-118 l á bakstykki), og hvort stykki er prjónað fyrir sig til loka. BAKSTYKKI: = 74-82-88-98-108-118 l. Haldið áfram í sléttprjón – JAFNFRAMT í lok 2 næstu umf eru fitjaðar upp 48-46-45-41-38-35 nýjar l fyrir ermi í hvorri hlið = 170-174-178-180-184-188 l. Prjónið nú sléttprjón – en síðustu 6 í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni að loka máli (= kantur á ermi í hvorri hlið). Þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm eru felldar af miðju 18-18-20-22-24-24 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð fyrir sig. Í næstu umf frá hálsi er felld af 1 l = 75-77-78-78-79-81 l eftir á öxl. Fellið laust af allar l þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm. ATH: Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki of stífur! VINSTRA FRAMSTYKKI: = 43-47-49-55-59-64 l. Haldið áfram í sléttprjóni og 16-16-16-18-18-18 kantlykkjun við miðju að framan – JAFNFRAMT í lok næstu umf frá röngu eru fitjaðar upp 48-46-45-41-38-35 nýjar l fyrir ermi = 91-93-94-96-97-99 l. Haldið áfram í sléttprjóni og kantlykkju við miðju að framan, en síðustu 6 l í byrjun umf frá réttu eru prjónaðar í garðaprjóni að loka máli (= kantur á ermi). Þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm eru felldar af fyrstu 75-77-78-78-79-81 l fyrir öxl í næstu umf frá réttu = 16-16-16-18-18-18 kantlykkjur að framan eftir fyrir kraga. ATH: Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki of stífur! Haldið áfram að prjóna yfir kantlykkjur að framan þar til kraginn mælist 7-7-8-8-9-9 cm frá öxl. Fellið af í byrjun umf frá réttu þannig: Fellið af 5 l 2-2-2-0-0-0 sinnum, 6 l 1-1-1-3-3-3 sinnum. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema spegilmynd. FRÁGANGUR: Saumið axla – og ermasauma yst í lykkjubogann. Saumið saman kragann við miðju að aftan og saumið hann við hálsmálið aftan á hnakka. Saumið sauma undir ermum yst í lykkjubogann. VASI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 24-24-24-26-26-26 l á hringprjóna nr 5 með Alpaca Bouclé. Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 3 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu með 3 cm millibili alls 3 sinnum = 30-30-30-32-32-32 l. Fellið af allar l þegar stykkið mælist 16-16-16-17-17-17 cm. Prjónið annan vasa á sama hátt. Saumið vasa á framstykki, ca 10-10-11-11-12-12 cm frá uppfitjunarkanti og 12 cm frá miðju að framan. ATH: Hægri og vinstri kantur á vasa er saumaður samhliða kanti við miðju að framan. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring. HÁLSSKJÓL: Fitjið LAUST upp 120 l á hringprjóna nr 5 með Alpaca Bouclé. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið nú A.1 út umf. Þegar stykkið mælist ca 35 cm (endið með síðustu umf í mynstri), prjónið 4 umf garðaprjón og fellið laust af allar l. ATH: Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki of stífur! |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #snugglecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 7 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 142-21
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.