Margriet skrifaði:
Is het mogelijk om deze handschoenen met magic loop te breien?
28.10.2023 - 11:54DROPS Design svaraði:
Dag Margriet,
Jazeker, dat kan altijd. Kijk even wat het handigst voor je is; met magic loop en rondbreinaald of met sokkenbreinaalden.
30.10.2023 - 20:45
Ane Mare skrifaði:
Hei. Skal man strikke med 4 pinner eller rundpinne?
14.08.2023 - 20:27DROPS Design svaraði:
Hei Ane Mare, Du strikke med 5 strømpepinner, med maskene fordelt på 4 pinner og strikker med den 5. God fornøyelse!
15.08.2023 - 06:46
Lilisn skrifaði:
Would love to make these gloves ,have never made these kind with fingers could be challenging have avoided them all this time.
05.12.2022 - 06:14
Coraline skrifaði:
Bonjour , à cette étape :À 7 cm de hauteur totale, glisser en attente sur un arrêt de mailles les 13 m du pouce. Mon début de rang est au milieu de ces 13 mailles comment est ce que je peux les mettre en attente sans tricoter plus d’un côté ? ? Je coupe le fil et je reprend le rang à neuf directement en montant une maille et je fais les 51 mailles de la main? Merci beaucoup
24.04.2020 - 15:03DROPS Design svaraði:
Bonjour Coraline, vous glissez les 13 premières mailles du tour (= les 6 augmentations, la 1ère m du tour (= le carré noir) et les 6 augmentations) en attente sur un fil, vous montez 1 maille sur votre aiguille droite (= c'est la 1ère maille du tour désormais et continuez en rond. Cette vidéo montre comment procéder pour tricoter le pouce d'une moufle (= gant, mitaine, etc.). Bon tricot!
24.04.2020 - 15:44
Maryann Stearns skrifaði:
Thank you so much for this lovely pattern! I enjoyed making these gloves and the pattern was very well written and concise. I noticed a small error that I thought you'd like to know about; this should be changed to::: RIGHT GLOVE: Like left glove, but mirrored - work M.5 instead of M.4. Thanks again!! You're hard work is much appreciated.
17.03.2013 - 18:28
DROPS skrifaði:
Da er det rettet på.
14.12.2010 - 09:31
Line skrifaði:
Liten feil i oppskriften :)står at man skal legge opp 56 masker, så strikke i 12 cm, så står det at man skal ta av sju masker,så blir det igjen 51 masker.. men tar du av sju masker blir det 49 masker igjen :) men så det skal stå at man skal ta av 5 masker :)
12.12.2010 - 18:40
Oh Deer Gloves!#ohdeergloves |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónaðir fingravettlingar með hreindýrum úr DROPS Fabel og DROPS Alpaca.
DROPS 122-14 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.4 og M.5 – Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- FINGRAVETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. VINSTRI FINGRAVETTLINGUR: Fitjið upp 56 l á sokkaprjóna nr 2,5 með Alpaca. Prjónið 1 umf slétt, haldið áfram með stroff = 2 l sl/2 l br. Þegar stykkið mælist 12 cm er skipt yfir í Fabel. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið 1 umf slétt jafnframt eru fækkað um 5 l jafnt yfir = 51 l. Haldið áfram með M.4 – þegar prjónað hefur verið upp að svarta ferningnum þá byrjar útaukning fyrir þumalfingur beggja vegna við þessa l – aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn í báðum hliðum. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri). Endurtakið útaukningu í 3. hverri umf (það eiga nú að vera 2 l fleiri á milli uppslátta á undar hverri útaukningu) alls 6 sinnum – allar útauknar lykkjur eru prjónaðar með litnum natur = 63 l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 7 cm eru settar 13 þumallykkjur á þráð. Í næstu umf er fitjuð upp ein ný lykkja fyrir aftan þumallykkjurnar = 51 l. Prjónið síðan þar til M.4 er lokið – stykkið mælist nú ca 10 cm. Setjið fyrstu 20 lykkjur á þráð (= ofan á hönd), haldið eftir næstu 12 lykkjum á prjóni og setjið síðustu 19 lykkjur á þráð (= innan í hönd). LITLIFINGUR: = 12 l. Fitjið að auki upp 2 nýjar l við hönd = 14 l. Prjónið í hring í sléttprjóni með litnum natur í 6 cm og prjónið síðan saman allar l sléttar tvær og tvær. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær 7 lykkjur sem eftir eru, herðið að. HÖND: Setjið til baka l af þræði á prjóninn og takið að auki upp 3 l við litlafingur = 42 l. Prjónið 2 umf sléttprjón með litnum natur. Haldið eftir 3 l sem teknar voru upp við litafingur + 6 l ofan á hönd og 6 l innan í hönd á prjóninum. Setjið til baka þær 27 lykkjur sem eftir eru á þráðinn. BAUGFINGUR: = 15 l. Fitjið að auki upp eina nýja l við l af þræði = 16 l. Prjónið hringinn í sléttprjóni með litnum natur í 7,5 cm og prjónið síðan saman allar l tvær og tvær. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær 8 lykkjur sem eftir eru, herðið að. LANGATÖNG: Setjið til baka 6 l af þræði frá ofan á hönd og 6 l af þræði frá innan í hönd á prjóninn. Prjónið að auki upp 3 l við baugfingur og fitjið upp eina nýja l við þráðinn = 16 l. Prjónið hringinn í sléttprjóni með litnum natur í 8 cm og prjónið síðan saman allar l tvær og tvær. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær 8 lykkjur sem eftir eru, herðið að. VÍSIFINGUR: Setjið til baka þær 15 l sem eftir eru af þræði á prjóninn. Takið að auki upp 3 l við löngutöng = 18 l. Prjónið hringinn í sléttprjóni með litnum natur í 7 cm og prjónið síðan saman allar l tvær og tvær. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær 9 lykkjur sem eftir eru, herðið að. ÞUMALFINGUR: Setjið 13 l af þræði yfir op fyrir þumalfingur á prjóninn og prjónið að auki upp 5 l í kanti á bakhlið á þumallykkjum = 18 l. Prjónið hringinn í sléttprjóni með litnum natur í 6 cm og prjónið síðan saman allar l slétt tvær og tvær. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær 9 lykkjur sem eftir eru, herðið að. HÆGRI FINGRAVETTLINGUR: Prjónið á sama hátt og vinstri fingravettlingur, nema gagnstætt og í stað fyrir M.4 er prjónað mynstur M.5. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #ohdeergloves eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 15 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 122-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.