DROPS Super Sale · 30% AFSLÁTTUR á 5 tegundum af ullargarni
DROPS Safran
100% Bómull
frá 484.00 kr /50g
Product image DROPS Cotton Viscose yarn
DROPS Cotton Viscose
54% Bómull, 46% Viscose
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Autumn & Winter 26/27

Tropical Sea Sweater

Prjónuð peysa úr DROPS Safran og Cotton Viscose eða 2 þráðum DROPS Safran með tvöföldu perluprjóni og röndum. Stærð XS - XXL.

Velja stærð:
DROPS 77-21

#tropicalseasweater

DROPS Design: Mynstur nr E-101
--------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS/S - S/M - M/L - XL – XXL

GARN:
DROPS Safran frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-150-150-150-150 gr litur nr 50, Ísblár
100-150-150-150-150 gr litur nr 03, Myntugrænn

Og einnig:
DROPS Cotton Viscose frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
300-300-350-350-400 gr litur nr 02, Natur
Eða notið:
DROPS Safran frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200-250-250-250-300 gr litur nr 18, Natur

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 6: Lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: Lengd 40 cm og 80 cm.

PRJÓNFESTA:
15 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með 1 þræði DROPS Safran + 1 þræði DROPS Cotton Viscose eða 2 þráðum DROPS Safran með prjóna nr 6 og tvöföldu perluprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

DROPS Safran
100% Bómull
frá 484.00 kr /50g
Product image DROPS Cotton Viscose yarn
DROPS Cotton Viscose
54% Bómull, 46% Viscose
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

0
0

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

STROFF:
* 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-*.

TVÖFALT PERLUPRJÓN:
UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* út umferðina.
UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur.
UMFERÐ 3: brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur og sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur.
UMFERÐ 4: brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur.
Endurtakið umferð 1-4.

RANDARMYNSTUR:
* Prjónið 10 cm með 1 þræði með litnum Myntugrænn DROPS Safran + 1 þræði með litnum Natur DROPS Cotton Viscose/DROPS Safran, prjónið 10 cm með 1 þræði með litnum Ísblár DROPS Safran + 1 þræði með litnum Natur DROPS Cotton Viscose/DROPS Safran *, endurtakið frá *-* að loka máli.

LEIÐBEININGAR MÆLING:
Vegna þyngdar á garninu þá kemur flíkin til með að teygjast við notkun. Öll mál eru gerð þegar stykkinu er haldið uppi.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna í stykkjum, neðan frá og upp og saumað saman í lokin.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 65-71-77-83-92 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) með hringprjóna 4,5 með 1 þræði í litnum Ísblár DROPS Safran + 1 þræði í litnum Natur DROPS Cotton Viscose/DROPS Safran (= 2 þræðir).
Prjónið STROFF – lesið leiðbeiningar að ofan – í 4 cm með 1 kantlykkju í hvorri hlið.
Skiptið yfir á hringprjóna 6 og haldið áfram með TVÖFALT PERLUPRJÓN og RANDARMYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan – JAFNFRAMT því sem fækkað er um 6 lykkjur jafnt yfir í 1. umferð = 59-65-71-77-86 lykkjur. Munið að fylgja prjónfestunni.
Þegar stykkið mælist 10 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið með 6-6-7-7-9 cm millibili alls 4-4-4-4-3 sinnum = 67-73-79-85-92 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38 cm frá uppfitjunarkanti – lesið LEIÐBEININGAR MÆLING – fellið af fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umferð: 3 lykkjur 1-1-1-1-2 sinnum, 2 lykkjur 0-1-2-3-3 sinnum og 1 lykkja 3-3-3-4-4 sinnum = 55-57-59-59-60 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 42-44-46-48-50 cm fellið af miðju 11-11-11-11-12 lykkjur fyrir hálsmáli.
Fellið síðan af í hvorri hlið við hálsmál í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 6 sinnum = 12-13-14-14-14 lykkjur eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60 cm frá uppfitjunarkanti.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og framstykki. Fellið af fyrir handveg á sama hátt og á framstykki og prjónið áfram þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58 cm frá uppfitjunarkanti.
Nú eru felldar af miðju 29-29-29-29-30 lykkjur fyrir hálsmáli. Í næstu umferð er felld af að auki 1 lykkja við hálsmál = 12-13-14-14-14 lykkjur eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60 cm frá uppfitjunarkanti.

ERMI:
Fitjið upp 38-38-38-41-41 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið með hringprjóna 4,5 með 1 þræði í litnum Ísblár DROPS Safran + 1 þræði í litnum Natur DROPS Cotton Viscose/DROPS Safran (= 2 þræðir).
Prjónið stroff í 6 cm með 1 kantlykkju í hvorri hlið.
Skiptið yfir á hringprjón 6 og prjónið tvöfalt perluprjón og randarmynstur – munið eftir leiðbeiningum að ofan.
Þegar stykkið mælist 9 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið með 7-5-4-4-3,5 cm millibili alls 6-8-9-9-10 sinnum = 50-54-56-59-61 lykkjur.
Þegar ermin mælist 48-47-46-44-43 cm frá uppfitjunarkanti er fellt af fyrir ermakúpu í hvorri hlið í annarri hverri umferð: 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2-2-2-1-1 sinnum og 1 lykkja 1-2-5-8-11 sinnum, síðan eru felldar af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist 54-54-55-55-56 cm, að lokum eru felldar af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru, stykkið mælist ca 55-55-56-56-57 cm frá uppfitjunarkanti.

FRÁGANGUR:
Saumið hægri axlasaum.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp ca 89-95 lykkjur (deilanlegt með 3+2) í kringum hálsmál á hringprjón 4,5 með 1 þræði í litnum Ísblár DROPS Safran + 1 þræði í litnum Natur DROPS Cotton Viscose/DROPS Safran (= 2 þræðir) og prjónið stroff með 1 kantlykkju í hvorri hlið í 2 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

FRÁGANGUR:
Saumið vinstri axlasaum og upp meðfram kanti í hálsmáli. Saumið ermar í. Saumið erma- og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju.

Mynstur

Diagram for DROPS 77-21
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #tropicalseasweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 77-21

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (20)

country flag Sophie skrifaði:

Bonsoir, j'ai une petite question sur les diminutions des manches. Quand c'est noté "rabat de chaque côté tous les 2 rangs ... puis 2m jusqu'à 56cm de hauteur totale, puis une fois 3m" Ça veut dire que pour les dernières diminutions, on diminue plusieurs fois 2m de chaque côté tous les 2 rangs jusqu'à 56cm (selon ma taille) et une seule fois 3m de chaque côté ? La manche se terminerait avec très peu de mailles du coup, est-ce normal? Merci d'avance Sophie

03.04.2025 - 23:23

DROPS Design svaraði:

Bonjour Sophie, vous devez alors rabattre 2 mailles au début de chaque rang de chaque côté (sur l'endroit et sur l'envers pour que la tête de manche soit symétrique) jusqu'à ce que la manche mesure 56 cm de hauteur totale. Le nombre de fois va dépendre de votre tension/nombre de rangs en hauteur, ce qui compte ici, c'est plus la hauteur (14 cm de tête de manche) que le nombre de mailles restants. Rabattez ensuite 3 m de chaque côté et rabattez les mailles restantes. Bon tricot!

04.04.2025 - 08:56

country flag Christine Traen skrifaði:

Heel mooi duidelijk patroon. Bedankt. Grt

09.02.2025 - 20:54

country flag Sophie Thomas skrifaði:

Bonsoir, j'adore la version du pull présenté mais il manque des couleurs😪. Par quoi je peux remplacer le fil de coton viscose et le fils de couleur bleu glacier ? Merci d'avance

29.07.2024 - 23:02

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Thomas, utilisez notre convertisseur pour voir les alternatives à Cotton Viscose désormais épuisée, ainsi que les quantités correspondantes; votre magasin saura vous orienter dans le choix des couleurs si besoin. Bon tricot!

30.07.2024 - 08:40

country flag Małgorzata skrifaði:

Witam, czy można wykonać ten sweter podwójną nitką wełny Drops Alpaca?

15.12.2023 - 14:04

DROPS Design svaraði:

Witaj Małgosiu, można, tylko wykonaj próbkę i w razie jej niezgodności, dopasuj rozmiar drutów, aby ostatecznie próbka była zgodna z tą podaną we wzorze, czyli przerabiając podwójnym ryżem 15 o. (oczek) x 22 rzędy powinna wyjść próbka o wymiarach 10x10 cm. Pozdrawiamy!

18.12.2023 - 08:20

country flag Florence skrifaði:

La laine DROPS Coton Viscose n'étant plus disponible, est ce que je peux la remplacer par Drops brushed alpaca silk pour la tricoter avec la Drop Safran, sachant que ces 2 laines ne sont pas dans la même catégorie de fils (A et C au lieu de A et A). Si oui pouvez vous m'aider pour commander les bonnes quantités (L) ? Merci d'avance

28.06.2022 - 21:41

DROPS Design svaraði:

Bonjour Florence, DROPS Cotton Viscose appartenait au groupe A de nos fils à tricoter, utilisez notre convertisseur pour voir les alternatives possibles et la quantité correspondante (Brushed Alpaca Silk appartient au groupe C et ne peut ainsi pas remplacer 1 fil du groupe A). Mais si vous souhaitez une laine "poilue", la Kid-Silk peut être alors une alternative. Votre magasin saura vous conseiller les meilleures alternatives en fonction de ce que vous souhaitez. Bon tricot!

29.06.2022 - 09:15

country flag Eugenia Lopez skrifaði:

Hola, buen día . Con qué lana puedo reemplazar cotton viscose que tenga brillo ? Y cuántos gr de Paris o Allaska ? TIA

30.05.2022 - 13:11

DROPS Design svaraði:

Hola Eugenia, ahora mismo el único hilo que tiene brillo y podría sustituir este hilo es Baby Alpaca Silk, que es del mismo grupo de lanas, de la que necesitarías la misma o hasta un ovillo menos que de Cotton Viscose, si trabajas con DROPS Safran. Por otro lado, si quieres trabajar con un solo hilo puedes usar Paris o Alaska; necesitarías unos 9 ovillos de cualquiera de ellos para la talla más pequeña. Puedes leer la siguiente lección sobre cómo cambiar a otro hilo a continuación: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=14&cid=23

31.05.2022 - 17:07

country flag Sonja Stephan skrifaði:

Hallo ich würde gerne diesen Pullover stricken, da es das Garn cotton Viskose nicht mehr gibt, welches Garn kann ich stattdessen dazunehmen. Freue mich über eine Antwort. LG.Sonja

30.03.2022 - 13:40

DROPS Design svaraði:

Liebe Sonja, benutzen Sie unseren Garnumrechner, um die unterschiedlichen Möglichkeiten - sowie die neue passende Garnmenge zu finden. Gerne kann Ihnen Ihr DROPS Laden damit -auch telefonisch oder per E-Mail- helfen, die beste passende Alternative zu finden. Viel Spaß beim stricken!

30.03.2022 - 14:13

country flag Eeva skrifaði:

Hei, vaihdoin langat muuntolaskimenne avulla Alpacaan ja Baby alpaca silkiin., mutta neuletoheys ei täsmää minulla. 15s ja 22 krs numero 6:n puikoilla on 7,5 cm leveä ja 10 cm korkea. Jos vaihdan isompiin puikkoihin, neuleesta tulee liian korkea. Mikä avuksi? Kiitos!

06.01.2022 - 10:40

DROPS Design svaraði:

Hei, voit vaihtaa isompiin puikkoihin. Tämä pusero neulotaan alhaalta ylös, joten neuletiheyden ei välttämättä tarvitse täsmätä korkeudeltaan, kunhan se on leveydeltään oikein.

09.03.2022 - 17:01

country flag Margareta Westling skrifaði:

Vilket garn kan jag ersätta cotton viscose med, ett garn som har lika fin lyster och vilken färg passar ihop med drops Safran.Hittar inget lämpligt garn.

19.11.2021 - 17:43

DROPS Design svaraði:

Hei Margaretha. DROPS Cotton Viscose tilhørte garngruppe A (tynt garn), men var et tykt garn i den garngruppen med sine 110 meter på 50 gram. Du kan erstatte DROPS Cotton Viscose med DROPS Safran (50 gram = 167 meter), men du får ikke "glansen" som er i viskosen. Fargen i Cotton Viscose som er brukt i denne genseren er natur og da kan du bruke farge nr. 18, naturhvit i Safran. Bruk vår Garnkalkulator (link til høyre eller under bildet på oppskriften) for å finne ut hvor mye garn du trenger i den str. du skal strikke. Og husk å overholde strikkefastheten som er oppgitt i oppskriften. mvh DROPS Design

23.11.2021 - 09:00

country flag Mary-Ann Nikkel-boelen skrifaði:

Er staat bij de uitleg van de dubbele gerstekorrel (op een even aantal steken) maar in het patroon staat voor maat M 77 steken opzetten. Een oneven aantal dus. Dat begrijp ik niet goed. Ook gaat er bij het meerderen iets fout, dan verdwijnt mijn gerstekorrel en krijg ik 4 rijen tricotages. Kun je dat eens uitleggen?

23.03.2021 - 17:17

DROPS Design svaraði:

Dag Mary-Ann,

Het staat inderdaad wat ongelukkig omschreven, maar het gaat erom dat je (aan de goede kant gezien) averecht boven recht breit en recht boven averecht. Dat kan dus ook over een oneven aantal steken. Bij het minderen wordt het gerstekorrelpatroon tijdelijk onderbroken tot de volgende mindering. Daar is helaas niets aan te doen.

26.03.2021 - 16:09