Annie Ciesielski skrifaði:
Kan Merino uld vaskes i vaskemaskinen? Dette er til et lille barn
02.10.2018 - 08:07DROPS Design svaraði:
Hei Annie. Ja, Merino Extra Fine kan du vaske i maskin på 40 grader. Om du går inn på de forskjellige garnene her kan du se vaskeanvisningen for alle våre garn. God fornøyelse.
02.10.2018 - 12:02
Anne-Beate Dokken skrifaði:
Når jeg skal strikke hæl i 3cm, blir det da penest og lettere og plukke opp masker senere om jeg tar 1 maske på pinnen av uten og strikke den. Det er ikke så lett og få kanten fin der jeg senere skal plukke opp masker. Har du noen råd. Takk for hjelpen.
29.09.2016 - 12:55DROPS Design svaraði:
Hei Ann-Beate. Jeg tror det er lidt afhaengigt af hvad man selv kan lide - og gör bedst. Jeg tror du godt kan lade maskerne hvile, men det kan blive et problem om du skal have flere masker end du har ladet hvile. Jeg kan selv bedst lide at plukke maskerne op langs kanten.
13.10.2016 - 16:05
Nila skrifaði:
Denne sokken synes jeg sitter godt pa foten. Jeg strikket den kortere pa fotbladet enn det som stod I oppskriften for jeg syntest den ble for lang. Skal begynne pa par nr to.
20.11.2013 - 20:18
Karin skrifaði:
Varför är mönstret ej publicerat?
24.11.2008 - 02:24Simone skrifaði:
Je n'arrive pas a obtenir les expliquations des mis bas je desire les tricoter merci pour ce site merveilleux
16.11.2008 - 21:05
Jelena skrifaði:
Denne modellen er perfekt for små føtter
22.10.2008 - 22:39
Baby Dove Socks#babydovesocks |
|
|
|
Prjónaðir sokkar fyrir börn úr DROPS Merino Extra Fine
DROPS Baby 17-6 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HÆLÚRTAKA: Hælúrtaka er prjónuð í sléttprjóni þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 5-5-5 (6-6) lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 5-5-5 (6-6) lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 4-4-4 (5-5) lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 4-4-4 (5-5) lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku á sama hátt með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 7-9-9 (9-9) lykkjur eru eftir á prjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið lykkjum á undan prjónamerki: Prjónið 2 lykkjur saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. SOKKUR: Fitjið upp 30-30-36 (36-36) lykkjur á sokkaprjóna nr 3 með Merion Extra Fine. Prjónið stroff = 3 lykkjur slétt/3 lykkjur brugðið í 8-8-9 (9-10) cm. Prjónið nú 1 umferð sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 2-0-4 (2-0) lykkjur jafnt yfir = 28-30-32 (34-36) lykkjur. Prjónið nú 1 lykkju slétt og 1 lykkju brugðið. Haldið eftir fyrstu 15-17-17 (19-19) lykkjum á prjóni fyrir hæl og hinar 13-13-15 (15-17) lykkjur eru settar á þráð (= ofan á fæti). Prjónið nú sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur í 3-3½-4 (4-4½) cm – setjið eitt prjónamerki. Prjónið nú HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan! Prjónið nú upp 7-8-9 (9-10) lykkjur hvoru megin við hæl og lykkjur af þræði (ofan á fæti) eru settar til baka á prjóninn = 34-38-42 (42-46) lykkjur. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjum fækkað þannig: Þær 2 síðustu lykkjur á undan 13-13-15 (15-17) lykkum á fæti eru prjónaðar snúnar slétt saman (prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) og þær 2 fyrstu lykkjur á eftir 13-13-15 (15-17) lykkjum á fæti eru prjónaðar slétt saman. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls 4-6-6 (6-6) sinnum = 26-26-30 (30-34) lykkjur. Prjónið áfram þar til sokkurinn mælist ca 8-9-9½ (11½-12½) cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir ca 2-2-2½ (2½-3½) að loka máli). Setjið nú prjónamerki í hvora hlið, þ.e.a.s. þannig að það verða 13-13-15 (15-17) lykkjur bæði ofan á fæti og undir fæti. Fækkið lykkjum fyrir tá hvoru megin við prjónamerkin – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum í annarri hverri umferð 2-2-3 (3-5) sinnum og síðan í hverri umferð 3-3-3 (3-2) sinnum = 6 lykkjur eftir á prjóni. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Sokkurinn mælist ca 10-11-12 (14-16) cm. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #babydovesocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 12 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 17-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.