Hilma skrifaði:
Das Diagramm wird von unten gestrickt (wie immer)!
03.04.2013 - 10:34
Mara skrifaði:
Ich versuche es dann also so noch mal. Das Muster für das Küken steht auf dem Kopf, wäre schön, wenn das mal jemand ändern würde. Falls ich falsch liege, dann wäre eine Mitteilung ebenfalls nett. Lieben Gruß aus Berlin
03.04.2013 - 09:35DROPS Design svaraði:
Hallo Mara, ja wir dachten wegen Ihres zweiten Kommentars, dass Sie es selbst gemerkt haben: Man strickt die Socken ja von oben nach unten! Da das Muster immer von unten nach oben gelesen wird, muss das Bild auf dem Kopf stehen, damit es am Socken richtig erscheint.
03.04.2013 - 10:49Mara skrifaði:
Man strickt ja von oben nach unten!
13.03.2013 - 20:29
Mara skrifaði:
Wieso steht die Strickschrift für das Küken auf dem Kopf? Das müsste doch andersrum sein *überleg*
13.03.2013 - 18:54
Anna skrifaði:
Such cute socks! Thank you Drops!
03.03.2013 - 04:31
Drops Design skrifaði:
Nej, du strikker strømpen fra skaftet og ned mod foden. Og diagrammet starter i nederste højre hjørne (nøjagtig samme vej som du strikker skaftet). God fornøjelse!
21.06.2010 - 08:18
Bente Mahrt skrifaði:
Mønsteret er vendt på hovedet.
20.06.2010 - 15:08
Drops Design skrifaði:
Thank you Lori for bringing our attention to this, fixed now ;-)
17.03.2010 - 16:17
Lori skrifaði:
I don't see the diagrams that the pattern is referring to. Thanks.
17.03.2010 - 07:10
Pio Pio#piopiosocks |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónaðir sokkar með páskamynstri úr DROPS Karisma. Stærð 32 - 43. Þema: Páskar.
DROPS Extra 0-625 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 og M.2. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 8-8-8-10 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 8-8-8-10 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7-7-7-9 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7-7-7-9 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku á sama hátt með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 10-10-10-12 lykkjur eru eftir á prjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá. SOKKAR: Fitjið upp 52-56-56-64 lykkjur á sokkaprjóna 3 með litnum sinnepsgulur DROPS Karsima. Prjónið 1 umferð slétt, haldið áfram með stroff = 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt. Þegar stroffið mælist 4-5-5-6 cm prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT er fækkað um 4-8-8-4 lykkjur jafnt yfir = 48-48-48-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Haldið áfram með mynsturteikningu M.1 yfir allar lykkjur (= 4-4-4-5 sinnum). Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Þegar M.1 hefur verið prjónað til loka haldið eftir fyrstu 24-24-24-30 lykkjum á prjóni fyrir hæl og þær 24-24-24-30 lykkjur sem eru eftir eru settar á þráð (= ofan á fæti). Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur með litnum sinnepsgulur í 4½-5-5½-6 cm. Setjið síðan eitt merki mitt í hælinn. Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan! Eftir hælúrtöku eru teknar upp 10-11-12-13 lykkjur hvoru megin við hæl og þær 24-24-24-30 lykkjur af þræði eru settar til baka á prjóninn = 54-56-58-68 lykkjur. Setjið eitt merki hvoru megin við 24-24-24-30 lykkjur ofan á fæti. Haldið áfram að prjóna hringinn í sléttprjóni og M.2 JAFNFRAMT því sem lykkjum er fækkað í hvorri hlið þannig: Prjónið 2 fyrstu lykkjur á eftir 24-24-24-30 lykkjur ofan á fæti slétt saman og 2 síðustu lykkjur á undan 24-24-24-30 lykkjum ofan á fæti snúnar slétt saman (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls 5-4-5-8 sinnum = 44-48-48-52 lykkjur. Þegar sokkurinn mælist ca 15-18-20-22 cm frá merki á hæl (= ca 4-4-4-5 cm að loka máli) setjið eitt merki í hvora hlið þannig að það verða 22-24-24-26 lykkjur ofan á fæti og undir fæti. Í næstu umferð er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði merkin þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merki prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkið situr mitt á milli þessa 2 lykkja), 2 lykkjur snúnar slétt saman. Endurtakið þessa úrtöku í annarri hverri umferð alls 3-3-3-4 sinnum og síðan í hverri umferð alls 6-7-7-7 sinnum = 8 lykkjur eftir á prjóni. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Prjónið annan sokk á sama hátt. Saumið út eitt auga með litnum svartur í hvern páskaunga. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #piopiosocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-625
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.