Brugere skrifaði:
SVP pouvez-vous me dire que veut dire pour les diminutions de la pointe ( 1 maille + ) je ne comprends pas les explications. Merci. Cordialement
01.12.2024 - 19:48
Belinda skrifaði:
De stekenverhouding vind ik persoonlijk te los voor een sok. Het gaat daardoor te snel flubberen. Mijn advies is om een kleinere naald nr. 3 te nemen en het patroon hierop aan te passen.
16.02.2018 - 09:07
Helena skrifaði:
Oben rechts werden die Kosten für zwei Paar Socken angezeigt, anstatt nur für eines. Ist nur ein Hinweis - nicht, dass sich jemand von dem hohen Preis abgeschreckt fühlt. ;-)
11.06.2017 - 21:07DROPS Design svaraði:
Liebe Helena, Danke für den Hinweis, Garnbedarf wurde angepasst. Viel Spaß beim stricken!
12.06.2017 - 10:18
Isabelle skrifaði:
Bij het laatste deel van het patroon kom ik niet helemaal uit als ik de aanwijzingen volg. Er staat: 'Minder aan iedere kant om de nld in totaal 5-5-6 keer en dan elke nld 2-2-2 keer = 10-12-12 st over op de nld.' Ik volg het patroon voor maat 38/40, maar ik kom op 20 st uit die ik over hou als ik 5x2x2 minder (5 rijen met 4x minderen per toer geeft 40-20 st over). Doe ik nu iets fout of is dit een fout in het patroon?
26.03.2016 - 13:33DROPS Design svaraði:
Hoi Isabelle. Je mindert 4 st per keer (aan beide kanten van beide merkdraden). Dit herhaal je eerst 5 keer (- 20 st) en vervolgens nog 2 keer (- 8 st) = 12 st over.
07.04.2016 - 16:09
Jasmin Moehrke skrifaði:
Hallo Ich mache die Socken in Größe 41/43, 54 Maschen wo ich bei 8 und 13 cm jeweils 2 Maschen abnehmen soll. Also hätte ich 50 Maschen die Anleitung sagt aber 48. verstehe ich was falsch oder ist da ein Fehler. Danke für die Hilfe Jasmin
22.11.2015 - 15:59DROPS Design svaraði:
Hier hat sich tatsächlich ein Fehler eingeschlichen - die dritte cm-Angabe fehlte. Sie nehmen bei 18 cm nochmals 2 M ab. Das wird umgehend ergänzt. Viel Spaß beim Weiterstricken!
24.11.2015 - 22:30
Autumn Steps#autumnstepssocks |
|
|
|
Prjónaðir sokkar í sléttprjóni með stroffi úr 2 þráðum DROPS Delight. Stærð 35-43.
DROPS 122-23 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LITASAMSETNING: Sokkarnir eru annað hvort með 1 þræði í litnum ólífa/ryð/plóma og 1 þræði í litnum fjólublár/grænn eða með 1 þræði í litnum bleikur/fjólublár og 1 þræði í litnum beige/blár. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 5-6-6 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju af prjóni, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 5-6-6 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju af prjóni, 1 lykkja brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 4-5-5 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju af prjóni, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 4-5-5 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju af prjóni, 1 lykkja brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því það fækkar um 1 lykkju áður en 1 lykkju er steypt yfir þar til 10-10-12 lykkjur eru eftir á prjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður að tá. SOKKUR: Fitjið upp 42-48-54 l á sokkaprjóna nr 4 með 2 þráðum Delight – lesið LITASAMSETNING! Prjónið 2 umf slétt. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með stroff 4 l sl/2 l br þar til stykkið mælist 6 cm. Setjið eitt prjónamerki í 1. l í byrjun umf (= miðja að aftan). Haldið áfram í sléttprjóni. Fækkið l mismunandi eftir stærðum þannig: Stærð 35/37: Prjónið áfram án úrtöku. Stærð 38/40: Þegar stykkið mælist 9 og 16 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við l með prjónamerki. Stærð 41/43: Þegar stykkið mælist 8, 13 og 18 cm fækkið um 1 l hvoru megin við l með prjónamerki = 42-44-48 l. Prjónið þar til stykkið mælist 24-25-26 cm. Haldið eftir fyrstu 9-10-11 l á prjóni, setjið næstu 24-24-26 l á þráð (= ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 9-10-11 l á prjóni = 18-20-22 l fyrir hæl. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hæl-l í 5-5½-6 cm. Setjið eitt prjónamerki, héðan er nú mælt. Fækkið nú lykkjum fyrir hæl – sjá HÆLÚRTAKA! Eftir hælúrtöku eru prjónaðar upp 10-11-11 l hvoru megin við hæl og 24-24-26 l af þræði eru settar til baka á prjóninn = 54-56-60 l. Setjið eitt prjónamerki hvoru megin við 24-24-26 l af þræði. Prjónið sléttprjón jafnframt er lykkjum fækkað í hvorri hlið í annarri hverri umf alls 8-8-8 sinnum þannig: Prjónið 2 síðustu l á undan lykkjum ofan á fæti snúnar slétt saman (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri), fyrstu 2 l á eftir lykkjum ofan á fæti eru prjónaðar slétt saman = 38-40-44 l. Prjónið þar til stykkið mælist 18-20-22 cm frá prjónamerki (= 4-4-5 cm að loka máli). Setjið nú prjónamerki í hvora hlið þannig að það verða 19-20-22 l ofan á fæti og 19-20-22 l undir fæti. Fækkið nú lykkjum fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin. Fækkið lykkjum á undan 1 l sl og prjónamerki þannig: 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki og 1 l sl: 2 l snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum í hvorri hlið í annarri hverri umf alls 5-5-6 sinnum og síðan í hverri umf 2-2-2 sinnum = 10-12-12 l eftir á prjóni. Í næstu umf eru allar l prjónaðar saman 2 og 2. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #autumnstepssocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 15 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 122-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.