DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Alpaca yarn
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2970.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425
DROPS Extra 0-685
Tillaga á nafni
DROPS Design: Mynstur nr Z-533
Garnflokkur A
--------------------------------------------------------

GARN:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50 gr litur nr 0403, millibrúnn
50 gr litur nr 0100, natur
50 gr litur nr 6205, ljós blár
Afgangur af litnum svartur fyrir augu og munn.

Vatt til fyllingar.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 2,5.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2970.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Fyrsta fastalykkja í hverri umferð er skipt út fyrir 1 loftlykkju og hver umferð endar með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar. Snúið er við eftir hverja umferð með 1 loftlykkju.

2 FASTALYKKJUR HEKLAÐAR SAMAN:
Fækkið um 1 fastalykkju þannig: Stingið heklunálinni í fastalykkju og sækið þráðinn, stingið heklunálinni niður í næstu fastalykkju og sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

BÓKAMERKI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fyrst er höfuðið heklað, síðan er haldið áfram niður búkinn. Síðan eru hendur, fætur, eyru og nef heklað. Ef ekki stendur annað þá er allt heklað með 1 þræði og heklunál 2,5.

HÖFUÐ:
Heklið 4 loftlykkjur með litnum millibrúnn DROPS Alpaca og tengið í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju.
UMFERÐ 1: 8 fastalykkjur um loftlykkjuhringinn – lesið HEKLLEIÐBEININGAR!
UMFERÐ 2: 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 16 fastalykkjur.
UMFERÐ 3: * 1 fastalykkja í fyrstu fastalykkju, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* = 24 fastalykkjur.
UMFERÐ 4: * 1 fastalykkja í hvora af fyrstu 2 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* = 32 fastalykkjur.
Síðan eru heklaðar 8 umferðir með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju.
UMFERÐ 13: * 2 fastalykkjur, heklið 2 fastalykkjur saman – sjá 2 FASTALYKKJUR HEKLAÐAR SAMAN að ofan *, endurtakið frá *-* = 24 fastalykkjur.
UMFERÐ 14: * 1 fastalykkja, heklið 2 fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* = 16 fastalykkjur.
UMFERÐ 15: * Heklið allar fastalykkjur 2 og 2 saman = 8 fastalykkjur.
Setjið smá vatt inn í höfuðið, heklið síðan opið saman í neðri kanti með því að hekla 4 fastalykkjur í gegnum bæði lögin – ekki klippa þráðinn heldur haldið áfram með búkinn.

BÚKUR:
Stykkið er heklað fram og til baka.
Heklið áfram með litnum millibrúnn. Fyrst er hekluð 1 umferð með 2 fastalykkjum í hverja fastalykkju = 8 fastalykkjur.
Síðan er heklað til skiptis 2 fastalykkjur í 1 fastalykkju og 1 fastalykkja í 1 fastalykkju = 12 fastalykkjur.
Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju þar til búkurinn mælist 4 cm. Síðan eru heklaðar rendur þannig: * 2 umferðir með litnum ljós blár, 2 umferðir með litnum natur *, endurtakið frá *-* þar til búkurinn mælist alls 22 cm, klippið frá og festið þræði.

AXLABÖND:
Heklið í gegnum búkinn með litnum ljósblár frá þar sem rendurnar byrja og upp að öxlum. 1 loftlykkjuband ca ½ cm inn frá kanti í hvorri hlið.

HANDLEGGUR:
Heklið 4 fastalykkjur með litnum millibrúnn efst meðfram annarri hlið á búk, síðan eru heklaðar 4 fastalykkjur aftan við þær = alls 8 fastalykkjur. Haldið áfram að hekla hringinn með 1 fastalykkju í hverja lykkju þar til handleggurinn mælist 6 cm – ekki klippa þráðinn heldur haldið áfram með höndina.

HÖND:
Heklið 1 umferð með 2 fastalykkjur í hverja lykkju = 16 fastalykkjur. Síðan eru heklaðar 3 umferðir í hverja lykkju, síðan er hekluð 1 umferð þar sem allar fastalykkjur eru heklaðar saman 2 og 2. Klippið þráðinn. Setjið smá vatt í höndina, þræðið þráðarendann í kringum opið og herðið að.
Heklið annan handlegg + hönd á sama hátt í hina hliðina á búknum.

FÓTUR:
Heklið 4 loftlykkjur með litnum millibrúnn og tengið í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju.
UMFERÐ 1: 6 fastalykkjur um loftlykkjuhringinn.
UMFERÐ 2: 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 12 fastalykkjur.
Haldið áfram að hekla hringinn með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju þar til fóturinn mælist ca 3 cm. Klippið þráðinn, setjið smá vatt í fótinn, þræðið þráðarendann í kringum opið og herðið að.
Heklið annan fót á sama hátt. Saumið fæturna neðst á búkinn þannig að það sé ca 1 cm bil á milli fóta og að fæturnir vísa út í sitt hvora áttina.

NEF:
Heklið 4 loftlykkjur með litnum millibrúnn og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju.
UMFERÐ 1: 4 fastalykkjur um loftlykkjuhringinn.
UMFERÐ 2: 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 8 fastalykkjur.
Heklið síðan 2 umferðir með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju.
Klippið þráðinn, setjið smá vatt í nefið og saumið niður fyrir miðju á andliti.

EYRA:
Heklið 6 loftlykkjur með 2 ÞRÁÐUM í litnum millibrúnn með heklunál 2,5. Síðan er heklaður 1 tvíbrugðinn stuðull í aðra loftlykkjuna sem var hekluð og 1 tvíbrugðinn stuðull í fyrstu loftlykkju sem var hekluð, klippið þræðina.
Heklið 2 alveg eins eyru og saumið eyrun niður á höfuðið á bangsanum – saumið í síðasta tvíbrugðna stuðulinn sem var heklaður þannig að loftlykkju umferð komi efst á eyranu.

ANDLIT:
Saumið út augu og munn með litnum svartur.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-685

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (6)

country flag Irena skrifaði:

Jak wykonuje się łańcuszek w tułów? Nie jest podane w opisie, a nie widzę w pomocniczych video.

10.12.2024 - 20:49

DROPS Design svaraði:

Witaj Ireno, za pomocą szydełka przeciągasz pętelkę na prawą stronę robótki (wbijasz szydełko od prawej do lewej strony robótki). Wkładasz szydełko w pętelkę, wbijasz szydełko w robótkę np. 1 oczko dalej (to zależy jak długie mają być oczka łańcuszka) i za pomocą szydełka przeciągasz nitkę z lewej strony na prawą, a następnie przeciągasz tą samą nitkę przez pętelkę, które masz na szydełku. Powstaje 1 oczko łańcuszka. Itd. Pozdrawiamy!

11.12.2024 - 08:38

country flag Birgit Thurison skrifaði:

Hvordan skal det forstås at hækle på bagsiden af de 4 masker til armene, jeg forstår altså ikke hvordan det skal gøres

03.01.2023 - 23:28

DROPS Design svaraði:

Hei Birgit Du har heklet 4 fastmasker øverst langs den ene siden av kroppen, vri/snu arbeidet og hekle 4 fastmasker i baksiden, f.eks rundt de 4 fastmaskene du først heklet (men ikke i øverste del av fastmasken). Når du har heklet disse 4 fastmaskene vil du se at du har 8 fastmasker som danner en oval sirkel. Det er i disse 8 fastmaskene du nå skal hekle rundt i. mvh DROPS Design

06.01.2023 - 09:48

country flag Nanna skrifaði:

Hvordan hækler man på bagsiden af fastmasker? Skal det forstås som bagerste maskeled eller vender man med en luftmaske? Jeg har nemlig prøvet adskillige gange at hækle en arm nu, men kan ikke rigtig få det til at fungere.

16.04.2021 - 23:41

DROPS Design svaraði:

Hej Nanna, når du hækler på bagsiden af de 4 fastmasker, så får du ialt 8 fm som du kan hækle rundt :)

19.04.2021 - 15:20

country flag Carina Nycander skrifaði:

Hej, jag är nyfiken på fler modeller av virkade bokmärken. Finns det en möjlighet att få fler mönster? Varma hälsningar

28.01.2019 - 09:36

country flag Anikjl skrifaði:

Bonjour j’aimerais faire de beau marque page mais au debut sa dit de faire 1 chainette de 4 ml mais j’aimerais mieux faire l anneau magique directement est de que c est possible??? Merci mm drop ms pour votre aide et tbon mardi à vous!!!

04.09.2018 - 14:35

country flag Loredana skrifaði:

Realizzato, in cotone, sono riuscita a riprodurlo esattamente com'è grazie alle istruzioni chiarissime.

22.07.2013 - 15:05